Fréttir - Eyjafréttir - 22.10.2014, Blaðsíða 2
°
°
2 Eyjafréttir / Miðvikudagur 22. október 2014
útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549.
ritstjóri: Gísli Valtýsson - gisli@eyjafrettir.is.
Blaðamenn: Ómar Garðarsson - omar@eyjafrettir.is,
Sæþór Þorbjarnarson. - sathor@eyjafrettir.is og
Júlíus G. Ingason, - julius@eyjafrettir.is.
ábyrgðarmaður: Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjasýn/ Eyjaprent.
ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn.
aðsetur ritstjórnar: Strandvegur 47,
Vestmannaeyjum.
Símar: 481 1300 og 481 3310.
netfang: frettir@eyjafrettir.is.
Veffang: www.eyjafrettir.is
eyjafrÉttir koma út alla miðvikudaga. Blaðið er selt
í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum,
Toppnum,Vöruval,Herjólfi,Flughafnarversluninni,
Krónunni, Kjarval og Skýlinu.
eyjafrÉttir eru prentaðar í 2000 eintökum.
eyjafrÉttir eru aðilar að Samtökum bæjar-
og héraðsfréttablaða.
eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og
annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
Eyjafréttir
Fyrirtækið Medilync í samstarf með Microsoft:
Gæðastimpill að
fá Microsoft í lið
með sér
Fyrirtækið Medilync, sem er
m.a. í eigu Eyjamannanna
Jóhanns Sigurðar Þórarinssonar
og Sigurjóns Lýðssonar, hefur
fengið boð um að starfa með
Microsoft í hönnun og úrvinnslu
tækis sem ætlað er fyrir
sykursjúka.
Sigurjón ætti að þekkja ágætlega til
hjá Microsoft enda hefur hann
unnið hjá Microsoft á Íslandi í níu
ár. „Ég hef samt sem áður aldrei
komið í höfuðstöðvarnar þannig að
það er tvöföld gleði fyrir mig, að
komast þangað og að fara með þetta
verkefni okkar þangað í frekari
vinnslu. Það gefur verkefninu líka
ákveðinn gæðastimpil að Microsoft
sýni þessu áhuga.“
En hvernig fréttu menn hjá
Microsoft af þessu hjá ykkur?
„Gamall vinnufélagi minn er að
vinna hjá Microsoft en hann er yfir
svokölluðu Developer experience
teymi. Ég sendi honum upplýsingar
um verkefnið og hópnum hans leist
mjög vel á þetta og vildi hjálpa
okkur. Við áttum fund með þeim
og útskýrðum betur hvað við erum
að gera. Í kjölfarið buðu þeir okkur
bara að koma til þeirra og vinna í
þessu með þeirra aðstoð. Microsoft
hefur líka hag að þessu því við
erum að nota tækni sem þeir hanna
og þannig geta þeir sýnt fram á að
sú tækni virki með okkar verkefni.
Við þurfum að geta tekið við
upplýsingum úr milljónum tækja ef
því er að skipta, þannig að það er
eins gott að tæknin virki.“ sagði
Sigurjón en þeir félagar verða í
höfuðstöðvum Microsoft um
miðjan janúar mánuð.
Eins og áður sagði fékk verkefnið
næst hæsta styrk Samtaka Sunn
lenskra sveitarfélaga, 3,5 milljón en
nú er beðið eftir svari frá Tækniþró
unarsjóði varðandi styrk. Fram að
þessu hafa þeir eingöngu sett eigið
fjármagn og tíma í verkefnið.
„Núna þegar Microsoft er komið að
verkefninu, verður mun auðveldara
að finna fjárfesta enda þekkja allir
Microsoft,“ sagði Sigurjón að
lokum.
Þremenningarnir Guðmundur, Sigurjón og Jónann Sigurður.
Safnahelgin í Vestmannaeyjum 30. október til 2. nóvember 2014:
Fjölbreytt dagskrá eins
og undanfarin ár
Dagana 25.26. október munu
fulltrúar Hjálparstarfs aðventista/
ADRA heimsækja bæjarbúa á
Vestmannaeyjum í árlegri söfnun
að þessu sinni til hjálpar fólki í
Mýanmar, áður þekkt sem Búrma.
Yfirskrift söfnunarinnar í ár er
„Skóli fyrir alla“ en Hjálparstarfið/
ADRA vinnur í Mýanmar að því að
þjálfa kennara og efla menntun
barna og fullorðinna.
Hjálparstarf aðventista/ADRA
(alþjóða þróunar og líknarstofnun
aðventista) veitir neyðar og
þróunaraðstoð án tillits til pólitískra
skoðana, trúarbragða eða kynþáttar
hvarvetna þar sem neyð steðjar að.
Hjartans þakkir fyrir að taka vel á
móti söfnunarfólki Hjálparstarfsins/
ADRA núna um helgina og einnig
innilegustu þakkir til þeirra mörgu
sem hafa lagt starfinu lið á
undangengnum árum.
