Fréttir - Eyjafréttir - 29.06.2016, Blaðsíða 8
8 Eyjafréttir / Miðvikudagur 29. júní 2016
„Ég er fæddur 21. april 1972 og
uppalinn í Vestmannaeyjum. Bjó í
Eyjum þangað til að ég var 21 árs,
en hóf þá nám við grafíska hönnun
við Arizona State Univeristy í
Bandaríkjunum og útskrifaðist með
BS í grafiskri hönnun. Eftir námið
kom ég heim til þess að starfa sem
grafískur hönnuður,“ segir Logi Jes
Kristjánsson sem sýnir verk sín í
Akóges um helgina. Hann starfar nú
sem lögreglumaður en hefur ekki
sagt skilið við myndlistina.
„Ég hafði starfað nokkur sumur
sem lögreglumaður í afleysingum
og það blundaði alltaf í mér að fara
í Lögregluskólann. Lét svo verða af
því 2004 þegar ég útskrifaðist sem
lögreglumaður og hef starfað í
lögreglunni í 12 ár.“
Logi hætti aldrei að hanna og
teikna. „Ég hef unnið sem grafískur
hönnuður með lögreglunni en
síðustu ár hef ég snúið mér meira af
myndlist og teikningum. Þá aðalega
pennateikningum og vatnslitum.
Með því að sýna verkin mín núna í
Akóges á goslokahátíðinni er
gamall draumur að rætast. Hef
verið að teikna frá því að ég man
eftir mér og mér þótti alltaf gaman
að fara á myndlistasýningar í
Akóges þegar ég bjó í Eyjum.
Sérstaklega man ég eftir sýningum
þegar að Guðni Hermansen var að
sýna verk sýn. Þótti verk hans alltaf
ævintýraleg og spennandi.“
Þetta er hans fyrsta myndlistasýn-
ing og segir það heiður og spenn-
andi fyrir sig að geta haldið hana
hér í Eyjum. Þema sýningarinnar
eru landnemar Vestmannaeyja og
þeirra goðatrú.
„Titill sýningarinnar; Upphafið,
fólkið og goðin í Eyjum, gefa til
kynna þá sögu sem ég er að reyna
að segja. Ég tek mér skáldaleyfi
með myndum mínum varðandi
landnámið og vil ég taka það fram
að þetta er ekki opinber saga
Eyjanna, en auðvitað eins og allir
Vestmanneyingar vita þá var
Herjólfur fyrsti landnámsmaður
Íslands. Einnig sýni ég með
myndunum, þann goðaheim sem að
forferður okkar trúðu á.
Myndirnar vinn ég með vatnsliti
og svart blek. Fyrst vinn ég
myndirnar með blýanti, lauslega á
pappírinn en svo fer ég yfir með
vatnslitum og bæti síðan við
blekinu þegar við á. Misjafnt eftir
myndum hvort ég byrja með blekið
eða vatnslitina, en mér hefur alltaf
þótt skemmtilegt að vinna með
þetta saman,“ sagði Logi sem býður
alla velkomna á opnunina á
sýningunni sem verður föstudaginn
1. júli kl.16:00.
„Léttar veitingar í boði við
opnunina. Opið verður síðan laugar-
daginn frá klukkan 10:00 ,svo
sunnudaginn frá 11:00, sem sagt
fyrir hádegi. Vona að þið eigið góða
goslokahelgi,“ sagði Logi að
endingu.
Jóhanna Hermansen heldur
málverkasýningu í Tónlistarskóla
Vestmannaeyja goslokahelgina,
fyrsta til þriðja júlí. Jóhanna sem
búsett er í Reykjavík er fædd og
uppalin í Vestmannaeyjum.
Hún er dóttir Guðna A. Her-
mansen og Sigríðar J. Kristins-
dóttur, en eins og flestum Eyja-
mönnum er kunnugt var Guðni, sem
lést langt um aldur fram einn af
fremstu listamönnum Eyjanna.
