Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2017, Blaðsíða 10

Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2017, Blaðsíða 10
10 Eyjafréttir / Miðvikudagur 12. júlí 2017 Þann 24. maí sl. brautskráðust á fimmta hundrað nemendur úr Tækniskólanum við hátíðlega athöfn í Eldborgarsal Hörpu. 61 útskrifaðist úr Byggingatækni- skólinn, 29 úr Handverksskól- anum, 47 úr Raftækniskólanum, 66 úr Skipstjórnar- og Véltækni- skólinn, 53 úr Upplýsingatækni- skólanum, 54 úr Tæknimennta- skólanum, 58 úr Flugskólanum, 24 úr Margmiðlunarskólanum, 54 úr Meistaraskólanum og 18 úr Vefskólanum. Þó nokkrir Eyjamenn voru meðal útskriftar- nema og hlutu fjórir þeirra viðurkenningu fyrir góðan námsárangur. Blaðamaður setti sig í samband við nokkra útskriftarnema og ræddi við þá um námið og framtíðina. Jónatan Gíslason Aldur: 35 ára. Búseta: Reykjavík. Í hverju varstu að útskrifast: Ég var að útskrifast í rafeindavirkjun. Hvað tók námið langan tíma: Nám í rafeindavirkjun er þrjú og hálft ár ( sjö annir). Fjórar annir í grunndeild rafiðna og svo sérnám í rafeindavirkjun sem er þrjár annir. Það tók mig samt aðeins meira en þessi rúmu þrjú ár. Ég tók Grunn- deildina í Eyjum 2001 og byrjaði svo í rafeindavirkjun í Iðnskóla Reykjavíkur 2003. Ég tók mér pásu 2004 frá námi sem varð aðeins lengri en ég ætlaði mér en byrjaði aftur haustið 2015, var þá í skóla samhliða vinnu þar til ég útskrifað- ist. Af hverju valdir þú þetta nám, hafðir þú alltaf áhuga á því: Rafeindatækni hefur alltaf heillað mig eða frá því að ég var peyi og fylgdist með pabba laga allskonar rafmagnsdót heima. Ég var búinn að ákveða að læra þetta þegar ég var 16 ára og var nýbyrjaður í FÍV og hef stefnt að því síðan að klára það. Myndir þú mæla með Tækniskól- anum: Alveg klárlega. Mórallinn er góður í skólanum, fín aðstaða og fínir kennarar. Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig að hljóta viðurkenningu fyrir góðan námsárangur: Fyrst og fremst bara skemmtilegt að sjá að það sem maður lagði á sig og fjölskylduna hafi skilað einhverju. Hvað tekur nú við: Ég hef starfað hjá fyrirtæki sem heitir Friðrik A. Jónsson ehf og stefni á að halda því áfram. Friðrik A. Jónsson ehf er með Simrad siglingar og fiskileitar- tæki. Ég vinn á rafeindaverkstæðinu þar við uppsetningu og viðgerðir á allskyns rafeindabúnaði fyrir skip. Stefnan er svo að fara í Rafiðnfræði í HR einhvern tímann í náinni framtíð. ......................................................... Guðný Charlotta Harðardóttir Aldur: 20 ára. Búseta: Er í skóla í Reykjavík yfir veturinn en kem svo til Vestmanna- eyja yfir jól-, páska- og sumarfrí! Í hverju varstu að útskrifast: Ég var að útskrifast af Hönnunar- og nýsköpunarbraut frá Tækniskól- anum. Hvað tók námið langan tíma: Námið var eins árs undirbúnings- nám fyrir háskóla. Af hverju valdir þú þetta nám, hafðir þú alltaf áhuga á því: Ég valdi þetta nám af því ég var búin að ætla mér að sækja um nám í arkitektúr við Listaháskólann en vantaði allan grunn og þess vegna valdi ég Tækniskólann því hann bauð upp á stutt og hnitmiðað nám. Ég hef alltaf haft áhuga á fallegum húsum og hef alltaf verið pínu forvitin að sjá hvernig fólk raðaði upp heima hjá sér en áhuginn fyrir að vilja starfa sem innanhúss arkitekt er tiltölulega nýtilkominn. Síðan þegar lengra leið á námið þá fór að vera smá ,,samkeppni” innan bekkjarins þegar nær dró möppu- skilum