Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 22.10.2014, Blaðsíða 14

Fréttir - Eyjafréttir - 22.10.2014, Blaðsíða 14
° °14 Eyjafréttir / Miðvikudagur 22. október 2014 Í síðustu viku var haldin vinavika í Grunnskóla Vestmannaeyja. Vinavikan náði svo hápunkti síðastliðinn miðvikudag þegar græni vinadagurinn var haldinn í skólanum. Þá heimsóttu eldri nemendur skólans þá yngri og áttu skemmtilega stund með þeim. Nemendur og starfsfólk gekk svo fylktu liði frá skóla- byggingunum tveimur, Hamars- skóla og Barnaskóla undir öruggri forystu trommuleikara. Á Stakkó komu hoparnir svo saman og sungu nokkur lög en forsöngvari var tónlistakennar- inn og söngfuglinn Jarl Sigur- geirsson. Vina- dagurinn græni í GRV Trommarasveit fór fyrir skrúðgöngu frá skólunum á Stakkó Eyjamenn fjölmenntu í miðbæinn á bleika daginn á fimmtudag og gerðu sér glaðan dag og góð kaup. Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, tekur út ísinn á Joy.Einsi Kaldi bauð upp á bleikan drykk til styrktar Krabbavörn. Erla í Eymundsson kenndi gestum og gangandi rússneskt hekl. Systurnar í Klöpp kíktu á úrvalið hjá Rakeli í 66° norður. Axel Ó bauð fjölmörg tilboð. Sigurlás Þorleifsson, skólastjóri. Það var margt um manninn á Stakkagerðistúni þegar allir nemendur GRV höfðu safnast þar saman. Yngstu nemendurnir tóku lagið. Októbermánuður er bleikur mánuður en í mánuðinum er í gangi árveknis- og fjáröflunará- tak Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameini í konum. Kaupmenn og veitingamenn í Eyjum sameinuðust síðastliðið fimmtudagskvöld, á Bleika daginn, um að hafa verslanir og veitingahús opin fram á kvöld þar sem boðið var upp á sérstök tilboð og um leið var fé safnað til styrktar Krabbavarnar í Vest- mannaeyjum. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyja- frétta rölti um miðbæinn og myndaði það sem fyrir augu bar og var ekki að sjá annað en að stemmningin í miðbænum hafi verið góð. Miðbærinn bleikur í síðustu viku

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.