Skessuhorn - 10.02.2000, Qupperneq 4
4
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000
Rekstur Dvalarheimilisins Höfða
Halli eða lýðhjálp?
Spyr Asmundur Olafsson framkvæmdastjóri
Þó að reikningar ársins 1999 fyr-
ir Dvalarheimilið Höfða liggi
ekki endanlega fyrir, bendir þó
flest til þess að reksturinn verði
miUi 5 og 10 miUjónum króna
innan ramma fjárhagsáætlunar.
Asmundur Olafsson fram-
kvæmdastjóri Höfða segir í sam-
tali við Skessuhom að þegar
unnið sé að fjárhagsáætlun fyrir
DvalarheimUið sé hlutur sveitar-
félaganna í rekstrarkostnaði kaU-
aður haUi.
“Þetta er að sjálfsögðu ekkert
annað en lýðhjálp. Eg hef ekki
heyrt að rekstur menningar og
menntamála, skóla, íþróttahúsa og
fleiri nauðsynlegra stofnana sé skil-
greindur sem hallarekstur, öðru
nær” segir Asmundur, og bætir við
“Dvalarheimilið Höfði hefur nú
verið rekið í 22 ár og langflest árin
hefur það verið rekið innan ramma
fjárhagsáædana.”
Komum vel út
Dvalar- og hjúkrunarheimilum er
ædað að reka sig samkvæmt þeim
lögum sem Alþingi setur um mál-
efni aldraðra, og þar kemur skýrt
ffam hvert þjónustustig þeirra eigi
að vera. Asmundur segir að eignar-
aðilar langflestra þessara heimila
hafi þessi lög að leiðarljósi og ædist
til þess sama af stjórn og starfsfólki.
“Svokallaður hallarekstur er ekki
meiri á Höfða en á öðrum samsvar-
andi heimilum, er líklega nálægt
meðaltali, en ef miðað er við hlut-
fall daggjalda og þann aðbúnað og
húsnæði sem boðið er uppá hér þá
komum við vel út í öllum saman-
burði við önnur heimili. Þetta er
staðreynd sem íbúar sveitarfélag-
anna sunnan Heiðar eru stoltir af’
segir Asmundur.
Nú hefur bæjarstjórn Akraness
tekið þá ákvörðun að veita Dvalar-
heimilinu Höfða ekkert framlag
fyrir árið 2000 heldur skuli það rek-
ið fyrir daggjöld ffá ríkinu ein-
göngu en forsvarsmenn bæjarins
vilja meina að það framlag hafi ver-
ið alltof lágt í gegnum árin. Ás-
mundur segir að ef nægt fjármagn
sé ekki fyrir hendi til þess að fram-
fylgja þessum lögum Alþingis um
þjónustustig, þá verða stjórnmála-
menn einfaldlega að axla þá ábyrgð
sem þeim er fengin á ákvarðana-
töku um grundvallarreglur samfé-
lagsins, þar á meðal hvar skuli
minnka þjónustuna og hvar skuli
skera niður.
Aðspurður um rekstur heimilis-
ins næsta ár segir Asmundur að þær
5 til 10 milljónir sem líklega verða
eftir ffá síðasta ári verði reiknaðar
inní fjárhagsáætlun ársins 2000, og
bætir við, “Vonandi fáum við á
Höfða, eins og önnur hjúkrunar-
Ásmundur Olafsson framkvæmdastjóri
HöfSa
heimili fjármagn vegna fjáraukalaga
til þess að mæta halla 2000, en það
liggur ekki ljóst fyrir enn”. Þannig
telur Asmundur að rekstur Dvalar-
heimilisins þetta árið ætti að koma
sæmilega út, án stórfelldra aðgerða
eða niðurskurðar, en hvað tekur við
árið þar á effir treystir hann sér ekki
til að segja til um.
