Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2017, Blaðsíða 11

Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2017, Blaðsíða 11
11Eyjafréttir / Miðvikudagur 12. júlí 2017 svona flottum verkstæðum, góðum kennurum og þeim aukaáföngum sem maður hefur áhuga á. Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig að hljóta viðurkenningu fyrir góðan námsárangur: Ég lagði á mig mikla vinnu við námið og vandaði mig og það er alveg pínu næs að sjá það metið. Ég náði besta námsárangri úr báðum greinunum auk viðurkenningar fyrir fagteikn- ingu og heildar námsárangur úr Byggingatækniskólanum. Þetta hjálpar kannski við að koma sér á framfæri en ég hef ekkert rosa mikla trú á svona viðurkenningum, mér hefur þótt slitrótt samhengi á milli námsárangurs og hvernig fólki raunverulega vegnar í sínu fagi. Maður getur náð nákvæmlega þangað sem maður ætlar sér og það að fá eða fá ekki viðurkenningu á ekki að breyta neinu. Hvað tekur nú við: Við fjölskyldan á Slippnum keyptum húseignina á móti Slippnum í mars og byrjuðum strax að standsetja hana og sú vinna mun endast í dágóðan tíma í viðbót. Það er líka allt komið á milljón á Slippnum svo ég hef ekki náð að horfa fram í tímann og festa neitt hvað framtíðarplön varðar. Best að segja sem minnst! ......................................................... Hallgrímur Júlíusson Aldur: 22. Búseta: Búdapest – Ungverjalandi. Í hverju varstu að útskrifast: Ég lauk á dögunum bóklega hluta atvinnuflugmannsnámsins. Hvað tók námið langan tíma: Það er hægt að fara nokkrar leiðir í að klára þetta. Ég tók einkaflugmann- inn fyrst sem var 4 mánuðir í heildina, safnaði svo flugtímum allt síðasta sumar og fór svo í bóklega atvinnuflugið síðastliðið haust. Það eru tvær annir eða átta mánuðir og í síðustu viku var ég að byrja á verklega partinum til að fá atvinnuflugmannsskírteinið í hendurnar að því loknu. Í heildina hjá mér er þetta að taka tæplega tvö ár frá fyrsta tíma og að fá atvinnu- flugmannsskírteinið í hendurnar. Af hverju valdir þú þetta nám, hafðir þú alltaf áhuga á því: Ég get ekki sagt að það hafi verið bernskudraumur að verða flug- maður, áhuginn kviknaði ekki fyrr en að framhaldsskólanámi loknu. Ég var að pæla í allt öðrum greinum heldur en fluginu, meðal annars kírópraktík og tölvunarfræði. Þegar kom svo að því að ákveða hvað skyldi læra ákvað ég af rælni að fara í prufutíma hjá Flugskóla Íslands. Ég fann þar strax að þetta væri eitthvað sem ætti vel við mig. Myndir þú mæla með Tækniskól- anum: Ég mæli klárlega með flugnáminu sem skólinn býður upp á í samstarfi við Flugskóla Íslands. Flugmannsnámið hefur verið kennt þar um árabil og skólinn er virtur á sínu sviði. Einnig eru kennararnir mjög reynslumiklir flugmenn sem bætir gæðin í kennslunni heilmikið. Hvað tekur nú við: Ég flutti nýverið til Búdapest í þeim tilgangi að taka verklega hluta námsins. Ég stefni á að ljúka náminu á haust- dögum ef allt gengur upp og geta strax í framhaldi af því farið að sækja um störf hjá stóru flugfélög- unum. ......................................................... Elías Fannar Stefnisson Aldur: Ég er víst rétt að verða 27 ára þó ótrúlegt megi virðast. Búseta: Ég bý í Reykjavík. Í hverju varstu að útskrifast: Ég útskrifaðist frá pípulagningadeild Tækniskóla Reykjavíkur. Hvað tók námið langan tíma: Námið tók ca. tvö og hálft ár frá því ég byrjaði í Tækniskólanum. Af hverju valdir þú þetta nám, hafðir þú alltaf áhuga á því: Nei, svo sem kannski ekkert