Fréttir - Eyjafréttir - 16.03.2016, Blaðsíða 1
Vestmannaeyjum 16. mars 2016 :: 43. árg. :: 11. tbl. :: Verð kr. 490 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is
Eyjafréttir
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Háskólinn í Reykjavík hefur opnað
fyrir umsóknir í háskólanám í
haftengdri nýsköpun sem hefst næsta
haust í Vestmannaeyjum þar sem
kennt verður. Námið er skipulagt í
samstarfi við Háskólann á Akureyri,
er þrjár annir og veitir diplómagráðu
í haftengdri nýsköpun. Útskrifaðir
nemendur munu einnig geta nýtt
einingar í áframhaldandi nám við
Háskólann í Reykjavík og Háskólann
á Akureyri. Fyrstur til að skrá sig var
Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem
betur er þekktur fyrir snilldartakta á
fótboltavellinum. Byrjaði hjá ÍBV og
er kominn til baka eftir 11 ára
atvinnumennsku í Svíþjóð, Þýska-
landi, Noregi, Danmörku, Englandi
og Tyrklandi.
Gunnar Heiðar, sem verður 34 ára
þann fyrsta apríl nk. sér mikla
möguleika í náminu og segir það
sniðið að sínum hugmyndum. „Ekki
síst þar sem við fjölskyldan erum
komin til Vestmannaeyja.
Þetta er mjög jákvætt og
mér sýnist að námið
passi mér mjög vel. Ekki
síst þar sem það er í
nánu samstarfi við þessi
glæsilegu fyrirtæki hér í
Eyjum,“ segir Gunnar
Heiðar.
„Vonandi er þetta bara
byrjunin á háskólanámi í
Eyjum og að við sjáum
fleiri atvinnutækifæri
verða til. Það er
nauðsynlegt fyrir Vestmannaeyjar,
bæði til að halda í unga fólkið og fá
fleiri til að flytja hingað. Það er búið
að gerjast í mér lengi að fara í nám
og þetta tækifæri er of gott til að
sleppa því. Námið er ekki bara
bóklegt, heldur eigum við að vinna
einhver verkefni fyrir fyrirtæki hérna
í Eyjum. Það finnst mér skemmti-
legra en að vera á kafi í einhverjum
bókum allan daginn.“
Gunnar Heiðar segist hafa orðið var
við mikinn áhuga á náminu. „Það
hafa mjög margir talað
við mig og sagt þetta
spennandi fyrir þá sem
búa í Eyjum. Í þeim hópi
eru nokkrir sem hafa
áhyggjur af því að hafa
ekki nauðsynlegan undir-
búning til að fá inn-
göngu. Ég hef bent þeim
á tala við Áslaugu
Hermannsdóttur
forstöðukonu eða
Trausta Hjaltason í
fræðsluráði. Einnig
finnst mér að bæjarstjórnin eigi hrós
skilið fyrir þeirra framgöngu í að
koma náminu af stað hérna í Eyjum.“
Gunnar Heiðar segist hafa trú á því
að þetta eigi eftir að hjálpa Vest-
mannaeyjum þegar til lengri tíma er
litið. „Þarna opnast möguleiki fyrir
fólk á öllum aldri að kynnast
einhverju nýju og fersku og á eftir að
nýtast þeim og okkur öllum í
framtíðinni,“ sagði Gunnar að
endingu um fyrirhugað nám sitt. Þá
er komið að fótboltanum.
Fótboltinn
Gunnar Heiðar gekk til liðs við ÍBV
í fyrra og stefndi á að vera með frá
byrjun en ljóst er að hann missir af
fyrstu leikjunum. „Ég fór í aðgerð á
vinstri hæl í síðustu viku en ég hef
lengi verið að drepast í honum,“ segir
Gunnar Heiðar.
„Ég tók mér frí frá æfingum í
nóvember og byrjaði í desember. Þá
var þetta orðið það slæmt að ég gat
varla gengið eftir leiki og æfingar. Þá
var hællinn myndaður og kom í ljós
að eitthvert aukabein nuddaðist við
hælbeinið. Það var svo drifið í aðgerð
og læknarnir eru ánægðir með
hvernig til tókst.“
Gunnar Heiðar reiknar með að vera
klár í slaginn eftir þrjá til fjóra
mánuði. „Ef að vel tekst þá er þetta í
raun mjög jákvætt fyrir mig því þá er
ég líklega að lengja ferilinn minn um
nokkur ár. Svo verður gerð sama
aðgerð fyrir hægri löppina eftir
tímabilið og þá getur maður loksins
orðið alveg heill heilsu. Ég hef ekki
verið 100 % heill í nokkuð mörg ár.“
Háskólanám í haftengdri nýsköpun :: Gunnar Heiðar fyrstur að skrá sig:
Mjög jákvætt og námið
hentar mér mjög vel
:: Ekki síst vegna samstarfsins við þessi glæsilegu fyrirtæki hér í Eyjum
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Loðnuvertíðin er nú senn á enda og
má segja að veiðar hafi gengið
misvel. Vertíðin byrjaði nokkuð
kröftulega en síðustu daga hefur
veðrið sett strik í reikninginn.
Vinnslustöðin er að klára sinn kvóta
en Ísfélagið á eitthvað eftir. Vart
hefur orðið við loðnu út af Breiða-
firði og virðist sem vesturgangan sé
að koma upp á svipuðum slóðum og í
fyrra. Að sögn skipstjóra á svæðinu
er loðnan sem er að finnast núna á
svæðinu miklu skemmra komin að
hrygningu en loðnan sem veiddist
áður, einnig sé talsvert meira magn
að sjá núna.
>> Sjá nánar í miðopnu.
Vestur-
ganga til
bjargar?
Gunnar Heiðar.
2016
FERMINGAR
>> aukablað