Skessuhorn - 11.03.1999, Side 7
FIMMTUDAGUR 11. MARS 1999
7
Opíb hús er hjá þér
15. mars - Aþjóðadagur neytendaréttar
Alþjóðadagur neytendaréttar er
haldinn hátíðlegur 15. mars hvert
ár. Þessi dagur er tilefni neytenda-
samtaka um heim allan til að fara
yfir stöðu neytendamáia í sínu
landi og hvað þurfi að gera til að
styrkja stöðu neytenda.
Hvað eru
Neytendasamtökin?
Neytendasamtökin á Islandi voru
stofnuð 23. mars 1953. Strax í upp-
hafi vakti starf samtakanna talsverða
athygli, bæði almennings og fram-
leiðenda/innflytjenda og seljenda.
Ahugi stjómmálamannanna á neyt-
endamálum hefur þó alltaf verið tak-
markaður.
í upphafi náðu Neytendasamtökin
nokkm flugi, ekki síst fyrir áorkan
helsta stofnanda þeirra, Sveins As-
geirssonar. Síðan komu tímar þar sem
starfsemin varð minni, enda hafa
samtökin ávallt þurft að treysta á
samtakamátt neytenda. Þannig hafa
80-85% af tekjum samtakanna verið
félagsgjöld. Þessu er öfugt farið hjá
neytendasamtökum hjá frændum
okkar á Norðurlöndum, en þar greiða
stjómvöld 70-90% tekna þeirra og
reka auk þess sjálf umfangsmikið
neytendastarf. Þetta er talið nauðsyn-
legt til að skapa eðlilega stöðu neyt-
enda á markaði.
Öflugt neytendastarf styrkir ekki
aðeins stöðu neytenda. Atvinnulífið
nýtur einnig góðs af slíku starfi, því
eðlilegt aðhald á þessu sviði gerir það
samkeppnishæfara í vaxandi alþjóða-
væðingu viðskipta.
Tilgangur
Neytendasamtakanna
I lögum Neytendasamtakanna er
tilgangur og markmið samtakanna
skilgreind. Þar segir:
Tilgangur Neytendasamtakanna er
að gæta hagsmuna neytenda í þjóðfé-
laginu. Tilgangi sínum hyggjast sam-
tökin ná meðal annars með því;
a) að vinna að því að sjónarmið
neytenda séu virt þegar ákvarðanir
em teknar eða reglur settar er varða
hagsmuni neytenda,
b) að annast útgáfu-, rannsóknar-,
ráðgjafa- og fræðslustarfsemi til þess
að auka skilning á hagsmunamálum
neytenda, þar á meðal að auka verð-
og vöruþekkingu þeirra,
c) að styðja réttmætar kröfur ein-
stakra neytenda og berjast fyrir því að
réttur neytenda sé virtur,
d) að vinna að umbótum á löggjöf
til hagsbóta fyrir neytendur.
Hvaö gera Neytenda-
samtökin í dag?
Starfsemi Neytendasamtakanna
miðast að sjálfsögðu við þær tekjur
sem þau hafa, en eins og áður hefur
verið nefnt skipta félagsgjöld þar
mestu. Meðal þess helsta sem Neyt-
endasamtökin gera má nefna:
• Upplýsinga- og leiðbeiningaþjón-
usta fyrir neytendur.
Þar geta neytendur fengið upplýs-
ingar um lagalega stöðu sína í við-
skiptum, en hjá Neytendasamtökun-
um starfar lögfræðingur. Einnig geta
neytendur fengið upplýsingar um
framboð og gæði á vömm sem em á
markaði hér áður en lagt er í kaup.
Neytendasamtökin fylgjast grannt
með markaðnum og eru í samvinnu
við neytendasamtök í nágrannalönd-
um okkar um gæðasamanburð á vör-
um. Þessi þjónusta er opin öllum
neytendum, en þeir sem ekki eru fé-
lagsmenn verða að greiða fyrir öll
gögn vegna markaðs- og gæðakann-
ana.
• Kvörtunarþjónusta fyrir neytend-
ur
Ef gengið er á rétt neytandans og
hann nær ekki rétti sínum sjálfur,
hjálpar kvörtunarþjónustan honum.
Þessi þjónusta er öllum opin, endur-
gjaldslaust fyrir félagsmenn, en aðrir
borga málskotsgjald. Reynslan hefur
sýnt að framleiðendur og seljendur
virða milligöngu kvörtunarþjónustu
Neytendasamtakanna í lang flestum
tilvikum.
