Skessuhorn - 25.02.1998, Síða 3
Miðvikudagur 25. febrúar 1998
3
------------ BmmJkHkmm ----------
V________/
Berserkseyri besti
kosturinn
Jarbhitaleit á Snæfellsnesi hefur skilab góbum árangri
Á SÍÐUSTU misserum hefur farið
fram umfangsmikil jarðhitaleit vtðs
vegar á Snæfellsnesi á vegum RARIK
og viðkomandi sveitarfélaga. Ekki er
langt síðan Snæfellsnesið var að
mestu leyti talið kalt svæði en nú hef-
ur nýtanlegt vatn fundist á nokkrum
stöðum.
f síðasta tbl. Skessuhoms var sagt
frá fyrirhuguðum hitaveitufram-
kvæmdum í Stykkishólmi en þar eru
þau mál komin lengst. Einnig hefur
verið leitað að heitu vatni í og við hina
þéttbýlisstaðina á Nesinu; Grundar-
fjörð og Snæfellsbæ.
Blaðamaður Skessuhorns ræddi
við Erling Garðar Jónasson umdæm-
isstjóra RARIK.
Þjóbhagslega hagkvæmt
Að sögn Erlings er væntanleg
skýrsla frá Orkustofnun um jarðhita-
leit við Grundarfjörð og tillögur um
framhald. Hann sagði það hafa komið
í ljós að hitaveita frá Berserkseyri við
Kolgrafarfjörð væri hagkvæmasti
kosturinn fyrir Grundfirðinga. „Það
hefur lengi verið vitað um heitt vatn á
Berserkseyri. Þar veliur 52 gráðu heitt
vatn upp um misgengi eða spmngu.
Það hefur áður verið rannsakað og
tvisvar verið gerð áætlun um hitaveitu
þaðan fyrir Stykkishólm en fram til
1993 var þetta eini staðurinn á innan-
verðu Nesinu sem vitað var um jarð-
hita.
Hagkvæmniútreikningar koma vel
út og þótt farið verði með lögnina inn
fjörðinn er framkvæmdin þjóðhags-
lega hagkvæm fram yfir niðurgreidda
raforku", sagði Erling. Hann sagði að
brú yfir Kolgrafartjörð væri ekki for-
--y----------------------
Arangur
af mark-
absstarfi
hjá Hótel
Stykkis-
hólmi
BLAÐAMAÐUR Skessuhorns
hafði samband við Sigurð Skúla
Bárðarson hótelstjóra Hóteís Stykkis-
hólms, til að forvitnast um hvort hið
einstaka tíðarfar það sem af er vetri
hefði haft áhrif á ferðaþjónustuna á
Vesturlandi.
„Það er sáralítið", sagði Sigurður.
„Vandamálið er að það veit enginn af
þessu fyrirfram. Það hefur verið frek-
ar dauft eins og alltaf á þessum árs-
tíma. Það jákvæða er hinsvegar að
það hefur verið aukin umferð útlend-
inga hjá okkur í vetur. Þar er að skila
sér ákveðið markaðsstarf undir nafn-
inu Mistical Mountains. Við erum í
samstarfi við ferðaskrifstofur við að
markaðssetja duiúð Snæfellsness .
Þetta er nú ekki orðið neitt stórt en
Grundarfjörbur
senda fyrir hitaveituframkvæmdum.
„Brúin er nauðsynleg engu að síður
þar sem hún myndi gefa af sér sem
næmi um 5 milljónum lægri rekstrar-
-kostnað á ári“, sagði Erling.
Hann sagði það vera næsta skref að
bora djúpholu í Berserkseyrina sem
hugsanlega myndi nýtast sem vinnslu-
hola ef af hitaveituframkvæmdum
yrði.
Heitt svæði
Erling sagði það hafa komið í Ijós
að Grundarfjörður væri afskaplega
heitt svæði og sömu sögu væri að
segja um Olafsvík. „Heitt vatn veltur
fram á milli berglaga á um 140 metra
dýpi. Vandamálið er að ftnna sprung-
urnar í eldri berglögunum en það er
verið að leita leiða til þess. Það er
hinsvegar talið ástæðulaust að leita
meira í Grundarfirði þar sem Ber-
serkseyri er það hagkvæmur kostur".
í Ólafsvík er lítil vinna eftir, áður
en skilað verður lokaskýrslu. Erling
sagði að útkoman væri áhugaverð en
vildi ekki segja meira á þessu stigi
málsins.