inn í LHÍ sem dreif mann alveg áfram því það eru svo fáir sem komast inn. Þá var maður farin að drekka alveg í sig alla hönnunar- söguna, allar aðferðirnar sem manni var kennt til að skapa eitthvað og kannski það mikilvægasta, uppröðun og samsetningu. Myndir þú mæla með Tækniskól- anum: Já, ég myndi mæla með honum. Hann býður líka upp á svo fjölbreytt nám sem allir ættu að kynna sér. Mín reynsla er sú að kennslan sem ég fékk var ótrúlega persónuleg og manni leið stundum eins og maður væri að skapa og teikna eitthvað með jafningjum sínum. Kennslan var ekki þannig að kennarinn talaði allan tímann og við nemendurnir þurftum að þegja og skrifa niður glósur af því sem kennarinn sagði. Heldur vorum við sett í vinnustofur með mjög góðri vinnuaðstöðu og þar gat hver og einn hugsað um sitt verkefni en síðan gátum við líka verið öll saman og myndað góðar umræður tengt verkefninu. Hvað tekur nú við: Ég sótti um í arkitektúrinn í LHÍ eins og ég hafði ákveðið eftir að hafa uppgötvað þetta nám á Háskóladeginum, var ein af fimmtán sem komst inn og var ég mjög ánægð með það að vita að ég hefði þann möguleika að geta stundað þetta nám, því það eru svo ótrúlega margir sem sækja um en svo fáir sem komast inn. En þar sem ég sótti líka um á hljóðfæra- kennslubraut í LHÍ og komst inn þar líka, þá ákvað ég að velja það nám frekar. ......................................................... Indíana Auðunsdóttir Aldur: 37 ára. Búseta: Vestmannaeyjar á sumrin og Reykjavík á veturna. Í hverju varstu að útskrifast: Húsasmíði (maí 2017) og hús- gagnasmíði (des. 2016). Hvað tók námið langan tíma: Ég tók þessar tvær námsbrautir saman og fékk eitthvað bóklegt metið, raðaði frekar mörgum áföngum á önn svo ég náði að klára báðar brautirnar á fimm önnum, náði einnig að henda inn auka áföngum í tækniteiknun og málmsuðu. Af hverju valdir þú þetta nám, hafðir þú alltaf áhuga á því: Ekki alltaf, ég kom heim til Íslands eftir meistaranám í myndlist 2008 og byrjaði að smíða og standsetja með pabba. Það vatt svo upp á sig og ég hef starfað við allskonar þannig verkefni síðastliðin átta ár. Mér finnst mjög gaman að smíða, sérstaklega ef það hefur einhvern skapandi þátt. Eftir að hafa bögglast með grófvinnu verkfæri um allar trissur þá dreymdi mig um að læra fíngerðari vinnubrögð á góðum verkstæðisvélum. Það meikaði líka alveg sens að læra þetta bara almennilega fyrst maður var farinn að stússast í þessu. Húsgagnanámið fyrir mér sameinaði svolítið þjálfunina úr myndlistarnáminu og reynsluna af smíðavinnu, það að vanda sig við að smíða eigin hluti er svo góð tilfinning. Myndir þú mæla með Tækniskól- anum: Já, það er bara mjög fínn skóli. Námið er auðvitað þannig uppbyggt að það henti líka ungu fólki með litla starfsreynslu svo ég varð alveg stundum frekar frú- streruð hvað sumt var létt. En það þýddi bara að maður gat vandað verklegu verkefnin og gert þau meira krefjandi fyrir sig. Það er einnig frábært að hafa aðgang að Útskrift Tækniskólans: Þó nokkrir Eyjamenn útskrifuðust úr Tækniskólanum :: Margt í boði í Tækniskólanum :: Allt frá húsasmiðum yfir í rafeindavirkja Einar KriSTinn HELGaSon einarkristinn@eyjafrettir.is Jónatan Gíslason útskrifaðist úr rafeindavirkjun. Guðný Charlotta Harðardóttir var á Hönnunar- og nýsköpunarbraut. Indíana Auðunsdóttir hefur nú bæði lært húsasmíði og húsgagnasmíði.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.