Skessuhorn


Skessuhorn - 11.03.1999, Qupperneq 10

Skessuhorn - 11.03.1999, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 11. MARS 1999 Sú merka tík pólitíkin ríður nú húsum sem óðast og við vesalir meðaljónar sem teljumst tiltölu- lega ópólitískir fáum varla stundlegan frið fyrir fréttum af prófkjörum og uppröðunum á lista og stundum heyrist manni hafa „því miður verið svik í tafli“ og „ ódrengilega að málum staðið.“ Einhvemtíma var kveðið: Mig langar til að lifa flott og launakrókinn mata, að því leyti er ég gott efni í hægri krata. Um vinstrisinnaðan mann sem starfaði hjá Kaupfélagi Þingeyinga á Húsavík orti Egill Jónasson: Fyrir eðli ótuktar engin gæði metur. Yfir fóðri Framsóknar fýlir grön-en étur. A dögunum vom í Skessuhomi getgátur um að Sveinbjöm Eyjólfs- son væri orðaður við fyrsta sæti græna framboðsins. Af því tilefni var eftirfarandi kveðskap stungið að Sveinbimi: Framsóknar var þarfur þegn og þjáll á miðjulöndum. Nú er Sveinbjöm grænn í gegn, genginn flokks úr böndum. Ekki fer hjá því að þessi vísa rifjar upp aðra sem var í miklu uppáhaldi á skólaárum mínum: Verða muntu þarfur þegn þín er jörðin nýtur. Innan frá og út í gegn ekkert nema skítur. Þegar Bændablaðið birti mynd af Einari á Lambeyrum á forsíð- unni í skærbláum samfesting, en Einar hefur gjarnan verið frekar orðaður við annan lit í pólitíkinni, orti Georg á Kjörseyri: Gamli komminn sem austrinu unni. Ósköp er gaman að sjá hann félaga Einar á forsíðunni, svona fallega himinbláann. Séra Önundur Björnsson á Breiðabólsstað fékk á dögunum tvo frambjóðendur til að ræða við kirkjugesti, af því tilefni orti Magnús Halldórsson á Velli: Missi þingmenn kall og kjól, komast máske ofar, eiga á himnum öruggt skjól ef að drottinn lofar. Ef drengjum hafnar drottinsson drápu eftir slíka, eitt er víst að einhver von er í neðra líka. Já það er merkilegt hvað mörg- um virðast eftirsóttir stólamir í þingsölum þó launin séu lág en einhvemtíma var kveðið: Leggjum niður þmglsamt þing sem þjóðar nær ei eyra. Það væri held ég hagræðing á heimsmælikvarða eða meira. Fyrir allmörgum ámm stóðu yfir endurbætur á Alþingishúsinu og var meðal annars smíðuð ný úti- hurð sem þótti dýr, þá var kveðið: Þingmenn okkar aldrei ráðvana stóðu á úrbótatillögum verður ei nokkur þurrð. Nú fara þeir senn að bmgga bjargráðin góðu bak við nýja milljón krónu hurð. Jóhann Guðmundsson frá Stapa orti bragarbót: Þingmenn okkar enga sýna dáð er á viti og gæðum mikil þurrð, ég held þeir séu að bmgga banaráð bak við nýja milljón krónu hurð. Viðsjált og ótryggilegt útlit í heimi pólitíkurinnar er engin ný bóla og einhvemtíma orti Jón Þor- steinsson frá Amarvatni: Allt er mælt á eina vog í því svarta skýi. Helmingurinn öfgar og afgangurinn lýgi. Með þökkfyrir lesturinn Dagbjartur Dagbjartsson Refsstöðum 320 Reykholt S 435 1367 Spumingar um veggjald Eins og aðrir Vestlendingar hafa nemendur og starfsmenn Sam- vinnuháskólans í vetur óspart not- fært sér nýju göngin undir Hval- fjörð. Hafa göngin gert samgöngur á milli staða á Vesturlandi og aðal- þéttbýlis landsins mun ömggari og þægilegri heldur en áður. Hval- fjarðargöngin hafa því sem sam- göngubót sannað gildi sitt. Gjaldið sem menn greiða fyrir ganganotk- unina, það eina á vegakerfi lands- ins, er þrátt fyrir þetta enn svim- andi hátt og kemur óneitanlega illa við íbúa og gesti þessa