Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 29.06.2016, Síða 12

Fréttir - Eyjafréttir - 29.06.2016, Síða 12
12 Eyjafréttir / Miðvikudagur 29. júní 2016 Við förum upp hleinina austan á, Pálsnefinu gárar á. Þessi leið, alveg greið. Söngvatn í flösku hringlar dátt, Rommvikan að hefjast brátt. Landrover á kútinn fer. Ég verð alveg heltekinn þegar fuglarnir bjóða mig velkominn í Ellirey, því ég heima á hér með þeim. Frá Bunkanum er fagurt að sjá daginn rísa. Úr Háubælunum kvakar dátt svartfuglsvísa. Úr Höskuldshelli gráturinn löngu horfinn er. Á Bóli er gengið frá kostinum. Farm’ af víni og oblátum. Lífsins brauð, flaska rauð. Í Skribbanum er gjarnan veiðin best, metið verður slegið fyrir rest. Hamfletta, ét’etta Bak við fjöllin „Á árunum 1953 til 1979 var rekið í Breiðuvík uppeldisheimili fyrir drengi á aldrinum 14 til 18 ára en þar voru aðalega drengir á aldrinum 10 til 14 ára,“ segir Hafdís Víglunds- dóttir um lag sitt Bak við fjöllin. „Í kastljósaþættinum 7. febrúar 2007 sagði fyrrum vistmaður frá dvöl sinni þar og að hann hafi orðið fyrir ofbeldi og kynferslegri misnotkun. Margir aðrir fyrrum vistmenn í Breiðuvík fylgdu í kjölfarið á Kastljósþættinum og höfðu sömu sögu að segja um slæman aðbúnað og andlegt og líkamlegt ofbeldi. Einn af þeim var pabbi minn og þetta lag er samið fyrir hann og alla þá drengi sem þar voru,“ segir Hafdís sem sjálf syngur lagið. Lítið fótspor í fjörusandinn gengur móti hvössum vindinum. Hann stendur og starir út á hafið. Hann er einn, einn í heiminum. Saklaus hendi inn í illsku hvarf. Með hörðum vendi lífsbarinn hann var. Hvar varstu þá, þegar vofan fór á stjá. Falin röddin á bak við fjöllin. Angist í blökkuholinu. Flaug burt sálin, tregatárin. Auðmýktur, þá stóðst þú aftur upp. Saklaus hendi inn í illsku hvarf. Með hörðum vendi lífsbarinn hann var. Hvar varstu þá, þegar vofan fór á stjá. Horfnir tímar Helgi Rasmussen Tórshamar samdi lagið Horfnir tíma og hann og Sævar Helgi Geirsson sömdu textann. „Lagið er í stíl Ásgeirs Trausta með kántríbrag, róleg og falleg ballaða,“ segir Helgi um lagið og textann. „Textinn fjallar um æskuna, Týr og Þór, gellustandið, sprangið, Blaðaturninn og það sem lífið snerist um þegar við vorum peyjar. Svo taka við lífsins raunir og við tökum það líka fyrir í textanum. Við lágum á laginu í mörg ár eða þangað til að Gísli heyrði það og ákvað að setja það á plötu.“ Sævar Helgi syngur lagið. Oft ég einn við gluggann hékk, og horfði á fólkið sem að framhjá gekk. Bæjarmyndin fyrir augum bar, allt frá rónum upp í snobbaðar kellingar. Beint á móti stóð Alkahóll. Þar var þétt setinn drykkjumannsins stóll. Gúmmíkallinn sprændi í brók, og þéttingsfast um flöskuhálsinn gamli tók. Horfin stund, horfnir tímar og eftir situr minningin. Og minningin aftur lifnar er um tímann reikar hugurinn. Rígur var milli Týr og Þór, og draumur eyjapeyjanna var ógnar stór. Oft var blóð, sviti og tár þegar í Löngulá var tekist á. Gellað var í vagnana, og seldar í