Skessuhorn - 10.02.2000, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 10. FEBRUAR 2000
gSESSUH&M!
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 49 Sími: (Borgornes og Akrones) 430 2200
Akranesi: Suðurgötu 65,2. hæð Fax: (Borgnrnes) 430 2201
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandí: Skessuhorn ehf. 430 2200
Framkv.stjóri: Magnús Magnússon 852 8598
Ritstjóri og óbm: Gisli Einarsson 852 4098
Vefdeild: Bjarkí Mór Karlsson 854 6930
Blaðamenn: Bryndís Gylfadóttir 892 4098
Soffia Bæringsdóttir 862 8904
Iþróttafréttaritari: Jónas Freysson (James Fryer)
Auglýsingar: Guðrún Björk Friðriksdóttir 430 2200
Silja Allansdóttir 431 4222
Fjórmól: Sigurbjörg B. Ólafsdóttir 431 4222
Prófarkarlestur: Agústa Þorvaldsdóttir og Magnús Magnússon
Umbrot: Skessuhorn / TölVert
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 12:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt tll áskrlfenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 800 krónur með vsk. á mánuði verð í lausasölu er 200 kr.
430 2200
skessuhorn@skessuhorn.is
ritstjori@skessuhorn.is
vefsmidja@skessuhorn.is
auglysingar@skessuhorn.is
auglysingar@skessuhorn.is
bakhald@skessuhorn.is
Gemmér
ey
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Nú stendur yfi r tími kaupóðra, sjálfar útsölurnar. Allt milli him-
ins og jarðar er hægt að fá á niðursettu verði með viðbótar afslætti
og afelætti ofan á það. Allt sem kostaði formúur í gær er einskis virði
í dag. Allt kostar nánast ekki neitt og sumt alls ekki neitt ef einhver
nennir að hirða það. Kjólar, pils, garðsláttuvélar, hrærivélar,
brjóstahöld, skíðastafir, ferðatölvur, kettir og hvað annað sem nöfn-
um tjáir að nefha. Meira að segja eyjar, sem reyndar er nýjung.
Þetta með eyjarnar kom reyndar ekki fyrr en litlu stúlkunni með
háu tónana henni Björk Guðmundsdóttur fór að langa í eina eyju-
na. Flún vaknaði upp í herbergiskitrunni sinni í Lundúnum í síðustu
viku og réði sér allt í einu ekki fyrir löngun í Elliðaey. Hún reiknaði
það út í skyndi að með því að nurla saman smáaurum, selja einn eða
tvo gatslitna pelsa og slá lán hjá vinum og ættingjum gæti hún
kannski verslað eins og eitt stykki ey af honum Elliða.
Kaupmaðurinn Davíð Oddson brást skjótt við og skellti eyjuni á
útsölu og af því þetta var hún blanka Björk þá var svo sem í lagi að
gefa 100% afslátt eða að minnsta kosti leyfa farandsöngkonunni
litlu að nota hana eins og hún vildi svo lengi sem hún hefði lyst á
því.
Einhverjir nöldurseggir eins og Grímur grænn vinstra megin
byrjuðu um leið að nöldra yfir því að það væri óþarfi að gefa það
sem stelpan væri tilbúin að borga fyrir. Davíð svaraði því hinsvegar
réttilega að það væri fádæma ókurteisi að reita smáaura af aumingja
stúlkukindinni sem hefði gert svo ofboðslega mikið fyrir Island og
væri einhver mesta og besta landkynning ff á því Páll Oskar tók þátt
í Júróvision.
Eflaust hefur hann átt við það þegar hún neitaði að taka við bjart-
sýnisverðlaunum Bröstes nema það væri undir fjögur augu, það er
að segja hennar og Bröstes. Eða þegar hún danglaði í Ijósmyndara
héraðsfféttablaðs í Bandaríkjahreppi. Hvorutveggja voru þetta
rammíslensk viðbrögð sem báru yfirbragð höfðingja og kappa Is-
lendingasagnanna enda hefðu hvorki Hallgerður langbrók né Olöf
ríka leikið þetta effir með sama þokka. Betri landkynningu er að
minnsta kosti ekki hægt að hugsa sér.
