Skessuhorn - 16.06.1999, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 16. JUNI1999
VIKUBLAÐ A VESTURLANDI
Akranes: Suðurgötu 65, 2. hæð.
Sími: 431 4222. Fax: 431 2261. Netfang: skessa@aknet.is
Borgames: Borgarbraut 57, 2. hæð.
Sími: 437 2262. Fax: 437 2263. Netfang: skessuh@aknet.is
Skrifstofur blaösins eru opnar kl. 10-12 og 13-16 alla virka daga.
Utgefandi: Skessuhorn ehf.
Ritstjóri og ábyrgðarmaöur: Gísli Einarsson, sími 852 4098
Biaðamaður: Kristján Kristjánsson, sími 892 4098
Auglýsingar: Guðrún Björk Friðriksdóttir, Borgarnesi sími 437 2262
Silja Allansdóttir, Akranesi, sími 697 4495 & 431 4222.
Prófarkalestur: Ágústa Þorvaldsdóttir og fleiri.
Hönnun og umbrot: Frétta- og útgáfuþjónustan.
Prentun: ísafoidarprentsmiðja hf.
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 16.00 á
mánudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og 1 lausasölu.
Áskriftarverð er 800 krónur með vsk. á mánuði. Verð í lausasölu er 200 krónur
með vsk.
Áskriftar- og auglýsingasími er 437 2262.
Sjálfstætt fólk
„Hæ, hó, jibbí jei og jibbí jei, það er kom-
inn sautjándi júní,“ orti Bjartmar Hannesson
bóndi í Borgarfirði fyrir margt löngu og einu
sinni á ári hefur hann rétt fyrir sér. Það hitt-
ist nefnilega þannig á að sautjándi júní er ár-
legur. Akkúrat á þeim degi er einhver vænleg-
ur kvenkostur dubbaður upp í peysuföt og
látinn lesa öldruð Ijóð. Blómum er fleygt í
Nonna Sig, kornabörn veifa innfhittum ís-
lenskum fánum og troða candy flos í andlitið á sér meðan danskætt-
aðir trúðar geifla sig og glenna. Með þessu móti fögnum við þeim
degi er við öðluðumst sjálfstæði og gáfum danska kónginum langt
nef.
Eg hef svo sem ekkert út á þetta að setja. Ef íslensk þjóð vill fagna
sínu sjálfstæði með þessum hætti þá æda ég ekki að gera mér rellu út
af því. Þetta er nú einu sinni sjálfstæð þjóð þótt hún láti að vísu aðr-
ar þjóðir um að ákveða hvort hún veiðir hvalfiska eða geymir þá á
hjólbarðaverkstæði í Vestmannaeyjum. Þetta er sjálfstæð þjóð þótt
hún látí aðrar þjóðir segja sér að börn og unglingar megi ekki vinna
sér til hita og fá sigg í lófana heldur skuli þeir sitja á rassinum og bora
í nefið fram á fullorðinsár. Jú, þetta er sjálfstæð þjóð þótt hún láti aðr-
ar þjóðir fyrirskipa að nú skuli farið í stríð við eitthvað fólk sem flest-
ir Islendingar vissu ekki að væri til.
Mér dettur semsagt ekki í hug að efast um að íslensk þjóð sé sjálf-
stæð og öðrum óháð, Eg held miklu frekar að hún sé svo sjálfstæð að
hún kunni sér varla hóf. Það lýsir sér kannski í því að Islendingar láta
sér varla nægja að vera ein lítil þjóð. Til að gera sjálfstæðið persónu-
legra er það brotið niður í smærri einingar. Landnám Ingólfs heitins
er meðal annars aðskilið frá hinum dreifðu byggðum landsins. Því
sjálfstæði er viðhaldið með því að íbúar höfuðborgarsvæðisins eru
stöðugt minntir á það í fjölmiðlum sínum að hæpið sé að finna vits-
munaverur ofan við Elliðaár. Sömuleiðis er því haldið á lofti í virmm
héraðsfféttablöðum dreifbýlisins að höfuðborgin sé eins og sólin,
ágæt til síns brúks, það er að segja ef hún er mátulega langt í burtu.
Þessi aðskilnaðarstefna er þó ekki látin nægja. I dreifbýlinu skiptist
fólk í nokkurskonar þjóðflokka eftir bæjum, þorpum eða sveitum.
Ibúar hverrar einingar eru meðvitaðir um ágæti sinnar sveitar og þó
enn meðvitaðri um lesti nágrannanna. Sömu reglur gilda á höfuð-
borgarsvæðinu en þar skiptast þjóðflokkarnir eftir hverfum eða borg-
arhlutum.
