Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2016, Síða 15
15Eyjafréttir / Miðvikudagur 15. júní 2016
keppnin rosalega skemmtileg og að
spila alla leikina.
Hvað er uppáhalds fótboltakonan
þín: -Ég á enga uppáhalds.
En uppáhalds fótboltamaðurinn
þinn: -Ég á engan uppáhalds
heldur. Ég fylgist ekkert rosalega
mikið með fótbolta, finnst bara
skemmtilegast að spila sjálf. Svo
finnst mér rosalega gaman í boxi.
Æfi það líka.
Hvernig heldur þú að íslenska
landsliðinu eigi eftir að ganga á
EM: -Ég held þeir eigi eftir að
standa sig vel. Vonandi ná þeir
einhverju góðu sæti.
Bara allt
skemmti-
legt
Nafn :Sara Dröfn Ríkharðsdóttir.
Lið: ÍBV.
Hvað ertu búin að æfa fótbolta
lengi: -Ég er búin að æfa í 6 ár.
Hvað fannst þér skemmtilegast á
TM mótinu: Bara allt. Að fá að
keppa og vera með í liðinu, allt
saman mjög skemmtilegt.
Hvað er uppáhalds fótboltakonan
þín: Margrét Lára, Sísí Lára og
Natasha.
En uppáhalds fótboltamaðurinn
þinn: Messi og Alexis Sanchez.
Ætlar þú að verða fótboltakonan
þegar þú ert orðin stór: -Já, ég
ætla að verða fótboltakona og
draumaliðið mitt að spila með er
Arsenal og auðvitað að spila með
íslenska landsliðinu.
Hvernig heldur þú að íslenska
landsliðinu eigi eftir að ganga á
EM: -Ég held að þeim eigi eftir að
ganga mjög vel, hef mikla trú á
strákunum.
Margrét
Lára, Sísí
og Fanndís
í uppáhaldi
Nafn: Thelma Sól Óðinsdóttir.
Lið: ÍBV.
Hvað fannst þér skemmtilegast á
TM mótinu: -Að keppa og vinna
leiki.
Hvað er uppáhalds fótboltakonan
þín: Margrét Lára, Sísí og Fanndís
Friðriksdóttir. Ég gæti ekki valið á
milli þeirra.
En uppáhalds fótboltamaðurinn
þinn: -Kolbeinn Sigþórsson og
Messi.
Ætlar þú að verða fótboltakonan
þegar þú ert orðin stór: -Já, ég
ætla að verða fótboltakona þegar ég
er orðin stór og draumaliðið að
spila með er íslenska landsliðið.
Hvernig heldur þú að íslenska
landsliðinu eigi eftir að ganga á
EM: -Ég held þeim eigi eftir að
ganga ágætlega og ég held að þeir
komist í 16 liða úrslitin.
Takk fyrir mig og áfram Ísland!
ÍþRóTTiR
u m S j Ó n :
Guðmundur TÓmaS
SiGFúSSon
gudmundur@eyjafrettir.is
Framundan
Miðvikudagur 15. júní
Kl. 18:00 ÍBV - Breiðablik
Pepsi-deild karla
Kl. 16:30 ÍBV - Grindavík
4. flokkur karla
Fimmtudagur 16. júní
Kl. 18:00 Grindavík -
ÍBV/KFR
3. flokkur karla
Kl. 18:00 Snæfellsnes - ÍBV/
Selfoss
3. flokkur kvenna
Föstudagur 17. júní
Kl. 14:00 Haukar - ÍBV/KFS/
KFR
2. flokkur karla
Kl. 14:00 ÍBV - Selfoss/
Hamar/Ægir
4. flokkur kvenna
Díana Helga Guðjónsdóttir hefur
verið valin á landsliðsæfingar U-19
ára landsliðs kvenna í knattspyrnu
sem kemur saman helgina 17. - 19.
júní og æfir í Laugardalnum. Díana
hefur leikið vel fyrir 2. flokk og
fengið nokkur tækifæri með
meistaraflokki. Þórður Þórðarson er
landsliðsþjálfari U-19 ára landsliðs
kvenna.
Fjórir strákar úr Íslandsmeistaraliði
ÍBV í handknattleik hafa verið
valdir í 16 manna lokahóp U-18 ára
landsliðsins sem tekur þátt í
æfingamóti í Lubeck í Þýskalandi
dagana 30. júní til 3. júlí og fara á
lokamót EM sem fram fer í Króatíu
10. - 22. ágúst. Ísland er með
gestgjöfum Króata í riðli á EM, sem
og Svíþjóð og Tékklandi.
Strákarnir eru Andri Ísak Sigfús-
son, markvörður, Ágúst Emil
Grétarsson, hornamaður, Elliði
Snær Viðarsson, varnar- og
línumaður og Friðrik Hólm
Jónsson, hornamaður. Logi Snædal
Jónsson er ekki í hópnum að þessu
sinni en hann hefur verið að glíma
við meiðsli í öxl sem halda honum
frá handbolta í einhvern tíma.
Fjórir frá ÍBV
í 16 manna
lokahóp U-18
ára fyrir EM
Þremenningarnir Dagur Arnarsson,
Nökkvi Dan Elliðason og Hákon
Daði Styrmisson hafa verið valdir
til æfinga hjá U-20 ára landsliði
karla í handbolta.