• Urskurðamefndir fyrir neytendur.
Til að tryggja enn betur að neyt-
endur geti á skjótvirkan og ódýran
hátt náð fram úrlausn deilumála sinna
við seljendur vöru og þjónustu, hafa
Neytendasamtökin í samvinnu við
samtök seljenda stofnað sex úrskurð-
amefndir. Nefndirnar ná yfir eftirtal-
in svið: Vátryggingaþjónustu, þjón-
ustu ferðaskrifstofa, þjónustu efna-
lauga og þvottahúsa, fjármálaþjón-
ustu, þjónustu og vömr sem félags-
menn í Samtökum iðnaðarins selja og
vegna kaupa á vömm í verslunum
sem em aðilar að Kaupmannasam-
tökum íslands og Samtökum sam-
vinnuverslana. Neytendur greiða
málskotsgjald þegar þeir leggja fram
mál sitt, en fá það endurgreitt ef þeir
vinna það að hluta eða öllu leyti.
• Neytendablaðið.
I Neytendablaðinu em em m.a.
birtar ítarlegar gæða- og mark-
aðskannanir á vömm og þjónustu,
auk margs konar fróðleiks sem miklu
máli gemr skipt í daglegu lífr neyt-
andans. Neytendablaðið er innifalið í
félagsgjaldi sem er 2.600 kr. og er
ekki selt í lausasölu. Ekki em auglýs-
ingasíðumar að flækjast fyrir lesand-
anum, því blaðið birtir ekki auglýs-
ingar.
• Önnur útgáfu- og fræðslustarf-
semi.
Félagsmenn njóta sérkjara á bók-
um sem samtökin gefa út (þar á með-
al Heimilisbókhaldi Neytendasam-
takanna og Lagasafni neytenda).
Einnig bjóða Neytendasamtökin fé-
lagsmönnum srnum sérvaldar erlend-
ar bækur sem neytendasamtök gefa út
og sem henta vel hér á sérstöku til-
boðsverði. Félagsmönnum er einnig
boðið upp á ódýr námskeið (m.a. um
hagsýni í heimilishaldi).
• Almenn hagsmunagæsla fyrir
neytendur.
Þetta gera Neytendasamtökin á
mismunandi hátt, ma.:
- Neytendasamtökin sinna verð-
lagsaðhaldi á markaði og er það gert
með verðkönnunum sem oftast eru
gerðar í samvinnu við stéttarfélög.
- Fylgjast með markaðnum og
miðla upplýsingum til neytenda og
yfirvalda.
Fylgjast með skilmálum sem fyr-
irtæki nota í viðskiptum sínum og
reyna að tryggja að þar sé ekki að
finna ósanngjama skilmála.
- Hafa frumkvæði að og gefa um-
sagnir um lög og reglugerðir er varða
neytendur.
- Fylgjast með ólöglegum og
ósanngjörnum viðskiptaháttum og
fylgja slíkum málum eftir við við-
komandi yfrrvöld.
- Fylgja eftir að hættulegar vörur
séu ekki á markaði og að varasamar
vörur séu merktar á réttan hátt.
- Gæta þess að yftrvöld og atvinnu-
líf virði sjónarmið og vilja neytenda.
- Berjast fyrir því að lög og reglur
um neytendavemd hér á landi verði
með þeim bestu í heimi.
- Berjast fyrir að upplýsingar um
vömr og þjónustu séu með þeim hætti
að uppfylli þarfir neytenda. Þar á
meðal að tryggja raunvemlegt val-
frelsi neytenda með tilliti til fram-
leiðsluaðferða.
Hvaö þarf aö gera til
viöbótar í neytenda-
málum?
Um þetta mætti skrifa langar grein-
ar og fjalla þar um fjölmörg atriði
sem yrði of langt mál. Nefnd em þó
tvö lykilatriði sem samtökin hafa lagt
fram í nefnd um stefnumótun í neyt-
endamálum:
• Upplýsingamiðstöð neytenda.
Slík miðstöð yrði tryggð með þjón-
ustusamningum milli Neytendasam-
takanna annars vegar og viðskipta-
ráðuneytisins og fleiri aðila hins veg-
ar.
• Umboðsmaður neytenda. Neyt-
endamáladeild Samkeppnisstofnunar
verði lögð niður og stofnað verði nýtt
embætti: Umboðsmaður neytenda.
Starfsemi sem í dag heyrir undir
neytendamáladeildina yrði færð til
Umboðsmanns neytenda, en starfs-
svið hans jafnframt aukið.
