Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2017, Side 4
4 Eyjafréttir / Miðvikudagur 12. júlí 2017
Hvítasunnu-
kirkjan
Fimmtudagur kl. 20:00
Biblíu- og bænastund.
Föstudagur kl. 20:30 AA fundur.
Sunnudagur kl. 11:00
Samkoma, Lilja Óskarsdóttir
prédikar. Allir velkomnir í kaffi og
spjall eftir á.
Allir hjartanlega velkomnir.
Eyjamaður vikunnar
Ef ég sé krúttleg
dýr, þá langar mig
að teikna þau
Myndlistarmaðurinn Sunna
Einarsdóttir var með sýningu í
anddyri Hótels Vestmannaeyja sem
vakti mikla lukku á nýafstaðinni
Goslokahátíð. Sunna, sem er að
halda sína aðra sýningu, er einungis
12 ára gömul og á svo sannarlega
framtíðina fyrir sér á sviði mynd-
listar. Sunna er Eyjamaður vikunnar.
Nafn: Sunna Einarsdóttir.
Fæðingardagur: 27. nóv 2004.
Fæðingarstaður: Reykjavík.
Fjölskylda: Pabbi heitir Einar
Björn, mamma heitir Bryndís, systir
mín Margrét Íris og bróðir minn
Dagur.
Draumabíllinn: Ferrari, glimer
bleikur.
Uppáhaldsmatur: Kjötsúpan
hennar ömmu.
Versti matur: Svið og skata.
Uppáhalds vefsíða: Ég er mikið að
nota snapchat og instagram.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Popp og mamma og Margrét
að syngja, þær eru svo mega falskar.
Aðaláhugamál: Fótbolti, teikna og
vera með vinum mínum.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Alexis Sanchez.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Albir og Vestmannaeyjar.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Arsenal og ÍBV,
uppáhalds íþróttamenn eru auðvitað
Mikkel, Margrét systir, Dagur og
Sísí Lára.
Ertu hjátrúarfull/ur: Nei.
Stundar þú einhverja hreyfingu:
Fótbolta og handbolta.
Uppáhaldssjónvarpsefni:
Skemmtilegar myndir.
Hefur þú alltaf haft áhuga á
myndlist: Já, eiginlega.
Verkin hafa vakið mikla athygli
og ekki síst fyrir þær sakir að
listamaðurinn er einungis 12 ára.
Er ekki gaman að fá viðurkenn-
ingu fyrir listina sína: Jú, geggjað.
Seldust einhver verk: Já, um 50
myndir á Goslokunum. Ég vill
þakka öllum þeim sem keyptu
myndir.
Hvaðan færðu þinn innblástur:
Ef ég sé krúttleg dýr, þá langar mig
að prófa að teikna þau.
Sunna Einarsdóttir er Eyjamaður vikunnar
SiGurður BraGaSon
Er 40 ára í daG.
Sigurður verður að heiman
og fagnar afmælinu í faðmi
fjölskyldunnar í heitum potti
í Biskupstungum.
Til hamingju með daginn, Siggi
minn. Kveðja, tengdó
Til hamingju með daginn
Sr. Sigfinnur Þorleifsson, fyrrum
sjúkrahúsprestur, mun leysa af í
Landakirkju næstu 10 daga en sr.
Guðmundur Örn er í sumarfríi og
sr. Viðar verður erlendis. Sr.
Sigfinnur verður til staðar á
auglýstum viðtalstímum og verður
tengdur við vaktsíma Landakirkju
en Viðar kemur aftur til starfa 20.
júlí.
Þá mun sr. Sigfinnur einnig leiða
guðsþjónustu komandi sunnudags
þar sem þátttakendur á norrænu
móti KFUM&KFUK munu taka
virkan þátt.
Prestar Landakirkju vilja koma á
framfæri kærum þökkum til sr.
Sigfinns fyrir að hlaupa í skarðið.
Fréttatilkynning
Sr. Sig-
finnur
leysir af
í Landa-
kirkju
Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu?
Al-Anon
fyrir ættingja og vini alkóhólista
Fundir á þriðjudögum kl. 20.30
Byrjendafundir kl. 20.00
að Heimagötu 24
AA fundir
eru haldnir sem hér segir
að Heimagötu 24:
Mánudagur: kl.20.30
Miðvikudagur: kl.20.30
Fimmtudagur: kl.20.30
Föstudagur: kl.23.30
Laugardagur: kl.20.30 opinn fundur
Sunnudagur: kl.11.00
Athugið, allir fundir reyklausir
Móttaka nýliða hálfri klst.
fyrir hvern auglýstan fundartíma.