Maður skildi þá ætla að hver þessara eininga gæti unað saman í sátt
og samlyndi þar sem hún hefur það sameiginlega hlutverk að gefa öll-
um hinum hornauga. Þó er það ekki svo. Til þess að gera sjálfstæðið
enn persónulega og í raun að almenningseign er það viðtekin venja
að hver Islendingur líti á sig sem sjálfsæðan einstakling og öðrum
óháðan. Sú regla er í heiðri höfð að hver sé sjálfum sér næstur og
helst sem fjærst öllum hinum. Sá hugsun er viðurkennd að það sé
betra áð mannt sjálfum g'ángi illa heldur en áð náunganúm við hlið-
ina gangi vel. Ef það fer hinsvegar svo illa að einhver hinna nær ár-
angri í því sem hann er að gera þá skal því haldið vandlega leyndu.
Nú kann sjálfsagt einhver að halda að ég sé að fara þvottahúsmeg-
in að því að biðja um klapp á bakið. Svo er þó ekki. Með hóflegum
þrýstíngi get ég yfirleitt kreist ofurlítið hól út úr mínum nánustu,
jafnvel mun meira en ég á skilið. Nú, í versta falli þá hæli ég mér bara
sjálfur. A hinn bóginn finnst mér það vera ómaksins virði að við hug-
leiðum það á meðan candy flosið verður rigningunni að bráð á þjóð-
hátíðardaginn hvort ekki sé óhætt að fleygja nokkrum hvatningarorð-
um í náungann annað slagið. Hvort það sé ekki jafhvel óhætt að sætta
sig við að einhver hinna geri einhvemtíma eitthvað af viti. Kannski
mtmum við þá einhvern tíma fagna því að vera ekki einungis sjálf-
stæð, heldur einnig samstæð þjóð.
Gísli Einarsson samstœður Islendingur
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Magniís Jóbannesson ráðuneytissljói-i, Magnús Gubmundsson forstjóri og Siv Friðleifs-
dóttir umhverfisráðberra með kortamöppur frá LMl.
Umhverfisráðherra
í heimsókn
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra heimsóttí Landmælingar Is-
lands miðvikudaginn 2. júní. Um-
hverfisráðherra og Magnús Jó-
hannesson ráðuneytisstjóri áttu
fund með forstjóra og forstöðu-
mönnum stofnunarinnar, en síðan
kynnm þau sér starfsemina og ráð-
herra ávarpaði starfsmenn. Er
greint frá heimókn ráðherra á
heimasíðu Landmælinga
http://www.lmi.is
K.K
Hitaveitan í Hólminum
Vatnið fer að renna
Eins og fram hefur komið í
Skessuhorni em framkvæmdir við
dreifikerfi hitaveitunnar í Stykkis-
hólmi komnar á skrið. Búið er að
setja niður vinnsludælu við borhol-
una í landi Hofsstaða og ganga frá
dæluhúsi. Að sögn Rúnars Gísla-
sonar forseta bæjarstjórnar Stykkis-
hólms verður farið í það á næstu
dögum að prufukeyra dæluna og
setja vam á aðveitukerfið og varma-
skiptistöðina.
Þótt enn sé nokkuð í að hægt
verði að taka vatn inn í húsin í
Hólminum verður þess ekki langt
að bíða að vatnið fari að nýtast bæj-
arbúum og gesmm þeirra því fyrir-
hugað er að taka nýju sundlaugina í
notkun innan fárra vikna.
G.E.
Fyrsta vottun á íslensk-
um sjávargróðri
Eftir aðalfund Þörungaverk-
smiðjunnar hf. sem haldinn var
mánudaginn 14. júní síðastliðinn í
Bjarkarlundi, veitti stjórn verk-
smiðjunnar viðtöku viðurkenningu
um að starfsemin væri lífrænt vott-
uð. Er þetta í fyrsta sinn sem ís-
lenskur sjávargróður og afurðir úr
sjávargróðri hljóta votmn sem líf-
ræn ffamleiðsla.
