Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 29.06.2016, Page 16

Fréttir - Eyjafréttir - 29.06.2016, Page 16
16 Eyjafréttir / Miðvikudagur 29. júní 2016 Ég er ein af þeim rúmlega 900 börnum sem þáði boð til Noregs í tveggja vikna sumarfrí gosárið 1973. Það voru Norðmenn sem buðu Eyjabörnum í þessa ferð, skipulögðu og stóðu straum af kostnaði við hana í samvinnu við det Norske Røde Kors, Rauða krossinn á Íslandi, Norsk – Islandsk samband og fleiri aðila. Noregur hefur alltaf átt stað í hjarta mínu eftir sumarferðina 1973 og hélt ég tengslum við „fjölskylduna” mína í Noregi næstu 30 árin eftir ferðina. Þegar 40 ár voru liðin frá eldgos- inu í Heimaey árið 2013 gerðu Jóhanna Ýr Jónsdóttir og Sighvatur Jónsson heimildarmyndar Útlend- ingur heima. Þar fjölluðu þau um eldgosið frá fleiri sjónarhornum en áður hafði verið gert og fjölluðu þau m.a. um ferð til Noregs þar sem öllum Eyjabörnum sjö til fimmtán ára bauðst að fara í, sumarið sem eldgosið stóð yfir. Mér bauðst að koma með í upptökur í Noregi og hitti þar aftur í fyrsta skipti eftir 40 ár dóttur hjónanna sem fóstruðu mig 1973 og ég hafði verið í bréfasamskiptum við áratugina á eftir. Það má segja að ferðin 2013 hafi dregið dilk á eftir sér, því fljótlega eftir heim- komu úr ferðinni æxluðust hlutirnir þannig að við hjónin fluttum til Hafnarfjarðar og ég ákvað að nota tækifærið og láta gamlan draum um að öðlast háskólagráðu rætast. Ég skráði mig í norsku og var útskrifuð með BA gráðu í norsku með atvinnulífsfræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands 25. júní sl. Þakklæti BA ritgerðin mín fjallaði um ferðina til Noregs 1973 og hvort það hefði verið forsvaranlegt að senda sjö til fimmtán ára gömul börn í ferðalag erlendis, aðeins örfáum mánuðum eftir upplifun þeirra af náttúruhamförum sem lagði heimbyggð þeirra undir ösku og hraun. Í ritgerðinni skoðaði ég kenningar hins virta norska fræðimanns Atle Dyregrove um hlutverk foreldra gagnvart börnum sínum í tengslum við náttúruhamfarir. Ritgerðina tileinkaði ég eins og segir orðrétt í henni; „Öllum þeim sem aðstoðuðu íbúa Heimaeyjar í kjölfar eldgossins 23. janúar 1973. Sérstaklega er Norðmönnum þakkað örlæti, vinarþel og hjartahlýja sem þeir sýndu börnunum og foreldrum á erfiðum tímum.“ Ljóð og lag sem ég samdi eftir ferðina til Noregs 2013 er einnig til- einkað sömu aðilum, var flutt á goslokum í Höllinni í Vestmanna- eyjum sama ár og á tónleikum sem ég hélt í Salnum í Kópavogi 11. júní 2016. Ljóðið hefst kvöldið fyrir eldgosið og því lýkur við lok þess, 3. júlí 1973 þegar Eyjan okkar rís úr öskustónni. Noregsfarar Er brimið á berginu brotnar aldan úr hafinu rís. ,,Á Heimey himinn sortnar úr iðrum jarðar gýs.“ Burtu við förum á flótta flýjum heimaslóð. Lömuð af undrun og ótta spýjandi eldsins glóð. Vini við eigum marga sem létta´ okkur lífið þá. Til Noregs í víking halda ,,Eyjabörn stór og smá“. Þar áhyggjulaus lifa að nýju ó heimþráin sé sterk. Til Norðmanna hugsa með hlýju því góð eru þeirra verk Erfið reynist biðin sú að komast heim á ný. ,, Úr öskustónni rís hún nú Eyjan björt og hlý“. Úr öskustónni rís hún nú Eyjan björt og hlý. Lag og texti Guðrún Erlingsdóttir, https://youtu.be/Ukt4vOmLcI0 Svo mikið tilfinningarót kom upp hjá höfundi þegar hann samdi þetta lag og ljóð að þegar hann ætlaði að flytja lagið í fyrsta sinn fyrir eiginmanninn, skyldist ekki orð af textanum á milli ekkasoganna hjá höfundi. Vanlíðan Upplifunin af gosnóttinni, líðanin á fastalandinu eins og við Eyjamenn köllum það, vandamálin sem upp komu í samskiptum manna á milli meðan á