Skessuhorn - 16.06.1999, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 23. tbl. 2. árg. 16. júní 1999 Kr. 200 í lausasölu
Það voru hrikaleg átök í undankeppni Islandsmótsins í Sjómanni í Borgamesi á laugardaginn. Þessi hraustmenni kepptu til úrslita.
Mynd: G.E.
Margmiðlunarfyrirtæki á Vesturlandi
Skessuhom ehf og
Vefsmiðjan sameinast
Fyrirhuguð er sameining
Skessuhoms ehf og Vefsmiðju
Vesturlands sem meðal annars
rekur hinn vinsæla Vestur-
landsvef. Eigandi Vefsmiðju
Vesturlands er Bjarki Már Karls-
son kerfisffæðingur á Hvanneyri
og verður hann við sameiningu
fyrirtækjanna einn af stærstu
hluthöfum Skessuhoms ehf.
Nafn hins sameinaða fyrirtækis
verður Skessuhom en vefhönn-
un og vefsíðugerð verður áfram
markaðssett undir nafni Vef-
smiðju Vesturlands.
Með sameiningunni verður
Skessuhorn skilgreint sem marg-
miðlunarfyrirtæki sem sérhæfir sig
í hverskonar útgáfu og markaðs-
starfsemi, jafnt fyrir prentmiðla
sem veraldarvefinn. Fyrirtækið
mun áffam gefa út héraðsffétta-
blaðið Skessuhom í óbreyttri mynd
og reka Vesturlandsvefinn með
sama sniði. Auk þess verður lögð
áhersla á útgáfuþjónustu fyrir fyrir-
tæki og einstaklinga. Hið samein-
aða fyrirtæki mun meðal annars
bjóða upp á gerð kynningarrita og
hverskyns efnis, auglýsingagerð,
markaðsráðgjöf, vefhönnun, vef-
síðugerð og ráðgjöf á sviði tölvu-
mála.
Skrifstofa Skessuhorns á Akra-
nesi verður rekin með óbreyttu
sniði en um næstu mánaðamót flyt-
ur fyrirtækið í eigið húsnæði í
Borgarnesi, að Borgarbraut 49.
Eigendur Skessuhoms ehf vonast
til að þessar breytingar verði til að
styrkja ennfrekar rekstur þessa
unga fyrirtækis og að sú fjölbreytta
þjónusta sem það býður upp á megi
nýtast Vesdendingum vel í framtíð-
inni.
G.E.
Deildarbikar-
meistarar
Skagamenn urðu deildarbikar-
meistarar í knattspymu er þeir
báru sigurorð af lærisveinum
Ola Þórðar í Fylki á Laugardals-
vellinum síðastliðinn miðviku-
dag með einu marki gegn engu.
Leikurinn var fremur rólegur og
lítíð um færi en Skagamenn vom
sterkari aðilinn lengst af. Markið
kom ekki fyrr en á lokamínútunni
þegar allt leit út fyrir framlengingu.
Skagamenn fengu þá vítaspyrnu
sem Pálmi Haraldsson tók en
markvörður Fylkis náði að verja.
Pálmi fylgdi hinsvegar spyrnunni
eftir og skoraði markið sem tryggði
Skagamönnum bikarinn.
Heldur er hamingjan lítil
í heilögu ektastandi
Atvinnu-
vegasýning