Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2017, Blaðsíða 15
15Eyjafréttir / Miðvikudagur 12. júlí 2017
Íþróttir
u m S j Ó n :
Einar KriSTinn HELGaSon
einarkristinn@eyjafrettir.is
Framundan
Laugardagur 15. júlí
Kl. 14:00 Elliði – KFS
4. deild karla B riðill
Sunnudagur 16. júlí
Kl. 16:00 KA – ÍBV
Pepsi-deild karla
Laugardagur 22. júlí
Kl. 14:00 KFS – Afríka
4. deild karla B riðill
Sunnudagur 23. júlí
Kl. 17:00 Fjölnir – ÍBV
Pepsi-deild karla
Miðvikudagur 26. júlí
Kl. 17:00 SR – KFS
4. deild karla B riðill
ÍBV og Breiðablik gerðu 1:1
jafntefli þegar liðin mættust í
Pepsi-deild karla sl. sunnudag á
Hásteinsvelli.
Það voru rúmlega 800 manns
mættir til að fylgjast með leiknum
enda veðrið með besta móti.
Blikarnir voru sterkari framan af og
ógnuðu marki heimamanna
nokkrum sinnum á fyrsta korterinu.
Það var síðan Höskuldur Gunn-
laugsson, leikmaður Breiðabliks,
sem kom gestunum yfir á 20.
mínútu leiksins með góðu skalla-
marki. Forystan var fyllilega
sanngjörn því það hafði hvorki
gengið né rekið hjá ÍBV fram að
marki. Blikarnir héldu áfram að
vera sterkari aðilinn í leiknum og
mátti oft og tíðum heyra að
stuðningsmönnum var ekki skemmt
í stúkunni. Hafsteinn Briem,
varnarmaður ÍBV, og Martin Lund,
leikmaður Blika, lentu í samstuði
eftir um 40 mínútna leik þar sem
höfuð þeirra skullu saman. Báðir
virtust ætla hrista meiðslin af sér en
skömmu síðar þurfti Hafsteinn að
víkja af velli og í hans stað kom
Mikkel Maigaard.
Kristján Guðmundsson sá sig
knúinn til að gera breytingu á sínu
liði í hálfleik en þá kom inn á
Gunnar Heiðar Þorvaldsson fyrir
Kaj Leo í Bartalstovu sem hafði
ekki átt sinn besta leik frekar en
aðrir Eyjamenn. Leikmenn ÍBV
mættu töluvert öflugri til leiks í
síðari hálfleik og voru sífellt meira
ógnandi fram á við. Það voru hins
vegar Blikar sem fengu upplagt
marktækifæri um miðbik hálfleiks-
ins en tilraun Hrvoje Tokic fór
framhjá markinu og Eyjamenn
sluppu með skrekkinn. Á 72.
mínútu leiksins jafnaði varamaður-
inn Gunnar Heiðar Þorvaldsson
metin með skalla en markið kom
eftir hornspyrnu. Varð þetta til að
hleypa enn meira lífi í leikinn en
allt kom fyrir ekki og niðurstaðan
sanngjarnt 1:1 jafntefli.
Eftir tíu umferðir eru Eyjamenn í
níunda sæti deildarinnar með 11
stig. Næsti leikur liðsins verður á
sunnudaginn gegn KA fyrir norðan.
Verður hreyfing á leikmanna-
hópnum í glugganum
Blaðamaður ræddi við Kristján
Guðmundsson, þjálfara ÍBV, eftir
leik og samkvæmt honum munu
verða einhverjar breytingar á
leikmannahópnum í félagsskipta-
glugganum sem opnar á sunnudag.
Hvernig fannst þér leikurinn gegn
Breiðabliki spilast? „Við byrjuðum
illa, vorum þungir og færðum okkur
hægt og alls ekki nógu afgerandi í
neinu sem við gerðum. Af hverju er
erfitt að segja. Þetta lagaðist í seinni
hálfleik, bæði vegna þess sem fram
fór inni í klefa og með skiptingu.
Spilamennskan varð mun betri og
við áttum stig skilið og hefðum
jafnvel geta stolið þessu undir lokin,
það hefði verið sætt,“ sagði
Kristján.
Aðspurður hvort spilamennskan í
fyrri hálfleik sé áhyggjuefni sagði
Kristján það ekki borga sig að hafa
of miklar áhyggjur. „Það borgar sig
ekki að hafa áhyggjur en það
truflaði okkur að við gátum ekki
haldið betur dampi en ég ætla ekki
að hafa áhyggjur.
KA næstu helgi, hvernig leggst
það í þig? „Bara vel, þá klárum við
fyrri umferðina og erum þar með
búnir með löngu ferðalögin. Það
verður erfitt að mæta þeim núna,
þeir byrjuðu mótið mjög vel en eru
búnir að tapa þremur í röð og eru
örlítið innikróaðir. Ég á von á mjög
föstum leik en það getur allt gerst
fótboltalega,“ sagði Kristján sem
staðfesti við blaðamann að einhver
hreyfing yrði á mannskapnum í
félagsskiptaglugganum sem opnar á
sunnudaginn. „Við fáum til okkar
einn eða tvo leikmenn og svo verða
einhverjar hreyfingar á hópnum,
það skýrist allt eftir helgi.“
Daginn eftir viðtalið greindi Avni
Pepa, varnarmaður ÍBV, að hann
væri á förum frá félaginu eftir
tveggja ára veru. Sagði hann
jafnframt á samfélagsmiðlum að
hann væri liðsfélögum sínum og
öllum hjá ÍBV þakklátur og að það
hafi verið heiður að fá að klæðast
treyju ÍBV og að leikurinn á
sunnudaginn gegn KA yrði hans
síðasti fyrir félagið.