landssvæð- is. Það er því ekki af ástæðulausu sem rætur þessa háa veggjalds em skoðaðar og spumingum beint til þeirra sem gjaldið hafa ákveðið. Stjómarformaður Spalar hefur ný- lega endurtekið í sjónvarpsfréttum að stjómin væri að athuga með lækkun veggjaldsins í göngunum vegna mun meiri umferðar og meiri tekna en búist hafði verið við. Þetta væri þó, að því er hann upplýsti, háð „samþykki lánveit- enda“. Nú er það með nokkmm ólíkind- um að Spölur skuli þurfa leyfi lán- veitenda til að lækka veggjaldið af þessum sökum. Það vekur enn þá spumingu hvort Speli sé gjörsam- lega lokuð leiðin út úr þeim láns- samningum sem félagið hefur gert. Er félaginu ómögulegt að endur- fjármagna framkvæmdina, með til- liti til breyttra aðstæðna varðandi áhættu og vaxtakröfur á fjármála- markaði? Ef svo er þarf stjómin opinberlega að viðurkenna alvar- leg mistök við gerð samninga. í vandaðri grein Vífils Karlsson- ar lektors í Morgunblaðinu 26. ágúst s.l. kemur fram hversu mikil áhrif endurgreiðslutími og vaxta- prósenta hljóti að hafa á ákvörðun veggjalds. Þannig má sýna fram á að hvert prósentustig vegi 83 krón- ur í 1000 króna veggjaldi. Þegar Spölur greiðir nú 8,38% að jafnaði fyrir lánsfé og eigið fé, og yfir 9% Jónas Gubmundsson fyrir sum lán, á s a m a tíma sem s t ó r i r 1 á n s - samning- ar til fyr- i r t æ k j a eru með 5 - 6 % vöxtum, þá sést að þama ætti að vera verulegt svig- rúm til sparnaðar og lækkunar gjaldsins. Lenging endurgreiðslu- tíma hefði enn meiri lækkunar- áhrif. Því skiptir öllu máli um hvað samið er við lánadrottna. Þessum spumingum um láns- samningana þyrfti stjóm Spalar að svara. Það væri líka forvitnilegt að vita hversu mikil áhrif stjómin tel- ur að ríkisábyrgð á lánum til fé- lagsins vegna framkvæmdanna hefði eða gæti haft á lánskjörin? Ennfremur, af þeim umferðarkönn- unum sem gerðar hafa verið og þeim umferðarþunga sem mælst hefur, getur stjómin upplýst hversu stóran hluta af Hvalfjarðargöngun- um megi ætla að Vestlendingar greiði sjálfir? Hvalfjarðargöngin skipta Vest- lendinga gífurlegu máli. Þau skapa tækifæri, sem því miður er að stór- um hluta fórnað með háu veggjaldi. Þótt Spölur sé sjáifstætt félag hefur stómm fjárhæðum af skattfé almennings verið varið til ganganna og tengdra fram- kvæmda; nægir að nefna hlutafé, rannsóknir og tengivegi í því sam- bandi. Ríkisvaldið hefur veitt fé- laginu mikilvæga aðstöðu og einkarétt. Að mínu áliti eiga al- menningur, fyrirtæki og stofnanir á Vesturlandi, vegna hagsmuna sinna, inni hjá Speli að gera nánari grein fyrir fjármálum félagsins en það hefur hingað til gert. Jónas Guðmundsson (Greinin er einnig birt í Vefaran- um, vefblaði Samvinnuháskólans á Bifröst) Goöur stubningur vib Kvennalístann Vegna frétta af niðurstöðum próf- kjörs Samfylkingarinnar á Vest- urlandi vil ég koma eftirfarandi á framfæri. Nær eingöngu hefur verið fjallað um niðurstöður Alþýðubandalagsins og Alþýðuflokksins í þessu próf- kjöri. Lítið hefur verið fjallað um niðurstöður þess fyrir Dóm Líndal Hjartardóttur sem bauð sig fram í hólfi Kvennalistans. Hún fékk fékk 1.356 atkvæði í 1.