Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 22.10.2014, Blaðsíða 1

Fréttir - Eyjafréttir - 22.10.2014, Blaðsíða 1
° ° Vestmannaeyjum 22. október 2014 :: 41. árg. :: 43. tbl. :: Verð kr. 400 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is M yn d: Ó sk ar P ét ur F ri ðr ik ss on Bleikur og grænn dagur Saga SjúkrahúSa og lækna í eyjum >> 8 ný ferja tilBúin í árSlok 2016? >> 6 >> 14 Rauði Kross Íslands stóð fyrir fyrstu landsæfingunni sem haldin er í heiminum á sunnudaginn þegar fólki var boðið í kjötsúpu á fjöldarhjálparstöðvum hringinn í kringum Ísland. Fjöldahjálparstöðin í Vestmannaeyjum er í Barnaskólanum en þangað komu um 100 manns og þáðu dýrindis súpu og fengu um leið fræðslu um fjöldahjálparstöðina og Rauða krossinn. Á myndinni hér að ofan er hluti hóps sjálfboðaliða Vestmannaeyjadeildar Rauða krossins. Eyjapeyjar með verkefni til Microsoft :: Vinna að insúlíntækinu Insulync og hugbúnaðinum Cloudlync sem geymir allar upplýsingar um lyfjagjöf :: Ekkert annað fyrirtæki á Íslandi fengið álíka boð um samvinnu við Microsoft Eyjapeyjarnir Sigurjón Lýðsson og Jóhann Sigurður Þórarinsson, ásamt Skagfirðingnum Guð- mundi Jóni Halldórssyni, hafa undanfarin misseri unnið að hönnun tækis, Insulync sem er ætlað að halda upplýsingum um lyfjagjöf sykursjúkra, sem verður haldið saman á miðlægu safni, Cloudlync. Fyrirtæki þeirra, Medilync fékk á dögunum næst hæsta styrk sem Samtök Sunn- lenskra sveitarfélaga veitti en rósin í hnappagatið kom á dögunum þegar tölvurisinn Microsoft bauð þeim að koma til þeirra til að vinna að Insulync og Cloudlync. Sigurjón segir í samtali við Eyja­ fréttir að þetta sé mikil og góð viðurkenning fyrir verkefnið. „Ég veit ekki til þess að nokkurt annað íslenskt fyrirtæki hafi fengið svona boð áður, hvað þá fyrirtæki úr Eyjum. Tækið er í smíðum og svo verður ferðin notuð til að tryggja ákveðin gæði þegar kemur að hugbúnaðarhlutanum. Tækið er fyrir sykursjúka, þannig að það mælir blóðsykur og gefur insúlín. Tækið geymir svo upplýsingar um inngjöf insulíns og blóðsykurmælingar sem síðan eru sendar í miðlæga gagna­ geymslu í skýinu (e. Cloud storage). Notandinn getur svo nálgast sín gögn í gegnum vafra eða þar til gert app. Einnig getur notandinn gefið öðrum aðgang að sínum gögnum s.s aðstandanda eða lækni.“ Hugmyndin kviknaði fyrir þremur árum en faðir Sigurjóns, Lýður Ægis­ son er sykursjúkur. Auk þess var hann í krabbameinsmeðferð og átti í erfiðleikum með að fylgjast með insúlín notkuninni í meðferðinni. Í kjölfarið fór Sigurjón að leita að hentugu tæki sem gæti hentað föður hans en hann fann ekkert. Sigurjón ákvað því að búa til svona tæki sjálfur. Síðan eru liðin þrjú ár og árangurinn í raun ótrúlegur. „Mestur tími hefur farið í rannsóknarvinnu en þetta er fyrsta árið núna sem við vinnum markvisst að tæknilegri útfærslu, þannig að í lok árs 2015 verðum við komnir langt með virka frumgerð af tæki og hugbúnaði.“ >> Nánar á síðu 2. JúlíuS G. InGaSon julius@eyjafrettir.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.