Skessuhorn


Skessuhorn - 16.06.1999, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 16.06.1999, Blaðsíða 13
oájésaunö&í! MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1999 13 Stórsýningin Vesturvegur í Stykkishólmi Þátttaka firam úr björtustu vonum Segir Jóhanna Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Eflingar skessuh@aknet.is Næstkomandi föstudag verður atvinnuvegasýningin Vesturvegur sett í Stykkishólmi með pompi og prakt. Blaðamaður Skessuhorns ræddi við Jóhönnu Guðmundsdótt- ur framkvæmdastjóra Eflingar en hún hefur unnið að undirbúningi sýningarinnar ásamt Valgerði Lauf- eyju Guðmundsdóttur verkefnis- stjóra og stjórn Eflingar „Sýning af þessu tagi var búin að vera í umræðunni hér í nokkur ár og í fýrra sóttum við um styrki til undirbúnings verkefhisins og þar með var boltinn farinn að rúlla,“ sagði Jóhanna aðspurð um hvað hefði valdið því að grasrótarfélagið Efling réðist í stórvirki sem þetta. „Við fengum styrk frá Ataki til at- vinnusköpunar upp á hálfa milljón og með hana í vasanum leituðum við til atvinnumálanefndar bæjarins sem hjálpaði okkur við að taka ákvörðun um að láta drauminn ræt- ast. Við undirbjuggum okkur vel og leituðum ráða hjá aðilum annars staðar á landinu sem staðið hafa í svona sýningarhaldi og síðan þró- aðist þetta hægt og bítandi. Upp- haflega stóð reyndar til að þetta yrði breiðfirsk sýning en síðan var ákveðið að taka allt Vesturland í einum bita og við sjáum ekki eftir því,“ sagði Jóhanna. Fjölbreytni Um níutíu aðilar munu kynna sína vöru og þjónustu á sýningunni í Hólminum og segir Jóhanna það vera ffamar björtustu vonum. „Við vorum búin að gera áætlun A, B og C miðaða við mismunandi fjölda en engin þeirra náði því sem reyndin er orðin. Það er mjög ánægjulegt að á sýningunni verða fýrirtæki alls staðar að af Vesturlandi og fjöl- breytnin er mikil. Það sem hefur komið mér mest á óvart við undir- búning sýningarinnar er hvað við eigum fjölbreytt atvinnulíf hér á Vesturlandi og ég hef uppgötvað ýmsa atvinnustarfsemi sem ég vissi ekki að væri hér til staðar. Það má líka segja að markmið þessar sýn- ingar sé, auk þess að kynna utanað- komandi aðilum hvað hér er að gerast, að við kynnumst þvi sjálf hvað allir hinir eru að fást við.“ Uppákomur Það fer ekki á milli mála að það verður mikið um að vera í Hólmin- um um helgina og Jóhanna sagðist vonast eftir mikilli aðsókn á sýning- arsvæðið í og við Iþróttahúsið í Stykkishólmi. A sýningunni verður boðið upp á ýmsar uppákomur og meðal annars verður þar myndlist- arsýning leikskóla og grunnskóla- barna í Stykkishólmi. Þá verður boðið upp á kórsöng, trúbador, leiksýningu og tískusýningu svo eitthvað sé nefnt. Þá standa ein- stakir sýnendur fýrir ýmiskonar skemmtun við sína bása. A laugar- deginum verður Bylgjulestin síðan stödd í Hólminum og það ætti því að verða nóg um að vera fýrir alla fjölskylduna. Sýningin verður opnuð fýrir boðsgesti kl. 13.00 á föstudag en opið verður fýrir almenning ffá kl. 15.00 - 18.00. Laugardag og sunnudag verður sýningin opin frá 13.00 - 18.00. Aðgangur er ókeyp- VÍRNET g BLIKKSMIÐJA -utanhúsklæðningar - þakrennur - milliveggjastoðir -loftræstikerfi - reykrör - spennaskýli - hesthússtallar -öll almenn smíði og sérsmíði - efnissala Einnig gerum við viðskiptavinum tilboð þeim að kostnaðarlausu. s: 437 1000 fax: 437 1819 tölvupóstur: vimet@itn.is Oarðplöntustöðin Lágafell Höfum opið 10-20 alla dagaf Úrval sumarblóma - matjurtir - fjölæringar - tré - runnar - rósir - limgerðis- og skjólbeltaplöntur. 