Skessuhorn - 10.02.2000, Page 9
SSISSUHQBK]
FIMMTUDAGUR 10. FEBRUAR 2000
9
Hús fyrir alla aldurshópa
Rætt við Einar Skúlason æskulýðsfulltrúa á Akranesi
Myndir BG
um við aðra krakka.
Margir vita hvar húsið Amardal-
ur er á Akranesi og hvaða starf-
semi það hefur að geyma. En
hvað er svona merkilegt við þetta
fallega hús og fólkið sem kemur
þar saman á hverjum degi? Einar
Skúlason hefúr unnið í Amardal
í 13 ár og veit sitthvað um sögu
hússins og gang æskulýðsmála
síðastliðin ár.
I ársbyrjun 1980 var opnuð fé-
lagsmiðstöð í Arnardal, aðallega
ætluð unglingum í 8. til 10. bekk til
afþreyingar í frítímum. “Markmið
Arnardals í upphafi var að ná ung-
lingum inn af götunni, ná til krakka
sem að væru kannski ekki í skipu-
lögðum tómstundum eins og
íþróttum eða tónlistarskóla og fá þá
inní starfið. En svo æxlaðist það
bara þannig að allir vildu koma í
Arnardal, sama hvort þeir höfðu
aðrar tómstundir eða ekki” segir
Einar í samtali við útsendara
Skessuhorn og lumar svo einnig að;
“þetta heíúr gengið mjög vel, eins
og ætlunin var -að tæma göturnar”.
“Það var æskulýðsnefnd Akraness
sem í upphafi stóð að því að stofna
hér félagsmiðstöð, sem upphaflega
var kölluð æskulýðsmiðstöð, en
hefur þróast í að vera kölluð félags-
miðstöð” segir Einar. Æskulýðs-
nefndin var svo lögð niður árið
1987 og sameinaðist íþróttadeild-
inni og fékk sameinað nafn; íþrótta-
og æskulýðsnefhd. 1998 voru svo
íþrótta- og æskulýðsmálin aðskilin
aftur og tilheyra æskulýðsmálin nú
félagsmáladeild. Arnardalur er nú
rekinn undir stjórn æskulýðs- og fé-
lagsmáláráðs. Einar byrjaði starf sitt
árið 1987 sem forstöðumaður, allt
til ársins 1994 þegar hann tekur yfir
daglegum rekstur æskulýðsmála.
Hús fyrir alla
aldurshópa
Flúsnæði Arnar-
dals er ekki ein-
göngi notað sem
félagsmiðstöð fýrir
8. til 10. bekk.
Þegar tíðindamann
bar að garði var
anddyri hússins
fullt af barnavögn-
um. Svo virðist
sem fólk á öllum
aldri komi þar
saman. “Já húsið er
notað til ýmissa
hluta”, segir Einar,
það er reynt að
nýta það eins og
tækifæri gefst til,
t.d. mömmu-
klúbba. I kvöld
nýtir FVA húsið,
skátarnir eru
stundum hér með
samkomur,
íþróttafélögin
halda hér m.a. víd-
eókvöld og skól-
arnir halda hér
Amardalur.
stundum bekkjakvöld. Á sumrin er
vinnuskólinn gerður út frá Arnar-
dal, einnig skólagarðar, leikjanám-
skeið og reiðnámskeið.”
Foreldrarölt
Einar segir að mikið samstarf sé á
milli Arnardals og grunnskólanna.
“I gegnum skólana næst samstarf
við foreldra”, segir Einar. Aðspurð-
ur segist Einar telja hið svokallaða
foreldrarölt vera afar jákvætt mál.
Flann telur foreldra verða mikið
meðvitaðri um útivist unglinganna
með þessum hættu. “Foreldraröltið
gerir það að verkum að foreldrar
hittast, rölta hér um bæinn og ræða
saman. Foreldrar tala þar saman og
ráðfæra sig og fá þannig hugmynd-
ir um að það er ekki æskilegt að
unglingur á grunnskólaaldri sé úti
til tólf eða eitt á kvöldin, -það er
ekki heil brú í því”. “I raun vil ég
meina að ástandið hér á Akranesi,
hvað útivist varðar hjá þessum aldri,
sé mjög gott”.
Lítið hús með stóra sál
Saga Arnardalshússins er löng og
merkileg. Það var byggt upphaflega
sem íbúðarhús, var svo notað sem
elliheimili og nú sem félagsmið-
stöð. “Þetta er gamalt hús með al-
veg sérstaka sál og sögu”, segir Ein-
ar. Flúsið er ekki stórt en hann seg-
ir það ekkert verra. “Unglingarnir
vilja ekki endilega hafa svo stórt
hús, þeir vilja hafa nálægðina hvert
við annað, og ef við þurfum stóra
sali þá höfum við þá í báðum skól-
unum”. Einar segir að eftir helgar-
heimsóknir í stór félagsheimili úti á
landi séu krakkarnir strax farnir að
líta á viðkomandi húsnæði sem
stofhun, tala um að það sé eins og
skóli. “Mér finnst unglingar á Akra-
nesi aldrei líta á Arnardal sem
stofnun því að koma þangað er eins
og að koma í stórt einbýlishús. Eg
hef það á tilfinningunni að ungling-
unum líði vel hérna” segir Einar og
segist líka vilja hafa það þannig að
krökkunum líði vel í Arnardal og
geti þar eitt frítíma sínum í samvist-
Skólinn fyrst
“Það er alveg ofsalega gott að
vinna hérna og nánast allir sam-
starfsaðilar hér í bænum hafa sýnt
skilning og velvilja gagnvart starf-
seminni enda er þetta góður vinnu-
staður”. Einar segir mottó Arnar-
dals vera; “þú kemur ef þú vilt og
ferð ef þú vilt, en ef þú skráir þig í
klúbb eða námskeið þá ætlumst við
til þess að þú mætir”. Þetta eru einu
kröfurnar sem settar eru. “Við
erum ekki að segja -þú átt að koma
í Arnadal. Þú kemur ef þú villt, hef-
ur nennu, vilja og löngun til, og þú
ferð ef þú vilt. Við viljum ekki vera
að ná í krakkana inná heimilin, við
viljum kynna þeim það tómstunda-
starf sem Arnardalur hefúr uppá að
bjóða. Skólinn, heimilið, skyldur
heimafýrir, íþróttir og það sem þau
binda sig til kemur á undan þessu.
Svo ef þau hafa tíma þá náttúrlega
koma þau”, segir Einar Skúlason að
lokum. BG
GríSafsrór xkip ■lögiu að Gnmáartarigaböfo í síiustu viku. Þemjkip Highland Trrtst er yfir'SpO me,
Framkvænrdir við vegagerðyftr Fróíúrheiði eru hafiiar. Myndin er tekinfrd brekkumn upp d heiðina að sunnanverðu og niður ú
nýtt vegárstæði. MyndrGE