Skessuhorn - 10.02.2000, Side 15
FIMMTUDAGUR 10. FEBRUAR 2000
15
Kjöldregnir
í Þunkví
Halifaxar svívirtir
Það fór illa fyrir hetjum vorum
Haliföxum í leik helgarinnar
gegn Sameinaðri Þurrkví
(Torquay United), en þær máttu
sæta stórtapi 4-0 fyrir heima-
mönnum. Ekki náðist í þjálfar-
ann, Markús Liljuson (Mark
Lillis), eftir Ieikinn en verið er
að slæða nærliggjandi fjörur.
Að þessu sinni var grafarþögn í
rútinni á leiðinni heim til Halifax.
Heyra hefði mátt saumnál detta í
heysátu þar til hinn geðþekki og
prúði Halifaxari, Jónas Pétursson
(Jamie Paterson), sem rekinn var
útaf á 66. mínútu fyrir karlmann-
legar tæklingar, hóf upp raust sína:
Nú er hún Snorrabúð snautleg rúst
sæmdin erþrotin en kjarkurinn búinn.
Sérhver í Halifax halur er lúinn
soltin vor kráka situr á þúst
soltin á svívirtri þiíst.
Það foru þeir Böddi (Bedeau),
Logi (Brandon), Villi (Williams) og
Hallur (Healy) sem skoruðu mörk
Þurrkvíunga á 14., 38., 56. og 61.
mínútu.
Til að bæta gráu ofan á svart var
Jónas svo rekinn útaf á 66. mínútu,
og ekki að furða þar sem hann er
keppnismaður mikill og rann hon-
um staðan í skap. Lái honum hver
sem vill. BMK
Skrifað hefur verið undir samning á milli Akraneskaupstaðar og Öryggisþjðnustu Vesturlands um vó'ktun á eignum bœjarbúa. Að sögn
Gísla Gíslasonar bœjarstjóra þá hefiir Akraneskaupstaður verið að miklu leyti laus við stórtjón, en þó nokkuð hefur verið um smátjón,
sem geta reynst þungbœr því safiiast þegar saman kemur. Litið er þvífrekar á samninginn sem jýrirbyggjandi aðgerðir af hálfu bæjaryf-
irvalda. Vramkvœmdastjóri Öiyggisþjótrustu Vesturlands, Arinbjörn Kúld, segir viðbrögð viðþessu nýja fýrirtaki hafi veriðfrábær í
Borgamesi en öllu lakari á Akranesi. Amyndinni handsala Arinbjöm og Gísli satnkomulagið. BG
Kxr u/tujifiKir þJULiLUKcnuur u í icruvsmun í íoií i jrjuizurn ijtr m-vurn.
Héraðsmót HSH í frjálsum íþróttum
Grundfirðingar sigruðu
Um síðustu helgi var haldið vel
heppnað héraðsmót í frjálsum
íþróttum í Stykkishólmi. Mótið
sem var á vegum HSH var mjög
fjölmennt og alls kepptu þar um
220 krakkar. Allir þátttakendur
yngri en 12 ára fengu verðlauna-
peninga en í eldri flokkunum var
keppt um sæti. A mótinu voru með-
al annars sett ný hérðasmet og Is-
landsmet. Stemmingin á mótinu
var einnig mjög góð og fjölmargir
foreldrar mættu á svæðið og studdu
börnin sín með lófaklappi og köll-
um. Það voru að lokum Grundfirð-
ingar sem stóðu uppi sem sigurveg-
arar í heildarstigakeppninni.
Mótsstjóri var Kjartan Páll Ein-
arsson en Búnaðarbankinn í Stykk-
ishólmi gaf verðlaunin.
Stígin
UMEG 228,5 stig
Snæfell 160,0 stig
Víkingur 106,0 stig
Reynir 49,5 stig
Umf Staðarsveit 35,5 stig
Umf Eldborg 28,5 stig
ÍM 26,5 stig
GE/Sigrún Olafsdóttir
Myndir: Sigrún Olafsdóttir
Aðalfundur hestamannafélagsins Skugga
verður haldinn fimmtudaginn 17. febrúar
í Félagsheimili Skugga á Vindási og hefst
|Í klukkan 20:30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Fulltrúi frá Sjóvá Almennum kemur og ræðir um tryggingamál
hrossa.
‘
I Félagar mæti stundvíslega. Nýir félagar velkomnir.
K
o - í '■ m -
I Stjórnin
EPSON deildin í körfubolta
Skallagrímur • Haukar
sunnudaginn
13. febrúar kl. 20.00
? íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi
Styðjum okkar menn
til sigurs
Áfram Skallagrímur
Stund milli stríða
Landshlutabundið skógræktarverkefni, Vesturlandsskógar, óskar eftir að ráða
framkvæmdastjóra.
Starfssvæðið tekur til Kjósarsýslu, Borgarfjarðar- og Mýrasýslu, Snæfells- og
Hnappadalssýslu og Dalasýslu.
I
o
i Starfið felst í að hafa umsjón með og bera fjárhagslega og framkvæmdarlega ábyrgð
I á starfsemi Vesturlandsskóga. Veita upplýsingar og ráðgjöf og annast daglegan rekstur.
Óskað er eftir starfskrafti með skógfræðimenntun.
Umsóknum með upplýsingum um nám og fyrri störf skal skila til formanns stjómar
Vesturlandsskóga Skúla Alexanderssonar, Hraunsási 1,360 Hellissandi, fyrir 1.
mars 2000. Skúli veitir nánari upplýsingar - sími hans er 436 6619.