Atta lágmarkskröfur
neytenda
Lágmarkskröfur neytenda voru
fyrst settar fram í sögulegri ræðu á
þingi sem John F. Kennedy þáverandi
forseti Bandaríkjanna hélt 15. mars
1962. Þar setti hann fyrstur þjóðhöfð-
inga fram kröfur fyrir hönd neytenda.
Þær kröfur sem Kennedy setti fram
eru númer 2-5. Alþjóðasamtök neyt-
enda hafa síðan bætt við fjórum.
Saman mynda þær lágmarkskröfur
neytenda og sem neytendasamtök um
allan heim sameinast um r starfi sínu.
A allsherjarþingi Sameinuðuðu þjóð-
anna 15. mars 1985 voru svo sam-
þykktar sérstakar leiðbeiningar um
neytendavernd og sem tryggja eiga
að neytendur hvar sem þeir búa, njóti
þeirrar vemdar sem lágmarkskröf-
umar gera ráð fyrir. Þannig hafa
stjómvöld í hverju landi tekið á sig
mikilvæga ábyrgð. Atta lágmarks-
kröfur neytenda em eftirfarandi:
1. Réttur til fullnægjandi gmnnþarfa.
2. Réttur til öryggis.
3. Réttur til upplýsinga.
4. Réttur til að velja.
5. Réttur til áheymar.
6. Réttur til bóta.
7. Réttur til fræðslu.
8. Réttur til heilnæms og sjálfbærs
umhverfis.
Finnst þér ágæti lesandi að þessi
réttur þinn hafi einhvem tíma verið á
þér brotinn og mál þín hafr ekki feng-
ið sanngjarna málsmeðferð? Ein-
hvem tíma gæti líka komið að því.
Neytendasamtökin hvetja þig þess
vegna til að gerast félagi í samtökun-
um, það er allra hagur.
Birgir Guðmundsson
stjómarmaður
í Néytendasamtökunum.
LIFEYRISSJOÐUR VESTURLANDS
Meginniðurstöður ársreiknings lífeyrissjóðsins
Yfirlit um breytingu á hreinni eign
til greiðslu lífeyris
Fjárfestingartekjur, nettó, 1998 í þús. kr. 356.181 1997 í þús. kr. 288.534
Iðgjöld, 341.691 297.567
Lífeyrir, (181.760) (164.818)
Fjárfestingariðgjöld, (7.817) (7.202)
Rekstrarkostnaður, (11.383) (8.350)
Matsbreytingar, 63.572 92.331
Kfækkun á hreinni eign á árinu: Hrein eign í árslok: 560.484 4.922.047 498.062 4.423.985
Hrein eign í árslok til greiðslu lífeyris: 1 5.482.531 4.922.047 1
Fjárfestingar:
Efnahagsreikningur
Ytnsar kennitölur
Raunávöxtun, 6,88%
Raunávöxtun að teknu tilliti til rekstrarkostnaðar, 6,65%
Raunávöxtun, meðaltal síðustu fimm ára, 9,00%
Lífeyrir sem hlutfall af iðgjöldum, 53,23%
Kostnaður sem hlutfall af íðgjöldum, 3,33%
Kostnaður sem hlutfall af eignum, 0,22%
Stöðugildi, 2,7
Akranesi 12. febrúar 1999
Stjórn Lífeyrissjóðs Vesturlands:
Verðbréf með breytilegum tekjum, 1.057.551 660 971
Verðbréf með föstum tekjum, 4.008.713 3.835.646
Veðlán, 80.597 108.322
Bundin innlán, Fjárfestingar: Annað 28.770 5.175.631 43.806 4.648.745
Kröfur á viðskiptamenn, 48.880 44.450
Aðrar eignir, 259.523 230.351
Viðskiptaskuldir, (1.503) (1.499)
Anmiá 306.900 273.302
Hrein eign til greiðslu lífeyris: 5.482.531 4.922.047 1
6,17%
5,98%
8,80%
55,39%
2,81%
0,18%
2,7
Gylfi Þórðarson
Kristján Jóhannsson
Einar Karlsson
Sigrún Clausen
Jónas Dalberg
framkvæmdastjóri
Rakel Olsen
Þórir Páll Guðjónsson
Ársfundur lífeyrissjóðs Vesturlands verður haldinn mánudaginn 19. apríl nk. kl: 16.00
í Gistiheimili Ólafsvíkur, Ólafsbraut 19. Ólafsvík.