Einhverjir skammsýnir menn kunna líka að benda á að nær væri
að gefa launafólki eitthvað gott í skóinn, tildæmis skjólstæðingum
hans Guðmundar Bjarkarpabba. Davíð var hinsvegar búinn að segja
að það væru ekki til peningar handa þessu liði og þar við situr. Það
er líka sérdeilis heimskulegt að vera að hygla fátæklingum því það
eru litlar líkur á að þeir geti nokkurn tíma endurgoldið greiðann.
Eg styð að sjálfsögðu háæruverðugan forsætisráðherra heilshugar
í þessu eins og flestu öðru sem honum dettur í hug. Eg fagna þessu
fordæmi og reikna með að aðrir sem eiga skilið eyjar fái sömu fýr-
irgreiðslu. Mig langar tildæmis í Breiðafjarðareyjarnar flestar eða
Vestmannaeyjar. Þó myndi ég líklega helst velja mér Viðey. Þar er
líka ágætis húskofi sem gæti nýst mér og væri ekki ónýtt að fá í
kaupbæti. Það getur svo sem vel verið að einhver haldi því fram að
ég sé ekki eins þarfur og merkilegur og hún Björk en það er mikill
misskilningur. Eg er alveg stórmerkilegur. Eg hef gert afskaplega
mikið fýrir land og þjóð og skil eftir mig ómetanleg menningar-
verðmæti að mínu mati. Hvað landkynningu varðar þá kann að vera
að ég syngi ekki eins hátt og mikið og ungfrúin góða en það hvern
einasta útlending sem ég hitti töffa ég upp úr skónum.
Þeir sem eru síðan með eitthvert óþarfa röfl geta bara fengið
Kanaríeyjar og verið þar!
Gtsli Einarsson eyjamaður
Helga Halldórsdóttir Þorvaldur Tómas Jónsson
Tveir Borgfirð-
ingar á þingi
Nokkuð langt er orðið síðan
Borgfirðingar hafa átt fulltrúa á
hinu háa Alþingi. Þessa dagana er
hlutur þeirra hinsvegar óvenju
góður því tveir varaþingmenn úr
Borgarfirði sitja á þingi um skeið,
þau Helga Halldórsdóttir Sjálf-
stæðisflokki sem kom inn fyrir
Sturlu Böðvarsson og framsóknar-
maðurinn Þorvaldur Tómas Jóns-
son sem situr á þingi í stað Ingi-
bjargar Pálmadótmr. GE
Gróði hjá G.
Runólfcsyni
Guðmundur Runólfsson hf í
Grundarfirði birti í síðustu viku
afkomutölur ársins 1999.
Rekstrartekjur á árinu námu alls
669,2 milljónum kr. og hækkuðu
þær um 18,4% frá árinu áður. Að
meðtöldum innlögðum eigin afla
og veiðarfærasölu til eigin nota
nam heildarvelta félagsins 945,2
milljónum kr. Samkvæmt rekstrar-
reikningi nam hagnaður ársins
14f,5 milljónum kr. samanborið
við 40,2 milljónir kr. árið á undan.
Hagnaður fýrirtækisins fýrir af-
skriftir og vexti var 155,1 milljónir
kr. samanborið við 137,5 milljónir
kr. árið á undan. Veltufé frá rekstri
jókst úr 95,4 milljónum kr. í 189,7
milljónir kr. Bókfært eigið fé í árs-
lok nam 427,1 milljón kr. en þar af
nemur hlutafé 88,1 milljón kr. Arð-
semi eiginfjár á árinu 1999 var um
51,43%. Meðalfjöldi starfa á síð-
asta ári var 86 og launagreiðslur og
launatengd gjöld námu 210,7 millj-
ónum kr. GK
Nýr hafiisögu-
bátur á Akranes
Til stendur að Akraneshöfn fái
nýjan hafnsögubát á þessu ári og
bárust tvö tilboð í smíði nýja báts-
ins. Annað frá Damen Shippyard í
Hollandi sem hannaði og seldi
Þorgeir og Ellert efni í síðasta bát.
Hitt var frá Þorgeir og Ellert.
Munurinn á tilboðunum var 13
milljónir. Tilboð Damen hljóðaði
uppá 42 milljónir króna með 18
vikna afhendingarfresti og reikna
má með 2 milljóna króna flutnings-
kostnaði. Hinsvegar hljómaði til-
boð Þorgeirs og Ellerts uppá 51.5
milljónir ef tveir bátar yrðu byggð-
ir en til stóð að Hafnfirðingar yrðu
í samfloti. En annars bát á 57.9
með 20 vikna afhendingartíma.
