Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2017, Blaðsíða 2
2 Eyjafréttir / Miðvikudagur 12. júlí 2017
Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549.
ritstjóri: Ómar Garðarsson - omar@eyjafrettir.is.
Blaðamenn:
Einar Kristinn Helgason - einarkristinn@eyjafrettir.is
Sara Sjöfn Grettisdóttir - sarasjofn@eyjafrettir.is
ábyrgðarmaður: Ómar Garðarsson.
prentvinna: Landsprent ehf.
ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn.
aðsetur ritstjórnar: Strandvegur 47,
Vestmannaeyjum.
símar: 481 1300 og 481 3310.
netfang: frettir@eyjafrettir.is.
Veffang: www.eyjafrettir.is
Eyjafréttir koma út alla miðvikudaga. Blaðið er
selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum,
Kránni, Vöruval, Herjólfi, Krónunni og Skýlinu.
Eyjafréttir eru prentaðar í 2000 eintökum.
Eyjafréttir eru aðilar að Samtökum bæjar-
og héraðsfréttablaða.
eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og
annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
Eyjafréttir
Frá vígslu endurgerðar Blátinds. Á myndinni er frændi og afkomendur Þorsteins Sigurðssonar og Önnu Ó.
Jónsdóttur sem byggðu Blátind. Sigurður Þórir Jónsson, Þorsteinn Viktorsson, Lilja Kristinsdóttir, Emilía
Sigurðardóttir, Elísa Sigurðardóttir, Lilja Sigurðardóttir, Alexander Jarl Þorsteinsson, Eva Sigurðardóttir,
Þorsteinn Sigurðsson, Sigrún Þorsteinsdóttir, Stefanía Þorsteinsdóttir, Viktor Helgason, Díanna Þ. Einars-
dóttir og Anna Lilja Sigurðardóttir.
Það fellur fátt með Vestmannaey-
ingum í samgöngumálum þessa
mánuðina. Herjólfur var einar fjórar
vikur í slipp í vor og nú er ljóst að
hann verður að minnsta kosti 19
daga frá eftir miðjan september.
Í gær var í bæjarráði greint frá
erindi frá Vegagerðinni í síðustu
viku vegna fyrirspurnar bæjarstjóra
en þar kemur fram að þegar
Herjólfur var í slipp í maí sl. hafi
komið óvænt í ljós skemmdir á
tannhjólum í stjórnborðs niður-
færslugír skipsins. Þar af leiðandi
þarf skipið að fara aftur í slipp á
haustdögum, nánar tiltekið eftir
miðjan september. Áætlað er að
viðgerð taki 19 daga.
Bæjarráð lýsti yfir miklum
áhyggjum vegna þeirrar alvarlegu
stöðu sem komin er upp vegna
fyrirhugaðs viðhalds sem liggur
fyrir að Herjólfur þurfi að fara í á
haustdögum.
Bæjarráð gerir þá kröfu til
Vegagerðarinnar að hún tryggi að
samgöngur verði greiðar til
Vestmannaeyja á viðgerðartímanum
í fjarveru Herjólfs, hvort sem siglt
verði frá Landeyjahöfn eða
Þorlákshöfn. Einnig er gerð sú krafa
að þjónustuþegar séu upplýstir
tímanlega um stöðu mála, þ.e.
hvernig siglingum verði háttað milli
lands og Eyja.
Bæjarráð :: Herjólfur aftur í slipp
í september :: Frá í 19 daga:
Krafa um
tryggar
samgöngur
á meðan
:: Hvort sem siglt verði til Land-
eyjahafnar eða Þorlákshafnar
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.isMeðal atburða í fjölbreyttri dagskrá
Goslokahátíðar um sl. helgi var
vígsla endurgerðrar gluggahliðar
Blátinds við Heimagötu. Í síðustu
Eyjafréttum var fjallað um
undirbúning verksins sem hófst sl.
haust og hvernig verkefnið þróaðist.
Húsið Blátindur hafði ákveðna
sérstöðu meðal þeirra fjölmörgu
húsa sem fóru undir hraun í Heima-
eyjargosinu 1973, en hluti hússins
stóð út úr hraunkantinum við
Heimagötu við goslok.
Arnar Sigurmundsson, formaður
vinnuhóps um endurgerð glugga-
hliðar Blátinds, gerði grein fyrir
verkefninu við vígsluna sl. föstudag
að viðstöddum fjölmörgum gestum,
en framkvæmdir hófust í byrjun
maí og lauk 7. júlí sl. Í ávarpi
Arnar kom fram að Blátindur hafi
fljótlega eftir goslok 1973 orðið
táknmynd þeirra byggðar er fór
undir hraun og ösku í gosinu.
