Fréttir - Eyjafréttir - 29.06.2016, Page 4
4 Eyjafréttir / Miðvikudagur 29. júní 2016
Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu?
Al-Anon
fyrir ættingja og vini alkóhólista
Fundir á þriðjudögum kl. 20.30
Byrjendafundir kl. 20.00
að Heimagötu 24
AA fundir
eru haldnir sem hér segir
að Heimagötu 24:
Mánudagur: kl.20.30
Miðvikudagur: kl.20.30
Fimmtudagur: kl.20.30
Föstudagur: kl.23.30
Laugardagur: kl.20.30 opinn fundur
Sunnudagur: kl.11.00
Athugið, allir fundir reyklausir
Móttaka nýliða hálfri klst.
fyrir hvern auglýstan fundartíma.
Ath.símatíma okkar, sem eru hvern dag,
hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn
fundartíma og eru 2 klst. í senn.
Sími 481 1140
Matgæðingur vikunnar
Landakirkja
Fimmtudagur 30. júní
Kl. 20.00 Æfing, Kór Landakirkju.
Sunnudagur 3. júlí
Kl. 11.00 Göngumessa á Gos-
lokahátíð.
Miðvikudagur 6. júlí
Kl. 11.00 Helgistund á Hraun-
búðum.
Hvítasunnu-
kirkjan
Fimmtudagur kl. 20:00
Brauðsbrotning og bænastund.
Sunnudagur kl. 13:00
Samkoma, Guðni Hjálmarsson
prédikar. Lifandi söngur, kaffi og
notalegt spjall á eftir.
Allir hjartanlega velkomnir.
Kirkjur bæjarins:
Aðvent-
kirkjan
Laugardagur
Kl. 12:00 Samvera.
Allir velkomnir.
Eyjamaður vikunnar
Lífið er fótbolti
Orkumótið var haldið um helgina og
átti ÍBV glæsilega og metnaðafulla
peyja þar. Einn af þeim er Ásgeir
Galdur Guðmundsson en hann var
valinn í orkumótsliðið, þar sem eru
valdir 11 bestu leikmenn mótsins.
Annar er Þórður Örn Gunnarsson en
hann var valinn í landsliðið á
Orkumótinu. Strákarnir eru verð-
skuldaðir Eyjamenn vikunnar.
Nafn: Ásgeir Galdur Guðmunds-
son.
Fæðingardagur: 14. apríl 2006.
Fæðingarstaður: Reykjavík.
Fjölskylda: Pabbi heitir Guð-
mundur Ásgeirsson, mamma mín er
Aðalheiður Ólafsdóttir. Svo á ég
þrjár systur sem heita Rakel Oddný,
Katý Svanfríður og Sara Bjartey.
Uppáhalds matur: Lambalæri með
bernais sósu.
Versti matur: Kæst skata eins og
er á Þorláksmessu.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Rapp eins og Úlfur Úlfur.
Hver er uppáhalds tónlistarmað-
urinn: Maggi Mix.
Aðaláhugamál: Fótbolti, íþróttir,
enski boltinn og bara allt sem
tengist bolta.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Nice í Frakklandi
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Lionel Messi,
Barcelona, Manchester United og
auðvitað ÍBV.
Uppáhalds sjónvarpsefni:
Atvinnumennirnir okkar með
Audda Blö, íþróttafréttir og bara
allar íþróttir.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera: Að vera í fótbolta með
strákunum.
Hvað ertu búinn að æfa fótbolta
lengi: Frá því að ég var 4 ára, þá
byrjaði ég að æfa með Val.
Hvað var skemmtilegast á
orkumótinu: Að fá að keppa í
fótbolta.
Nafn: Þórður Örn Gunnarsson.
Fæðingardagur: 10/09/06.
Fæðingastaður: Vestmannaeyjar.
Fjölskylda: Móðir Guðbjörg
Þórðardóttir, faðir Gunnar Þór
Guðjónsson, eldri bróðir Arnar
Breki Gunnarsson, yngri systir
Sandra Björg Gunnarsdóttir.
Uppáhaldsmatur: Fiskistangir
með remúlaði.
Versti matur: Kjúlli.
Hvaða tónlist: Þjóðhátíðarlög.
Uppáhaldstónlistarmaður:
Pharrell Williams.
Aðaláhugamál: Fótbolti.
Fallegast staður: Vestmannaeyjar,
að vera uppá Klifi og horfa yfir
Eyjarnar.
Uppáhalds íþróttamaður:
Sturridge og Kolbeinn Sigþórsson.
Uppáhaldsíþróttafélag: ÍBV og
Liverpool.
Uppáhalds sjónvarpsefni: Allt um
fótbolta.
Skemmtilegast að gera: Vera í
fótbolta.
Hvað ertu búin að æfa fótbolta
lengi: Frá því ég var fimm ára.
Hvað var skemmtilegast à
Orkumótinu: Spila fótboltaleikina
með peyjunum og vera í lands-
liðinu.
Þórður Örn Gunnarsson
er Eyjamaður vikunnar
Ásgeir Galdur
Guðmundsson
er Eyjamaður vikunnar
Ég vil þakka Vali Marvin fyrir þessa
æðislegu áskorun. Vona innilega að
ég nái að toppa hann en þar sem
hann er að læra kokkinn gæti það
reynst mér erfitt.