húsin fyrir aurana. Við Blaðaturninn hittumst þar, áður en leiðin lá í Sprönguna. Gítararleikarinn „Lagið er samið fyrir um sjö árum, mjög árla morguns í Eyjum,“ segir Ágúst Óskar Gústafsson, læknir um lagið sitt, Gítarleikarinn. „Lag og texti komu fljótt, en ég nostraði síðan í langan tíma við viðlagið og hljómaganginn þar. Guðmundur Davíðsson og Gísli Stefánsson gera þessu mjög góð skil. Í stuttu máli fjallar lagið um að gleyma sér inni í þjóðhátíðartjaldi í gítarspili, sem er stórkostlega gaman, en aðrir hlutir eins og ástin eru þó mikilvægari og mikilvægt að gleyma sér ekki í gleðinni.“ Guðmundur Davíðsson syngur lagið. Einn ég er á fótum því ekkert svar mér barst. Í söng með öðrum snótum, ég sá ei hvar þú varst. Ég gleymdi mér í gleði og gaf þér ekki gaum. Ef ást þín er að veði, ég þrái okkar draum. Ég þrái okkar draum. Því það er svo margt sem við getum gert og tíminn mun leiða í ljós. Ef þú verður mín mun ég verða þinn uns ævin á enda er. En þegar þögnin kemur og þú ert ekki hér, þá vildi ég öðru fremur vera einn með þér. Já, vera einn með þér. Við ystu voga „Samstarf okkar Gauja hófst þegar hann lét mig hafa textann af því sem síðar varð þjóðhátíðarlagið 1997, Þú veist hvað ég meina mær,“ segir Sigurjón Ingólfsson um lag þeirra, Við ystu voga. „Fyrir nokkrum árum ákvað ég að leita aftur til Gauja þegar mig vantaði texta til að gera lag við. Gaui lét mig hafa texta sem hann hafði gert fyrir nokkuð löngu síðan, eða á sjöunda áratugnum. Þar sem innihald textans er á ljúfu nótunum þá kom ekkert annað til greina en að hafa lagið í sama stíl. Ég kláraði lagið haustið 2010 og fékk Sæþór Vídó til að búa til demó af því. Kláraði hann það virkilega vel og nógu tímanlega til að ég gæti gefið Gauja lagið í jólagjöf, jólin 2010. Geirmundur nefndi það einhvern tímann að textarnir hans Gauja væru það ljóðrænir að lögin kæmu án mikillar fyrirhafnar og ég er ekki frá því að það sé rétt hjá honum. Textarnir eru mjög vel gerðir en Gaui hefur kannski meiri orðaforða en gerist og gengur og því þarfnast sum orð og orðatiltæki stundum skýringar. Hér er niðurlag textans „Við ystu voga“: „Allt var bundið óskum nýjum allt var fagurt, kyrrt og rótt. Meðan okkur örmum hlýjum ástin vafði þessa nótt.“ Það er varla hægt að orða þetta betur,“ segir Sigurjón. Sæþór Vídó syngur lagið. Einn ég sit við ystu voga andblær strýkur hlein og sker, hugans bestu leiftur loga liðnar myndir birtast mér, minning helgar vonir vekur vonir sem að fæddust hér, enginn frá mér aftur tekur allt það sem er bundið þér. Hvað sem annars af því hlýst, enn ég læt mig dreyma. Ástum þínum eitt er víst, aldrei mun ég gleyma. Himins stjörnur skinu skærar skuggar misstu fengin völd, fátt var tveggja fundi kærar földum lyftu draumsins tjöld, allt var bundið óskum nýjum allt var fagurt, kyrrt og rótt. Meðan okkur örmum hlýjum ástin vafði þessa nótt. Aftur með þér „Lagið sjálft er 14 ára gamalt og eitt af mörgum sem ég samdi stuttu eftir að ég hafði fengið