Skessuhorn - 11.03.1999, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR 11. MARS 1999
15
KR-ingar betri í lokin
KR - Skallagrímur 83-74
Skallagrímur sótti ekki gull í vel og voru yfir lengi framan af. Eft-
greipar KR-inga á fimmtudaginn var. ir leikhlé tóku heimamenn sig saman
Skallagrímsmenn léku að yísu mjög í andlitinu og voru betri í lokin.
Tölurnar
Frák. Stoðs. Stig StjÖrnur
4 Finnur Jónsson ." 2 1 7 **
7 Pálmi Þ. Sævarsson i 0 0 *
8 Kristinn G. Friðriksson í . 3 20 ***
12 Haraldur M. Stefánsson ; i 0 0 *
13 Tómas Holton :■ ■•2 ' 1 . 6 ***
14 Eric Fransön 17 "T2 26 ***■
15 Sigmar P. Egilsson • 1 1 13 ***
Eldri borgarar lesa
upp í Kirkjuhvoli
I tilefni af ári aldraðra verður
upplestur eldri borgara í Kirkju-
hvoli á Akranesi næstkomandi
sunnudag, 14. mars. Kaffi á
könnunni. Barnakór Brekku-
bæjarskóla syngur í hléi. Að-
gangseyrir kr. 500. - en afsláttur
fyrir eldri borgara.
Hússtjórn Kirkjuhvols
Skellur í
Njarbvík
UMFN - ÍA: 111-87
Skagamenn gerðu ekki góða ferð
til Njarðvíkur á fimmtudag en þeir
steinlágu fyrir Njarðvíkingum.
Heimamenn byrjuðu af krafti og
gerðu út um leikinn í upphafi er þeir
náðu 25 stiga forskoti á fyrstu tíu
mínútunum. Skagamenn náðu sér
aðeins á strik á köflum en sigur
Njarðvíkinga var aldrei í hættu.
Lengi býr ab
fyrstu gerb
Hreyfing og gildi hennar fyrir
mannslíkamann
Eins og segir í fyrirsögninni þá býr
lengi að fyrstu gerð og það er m.a. á-
stæða þess að foreldrar eru hvattir til
þess að láta börn sín hreyfa sig sem
mest. Það er staðreynd að sá sem
hreyfir sig mikið sem bam og ung-
lingur býr að því alla ævi. Það getur
komið í veg fyrir mörg og erfið
heilsufarsleg vandamál síðar á æf-
inni. Uppbygging vöðva og beina er
hröðust á þessum árum og ef líkam-
inn er ekki notaður, þá verða bæði
bein, vöðvar og stoðkerfið yfir höfuð
mun veikara og viðkvæmara fyrir
skakkaföllum en ella. Einnig er talið
að upptaka kalks verði mun minni
hjá þeim sem hreyfa sig minna og sé
best undir hæfilegu álagi. Öll þurf-
um við kalk og það er ekki bara
nauðsynlegt fyrir uppbygginu beina
og tanna, það gegnir líka hlutverki í
sambandi við taugar og taugaboð.
Það er mikill rrússkilningur að kalk
sé eingöngu að fá úr mjólk og mjólk-
urvörum, ýmsar tegundir grænmetis
eru einnig kalkauðugar.
I hinum vestræna heimi hafa
margir heilbrigðisstarfsmenn haft
miklar áhyggjur af hreyfingarleysi
ungmenna. Og spyrja hvort sú kyn-
slóð sem nú er að vaxa upp verði
komin með ýmsa öldrunarsjúkdóma
fyrir aldur fram vegna óvirkni í
æsku. Bam sem situr yfir sjónvarpi
eða tölvu mikinn hluta dags getur
frekar átt von á því að fá beinþynn-
ingu og önnur vandamál fyrr á æv-
inni en sá sem er duglegur að hreyfa
sig. Nú spyrja margir: Hvað með all-
ar þær íþróttir sem ungt fólk stundar
í dag? Auðvitað eru íþróttir af hinu
góða en ef eirístaklingur stundar
mjög einhæfar fþróttir þá kemur það
ekki í staðinn fyrir þá hreyfingu sem
fæst við leik og störf úti við. En við
erum ekki
öll svo
heppin að
geta hreyft
okkur af
sjálfsdáð-
um. Marg-
ir búa við
hreyfi-
hömlun, af
ýmsum orskökum, og geta því ekki
hreyft sig af eigin rammleik. En
þessi hópur þarf ekki síður á hreyf-
ingu að halda en hinir. Sumir búa yfir
það miklum styrk að þeir geta hreyft
sig í vatni og því er gott aðgengi að
sundstöðum grundvallar skilyrði fyr-
ir þá. Og oft er það eina hreyfingin
sem þessum hópi stendur til boða.