Mexíkóskar kjúklingabringur
6 kjúklingabringur
1 dl sítrónusafi
2 msk ólífuolía til penslunar
2 msk ólífuolía
1 meðalstór laukur
1 niðursoðnir tómatar
2 msk möndlur
2 msk rúsínur
2 tsk kapers
5 grænar ólífur
½ msk niðursoðinn grænn pipar
1 rauð paprika ½ græn paprika
½ gul paprika
2 ½ dl appelsínusafi
1 dl kjúklingasoð
½ tsk kanill
1 msk kóríander (ferskt).
Raðið kjúklingabringunum í eldfast
mót og hellið sítrónusafa yfir. Látið
standa í ísskáp í 2 klst.
Penslið með ólífuolíu og bakið í
180 gráðu heitum ofni í 20 mín.
Hitið olíu í potti og mýkið smátt
saxaðan laukinn. Bætið tómötum,
rúsínum, kapers, ólífum og
piparkornum út í. Látið suðuna
koma upp.
Hreinsið og takið kjarna úr
paprikum og skerið í strimla. Bætið
útí ásamt appelsínusafa og kjötsoði
og sjóðið í 15 mínútur. Bragðbætið
með kanil.
Hellið sósunni yfir kjúklinginn og
bakið áfram í 20 mínútur í ofninum.
Skreytið með fersku kóríander og
berið fram með hrísgrjónum og
brauði.
Jalapeno salat
Skinka
hvítlauksostur (þessi kringlótti)
cherry tómatar
jalapeno (eftir smekk)
sýrður rjómi.
Hvítlauksosturinn, tómatarnir og
skinkan er skorið niður. Þetta er sett
í skál og blandað við sýrða
rjómann. Einnig er gott að blanda
einni matskeið af majónesi við.
Jalapeno er svo blandað saman við
en passa sig að setja bara lítið í
einu. Gott er að láta salatið standa
aðeins eftir að jalapenoinu hefur
verið blandað út í því sterka bragðið
kemur ekki alveg strax fram. Borið
fram kalt með nachos.
Ég vil að lokum skora á Arnar Gauta
Grettisson sem næsta matgæðing.
Hann er ansi liðtækur í matreiðsl-
unni og hefur oftar en ekki búið til
sósu, kryddað kjötið, farið á KFC eða
hringt á Dominos.
Mexíkóskar kjúklingabringur
og jalapeno salat
Daði Steinn Jónsson
er matgæðingur vikunnar
Lára Halla Snæfells Miðill
Verð með einkatíma í Vestmann-
eyjum dagana 4.-7. júlí. Tíma-
pantanir í síma 845-2230.
-------------------------------------------
Eyjafréttir vilja eindregið hvetja
brúðhjón til að senda inn mynd
til birtingar sem og foreldra
nýrra Eyjamanna.
Myndir og upplýsingar sendist á
frettir@eyjafrettir.is
Börn og brúðhjón
>> SMÁAuGLýSinGAr
Eftirfarandi bréf er samvinnuverk-
efni Goslokanefndar, lögreglustjóra
og Fjölskyldusviðs Vestmannaeyja-
bæjar.
Sérstakar reglur skv. barnaverndar-
lögum, gilda um útivistartíma barna
og ungmenna. Rétt er að benda á að
þetta eru lög, ekki ábendingar. Í
barnaverndarlögunum kemur fram
að frá 1. maí til 1. september megi
börn, 12 ára og yngri ekki vera á
almannafæri eftir kl. 22:00 nema í
fylgd með fullorðnum. Börn á
aldrinum 13 til 16 ára mega ekki
vera á almannafæri eftir kl. 24:00,
nema þau séu á heimleið frá
viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða
æskulýðssamkomu. Ekki þarf annað
en að skoða á hvaða tímum
sólarhrings börn byrja að fikta með
áfengi og aðra vímugjafa, hvenær
alvarlegar líkamsárásir og óæskileg
kynlífsreynsla eiga sér stað, til að
skilja að útivistarreglurnar eru ekki
settar fram af tilviljun.
Börn og unglingar eiga ekki að vera
úti eftirlitslaus seint að kvöldi og
alls ekki eftir miðnætti, sérstaklega
við aðstæður sem geta skapast í
fjölmenni eins og í kringum
Goslokahátíð. Dagskráin gengur vel
yfir daginn, en reynslan hefur sýnt
okkur að vandamál sem hafa komið
upp gerast að næturlagi.
Við viljum því hvetja foreldra til að
gefa ekki ólögráða ungmennum
lausan tauminn án þess að ráðstaf-
anir hafi verið gerðar til að tryggja
öryggi þeirra, eða að fjölskyldan
fari saman og njóti skemmtunar-
innar saman. Við viljum öll bæði
vernda börnin okkar og hátíðina
okkar, þannig að við getum haldið
því hátt á lofti að fjölskyldan
skemmti sér saman og eigi góðar
stundir á Goslokahátíð.
Goslokanefnd Vestmannaeyja
Páley Borgþórsdóttir
lögreglustjóri
Guðrún Jónsdóttir
yfirfélagsráðgjafi
Foreldrar, bréf til ykkar!
A ð s e n d g r e i n