Bæjaryfirvöld höfðu látið gera gott
aðgengi af rústum hússins og
þannig liðu árin. Þann 24. júní
2013, 40 árum eftir goslok féll
síðasti hluti rústa hússins. Haustið
2016 var ákveðið að koma á
vinnuhóp sem skyldi móta tillögur
og fylgja eftir framkvæmd og
starfaði hann í nánu samstarfi við
Umhverfis- og framkvæmdasvið
bæjarins og Þekkingarsetur
Vestmannaeyja. Samið var við
Ársæl Sveinsson sem verktaka við
endurgerð og einnig komu fjöl-
margir iðnaðarmenn við sögu.
Endurgerð gluggahliðar hússins er
nákvæmnisverk og þurfti meðal
annars að sérsmíða svalahandrið
svo dæmi sé tekið. Gagnvirk tækni
er notuð við sýningar á 75 tommu
skjá í gegnum gluggann á 30
myndum úr sögu hússins, fjöl-
skyldunnar sem þar bjó, af svæðinu
fyrir gos, og í gosinu. Þessi tækni
virkar þannig að þegar gengið er að
glugganum fer í gang sýning sem
tekur rúmlega fimm mínútur.
Við athöfnina afhjúpuðu Sigrún og
Stefanía, dætur Þorsteins Sigurðs-
sonar og Önnu Ó. Jónsdóttur á
Blátindi, glæsilegt útiskilti með
þremur ljósmyndum Sigurgeirs í
Skuld. Að lokum þakkaði Arnar
Sigurmundsson þeim fjölmörgu
sem komu að verkefninu með
einum eða öðrum hætti.
Vinnsluskipið Huginn VE, sem nú
er í sínum fjórða túr á makríl var að
hífa þegar Eyjafréttir slógu á
þráðinn til Guðmundar Inga
Guðmundssonar skipstjóra eftir
hádegið í gær. Voru þeir suðvestur
af Surtinum rétt austan við
Grindavíkurdýpið.
Þeir hófu veiðar um miðjan júní
og er Guðmundur Ingi ánægður
með ganginn og þá einstöku blíðu
sem verið hafi frá því þeir byrjuðu.
„Þetta hefur verið hittingur,
stundum gott og stundum minna en
við höfum haft nóg fyrir vinnsluna
og vel það. Þetta er keimlíkt og
verið hefur, nema að fiskurinn er
heldur betri og stærri en hann hefur
verið hefur á þessum tíma.
Sjávarhiti er líka nokkru meiri.“
Guðmundur Ingi segir að nú fari
að styttast í að önnur Eyjaskip byrji
makrílveiðar. „Ég held að Vinnslu-
stöðvarskipin byrji um helgina.
Þegar skipum fjölgar leitast betur
sem gerir veiðarnar auðveldari,“
sagði Guðmundur að lokum.
Bréfdúfurnar hans Ragga Sjonna,
Ragnars Sigurjónssonar frá Viðey í
Vestmannaeyjum, nú bónda á
Brandshúsum 4 í Flóa verða hluti af
gjörningi á Tyrkjaránsdagskránni á
sunnudaginn kemur. Sleppir hann
34 dúfum fyrir framan Safnahúsið
til minningar um þá sem drepnir
voru í Tyrkjaráninu 1627. Verður
hægt að fylgjast með flugi þeirra á
netinu og á skjá í Einarsstofu í
Safnahúsi.
„Það er engin aðstaða til að vera
með þær í Eyjum þannig að ég ríf
mig upp klukkan 5 um morguninn
eins og góðum bónda sæmir og kem
með þær með Herjólfi á sunnudags-
morguninn,“ segir Raggi um þetta
framtak sitt.
„Þær eru allar með keppnishring
sem sendir frá sér merki þannig að
hægt er að fylgjast með þeim í tölvu
eftir að þær fljúga af stað.“
Raggi segir að fjarlægðin að
Brandshúsum sé um 50 km og er
hægt að fylgjast með þeim og sjá
hvað hratt þær fljúga á skjá í
Safnahúsi og netinu. „Það sést svo
hvenær þær lenda á Brandshúsum.“
Auk þess verður hann í lok
dagskrár með kynningu á félaginu í
Safnahúsinu.
Raggi Sjonna með eina af
bréfdúfunum sínum. En hægt
verður að fylgjast með flugi
þeirra á skjá í Safnahúsinu.
Táknmynd þeirrar
byggðar sem fór undir
hraun og ösku í gosinu
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Huginn VE í
sínum fjórða
túr á makríl
Minnst þeirra 34 sem
drepnir voru í Tyrkjaráninu