hjómborð í afmælisgjöf frá fjölskyldu minni. Ætlunin var að semja þjóðhátíðar- lag í anda eins af uppáhalds þjóðhátíðarlögum okkar mömmu ,,Síðasti dansinn” eftir Árna Johnsen og varð útkoman fallegt, rólegt og melodískt lag sem ég gat vel séð fyrir mér að fólk gæti vaggað sér við í brekkunni á þjóðhátíð. Hluti af textanum kom um leið og ég samdi lagið en ég hafði verið að skoða gamlar fjölskyldumyndir frá þjóðhátíð og séð þar fullt af fólki sem ýmist var látið, flutt af eyjunni eða ég hafði einfaldlega ekki séð í mörg ár. Mig langaði því að semja texta um þær hugsanir sem fóru í gegnum kollinn á meðan ég skoðaði þessar myndir. En eins og gengur og gerist kynnumst við flest fullt af fólki á þessari frábæru hátíð sem við sjáum kannski ekki aftur fyrr en á næstu þjóðhátíð…já eða jafnvel aldrei aftur,“ segir Helena Pálsdóttir en textann samdi hún með móður sinni, Kolbrúnu Hörpu Kolbeins- dóttur. „Þannig eigum við mörg hver minningar um skot, ást eða vinskap sem kviknaði á þjóðhátíð í Eyjum. Textinn fjallar sem sagt um stúlku sem er að velta fyrir sér hvað hafi orðið um unga manninn sem hún hitti eitt sinn á þjóðhátíð. Mamma, Kolbrún Harpa, hjálpaði mér svo að klára textann og fínpússa hann. Textinn fellur sjálfsagt ekki öllum í geð enda tókum við okkur það listræna frelsi að þessu sinni að hunsa reglur um stuðla og höfuð- stafi. Þeir sem heyrt hafa lagið, hafa hinsvegar ekki verið að láta það neitt trufla sig hingað til, heldur einungis hrifist af fallegri mel- odíunni og haft á orði hversu vel þau þekki sig í textanum. Það er nóg fyrir okkur. Við mamma höfum samið fjöldann allan af lögum og textum sem einungis hafa heyrst á fjölskyldu- mótum já og auðvitað verið sungin í Vatnsdalstjaldinu á þjóðhátíð. Við fögnum því þessu frábæra framtaki Gísla Stefáns og félaga að safna saman nokkrum af ótal mörgum ,,skúffuskáldum” sem leynast hér í Eyjum og gefa út efnið þeirra. Gísli Stefáns hafði samband við mömmu í fyrra og bað hana um lag á plötu sem hann væri að fara að gefa út sumarið 2016. Eina sem við fengum að vita var að lögin á plötunni yrðu öll eftir Eyjamenn og að þau yrðu útsett í kántrístíl. Við vorum fljótar að ákveða hvaða lag yrði fyrir valinu úr sameiginlegum sjóði okkar mömmu en ég skal viðurkenna að ég var pínu stressuð yfir að lagið myndi tapa sjarma sínum þegar það væri komið í kántríbúning. Það reyndist óþarfa stress því þegar ég heyrði fyrstu útgáfuna af laginu, án söngsins, kolféll ég fyrir útsetning- unni, fékk hreinlega gæsahúð af hrifningu. Lagið hefur svo bara orðið flottara í hvert sinn sem Gísli hefur bætt við fleiri hljóðfærum og/ eða röddum. Hann er ótrúlega mikill fagmaður og þeir sem með honum starfa. Lagið er sungið af Kristínu Ingu Jónsdóttur og unnusta hennar Elíasi Fannari Stefnissyni og ekki annað hægt en að hrósa þeim í hástert fyrir flutninginn. Ég hafði heyrt og séð þau áður syngja í myndbandi á netinu og fannst raddirnar þeirra hljóma alveg hrikalega vel saman. Ég hafði því