Stimpill sem vönmni
ber
í samtali við Skessuhorn sagði
Bjarni Ó. Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Þörungaverksmiðj-
unnar að hvatinn að þessai votmn
hafi verið sá að einn stærsti kúnni
verksmiðjunnar í Bandaríkjunum
væri mikið inni á þessari líffænu
línu: „Við réðumst í þetta til að
styrkja stöðu-verksmiðjunnar gagn-
vart þessum kúnna sem og öðrum
en markaðurinn fyrir lífrænt vottað
þörungamjöl fer ört stækkandi,"
sagði Bjarni. Hann segist gera sér
góðar vonir um að þetta verði verk-
smiðjunni til framdráttar og nefhir
sem dæmi að þeir bændur sem vilja
votmn verði að leita tíl byrgja sem
eru vottaðir: „Votmnin semr okkur
á stall ofar samkeppnisaðilunum og
auðveldar viðskiptavinum valið.“
Aðspurður kvaðst Bjarni litlar
breytingar hafa þurft að gera á að-
stöðunni í verksmiðjunni tíl að fá
þessa vottun, hún henti mjög vel tii
framleiðslunnar, hráefnið kæmi
hreint úr sjónum og vinnslan gengi
fljótt fyrir sig. „Það má segja að
méð þessu höfum við verið að setja
á vöruna okkar þann stimpil sem
henni ber,“ sagði Bjarni Ó. Hall-
dórsson.
Uppfyllir ströngxistu
kröfur
Það er Votmnarstofan Tún ehf
sem vottar framleiðslu Þörunga-
verksmiðjunnar en Votmnarstofan
Tún er eftirlitsaðili fyrir banda-
rísku votmnarstofuna Quality Ass-
urance International (QAI) sem
mun heimila Þörungaverksmiðj-
urmi að nota vömmerki sitt. Vöra-
merkið QAI er vel þekkt víða um
heim. Votmnin er staðfesting á því
að iyrirtækið uppfylli ströngusm
alþjóðlegar kröfur um sjálfbæra
nýtingu auðlinda, aðgreiningu hrá-
efna og varnir gegn mengun á öll-
um stigum framleiðslunnar.
K.K
Skotfélag Akraness
Fyrsta mót félagsins í leirdúfu-
skotfimi á þessu sumri fer fram
næstkomandi laugardag 19. júní á
svæði félagsins. Öllum er heimil
þátttaka og eru áhugasamir hvatt-
ir tíl að skrá sig á mótíð hjá Kára í
síma 431-2067.
á ' -!T-.-ÍUí£.>í.;4 jj&Wfeýö '-M
Göngin að loka
Lögreglan í Borgarnesi
stöðvaði bifreið sem ekið var á
yfir 130 km hraða á þjóðvegi 1
í Borgarfirðinum um síðustu
helgi. Fimm stúlkur voru í
bílnum og gáfu þær þá skýr-
ingu á hraðanum að þær væru
að flýta sér suður áður en
Hvalfjarðargöngunum yrði
lokað urn miðnættið. Að sögn
lögreglu létti stúlkunum
nokkuð er þeim var sagt að
það væri nætursala í göngin og
þess vegna gætu þær ekið á
löglegum hraða og þannig
sparað sér stórfé í sektar-
greiðslur ffamvegis.
G.E.
Góður róður
Gunnlaugur Pálmason var
aðvonum kátur enda með eitt
og hálft tonn eftír róðurinn á
handfærunum. Gunnlaugur
rær einn og er með fjórar rúll-
ur. Aflinn fékkst á Búðahraun-
inu, mest þokkalégur fiskur að
sögn Gunnlaugs en dálítið
smár í bland. Það voru því
nokkur handtökin fyrir einn
mann áð innbyrða þennan afla
og gera að.
KK
Það var létt yfir Gimnlattgi Pálssyni
á Örnólýi AK enia að koma tír góð-
um róðri. Mynd: K. K.
Vefurinn vest-
urland.is form-
lega opnaður
Eins og kunnugt er, var
Vésturlandsvefúrinn opnaður
síðastliðinn vetur.
Hann er heimasíða fyrir allt
Vesturlandskjördæmi og sam-
eiginlegt markaðstæki lands-
hlutans í víðum skilningi.
Undirbúningur að smíði vefs-
ins og kostun hans í upphafi
var í höndum.Atvinnuráðgjaf-
ar Vesturlarids og Samtaka
sveitarfélíga. í Vesturlands-
kj ördæmí. Samtökin fengu
síðan Bjarka Má Karlsson hjá
Andakíl.is til liðs við sig við
gerð véfsins og hefur hann séð
um rekstúr hans síðan.
Formlega verður Vestur-
landsvefurinn opnaður á at-
vinnuvegasýningunni Vestur-
vegi sem haldin verður í
íþróttahúsinu í Stykkishólmi
tun næstkomandi helgi. For-
maður SSV Björg Ágústsdótt-
ir mun með aðstoð fulltrúa
yngri kynslóðarinnar opna
vefinn formlega klukkan
15:15, föstudaginn 18. júní.
Vestlendingar og annað
áhugafólk um Internetmálefni
er hvatt tíl að mæta á sýning-
una og kynna sér möguleika
Vesturlandsvefsins.
Atvmmiráðg/öf Vesturlands
—--------------------------