Við sem getum gengið á báðum fót-
um hugsum oft ekki til þess að það
eru ekki allir fæddir með sömu gjafir
og við. Annar hópur hreyfihamlaðra
hefur hvorki getu né aðstöðu til að
komast í sundlaug. Þessi hópur þarf
ef eitthvað er, enn frekar á aðstoð að
halda við að hreyfa sig en þeir sem
geta hreyft sig eitthvað af eigin
rammleik. Það þarf að hreyfa limi og
líkama fyrir og með þessum hópi
fólks, eins og geta leyfir. Það er hægt
að halda liðamótum liðugum og við-
halda ákveðinni vöðvaspennu þótt
ekki sé staðið í fæturna eða höndin
hreyfð að eigin rammleik. Þetta er
mikilvægt vegna fjölmargra hluta.
Má þar til að mynda nefna að blóð-
rásin verður treg ef engin hreyfing á
sér stað. Og fá þá t.d. vöðvar og bein
ekki þá næringu sem þarf. En þetta
er mikil þolinmæðisvinna, framfarir
oft hægar en hvert skref fram á við er
mikill sigur og það er einnig mikill
sigur ef tekst að halda ástandi stöð-
ugu, þannig að heilsa versni ekki.
Birna G. Konráðsdóttir
Höfundur er loggiltur
sjúkranuddari og rekur
sjúkranuddstofu í Borgarnesi.
Bónab fyrir
Portúgalsferb
Meistaraflok^ur Skallagríms í
knattspymu mun dvelja í Portúgal í
viku tíma í lok þessa mánaðar við
æfingar og keppni. Ferðin er liður í
undirbúningnum fyrir komandi átök
í 1. deildinni. Um síðustu helgi
lögðu piltamir hins vegar frá sér
takkaskóna en tóku fram bónklútana
í staðinn og bónuðu bíla fyrir Borg-
nesinga. Þessi fjáröflun var ætluð til
að fjármagna Portúgalsferðina og
ekki var annað að sjá en þeir hefðu
nóg að gera og hver Borgnesingur-
inn á fætur öðmm ók í burt á glans-
andi bílum. Á myndinni em þeir
Gunnar Jónsson og Hjörtur Harðar-
son að bóna einn eðalvagninn.
Mynd: GE
Leikmaður Tölurnar: Frák. Stoðs. Stig Stjörnur
4 Trausti F. Jónsson 2 7 5 *
6 Pálmi Þórisson 1 2 0 *
7 Guðjón Jónasson 0 2 2 *
8 Brynjar Sigurðsson 0 1 6 *
9 Alexander Eftnolinski 8 3 11 **
Badmintonfélag
Akraness
ÍA til Spánar
Urvalsdeildarlið IA í knatt-
spymu fer í æfingaferð til Spán-
ar þann 24. mars næstkomandi.
Þeir Skagapiltar munu dvelja í
Cadis í vikutíma við æfingar og
leika nokkra æfingaleiki við
innfædda. - G.E.
Sigurbur tcl
Walsall
Markahrókurinn Sigurður
Ragnar Eyjólfsson hjá IA hefur
gert samning við enska C deild-
arliðið Walsall. Sigurður mun
þó leika með Skagamönnum
megnið af næsta keppnistíma-
bili því hann fer ekki utan fyrr
en 1. ágúst. Jóhannes Harðar-
son var í Belgíu fyrir skömmu
og lék með varaliði GNT en
hann mun ekki vera á fömm.
,J>að fara ekki fleiri,“ sagði Sæ-
mundur Víglundsson fram-
kvæmdastjóri KFÍA og ekki
fleiri orð um það. -G.E.
ÍA hornib
Badmintonfélag Akraness var
stofnað 11. nóvember 1976 en það
er þó ekki þar með sagt að bad-
minton hafl ekki verið stundað á
Akranesi fyrir þann tíma. Stuttu
eftir seinna stríð eða árið 1946
var byrjað að spila badminton,
eða frá því að íþróttahúsið við
Laugarbraut var tekið í notkun.
Árið 1958 er fyrsta tennis- og
badmintonráð IA kosið. Fyrsta
Akranesmótið í badminton var
haldið í íþróttahúsinu við Laugar-
braut árið 1965 og þar sigraði Pétur
Jóhannesson í einliðaleik, í tvíliða-
leik unnu þeir Helgi Daníelsson og
Hallgrímur Árnason (faðir Áma
Þórs landsliðsmanns í badminton).