„Allri rannsóknarvinnu verður lok-
ið í vor í Ólafsvík og framhaldið ræðst
af þeirri niðurstöðu,“ sagði hann.
Úr vasa raforkunotenda
í síðustu viku tilkynnti iðnaðarráð-
herra að opnað hefði verið fyrir mögu-
leika fyrir fjárstuðning úr Orkusjóði
til jarðhitaleitar. Sú breyting verður
vegna góðs árangurs í jarðhitaleit á
Snæfellsnesi og í Eyjafirði. Erling
kvaðst fagna þessari yfirlýsingu. „Það
mun auðvelda mikið verkefni á borð
við það sem hér hefur verið unnið“,
sagð hann. Jarðhitaleitin á Snæfells-
nesi hefur verið fjármögnuð úr vasa
raforkunotenda á svæðinu og af sveit-
arfélögunum.
Hótel Stykkishólmur.
viðbrögðin gefa tilefni til bjartsýni og hafa sérstakt aðdráttarafl fyrir þá síð-
ef vel gengur er hugsanlegt að prjöna amefndu.
meira við þetta“, sagði Sigurður Slgurður sagðí að sumarið liti
Skúli. Hann sagði að það væru fyrst mjög vél út og júní, júlí og ágúst væm
og fremst Þjóðverjar og Japanir sem nánast fullbókaðir.
hefðu komið í vetur en norðurljósin
Til auglýsenda í Skessuhorni:
Þar sem blaöiö er prentaö á mánudagsmorgnum er
síöasti skilafrestur auglýsinga
á föstudögum.
Auglýsingasíminn er 437-2262
Hvab gera
Hvítsíbingar?
SAMEINING fjögurra sveitarfé-
laga í Mýrarsýslu var samþykkt í
kosningum sem fram fóm 14. febrúar
s.l., eins og sagt var frá í 1. tbl.
Skessuhorns. Það vom Borgarbyggð,
Borgarhreppur, Álftaneshreppur og
Þverárhlíð. Sameining þessara sveit-
arfélaga mun taka gildi samhliða
sveitarstjómarkosningunum nú í vor.
Við sameininguna verður öll Mýr-
arsýsla komin í eitt sveitarfélag að
Hvítársíðu undanskilinni. Ibúar Hvít-
ársíðu gengu að kjörborðinu 17. janú-
ar s.l. og höfnuðu sameiningu við
fimm hreppa í Borgarfirði norðan
Skarðsheiðar.
„Þessi staða er ekki góð,“ sagði
Ólafur Guðmundsson oddviti á Sáms-
stöðum í Hvítársíðu. „Við emm ekki
farin að ræða þessa nýju stöðu en ég
geri ráð fyrir að þetta mál verði tekið
fyrir á næsta hreppsnefndarfundi. Eg
sé hins vegar ekki fyrir mér að við
munum bregðast við þessu sérstak-
lega. Manni finnst að búið sé að af-
greiða sameiningarmálin í bili innan
sveitarfélagsins," sagði Ólafur.
Skessuhorn er lesiö af fólki úr öllum flokkum. Hér eru þab bæjarstjórn-
armenn á Akranesi sem glugga í blaöib.
Söngsveitin Fílharmónín
Söngsveitin Fílharmónía í Reykholtskirkju
sunnudaginn 1. mars 1998 klukkan 16.00.
Stjórnandi er Bernharður S. Wilkinson og
píanóleikari Guðríður S. Sigurðardóttir.
Verið ö/l velkomin.
z
cc
O
X
co
w
ER ÞAÐ SEM ÉG KÝS.
TRYGGtNGAR FYRIR ÞIG OG ÞÍNA.
VÁTRYGGINGARFÉLAG ÍSLANDS HF
Svæðisskrifstofa Borgarbraut 38 310 Borgames
Símar: 437 1010 & 437 1011
- þar sem tryggingar snúast um fólk
Sjóleiðin til Bagdad
eftir Jökul Jakobsson
Frumsýning íLogalandi Jostudaginn 27. febrúar kl. 21.00
Leikstjóri Valgeir Skagfjörð
Nœstu sýningar: sunnudaginn 1. mars kl. 21.00,
miðvikudaginn 4. mars kl. 21.00, fóstudaginn 6. mars kl. 21.00
og sunnudaginn 8. mars kl. 21.00
Miðapantanir i síma 435 1137 & 435 1125 eftir kl. 17.00
Ungmennafélag Reykdœla