Fréttir - Eyjafréttir - 12.07.2017, Page 16
S ími 481-1300 : : f re t t i r@ey ja f re t t i r. i s
Eyjafréttir
Opið Mán-fös kl. 7.30-21.00 / Lau. kl. 10-21 / Sun kl. 10-21
VöruVal góð
Verslun í
alfaraleið
Ný tilboð vikulega.
Heimsendingarþjónusta.
Opið frá 7:30 - 21:00 virka daga
og 10:00 - 21:00 um helgar.
sex ferðir Á DAG:
Frá Vestmannaeyjum kl. 8.30 / 11.00 / 13.45 / 16.00 / 18.45 / 21.00
Frá Landeyjahöfn kl. 9.45 / 12.45 / 14:45 / 17.10 / 19.45 / 22.00
SuShi frá Osushi
kemur til okkar föstudaga kl. 17.30.
Tökum niður pantanir!
Á sunnudaginn kemur, 16. júlí verður
boðið upp á afar áhugaverða dagskrá
í Sagnheimum og Safnahúsi þar sem
Zindri Freyr ásamt félögum úr
Leikfélagi Vestmannaeyja flytja
ljóðræna frásögn Sigfúsar Blöndals
orðabókarritstjóra og Helga og Arnór
flytja eigin lög og annarra við ljóð sr.
Jóns Þorsteinssonar písarvotts. Að
því loknu mun 34 bréfdúfum verða
sleppt á Stakkagerðistúni til
minningar um þá er voru drepnir í
Tyrkjaráninu 1627.
Á þessu ári eru rétt 390 ár frá þeim
voðaatburði sem jafnan er nefndur
Tyrkjaránið en dagana 16.-19. júlí
árið 1627 komu að landi í Vest-
mannaeyjum þrjú sjóræningjaskip og
herjuðu á Eyjamenn.
Undanfarinn áratug hafa félagar í
Sögusetri 1627 minnst þessara
atburða með margvíslegri dagskrá.
Að þessu sinni verður dagskráin í
Sagnheimum sunnudaginn 16. júlí
nk. kl. 14.00 til 15.00.
Zindri Freyr ásamt félögum úr
Leikfélagi Vestmannaeyja flytja 100
ára gamla leikgerð Sigfúsar Blöndals
um Drottninguna í Algeirsborg sem á
fyrirmynd í Önnu Jasparsdóttur frá
Stakkagerði í Vestmannaeyjum.
Helga Jónsdóttir og Arnór Her-
mannsson flytja eigin tónlist og
annarra við hin fallegu ljóð séra Jóns
Þorsteinssonar píslarvotts. Í lok
dagskrár verður síðan gjörningur þar
sem 34 bréfdúfum verður sleppt til
minningar um þá 34 einstaklinga sem
drepnir voru og oft vilja gleymast
þegar rætt er um afleiðingar Tyrkja-
ránsins fyrir Vestmannaeyjar. Sá
þáttur dagskráinnar fer fram á
Stakkagerðistúninu undir stjórn
Ragnars Sigurjónssonar (Ragga
Sjonna) og Bréfdúfnafélags Íslands. Í
Einarsstofu verður komið upp tölvu í
tilefni dagsins og mun Ragnar sýna
hvernig er unnt að sjá flug bréfdúfn-
anna aftur heim í tölvunni þar sem
þær eru allar merktar með sérstökum
sendi.
Drottningin í Algeirsborg er ljóðræn
frásaga eða leikrit er Sigfús Blöndal
tók saman fyrir réttum 100 árum,
1917. Hún fjallar um örlög Ástu
Eiríksdóttur sem var tekin höndum í
Vestmannaeyjum í Tyrkjaráninu og
flutt sem þræll til Alsír. Þar reis Ásta
til æðstu metorða, varð drottning í
Alsír, en hugur hennar var þó ávallt
bundin heimahögunum í Vestmanna-
eyjum.
Fyrirmyndin að Ástu hét Anna
Jasparsdóttir og bjó í Stakkagerði.