BG
Klafi tekur til starfa
Guðmundur Eiríksson ráðinn framkvæmdastjóri
Hagræðing í
heilbrigðiskerfinu
Rætt um samvinnu milli Sjúkrahússins
á Akranesi og Dvalarheimilisins Höíða
íslenska járnblendifélagið og
Norðurál á Grundartanga hafa
sameiginlega stofhað fyrirtækið
Klafa til að annast starfsemi við
Grundartangahöfh. Guðmundur
Eiríksson hefur verið ráðinn
ffamkvæmdastjóri en harm hefur
til margra ára starfað sem tækni-
legur framkvæmdastjóri hjá
Lofforku Borgamesi ehf.
Höfnin á Grundartanga var upp-
haflega gerð í lok 8. áratugarins til
að mæta þörfum Islenska járn-
blendifélagsins. Eigendur hafnar-
innar eru sveitarfélög á Vesturlandi.
Árið 1997 var hafist handa við
stækkun Grundartangahafnar
vegna byggingar álvers Norðuráls.
Stækkun hafnarinnar lauk árið
1998 og þjónar hún öllum hafhar-
þörfum beggja fyrirtækjanna.
Grundartangahöfn er nú meðal
bestu stórskipahafha landsins og
geta 60.000 tonna skip lagst að nýja
viðlegukantinum við góðar aðstæð-
ur.
Sjóflutningaþörf Norðuráls við
60.000 tonna framleiðslu nemur
220 þúsund tonnum á ári en í fram-
tíðinni er áætlað að hún geti orðið
allt að einni milljón tonna á ári. Ar-
legir flutoingar Járnblendifélagsins
um Grundartangahöfn nema nú
um 530 þúsund tonnum. Heildar-
flutoingar beggja fyrirtækjanna um
höfnina gætu numið um 1,5 millj-
ónum tonna innan nokkurra ára.
Klafa er ætlað að anna þörfum
beggja fyrirtækjanna fyrir uppskip-
un hráefha og útskipun afurða en
áður sinntu félögin þessum verkum
hvort í sínu lagi. Klafi er í jafnri
eigu beggja fyrirtækjanna. Aætlanir
gera ráð fýrir hagræði af samstarfi
um höfnina. Klafa er einnig ætlað
að þjónusta aðra skipaumferð um
Grundartangahöfh en til þessa hef-
ur slík þjónusta ekki staðið sjófar-
endum til boða. Eigendur hafnar-
innar vænta þess að hafharfyrirtæk-
ið muni leiða af sér aukna vöruveltu
um Grundartangahöfn og upp-
byggingu á hafhtengdri starfsemi á
Grundartangasvæðinu.
Nafnið Klafi er sótt í jarðarnafn-
ið Klafastaðir en verksmiðja Járn-
blendifélagsins og hluti Norðuráls
standa í landi Klafastaða. Klafi er
gegnt orð í íslenskri tongu og teng-
ist flutoingum á margan hátt. Þan-
nig er sá hluti aktygja sem leggst
um háls dráttardýrs nefndur klafi
en orðið klafi er einnig notað um
hífingarbúnað fyrir vörubretti við
útskipun svo og í merkingunni
kaðlar, keðjur og tóg.
Nýráðinn framkvæmdastjóri
Klafa er Guðmundur Eiríksson en
hann var áður tæknilegur fram-
kvæmdastjóri hjá Loftorku í Borg-
arnesi. Stjórn Klafa skipa Ragnar
Guðmundsson frá Norðuráli og
Bjarni Bjarnason frá Islenska járn-
blendifélaginu.
MM
Formanni bæjarráðs Akraness
og bæjarstjóra var falið að koma
á fundi nú í vikunni með for-
manni stjómar Sjúkrahúss og
heilsugæslu Akraness og fram-
kvæmdastjóra og formanni
stjórnar Dvalarheimilisins
Höfða til að ræða mögulega
samvinnu þessara stofhana.
Markmiðið er að ná fram hag-
ræðingu í rekstri.