-3. sætið eða 58% greiddra atkvæða, sem er besta frammistaða Kvennalistans í próf- kjömm Samfylkingarinnar. Benda má á að ef atkvæði em skoðuð óháð sætum, þá kusu fleiti Dóm Líndal en Gísla S. Einarsson. Ein af reglum prófkjörsins á Vesturlandi fól í sér að hvert hólf þurfti að fá 25% greiddra atkvæða til að fá bindandi kosningu í 1. til 3. sætið. Ymsir héldu því fram fyrir prófkjörið að Kvennalistinn myndi ekki fá þetta hlutfall og detta þannig niður fyrir þriðja sætið. Raunin varð sú að Kvennalistinn fékk 58% greiddra at- kvæða og kom því mjög vel út úr þessu prófkjöri. Sýnir þetta styrka stöðu Kvennalistans á Vesturlandi og þá um leið hlýtur það að styrkja stöðu Samfylkingarinnar á Vestur- landi að kjósendur sýna þennan jafna stuðning við öflin þrjú sem standa að Samfylkingunni. Inga Sigurðadóttir Kvennalistanum á Vesturlandi Inga Sigur&ardóttir. skessuh@aknet.is - www.vesturland.is Heygarbshornib Dýrt meyjarhaft Fréttaritari Heygarðshomsins í Noregi rakst fyrir skömmu á athyglisvérða frétt í VG bladet sem er Skessuhom þeirra Norð- manna. ,JFikk ödelagt jom- frahimnen". í fréttinni segir frá henni Jentu sem hefur kært Di- akonhjemmet sjúkrahúsið og krafist 30 milljóna íslenskra króna í skaðabætur fyrir skemmdir á meyjarhafti sínu. Jenta fékk í magann fyrir fimm ámm og þrátt fyrir að hún hefði lýst því yfir að hún vildi fremur missa lífið en meyjarhaftið þá var það rofið að henni sofandi í rannsóknarskyni. Síðan þá hef- ur Jenta sem var dúx í skóla verið 100% öryrki óg nokkram sinnum reynt að svifta sig lífi. 30 milljónir vill Jenta fá fyrir gripinn en sjálfsagt hefur ein- hver kona látið meyjarhaftið fyrir minna! Af vírusum Eitt helsta vandamál tölvu- notenda eru svokallaðir tölvu- vfiusar sem em sérhannaðir til að spilla tölvugögnum og valda usla í tölvudósinni þinni. Víras- ar þessir em jafn raisjafnir og þeir em margir og því erfiðara að eiga við þá. Hér kemur lýs- ing á nokkrum til að lesendur geti betur varað sig á þeim. SVERRIS VÍRUSINN: Stelur öllu úr tölvunni þinni, þú eyðir honum, en tekur skyndilega eft- ir því að vímsinn er búínn að stofna nýja, fijálslynda tölvu (mjiig lifla), reyndar hinum megín í herberginu hjá þér. KÁRA VÍRUSINN: Sýnir þér lagaframvarp um að hann hafi einkaleyfi á að eyðileggja allt í tölvunni hjá þér. Að sjálfsögðu gerir hann það í þágu þjóðar. BUBBA VÍRUSINN: „Ég lýsci yvir vímsch ... það er ekchert schem þú getjur ghert tchil að bjargha þesschu." KVENNALISTA VÍRUSINN: Byijar á að eyðileggja allt, hættir svo við ... byrjar aftur, en hættir við, veit síðan ekki hvað hann á að gera, en ákveður á endanum að eyðileggja allt eða hætta við. JÓHÖNNU VÍRUSINN: Vír- us sem upprætti allskonar spiil- ingu í forritunum hjá þér, en breytti síðan til, safnaði saman öllum litlu vírusunum í tölvunni og sámeinaði þá í einn rísastór- an víms (sjá hér fyrir neðan). SAMFYLKINGAR VÍRUS- INN: Er með míklar yfirlýsing- ar um hversu mikið hann ætli að eyðileggja, en endar á því að lenda í rifrildi við sjálfan sig um hvemig hann ætli að gera það. SJÁLFSTÆÐIS VÍRUSINN: Hefur yfirtekið rúmlega 40% af harða diskinum hjá þér, en ger- ir alveg merkilega lítið miðað við stærð. RÍKISSTJÓRNAR VÍRUS- INN: Kemur reglulega með skilaboðin: „Það er allt í lagi með tolvuna þína“, sama í hversu slæmu ástandi hún er. HEILSU GÆSLU VÍRUS- INN: Lætur allt frjósa, þangað til að þú eykur diskplássið hans um 23% umfram það sem hann átti að fá samkvæmt síðustu viðræðum. MINNIHLUTA VÍRUSINN: Getur ekki eyðilagt neitt en gagnrýnir allt sem þú gerir (á- kaflega pirrandi víms).

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.