Zindri Freyr tók að sér að stjórna
leiklestri á þessari gömlu og merku
frásögn og segist aðspurður hafa
ætlað sér í upphafi að bjóða einfald-
lega upp á hefðbundinn leiklestur. En
verkið vatt heldur betur upp á sig og
nú er það orðið miklu nær leiksýn-
ingu en leiklestri. „Tyrkjaránið er
einstakur kafli í sögu Vestmannaeyja
og frásögnin færir atburðina beint til
okkar, þar sem söguhetjan rifjar upp
ævi sína í Eyjum og hvað tók við
eftir að út var komið.“ Aðspurður um
hvort verkið eigi enn erindi til
nútímans segir Zindri: „Tvímæla-
laust, því lýsingarnar og sú innsýn
sem maður fær inn í örlög þeirra
fjölmörgu Vestmannaeyinga sem
voru fluttir sem þrælar alla leið til
Afríku er einstök. Sem nemandi í
guðfræði kom mér þó á óvart hversu
sterk áhrif Lúthers eru og ríkjandi í
öllu verkinu.“
Félagar í LV
Zindri fékk félaga úr Leikfélagi
Vestmannaeyja til liðs við sig.
Burðarverkið er í höndum Thelmu
Lindar Þórarinsdóttur en hún leikur
Ástu, bæði sem eldri konu sem lítur
yfir farin veg og sem yngri konu mitt
í hinni skelfilegu atburðarrás. Albert
Snær Thorshamar leikur karlhlut-
verkin tvö, hann er fyrst Beiram,
eigandi Ástu sem fer illa með hana
og síðar Hússein, eiginmaðurinn góði
sem kvænist henni. Á milli atriða
flytja Helga og Arnór ljóð Jóns
Þorsteinssonar píslarvotts við eigin
lög og annarra.
Aðspurður segir Zindri að þetta hafi
verið skemmtileg áskorun og
kærkomið tækifæri til að vinna með
Leikfélagi Vestmannaeyja í sumar
áður en hann fer aftur upp á fasta-
landið til að ljúka námi sínu í
guðfræði við Háskóla Íslands.
Frumraun þeirra
Bæði Thelma og Albert hafa leikið í
Leikfélagi Vestmannaeyja en
verkefni sem þetta er frumraun
þeirra. Zindri bætir því við að
frásögnin sé vel samin en ekki skipti
minna máli að Thelma og Albert hafi
lagt mikið á sig við undirbúninginn
og að þau eigi hrós skilið fyrir
metnaðinn sem þau hafi sýnt við að
koma textanum sem best og
áhrifaríkast til áhorfenda. „Það er
vonandi að Eyjamenn fjölmenni á
sunnudaginn því það verður
væntanlega ekki boðið upp á þessa
dagskrá nema einu sinni.“
Það er Sögusetur 1627 og SASS
sem kosta dagskrána sem er haldin til
minningar um Tyrkjaránið í Vest-
mannaeyjum fyrir réttum 390 árum,
1627. Dagskráin er í samstarfi við
Leikfélag Vestmannaeyja, Sagnheima
og Bréfdúfufélag Íslands og er
aðgangur ókeypis.
:: Dagskrá til minningar um Tyrkjaránið:
Einstakur kafli í sögu
Vestmannaeyja og frá-
sögnin færir atburðina
beint til okkar
:: Þar sem söguhetjan rifjar upp ævi sína í Eyjum
og hvað tók við eftir að út var komið
s. 481-1300 | frettir@eyjafrettir.is | www.eyjafrettir.is
hEiM AÐ DYRuM - kr. 1.920 á mán.
Með áskrift að Eyjafréttum færðu vikulegar fréttir, heim að
dyrum, af öllu því helsta sem um er að vera í Vestmannaeyjum
eða tengist Eyjum á einn eða annan hátt.
Ekki nóg með það heldur getur þú einnig nálgast blaðið þitt á
Eyjafrettir.is hvar sem þú ert í heiminum. Á vefnum færðu
líka óhindraðan aðgang að nýjustu fréttum frá Eyjum um leið
og þær gerast.
NETÁSKRiFT - kr. 1.490 á mán.
Með netáskrift að Eyjafréttum ertu alltaf með blaðið við
hendina. Þú færðu aðgang að blaði Eyjafrétta á Eyjafrettir.
is þegar þér hentar, hvar sem þú ert í heiminum. Á vefnum
færðu líka óhindraðan aðgang að nýjustu fréttum frá Eyjum
um leið og þær gerast.
Vertu með á nótunum og skráðu þig
í áskrift núna á eyjafrettir.is eða
í síma 481-1300.
ÞÚ FÆRÐ
MEiRA
ÁSKRiFTÍ
Te
ik
ni
ng
:
Ja
ko
b
Sm
ár
i E
rl
in
gs
so
n