Það er fyrst og fremst verðmunur-
inn sem ræður því að tilboði
Damen verður tekið.
Nýr hafharbátur verður „einu
númeri“ stærri en sá sem er í notk-
un núna en með tvöföldun á tog-
krafti. Nýr bátur yrði þannig með
um 12 tonna togkrafti. Það er gert
til þess að standa betur að vígi við
þjónustu við Grundartangahöfn,
þar sem skipin fara stækkandi og
ferðum fjölgandi. Fyrirhugað er að
selja gamla bátinn en ekki hefur
verið tekin endanleg ákvörðun um
það.
SB
Norðurál
Gæðin aukast,
hærra verð
Undanfarna mánuði hafa gæðin í
framleiðslunni í Norðuráli aukist.
Allur málmur er nú seldur með
hærra verði en áður. Að sögn Ragn-
ars Guðmundssonar þýðir það að
starfsemenn hafa náð góðum tök-
um á framleiðslunni. ,Járninni-
haldið í málminum er lágt núna,
sem setur söluvöruna upp um tvo
gæðaflokka. Fyrir vikið er málmur-
inn seldur á hærra verði. Alverð er
mjög hátt um þessar mundir eða
um 1700 dollarar á tonnið.
SB
Samið við
Gámaþjónustum
Bæjarráð Borgarbyggðar
hefur undirritað samning við
Gámaþjónustu Vésturlands
um sorphirðu og rekstur
gámaþjónustu í sveitarfélag-
inu næstu tvö árin. Sam-
komulagið er undirritað með
fýrirvara um samþykki bæjar-
stjórnar.
GE
Sr. Ólafur
hættir
Sr. Olafur Jens Sigurðsson
sóknarprestur í Ingjaldshóls-
prestakalli hefur sagt starfi
sínu lausu. Búist er við að nýr
prestur taki við embættinu í
byrjun maí.
GE
Sorpið í
Fíflholt
A næstu dögum verður
byrjað að flytja allt heimil-
issorp úr Stykkishölmsbæ á
urðunarstaðinn í Fíflholtum.
Mugsanlegt er að sveitarfélög
á Snæfellsnesi hafi með sér
samstarf um sorpflutningana
og er það mál til umfjöllunar í
víðkomandi sveitarstjórnum.
GE
Slys um borð
í Haraldi
Maður slasaðist um borð í
togaranum Haraldi Böðvars-
syni miðvikudaginn 2. febrúar
síðastliðinn. Vír slóst í mann-
inn þegar var verið að hífa inn
trollið. Rifbeinsbromaði mað-
urinn og fékk áverka á nýru og
lífur. Betur fór en á herfðist
og útskrifaðist hann af sþítala
á þriðjudaginn. Læknar telja
að hann múni ná sér að fullu
en ékki er vitað hve langan
tíma það tekur.
SB
Leki í Sturlaugi
Leki kom upp í skipinu
Smrlaugi H. Böðvarssyni að-
faramótt sunnudags þegar
skipið var að leggja í túr ffá
Akranesi. Þegar vart var við
lekann var þegar snúið í land
og skipið sett í slipp strax um
kvöldíð. Lekinn reyndist smá-
vægilegur en hann tengdist
hliðarskrúufnum. Gert var ráð
fýrir að Sturlaugur væri kom-
inn úr slipp í gær, miðvikudag,
eftir að blaðið fór í prentun og
færi þá fljótlega á miðin aftur.
SB
Loðnan lætur
bíða eftir sér
Engin veiði hefur verið hjá
nótabámnum í tólf daga á
loðnumiðunum. Loðnan er
ekki komin upp í grunninn en
menn em vongóðir um að úr
fari að rætast.
Viðar Karlsson skipstjóri á
Víkingi AK segir að illa hafi
gengið hjá þeim og verið sé að
bíða eftir grunngengi loðn-
unnar. „Það spáir illa núna
næsm daga en ég geri nú ráð
fýrir að þetta fari að ganga.
Við fengum ágætt á þriðju-
daginn og lönduðum þvf. Nú
bíðum við eftir vestanátt og
loðnunni," segir Viðar.
SB