Jóhanna ólst upp við listhneigð
föður síns og fylgdist iðulega með
honum munda pensilinn. Hún hefur
stundað málun í nokkur ár og verið
í námi í olíumálun í Myndlistaskóla
Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í
þremur samsýningum. Þessi sýning,
sem hún kallar Innsýn er fyrsta
einkasýning hennar og spannar feril
hennar í myndlistaskólanum.
Berglind Ómarsdóttir fatahönnuður
og kjóla- og klæðskerameistari
sýndi nýlega nýjustu línuna sína á
tískusýningu á veitingastaðnum
Oddsson í Reykjavík sem vakti
mikla athygli. Hún ætlar að
endurtaka leikinn í Eldheimum á
goslokum. Hún var með sýningu á
sama stað fyrir tveimur árum þar
sem mættu um 400 manns. Var
sýningin fyrsti viðburðurinn sem
haldinn var í Eldheimum eftir að
safnið var opnað vorið 2014.
Berglind er borin og barnfædd
Eyjakona en hún flutti til Íslands á
síðasta ári eftir að hafa búið sjö ár í
Lúxemborg þar sem hún náði að
vekja mikla athygli með hönnun
sinni og saumaskap. Þetta verður
þriðja sýning Berglindar í Vest-
mannaeyjum. Fyrst var það 2008
þegar hún með öðrum hönnuðum
sýndi föt í uppgreftinum þar sem nú
eru Eldheimar. „Er ekki vel við hæfi
að halda sig við þennan stað sem
minnir okkur á þá miklu örlagasögu
sem varð til þegar gaus 1973,“ segir
Berglind.
Hún byrjaði snemma að sauma og
útskrifaðist sem kjóla- og klæð-
skerasveinn fyrir 15 árum en í vor
lauk hún meistaranámi í báðum
greinum og fannst við hæfi að halda
upp á þau tímamót með sýningu á
því sem hún er að gera.
Berglind hefur náð að skapa sér
nafn sem fatahönnuður og má geta
þess að verðandi forsetafrú, Eliza
Reed var í kjól frá Berglindi á
kosninganóttina. Liturinn var vel
við hæfi, kóngablár og minnir líka á
landsliðið í fótbolta karla sem hefur
náð lengra en flestir gerðu ráð fyrir.
„Ég er mjög stolt að Eliza valdi kjól
frá mér og hann fór henni mjög vel.
Hann er svolítið í þeim anda sem ég
er að gera núna. Á sýningunni sýni
ég kjóla og toppa, líka buxur, pils
og kápur. Þetta eru kvenleg föt,
mikið um liti og smá sixties líka.
Þetta eru frjálsleg föt, klæðileg og
töff. Nostrað er við hvert smáatriði í
hverri flík,“ segir Berglind sem
sækir innblásturinn ekki síst við
Vestmannaeyja.
„Hér eru litirnir svo sterkir og
andstæðurnar miklar þar sem
hraunið kallast á við allt það græna
sem Eyjarnar skarta með hafið með
öllum sínum margbreytilegu
myndum allt í kring,“ segir
Berglind sem vonast til að sjá sem
flesta á sýningunni. „Hún verður á
föstudaginn klukkan sex og ég
hlakka til að sjá ykkur,“ sagði
Berglind.
Berglind er með fötin til sölu í
BK-gler og verður hún þar alla
goslokahelgina. Hún er með
vinnustofu í Hátúni þar sem hún
selur fötin sín en einnig er hún á
Facebook og instagram undir
nafninu Berglind Clothing.
Myndirnar tók Kristbjörg
Sigurjónsdóttir á sýningu
Berglindar í Reykjavík.
Eyjamaðurinn Logi Jes sýnir í Akóges :: Upphafið,
fólkið og goðin í Eyjum:
Tek mér skáldaleyfi
með myndum mínum
varðandi landnámið
:: Þetta er ekki opinber sagan Eyjanna :: Herjólfur var
fyrsti landnámsmaðurinn
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Jóhanna í fót-
spor föður síns
:: Sýnir í Tónlistarskólanum
:: Berglind sýnir hönnun sína í Eldheimum á föstudaginn:
Frjálsleg föt, klæðileg og töff þar sem
hvert smáatriði skiptir máli