sérstaklega, mér hefur alltaf fundist fagið áhuga- vert sem slíkt en ég held að áhuginn hafi kviknað bara við að fikta aðeins í þessu. Mér fannst fyrst og fremst vinnan skemmtileg og fjölbreytt og mér fannst kominn tími til að mennta mig og þessi grein lá ágætlega fyrir mér. Myndir þú mæla með Tækniskól- anum: Já alveg klárlega. Í fyrsta lagi eru námsmöguleikarnir margir og aðstaðan til fyrirmyndar. Miðað við stærðina á skólanum þá er líka allt rosa persónulegt og til að mynda pípulagningadeildin alveg frábær með það að gera. Kennararn- ir þekkja þig nánast alveg frá fyrsta degi og eru fyrstu mennirnir til að aðstoða ef þörf er á. Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig að hljóta viðurkenningu fyrir góðan námsárangur: Hefur í sjálfu sér enga gríðarlega þýðingu ef ég á að vera hreinskilinn. Ég hef aldrei fundið mig almennilega í námi né skóla og stóð mig frekar illa bæði í grunnskóla og fyrst um sinn í framhaldsskóla. Þetta verður kannski til þess að minna mig og vonandi aðra á að um leið og maður fær áhuga á því sem maður er að læra þá einhvern vegin kemur árangurinn sjálfkrafa með. Þannig að það er engin þörf á að örvænta þó að maður finni sig ekki alveg strax í þessu hefðbundna námi. Hvað tekur nú við: Ég fer bara á fullt núna að halda áfram að vinna hjá fyrirtæki hérna í Reykjavík sem heitir Kraftlagnir. Er búinn að vinna þar í tæp þrjú ár og líkar það alveg rosalega vel. Ég stefni á meistara- skólann innan nokkurra ára og svo er aldrei að vita hvað tekur við. Hef einnig mikinn áhuga á að mennta mig í tónlist eða a.m.k. rækta það aðeins meira en ég hef gert síðan ég byrjaði að læra píparann. ......................................................... Sigurður Sigurðsson Aldur: 38 ára. Búseta: Landsbyggðin, Seltjarnar- nes. Í hverju varstu að útskrifast: Stýrimannaskólanum. D-Stig. Veitir ótakmörkuð réttindi á öll skip (nema varðskip). Hvað tók námið langan tíma: Mig minnir að ég hafi byrjað 2013 svo námið tók fjögur ár í heildina. Ég var í fjarnámi því var námið ekki tekið á fullum hraða og misjafnt eftir önnum hve mörg fög ég tók eftir því hvað hentaði. T.d var ég á loðnuvertíð alltaf á vorönn og því var betra að taka færri áfanga þá en síðan fleiri á haustönn. Af hverju valdir þú þetta nám, hafðir þú alltaf áhuga á því: Þar sem ég var hvort eð er á sjó fannst mér ég alveg eins geta tekið stýrimannaskólann í fjarnámi, þá hafði ég líka eitthvað að sýsla á stímum. Fyrst maður var að vinna við þetta þá hafði ég auðvitað áhuga á að læra þetta til fulls og hef enn áhuga á að bæta við mig eins mikilli kunnáttu og ég kemst yfir. Myndir þú mæla með Tækniskól- anum: Það er margt mjög gott við Tækniskólann og þá sérstaklega fjarnámið. Kennararnir eru frábærir, sem og yfirstjórn deildarinnar og öll samskipti við starfsfólk skólans til fyrirmyndar. Hins vegar mætti setja spurningarmerki við reksturinn og hvernig fjármunum er varið, en það væri flóknari pólitík að fara í þá sálma. Hvað tekur nú við: Þar sem ég hef verið á sjó allan námsferilinn verður svo áfram. Ég er 2. stýrimaður á Sigurði VE 15 og mun halda því áfram. Útskrift Tækniskólans: Þó nokkrir Eyjamenn útskrifuðust úr Tækniskólanum :: Margt í boði í Tækniskólanum :: Allt frá húsasmiðum yfir í rafeindavirkja Hallgrímur Júlíusson er í atvinnuflugmannsnámi. Elías Fannar Stefnisson útskrifaðist frá pípulagningadeild. Sigurður Sigurðsson útskrifaðist úr Stýrimannaskólanum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.