náttúruhamförunum stóð ætla ég ekki að fjalla um í þessari grein. Heldur einblína á ferðina til Noregs. En það er þó öllum hollt að reyna að ímynda sér álagið sem var á foreldrum, börnum og ættingjum þeirra meðan á gosinu stóð. Óvissan um framtíðina, fjöl- skyldur, vinir og skólafélagar sundraðir, heimilsleysi eða þröngur húsakostur, einelti og stríðni, nýr skóli eða skólar. Þögnin sem var svo skerandi, ekki mátti tala um hlutina, allir ætluðu sér að þrauka og flestir settu stefnuna á að fara heim til Eyja á ný. Það var því lítið annað að gera en að bíta á jaxlinn og taka á honum stóra sínum. Sama hversu gamlir flóttamennirnir úr Eyjum voru. Tilfinningaúrvinnsla mátti bíða þar til síðar, hjá sumum í áraraðir og bíður jafnvel enn. Ég mun í grein þessari styðjast við eigin minningar og upplifanir, munnlegar heimildir, úrklippur og blaðagreinar úr íslenskum og norskum fjölmiðlum. Gögn frá Rauða krossi Íslands, Norsk Islandsk Samband og Héraðsskjala- safni Vestmannaeyja. Hvernig datt mönnum þetta í hug? Það er auðvelt að spyrja árið 2016 hvernig í veröldinni nokkrum manni datt í hug að bjóða 1020 börnum til dvalar í ókunnu landi í tvær vikur á aldrinum sjö til fimmtán ára ýmist í hópum eða á einkaheimilum. Árið 1973 hafði sjónvarpið verið á Íslandi í nokkur ár og almennt töluðu börn hvorki Norðurlandamál né ensku. Ekki voru til farsímar, erfitt og mjög dýrt að hringja á milli landa og ekkert var nú internetið. Börnin voru því sum hver mállaus, í ókunnu landi, fjarri fjölskyldu og tiltölulega nýbúin að upplifa gríðarlegt áfall af völdum nátt- úruhamfara. Hver var hugmynda- fræðin á bak við þessa ferð og hvers vegna samþykktu foreldrar að leyfa börnum sínum að fara í slíka ferð, þar sem þau börn sem ekki voru í heimavistarskólum eða sumar- búðum voru á einkaheimilum ýmist ein eða með einhverjum öðrum sem þau þekktu varla í sumum tilfellum. Fararstjórar voru með hverjum hópi að kröfu bæjaryfirvalda í Vestmannaeyjum en þeir gistu ekki með börnunum á einkaheimilum. Myndu foreldar samþykkja þetta í dag? Að öllum líkindum ekki en við megum ekki gleyma stöðu forelda og barna veturinn og vorið 1973. Fyrir marga var ferðin til Noregs erfið, fyrir aðra skemmtileg upplifun. Fyrir mig voru þetta einu tvær vikurnar sem ég man eftir að hafa verið áhyggjulaust barn að leika mér við önnur börn frá nóttinni örlagaríku 23. janúar 1973 þar til ég flutti heim til Eyja 7. janúar 1974. Hugmyndin kviknaði tíu dögum eftir að gos hófst Það var Hans Høegh kaupmaður, félagi í norska Rauða krossinum og stjórnarmaður í Huseby sumarbúð- unum í Noregi sem virðist hafa verið aðalhvatamaðurinn að ferðinni 1973 í samstarfi við Islandsk- Norsk Samband, Rauða kross Íslands, Rauða krossinn í Noregi, íslenska sendiherrann Agnar Kl. Jónsson og Íslendinga- Guðrún Erlingsdóttir rifjar upp ferð Vestmannaeyjabarna til Noregs 1973 :: Hluti af BA ritgerð hennar í norsku: Með frábæru skipulagi og hjarta úr gulli tóku Norð- menn á móti yfir 900 börn- um frá Vestmannaeyjum :: Hélt tengslum við Noregsfjölskylduna í 30 ár :: Kom að gerð myndar um ferðina :: Börnin voru sjö til fimmtán ára :: Hvernig datt fólki þetta í hug? Eyjabörn í Noregsferðinni 1973 þarna má m.a. sjá Jóhann Ragnarsson, Viktor Guðnason, Ólaf Tý Guðjónsson, Jóhannes Þórarinson, Guðnýju Óskarsdóttur, Kristínu Hallbergsdóttur, Margréti Kristjánsdóttur, Sigurpál Scheving, Þór Sigurgeirsson og Hörpu Kristinsdóttur svo einhverir séu nefndir. Mynd úr blaði. Guðrún með Bjarna sem er faðir Birkis Bjarnasonar, knattspyrnukappa.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.