Ath.símatíma okkar, sem eru hvern dag,
hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn
fundartíma og eru 2 klst. í senn.
Sími 481 1140
Landakirkja
Fimmtudagur 13. júlí
Kl. 15:00 Norrænt mót KFUM og
KFUK hefst í Vestmannaeyjum og
stendur fram til þriðjudagsins 18.
júlí. Rétt um 140 manns taka þátt í
mótinu og koma frá Finnlandi,
Svíþjóð, Danmörku, Færeyjum og
Íslandi.
Kl. 20:00 Æfing Kórs Landakirkju.
Sunnudagurinn 16. júlí
Kl. 11:00 Guðsþjónusta þar sem
þátttakendur í norrænu móti KFUM
og KFUK verða fyrirferðamiklir.
Lesnir verða lestrar á norrænum
tungum og verður tónlistin með
æskulýðsblæ. Létt guðsþjónusta
sem sr. Sigfinnur Þorleifsson leiðir
en hann leysir þá sr. Guðmund Örn
og sr. Viðar af þessa dagana.
Miðvikudagurinn 19. júlí
Kl. 11:00 Helgistund á Hraun-
búðum.
Kl. 20:00 Orgeltónleikar með
rússnesku orgelsnillingunum Denis
Makhankov og Dina Ikhina.
Kirkjur bæjarins:
Rapptvíeykið Úlfur Úlfur hefur
verið ein vinsælasta hip-hop
hljómsveit landsins síðustu ár og
ættu því að vera flestum kunnugir.
Eftir vel heppnaða útgáfuplötu
þeirra ‘Tvær plánetur’ árið 2015
hafa drengirnir verið ansi sýnilegir í
íslenskri, og nú nýverið evrópskri
tónlistarflóru og hafa verið iðnir við
tónleikahald.
Veturinn 2016 lokuðu þeir sig af
við skriftir og úr varð nýjasta plata
þeirra ‘Hefnið okkar’ sem kom út
nýverið. Strákarnir koma fram á
Háaloftinu þann 21. júlí sem partur
af túr þeirra um landið og búast má
við algjörri veislu fyrir augu og
eyru. Húsið opnar kl. 21.00. Verð
miða er kr. 3.000,- í forsölu sem
hefst í Tvistinum á fimmtudag. En
kr. 4.000,- við hurð. Borðapantanir
(eftir miðakaup) eru hjá Tótu í síma
846-4086.
Fréttatilkynning.
Úlfur úlfur á Háaloftinu 21. júlí
Dagana 13.til 18. júlí sækja
Eyjarnar heim tæplega 140
þátttakendur í norrænu móti KFUM
og KFUK félaganna í Danmörku,
Svíþjóð, Finnlandi, Færeyjum og
Íslandi. Vanalega hafa þessi mót
verið haldin í sumarbúðum félagana
en vegna góðrar þátttöku Vest-
mannaeyinga í gegnum árin og til
að brydda upp á nýjungum var
ákveðið að halda mótið í þessari
paradís sem Vestmannaeyjar eru.
Yfirskrift mótsins er “Feel the
Nature” og passar það því vel við
Eyjarnar. „Mótsgestir fá að upplifa
Eyjarnar með sem bestum hætti
ásamt því að læra um Guð,
náttúruna sem Hann skapaði og
hvernig bera eigi virðingu fyrir
sköpunarverkinu,“ segir Gísli
Stefánsson æskulýðsfulltrúi
Landakirkju og starfsmaður KFUM
og KFUK á Íslandi.
„Farið verður í bátsferðir,
Eldheima og sunnudaginn 16. júlí
fara allir mótsgestir í þrautaleikinn
„Upplifðu Vestmannaeyjar“ þar sem
farið verður út um alla Heimaey og
þrautir leystar.“
Það er heiður fyrir KFUM og
KFUK í Vestmannaeyjum að vera
eiginlegir gestgjafar mótsins en
mótið er undirbúið af mótsnefnd
sem samanstendur af starfsmönnum
KFUM og KFUK á Íslandi, þar
með talið Gísla Stefánssyni
æskulýðsfulltrúa Landakirkju og
Þresti Árna Gunnarssyni fjármála-
stjóra KFUM og KFUK á Íslandi en
hann er einmitt gamall Vestmanna-
eyingur.
KFUM&KFUK heldur norrænt
mót í Eyjum 13.-18. júlí
Feel
NatureThe
www.kfum.is/nordiccamp