Mál þetta hefur áður verið í um-
ræðu en hefur legið í dvala síðast-
liðna mánuði. Ætiunin með þess-
um fundi er að vekja aftur upp um-
ræðu um hagkvæmni þessarar sam-
vinnu ojg hvort grundvöllur sé fyrir
henni. I framhaldi af því mun koma
í ljós hvort umræður haldi áfram.
Sjúkrahúsið og Höfði eru í sam-
bærilegum rekstri en á liðnum
árum hefur ekki verið um að ræða
rekstrarsamstarf milli þessara
stofhana. Þrýst hefur verið á báða
aðila að halda rekstri sínum innan
ramma fjárhagsáætlunar og fjárlaga
undanfarin ár en það hefur gengið
erfiðlega.
Gísli Gíslason bæjarstjóri sagði í
samtali við Skessuhorn að þeir
þættir sem verið væri að tala um
væru rekstraratriði eins og inn-
kaup, rekstur stoðdeilda og fleira.
Hvað væri raunhæft í þessu biði
skoðunar þeirra sem bera ábyrgð á
rekstri stofhananna. BG
Nýfæddir
Vesdendingar eru
boðnir velkomnir í
heiminn um leið
og nýbökuðum
foreldrum
eru færðar
hamingjuóskir.
4. feb. kl:04:41-Meybam. - Þyngd:
4135 - Lengd: 54,5 cm- Foreldrar:
Helga Georgsdóttir ogjón Þórðarson,
Borgamesi. Ljósmóðir: Helga H'ósk-
uldsdóttir.
l.feb. kl 22:15- Meybam. -Þyngd:
3855 - Lengd: 51 cm - Foreldrar:
Ingibjörg B Guðmundsdóttir og Stefán
Ragnar Pálsson, Olafivík. Ljósmóóir:
Lóa Kristinsdóttir.
3.feb. kl 22:50-Meybam. - Þyngd:
4235 - Lengd: 58 cm. Foreldrar: Sig-
rún Elísabet Amardóttir og Albert
Jónsson, Eyjanesi Hrútaftrði. Ljós-
móðir: Margrét Bára Jósefidóttir.
25. jan. kl 11:08- Meybam. - Þyngd:
3015 - Lengd: 50 cm- Foreldrar:
Friða Ingimarsdóttir og Óskar
Kristinsson, Akranes. Ljósmóðir:
Sólveig Kristinsdóttir.
6. feb. kl:05:05 - Meybani. - Þyngd:
3700 - Lengd: 53 cm - Foreldrar:
Elsche Oda Apel og Ingi Hjörtur
Bjamason, Hvammstanga. Ljósmóðir:
Margrét Bára Jósefsdóttir.
5. feb. kl:05:l 6 - Meybam. - Þyngd:
3305 - Lengd: 51 cm - Foreldrar:
Anna Björk Markúsdóttir og Anton
Agnarsson, Akranes. Ljósmóðir: Mar-
grét Bára Jósefsdóttir.
24jan. kl 20:14- Sveinbam. —
Þyngd:3150 - Lengd: 53 an. Forel-
drar: Sylvia Dröfn Björgvinsdóttir og
Ingi Magnús Ómarsson, Reykjavík.
Ljósmóðir: Lóa Kristinsdóttir.
Akranes:
Varanleg
spenni-
stöð
Akranesveita hefur fengið vil-
yrði fýrir því að afmörkuð verði
lóð fyrir varanlega spennistöð að
Höfðaseli á Akranesi. Að sögn
Þorvaldar Vestmann hjá Akranes-
veitu hefur bráðabirgðaspenni-
stöðin verið þar í nokkur ár og tími
kominn að reisa varanlega spennu-
stöð. „Ætlunin er að auka starf-
semi og koma fýrir bættum búnaði
og við gerum ráð fýrir að steypt
verði upp í sumar en ekki hefur
verið ákveðið hvenær búnaðurinn
verður fluttur. Það gæti eins verið
á næsta ári,“ segir Þorvaldur Vest-
mann
SB