6 ktn. vestan Vegamóta. Byggjum á 8 ára reynslu í garðyrkju á Snæfellsnesi. Sfmi 435 6639 Brenna á Jónsmessuhátíð Átak Akranes stendur fyrir Jóns- messuhátíð sem haldin verður á Akranesi dagana 24. - 27. júní. Verða ótal dagskráratriði í boði. Búið er að útbúa nýtt brennustæði niðri við Kalmansvík þar sem kveikt verður í bálkesti kl. 20 fimmtudaginn 24. júní. Gísli Gísla- son og Gísli S. Einarsson taka að sér að stjórna Víkursöng. Grill verður á staðnum fýrir þá sem vilja Á föstudeginum verður Opna Átaksmótið í skák og hefst það á Akratorgi kl 15.00. Á laugardaginn verða útitónleikar kl. 14.00 þar sem ýmsar hljómsveitir koma ffam. Og á sunnudeginum verða sett upp leiktæki fyrir börnin á Skagavers- túni þar sem þau geta leikið sér að vild frá kl 13.00. Veitingahús bæjar- ins verða með Jónsmessutilboð í gangi og ættu bæjarbúar og gest- komandi að geta gert sér glaðan dag. KK Kartöfluskífur til í aflrýddar kartöflur afj Kartöflur í 25. þatineringar ’reitt í 7 kg. kg. sekkjum. 08 fötum. 17. júní ao Ifláðwnv kl. 13.30 yíE' # \Jv cAUir vdkmruair. TAMNINC - ÞJALFUN Tek hross í tamningu og þjálfun í sumar. ~*ekiö að mér járningar. verð. Valberg Sigfússon S: 854-0999, 434-1342 Kröftugur gróður í garðinn H öfum til sölu 60 tegundir af trjám og runnum, sum arblóm og kálplöntur. 0 pið frá kl. 13 til kl. 22 alla daga. l/’dOft/H í$a IkHa ÍSÍÓHHHÍ. Árniog Þuríður. Þorgautsstöðum 2 Hvítársíðu. s; 435 1372 www.vesturland.is Lánatryggingasjóður kvenna auglýsir eftir umsóknum Meginmarkmið Lánatryggingasjóðs kvenna er að styðja konur til nýsköpunar í atvinnulífi með því að veita ábyrgðir á allt að helming lána sem þær taka hjá lánastofnun til að fjármagna tiltekið verkefni. Abyrgðin er veitt á grundvelli mats á arðsemi viðskiptahugmyndarinnar. Úthlutun úr sjóðnum er tvisvar á ári, febrúar og júlí. Lánatryggingasjóður kvenna er tilraunaverkefni til þriggja ára. Að verkefninu standa félagsmálaráðuneytið, iðnaðarráðuneytið og Reykjavíkurborg. Skilyrði fyrir ábyrgðarveitingu eru m.a. eftirfarandi: • að verkefnið sé í eigu kvenna og stjómað af konum • að ábyrgð sé verkefnatengd þ.e. ábyrgðir eru veittar vegna ákveðinna nýsköpunarverkefna, en ekki eru veittar ábyrgðir vegna t.d. rekstrarlána til starfandi fyrirtækja • að verkefni sé á byrjunarstigi • að minnsta lán sé 1,0 m.kr. og minnsta lánatrygging 0,5 m.kr. Ekki er um að ræða sérstök umsóknareyðublöð, en umsókn skulu fylgja: • Framkvæmda og fjárhagsáætlun fyrir verkefnið • Ársreikningar og skattaskýrsla sl. tveggja ára Nánari upplýsingar em veittar í félagsmálaráðuneytinu og á skrifstofu Byggðastofnunar. Umsóknarfrestur um lánatryggingu er til 20. júlí nk. og ber að skila umsóknum til félagsmálaráðuneytis eða til skrifstofu Byggðastofnunar í Reykjavík. Lánatryggingasjóður kvenna Byggðastofnun Kristján Þór Guðfinnsson Engjateigur 3 105 Reykjavrk Sími 560-5400 Bréfsími 560-5499 Netfang kristjan@bygg.is Lánatryggingasjóður kvenna Félagsmálaráðuneyti Ingibjörg Broddadóttir Hafnarhúsið, Tryggvagötu 150 Reykjavík Sími 560 9100 Bréfsími 552 4804 Netfang ingibjorg.broddadottir@fel.stjr.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.