samband við Fannar og þau slógu til. Við hefðum ekki getað fengið flottari söngvara til að syngja lagið okkar því þau fara einstaklega vel með það. Við hlökkum líka rosalega mikið til útgáfutónleikanna sem verða um goslokahelgina enda höfum við ekki heyrt nema örfá af hinum lögunum af plötunni. Það verður því spennandi að fá að heyra loks öll lögin og hvetjum við alla Eyjamenn og gesti þeirra til að mæta og njóta með okkur hinum,“ sagði Helena. Kristín Inga og Elías Fannar syngja lagið. Hvar ertu núna, hvar ertu í dag? Þú sem söngst með mér þetta ljúfa lag. Með stjörnur í augunum söngstu svo létt, um stórfenglegt bálið á Fjósaklett. Um kórinn besta sem í brekkunni söng, bjarmann frá varðeld’ er logaði um kvöld. Sló töfrandi ljóma yfir andlitið þitt, ég fékk að halla þér í fangið mitt. Mig langar að upplifa allt aftur með þér. Aftur þér hlýja í fanginu á mér. Horfa í augu þín brosmild og hlý, hönd þína leiða um Dalinn á ný. Um ókomin ár vil ég dvelja hjá þér, á eyjunni fögru sem ól þig af sér. Sjá flugelda springa já, glitra sem foss, fá kannski hjá þér einn dýrlegan koss. Dætur dalsins Það er síðan Þjóðhátíðarlagið 1977 „Dætur dalsins“ sem lokar plötunni með miklum krafti. Sigurður Óskarsson samdi lagið og Snorri Jónsson textann. „Við Siggi Óskars hittumst á götu í sumarbyrjun og auðvitað barst þjóðhátíðin og þjóðhátíðarlag í tal. Við ákváðum að senda inn lag og texta. Um kvöldið var Siggi tilbúinn með lag og kom því til mín. Ég hnoðaði saman texta svona í anda þjóðhátíðarinnar og við vorum búnir að skila þessu inn kvöldið eftir“ sagði Snorri um tilurð lagsins. „Ég skal alveg viðurkenna að það hefði mátt leggja meiri vinnu í þetta og snurfunsa það til en þrátt fyrir fljótaskriftina unnum við. Textinn fjallar um draum ungu strákanna á sjónum um fallegu Eyjaskvísurnar sem fylltu Dalinn þessar ágúst nætur. „Þá dreymir um Dalinn og dæturnar, dansinn og björtu næturnar.“ Texti og lag eru auðlærð og að ég held að stöffið sé vel brúklegt til söngs í tjöldum,“ sagði Snorri að lokum. Sonur Sigurðar, Óskar flytur lagið eins og honum er einum lagið. Þó víða um heiminn liggi leið, ber ljúfa ágústnóttin seið. Hún fyllir alla ferskri þrá, því dætur Dalsins Ejaskeggjar dá. Okkar Herjólfsdal, þennan fagra fjalla sal. Þar er fjör og líf, er fögnum við þar saman þjóðhátíð. Sama hvert menn sigla um sjá, er sjómannshjartað flutt af þrá. Þá dreymir Dalinn og dæturnar, ástina og bjartar næturnar. Og sjómenn bátum sigla heim, það sýður þrá í mönnum þeim. Þeir þrá með svanna að svífa í dans, syngja um Dalinn fagra og dætur hans. Diskurinn verður fluttur í heild sinni á útgáfutónleikum í Höllinni á föstudagskvöld. Aðgangur er ókeypis og opnar húsið kl. 20.00. Helgi Rasmussen Tórshamar. Sævar Helgi Geirsson Ágúst Óskar Gústafsson. Helena Pálsdóttir. Sigurjón Ingólfsson. Snorri Jónsson. Kolbrún Harpa Kolbeinsdóttir. Guðjón Weihe. Sigurður Óskarsson. Hafdís Víglundsdóttir.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.