Skessuhorn


Skessuhorn - 25.02.1998, Page 10

Skessuhorn - 25.02.1998, Page 10
10 Miðvikudagur 25. febrúar 1998 úaUðiiivu. (MMfti) Naumt tap í Borgarnesi LEIKUR Skallagríms og Njarðvík- ur sem fram fór í Borgarnesi s.l. fimmtudag endaði með naumu tapi heimamanna. Þessi leikur var síðasta von Skallagríms um að komast í úr- slitakeppni úrvalsdeildarinnar að þessu sinni og bar leikur þeirra í fyrri hálfleik því glöggt vitni. Menn voru mjög spenntir og var ekki heil brú í leik þeir- ra á löngum köflum og skoraði Skalla- grímur til að mynda ekki stig á sex mínútna kafla í hálfleiknum og var staðan í samræmi við það í hálfleik; 28-45 Njarðvíkingum í vil. Tómas Holton þjálfari hafði greini- lega messað vel yfir sínum mönnum í leikhléi því það var allt annað og betra lið sem kom vel stemmt inn í seinni hálfleikinn. Strákamir börðust af mikl- um eldmóði og náðu að komast yfir 78-77 þegar 9 sekúndur voru eftir. Njarðvíkingar höfðu það þó af að skora sigurkörfuna á síðustu sekúndu leiks- ins. Stigahæstu menn Skallagríms vom þeir Páll Axel Vilbergsson með 31 stig og Seamus Lohergen með 22. Hjá Njarðvík skoraði Petey Sessoms 21 stig og Teitur Örlygsson 18. Dómarar voru þeir Bergur Steingrímsson og Rögnvaldur Hreiðarsson. Ekki voru allir leikmenn sáttir við dómgæsluna enda fengu bæði lið á sig tæknivíti vegna mótmæla við dómara. Ahorf- endur voru yfir 250. M Bæjar- og héraðs- bókasafnið á Akranesi er opið mánudaga til föstu- daga frá klukkan 14:00 til 20:00. ^ý&^Fréttapotið Sími 852 4098 Síminn sem sjaldan sefur! Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt eða efni í Skessuhorn hringdu þá í Gísla í síma 852 4098. Fyrir hvert fréttapot sem leiðir til birtingar send- um við viðkomandi aðila happaþrennu frá HHÍ. Fullrar nafnleyndar verður að sjálfsogðu gætt. Heyrumst!! Fagor og Melissc Heimilistœki Rafstofan Egilsgötu 6 Smíðum hurðir og glugga. Onnumst alhliða byggingarþjónustu Byggingafélagið BORG HF. Sólbakka 11, 310 Borgames Sími: 4371482 437 1 640 & 43? ^úrval. Hei\s^0< ^e/s/uþjónusta' mímiffi&Æ Ódýr og öflugur auglýsingamiðil. Auglýsingasími: 437 2262 Bílamálun og réttingar. Viðgerðaþjónusta. DEKK & LAKK Reykholti S: 435 1444 Sigur á Skaganum SKAGAMENN umtu sætan sigur á ísfirðingum 86-79 s.l. fimmtudag í fþróttahúsinu við Vesturgötu. Leikurinn var hraður og spennandi og greinilegt að heimamenn voru fullir sjálfstrausts eftir sigurinn á nágrönnunum, Skalla- grími, vikunni áður. Skagamenn mættu virkilega grimmir til leiks og tóku leik- inn strax í sínar hendur og komust mest í 18 stiga forystu í fyrri hálfleik. Und- ir lok fyrri hálfleiks náðu ísfirðingarn- ir hinsvegar að saxa á forskotið og stað- an í hálfleik var 52-44. í síðari hálfleik var meira jafnræði með liðunum, gestimir komust nálægt því að jafna undir lokin en Skagamenn héldu ró sinni og unnu ömggan sigur. Alexander Ermolinskij var traustur undir lokin og átti í heild góðan leik. Þá var Damon í fullu fjöri ög var lang stigahæstur Skagamanna. Annars var liðið í heild að spila mjög vel, ekki síst í vörn. Skagamenn eru nú í 8. sæti tveimur stigum á eftir KRingum. Stig ÍA: Damon Johnson 28 Bjami Magnússon 19 Alexander Ermolinskij 18 Dagur Þórisson 8 Björgvin Karl Gunnarsson 5 Trausti Jónsson 5 Pálmi Þórisson 3 Skagamenn voru sterkir í vörninni Nýtt horn á Hyrn- una f SÍÐUSTU viku var hafist handa við stækkun Hymunnar í Borgamesi. Byggt verður nýtt lagerhúsnæði við bensínstöðvarhlutann og lagerinn fluttur. Það rými sem skapast verður notað til að stækka matvöruverslun- ina og olíuvömverslunina. Stofnunin verbur flutt segir Císli Gíslason um málefni Land- mælinga íslands SEM kunnugt er hefur staðið styr um væntanlegan flutning Landmælinga íslands á Akranes. Málefni stofnunar- innar eru nú á nýjan leik í sviðsljósinu vegna meintra fjársvika framkvæmda- stjórans. í samtali við Skessuhom sagði Gísli Gíslason bæjarstjóri og formaður stjómar Landmælinga íslands að rann- sókn á meintum fjársvikum forstjórans hefði engin áhrif á flutning stofnunar- innar. „Það er innra mál stofnunarinn- ar og tengist væntanlegum flutningum ekki neitt“, sagði Gísli. „Unnið er að flutningnum eftir ákveðinni áætlun og það verður óbreytt. Það er búið að taka það margar ákvarðanir, t.d. varðandi húsnæði, að það verður ekki aftur snú- ið. Við leggjum áherslu á að flutningur- inn verði til góðs þegar til lengri tíma er litið“. Aðspurður um yfirlýsingar starfs- manna Landmælinga þess efnis að þeir muni ekki flytja með stofnuninni sagði Gísli: „Það er vérið að ræða við starfs- menn um ákveðnar aðgerðir sem ég trúi að þeir muni skoða áður en þeir ákveða sig endanlega. Ef mikil afföll verða þarf það að liggja fyrir sem allra fyrst. En við höldum í vonina um að menn muni standa saman í að tryggja öryggi þessarar starfsemi“, sagði Gísli Gíslason að lokum.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.