Fréttatilkynning
Söfnun á
vegum
Hjálpar-
starfs að-
ventista -
ADRA
Tónlistar-
kennarar
í Eyjum í
verkfall
:: Unnið að
breytingum inn-
an Tónlistarskól-
anum
Félagsmenn í Félagi tónlistar-
skólakennara eru komnir í
verkfall, m.a. kennarar við
Tónlistarskólann í Vestmanna-
eyjum. Kennarar skólans hafa
jafnframt séð um kennslu í
Grunnskóla Vestmannaeyja og
því hefur verkfallið áhrif inn í
skólastarf grunnskólans.
„Þetta hefur áhrif á kennslustarfið
að því leytinu að á meðan verkfalli
stendur er engin tónlistarkennsla í
skólanum. Það er því ákveðin
röskun í skólastarfinu en allt sem
við gerum á meðan, er í góðu
samkomulagi við kennara Tónlistar
skólans. Við bíðum svo bara nánari
fyrirmæla um hvað við eigum að
gera,“ sagði Sigurlás Þorleifsson,
skólastjóri GRV.
„Tveir af kennurum Tónlistar
skólans eru í Félagi íslenskra
hljómlistarmanna og þeir eru ekki í
verkfalli. Að öðru leyti fellur öll
kennsla niður í skólanum,“ sagði
Stefán Sigurjónsson, skólastjóri
Tónlistarskólans.
Samkvæmt heimildum Eyjafrétta
er unnið að breytingum á skólastarf
inu, sem gætu haft áhrif á starfs
hlutfall kennara en Stefán vildi ekki
tjá sig um það að svo stöddu.
JúlíuS G. InGaSon
julius@eyjafrettir.is
Safnahelgin verður haldin
dagana 30. október til 2.
nóvember næskomandi.
Dagskrá Safnahelgarinnar er
fjölbreytt eins og svo oft áður.
Þessa daga verður boðið upp
tónlist, myndlist, upplestur, sem
og barna- og unglingadagskrá.
Þá verða stórtónleikar í Eld-
heimum með þeim Jóhanni
Sigurðarsyni leikara og söngvara
ásamt Pálma Sigurhjartarsyni
píanóleikara. Bæjarlistamaður-
inn Gíslína Dögg Bjarkadóttir
mun opna myndlistasýningu í
Safnahúsi, skyggnst verður undir
svörðinn í Herjólfsdal, boðið
upp á bókalestur, sögustund,
ratleik fyrir börn í Sagnheimum
og margt fleira.
Á Safnahelginni í ár er lögð sérstök
áherslu á dagskrá fyrir og með
börnum og unglingum.
Dagskráin byrjar strax á fimmtu
deginum með opnun myndlistarsýn
ingar Myndlistarfélags Vestmanna
eyja í Alþýðuhúsinu. Sýningin er
tileinkuð minningu Ása í Bæ. Í
Safnahúsinu verða á sama tíma
ljósmyndir Gísla Friðriks Johnsen
sýndar í samstarfi við börn Gísla
sem nýlega gáfu ljósmyndasafnið
hingað til Eyja.
Tónskemmtun í Eldheimum
Um kvöldið er svo dagskrá í
Eldheimum. Jóhann Sigurðarson
syngur lög úr söngleikjum við
undirleik Pálma Sigurhjartarsonar
píanóleikara. Jóhann og Pálmi hafa
spilað saman um langt skeið, komið
víða fram bæði í leikhúsi og við
ýmiskonar skemmtanir. Dagskráin
sem þeir flytja að þessu sinni kalla
þeir Lögin úr leikhúsinu, blanda af
íslenskum og erlendum leikhús
lögum við texta eftir íslenska
höfunda. Meðal annars verða flutt
lög úr Fiðlaranum á þakinu,
Vesalingunum, Carusell, úr revíum,
og skemmtidagskrám, gamanmál,
og eftirhermur fylgja með.
Dagskráin hefst á tónleikum
gítarsveitar Tónlistarskóla Vest
mannaeyja undir stjórn Eyvindar
Inga Steinarssonar.
Formleg opnun Safnahelgarinnar
verður að vanda í Stafkirkjunni á
föstudeginum.
Fjölbreytt dagskrá verður á
laugardeginum í Safnahúsinu.
Illugi Jökulsson spjallar um og les
úr knattspyrnubókum sínum. Gísli
Pálsson og Kristín Marja Baldurs
dóttir lesa út nýjum verkum sínum.
Bæjarlistamaður Vestmannaeyja
2014, Gíslína Dögg Bjarkadóttir,
sýnir í framhaldinu skyssur sínar
sem eru kynning á stærri sýningu
tileinkaðri bók Kristínar Marju
„Karítas án titils.“ Í Sagnheimum
verða kynntar niðurstöður jarð
sjárrannsókna í Herjólfsdal. Um
kvöldið leikur hið eina sanna
húsband á Vinaminni.
Í Sæheimum verður sýningin
„Blóm á Heimaey“ opin laugardag
og sunnudag.
Dagskránni lýkur á sunnudeginum
í Sagnheimum með sögustund,
ratleikjum og teiknimyndasam
keppni.
Pálmi Sigurhjartarson og Jóhann Sigurðarson koma fram á tónleikum
í Eldheimum á morgun, fimmtudag.