Síðan þá má segja að félagið hafi
eflst og dafnað og margir Íslands-
meistaratitlar unnist, og má þar
nefna til sögunnar þá Jóhannes
Guðjónsson, Hörð Ragnarsson,
Víði Bragason og Aðalstein Huld-
arsson. Þá hefur Badmintonfélag
Akraness alið af sér marga lands-
liðsmenn sem bæði spila undir
merkjum ÍAeða eru komnir í önnur
félög. Þar má nefna til sögunnar
Árna Þór Hallgrímsson, Drífu
Harðardóttur, Brynju Pétursdóttur
og Birnu Guðbjartsdóttur. Á þess-
um árum hefur Badntintonfélag
Akraness verið mjög lánsamt með
þjálfara sem ýmist hafa verið ís-
lenskir eða erlendir.
Árið 1996 sett stjóm Badminton-
félagsins sér tvö megin marktnið,
þ.é. að eíla starf yngri flokka fé-
lagsins til muna m.a. til að stuðla að
framtíðar uppbyggingu og til að ná
fil eldri iðkenda „trimmara'* en sá
hópur er mikilvægur bakhjarl fyrtr
félagið. Skemmst er frá því að segja
að iðkendafjöldinn meira en tvö-
faldaðist veturinn 1996-97. Til að
fylgja eftir þessarri uppsveiflu
ákvað stjóm félagsins að ráða til sín
í samstarfi við UMSB í Borgamesi
þjálfarann Dipu Ghosh frá Indlandi
sem er einn af betri þjálfurum sem
völ er á í þessairi grein. Dipu Ghosh
var ráðinn til félagsins fram til vors
árið 2000 og er árangur af starfi
hans farinn að skila sér nú þegar og
margir af hans byrjendanemendum
og þeir eldri farnir að vinna til verð-
launa og æfa með landsliði Islands I
greininni.
Mótahald
Á hverju ári stendur Badminton-
félagið fyrir fjölmörgum mótum hér
á Akranesi. Þau helstu mót sem
haldin hafa verið hér á Akranesi á
þessu keppnistímabili eru Atlamót
sem haldið er árlega í samvinnu við
Kiwanisklúbbinn Þyril í minningu
um Atla Þór Helgason sem var einn
af driffjöðmnum í starfsemi klúbbs-
ins á sínum tíma, Unglingameist-
aramót ÍA sem haldið er í samvinnu
við verslunina Model, og Meistara-
mót íslands í flokki eldri spilara. Þá
verður t lok apríl haldið Akra-
nesmót þar sem keppt verður í öll-
um flokkum auk þess sem keppt
verður í flokki systkina, foreldra,
bama og trimmara. Félagar og virk-
ir þátttakandur í keppni og leik inn-
an félagsins eru tæplega 100 og fer
félagatalið ört vaxandí. Til gamans
má geta að Badmintonfélag Akra-
ness fékk bæði gull og silfur í A-
flokki á síðasta Reykjavíkurmóti
sem haldið var helgina 6.-7. mars
sl. Þar kepptu til úrslita Aðalsteinn
Huldarson og Sigurður Mýrdal
Steinþórsson og hafði Aðalsteinn
betur eftir harðan úrslitaleik. Á
Meistaramóti Islands sem haldið
var 5.-7. feb. sl. sigraði Drífa Harð-
ardóttir ÍA í tvenndarkeppni meist-
araflokks, en hún er búsett í Dan-
mörku en keppir fyrir hönd ÍA. Við
óskum þessum keppendum til ham-
ingju með árangurinn ásamt þeim
tjölmörgu sem keppt hafa fyrir
hönd Badmintonfélags Akraness.
íslandsmót unglinga
og Akraneshlaup
Nú er unnið á fullu við að undir-
búa keppendur fyrir Islandsmót
unglinga í A- og B-flokki sem hald-
ið verður í Hafnarfirði og Þorláks-
höfn núna í mars. Nokkur undanfar-
in ár hefur Badmintonfélagið ásamt
Ungmennafélaginu Skipaskaga
staðið fyrir undirbúningi að Akra-
neshlaupinu. Þetta hlaup er búið að
vinna sér ákveðinn sess í íþróttalífi
bæjarins og hefur verið haldið í
byrjun júní ár hvert og yerið ágætis ,
þátttaka undanfarin ár og þar mæta /
til keppni margir af bestu hlaupur/
um landsins.
Á aðalfundi Badmintonfélags
Akraness sem haldinn var í byrjun
júní sl. var kosin ný stjóm., Stjóm-
ina skipa: Jón Allansson fformað-
ur), Trausti Gylfason (ritari), Guð-
bjartur Hannesson. Bjþrn Lúðvíks-
son og Stefán Hólmstlinsson.
jr
Akranesi 08.03.1999
fih. Badjnintonfélags Akraness
r—
>
&