Valinn var 20 manna hópur sem
æfir saman fyrir EM sem fram fer í
Danmörku í júlí og ágúst. Ísland er
með Rússlandi, Slóveníu og Spáni á
EM. Liðið mun fara á æfingamót í
Sviss á næstu vikum og mun æfa
mikið saman á Íslandi fyrir EM.
Dagur, Nökkvi
og Hákon í æf-
ingahóp fyrir EM
Díana Helga á
æfingar U-19
ára landsliðsins
ÍBV sótti Stjörnuna heim í 16-liða
úrslitum Borgunarbikars karla á
fimmtudaginn en Stjarnan tapar
sjaldnast leik á heimavelli, á
gervigrasinu í Garðabæ. ÍBV sem
hefur verið að spila glimrandi
fótbolta tók forystuna á 17. mínútu
þegar Pablo Punyed skoraði gegn
sínum gömlu félögum með
þrumuskoti af kantinum.
Bjarni Gunnarsson, töframaður,
skoraði annað mark ÍBV snemma í
seinni hálfleik og gerði þannig úti
um leikinn. Derby Carillo,
markvörður ÍBV, var besti leik-
maður vallarins en hann átti
frábæran dag í markinu.
ÍBV hefur nú haldið hreinu í
síðustu fjórum leikjum, gegn
Stjörnunni, KR, Þrótti og Huginn.
Vörnin er að styrkjast og mörkin
virðast einnig koma á réttum
tímapunktum.
Næsti leikur ÍBV er í dag,
miðvikudag gegn Blikum en gaman
verður að sjá hvort að ÍBV haldi
uppteknum hætti.
Strákarnir voru ekki þeir einu sem
komust áfram í bikarnum í síðustu
viku þar sem stelpurnar sigruðu
KR-inga í Frostaskjóli.
Lítið hefur gengið hjá ÍBV í
deildinni og þá aðallega á heima-
velli þar sem sigrarnir hafa verið
fáir. KR-ingar komust yfir eftir
skyndisókn á fyrstu mínútum
leiksins og útlitið var því ekki bjart
fyrir ÍBV. Sigríður Lára Garðars-
dóttir skoraði jöfnunarmark ÍBV
eftir tæpan hálftíma og kom liðinu
einnig í 1:3 undir lokin með flottu
marki. ÍBV því örugglega áfram í
bikarnum eftir erfiða byrjun.
Knattspyrna | Borgunarbikar karla :: Stjarnan 0:2 ÍBV:
Derby átti frábæran
dag í markinu
Knattspyrna | Borgunarbikar kvenna :: KR 1:3 ÍBV:
Sísí með tvö mörk í
öruggum sigri
Dregið var í bikarnum í hádeginu á
mánudaginn en byrjað var að draga
hjá stelpunum. Fyrsta liðið upp úr
pottinum var ÍBV en næsta lið var
auðvitað Selfoss og spilar ÍBV því
við Selfoss, þriðja árið í röð í
undanúrslitum.
Í síðustu tvö skipti hefur ÍBV
verið slegið út í vítakeppni. Hjá
strákunum bíður einnig erfiður
leikur en Breiðablik dró ÍBV sem
mótherja sinn og liggur leið
strákanna því á annan erfiðan
útivöll, í þetta skiptið í Kópavogi.
Knattspyrna | Átta liða úrslit í Borgunarbikarnum:
Selfoss þriðja árið í röð
:: Karlarnir mæta Breiðabliki
Fyrir tíu árum, þann 10. júní árið
2006 eyddi Heimir Hallgrímsson,
þáverandi þjálfari sjötta flokks
drengja ÍBV afmælisdegi sínum í
að undirbúa lið sitt fyrir Shell-
mótið í Vestmannaeyjum. ÍBV
náði mjög góðum árangri á
mótinu og fór með A, B og C liðin
í úrslit.
Á þetta bendir Hallgrímur sonur
Heimis á á Facebooksíðu sinni og
bætir við: „Aðeins tíu árum seinna,
10. júní 2016 eyðir hann afmælis-
deginum í Frakklandi þar sem hann
undirbýr íslenska karlalandsliðið
fyrir fyrsta leik þeirra á stórmóti frá
upphafi og verður þar með fyrsti
íslenski þjálfarinn til að þjálfa á
EM,“ segir Hallgrímur og óskar
pabba sínum innilega til hamingju
með daginn. Og neitar því ekki að
vera virkilega stoltur.
Það er svo sannarlega ástæða til að
óska Heimi til hamingju með
afmælið og árangurinn og við
Eyjamenn og Íslendingar allir
getum verið virkilega stolt af
honum. Hér tók hann út sinn þroska
sem leikmaður og hóf ferilinn sem
þjálfari, fyrst í yngri flokkunum og
síðar þjálfaði hann meistaraflokka
ÍBV kvenna og karla. Þaðan lá
leiðin á EM í knattspyrnu þar sem
fyrsti leikurinn er á móti Portúgal.
Þetta eru stór skref hjá Heimi á tíu
árum og vonandi var góður árangur
á Shellmóti verði vísir að góðum
árangri á EM í Frakklandi.
Af Shellmóti á
EM á tíu árum
Heimir er Ystklettingur af bestu gerð. Þar byrjaði hann ungur að veiða
lunda með bræðrum sínum og föður. Hann var því að vonum ánægður
með merkinguna á flugvélasætinu á leiðinni til Frakklands
Mynd: Sigurjón Ragnar.