Knattspyrna | Pepsi-deild karla :: ÍBV 1:1 Breiðablik
Við byrjuðum illa, þungir og
færðum okkur hægt
:: segir Kristján Guðmundsson þjálfari :: Avni Pepa á förum frá ÍBV
KFS lenti undir þegar liðið fékk
Stokkseyri í heimsókn á laugardag-
inn í B riðli 4. deildar karla.
Liðsmenn KFS voru hins vegar
búnir breyta stöðunni í 2:1 áður en
flautað var til hálfleiks en þar voru
að verki Anton Bjarnason og Ásgeir
Elíasson.
Þeir Anton og Ásgeir voru síðan
aftur á skotskónum í síðari hálfleik
og var staðan orðin 4:1 þegar
stundarfjórðungur var eftir. Jóhann
Ingi Þórðarson bætti við fimmta
markinu á 88. mínútu áður en
Hallgrímur Þórðarson rak síðasta
naglann í kistuna á 90. mínútu
leiksins.
Knattspyrna |
4. deild karla:
KFS fór
illa með
Stokkseyri
Felix Örn Friðriksson, leikmaður
ÍBV í knattspyrnu, hefur skrifað
undir nýjan þriggja ára samning við
félagið en þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá ÍBV. Felix,
sem er 18 ára vinstri bakvörður og
er uppalinn hjá félaginu, á að baki
níu landsleiki með U-19 og einn
með U-21.
Knattspyrna |
Felix
framlengir
Clara Sigurðardóttir, leikmaður ÍBV
í knattspyrnu, og félagar í U-16
töpuðu fyrir Þjóðverjum í lokaleik
liðsins á Norðurlandamóti á
dögunum. Leiknum lyktaði með 4:0
tapi og endaði Ísland í fjórða sæti í
mótinu. Fyrir leikinn hafði liðið
staðið sig frábærlega á mótinu,
unnið bæði Svíþjóð og Finnland og
tapað naumlega gegn Frakklandi.
Knattspyrna |
U-16 end-
aði í fjórða
Pablo Punyed á miklum spretti gegn Breiðabliki.
Valur 10 6 3 1 16 - 9 21
Grindavík 10 6 3 1 16 - 11 21
FH 11 4 5 2 19 - 15 17
Stjarnan 10 4 3 3 20 - 15 15
Víkingur R. 10 4 3 3 16 - 14 15
KA 10 3 3 4 17 - 14 12
Breiðablik 11 3 3 5 14 - 18 12
KR 9 3 2 4 13 - 15 11
ÍBV 10 3 2 5 11 - 17 11
Víkingur Ó. 10 3 1 6 11 - 18 10
ÍA 10 2 3 5 19 - 21 9
Fjölnir 9 2 3 4 8 - 13 9
Pepsideild karla
Knattspyrna |
Fjör fyrir
norðan
Icelandair Volcano Open mótið í
golfi fór fram í Vestmannaeyjum
um helgina en þar var keppt í 36
holu punktakeppni í tveimur
forgjafarflokkum. Í forgjafarflokki 1
(- 14,4) voru Ágúst Ómar Einars-
son frá GV og Björn Steinar
Stefánsson frá GKG báðir með 77
punkta en þar sem Ágúst Ómar var
betri á síðustu níu holunum lenti
hann í fyrsta sæti og Björn Steinar í
öðru. Í þriðja sæti var Hallgrímur
Júlíusson frá GV með 70 punkta.
Í forgjafarflokki 2 (14,5 -) endaði
Anton Freyr Karlsson frá GV í
fyrsta sæti með með 73 punkta.
Ólafur Magnús Magnússon frá GÞ
og Jóhann Þorkell Jóhannsson frá
GR enduðu báðir með 71 punkt en
Ólafur Magnús fékk annað sætið
þar sem hann var með fleiri punkta
á síðustu níu holunum.
Golf | icelandair Volcano Open:
Ágúst ómar Einarsson
frá GV endaði efstur
Verðlaunahafar á Volcano Open.
Árlegt N1 mót fór fram um helgina
en það er ætlað drengjum í 5. flokki
í knattspyrnu. Blaðamaður ræddi
við Guðmund Tómas Sigfússon,
þjálfara ÍBV á mótinu, en hann var
heilt yfir ánægður með ferðina.
„Þetta gekk nokkuð ágætlega, fyrir
utan það að ÍBV 5 náði ekki að
sigra leik. ÍBV 2 var á leiðinni í
undanúrslit í brasilísku deildinni en
KA 2 jafnaði þegar það voru 15
sekúndur eftir og þá fór leikurinn í
vító þar sem við töpuðum í
þreföldum bráðabana. ÍBV 3 tapaði
síðustu tveimur leikjum sínum í
vítakeppni og hefðu því getað verið
ofar í töflunni.“
ÍBV 1 spilaði mjög vel að sögn
Guðmundar og gáfu sterkum liðum
í mótinu ekkert eftir. „Þeir spiluðu
betur og betur þegar á leið á mótið
og voru óheppnir að tapa næst
síðasta leiknum í vítakeppni. ÍBV 4
átti mjög erfitt uppdráttar til að
byrja með en þeim óx ásmegin
þegar leið á mótið. ÍBV 6 kom
skemmtilega á óvart og sigraði tvo
leiki og gerði eitt jafntefli.“