Skessuhorn - 24.02.2000, Page 1
Borgarfj arðarsveit:
Hvanneyrarpresta-
kall lagt niður?
Séra Sigríður Guðmundsdóttir
sem þjónað hefur Hvanneyrar-
prestakalli undanfarin ár hefur
beðist lausnar frá embætti af
heilsufarsástæðum. Sigríður lenti í
alvarlegu bílslysi í ársbyrjun 1998
og hefur verið í sjúkraleyfi meira
og minna síðan. Hún hefur ekki
enn fengið fulla bót meina sinna og
segir í bréfi til sóknarbarna að hún
sjái sér ekki annaðs fært en að
biðjast lausnar frá embætti. Séra
Sigríður heldur kveðjumessu í
Hvanneyrarkirkju sunnudaginn 26.
mars n.k.
Biskup hefur ákveðið að auglýsa
stöðuna ekki að svo stöddu heldur
verði kannaður fyrst sá möguleiki
að leggja Hvanneyrarprestakall
niður í núverandi mynd og að
sóknirnar sameinist Reykholtssókn
og Stafholtssókn. I Hvanneyrar-
prestakalli eru fjórar sóknir,
Hvanneyrarsókn, Lundarsókn,
Fitjasókn og Bæjarsókn. Sr. Geir
Waage hefur þjónað Hvanneyrar-
prestakalli að undanförnu í forföll-
um sóknarprests og mun sinna því
áfram þar til ákvörðun hefur verið
tekin um framtíð prestakallsins.
GE
Borgames:
Viðræður um sölu
Engjaásshússins
Sparisjóður Mýrasýslu er nú í
viðræðum við tvö fyrirtæki um
hugsanlega sölu fyrrum húss
Mjólkursamlagsins í Borgarnesi.
Sparisjóðurinn keypti húsið í lok
síðastliðins árs og hyggst selja það
ef viðunandi samningar nást. Eink-
um hafa viðræður staðið yfir við
Olgerðina Egil Skallagrímsson og
við Reykjagarð hf.
I samtali við Gísla Kjartansson
sparisjóðsstjóra sl. þriðjudag stað-
festi hann að viðræður við þessa að-
ila hafi staðið yfir. “Það kemur í ljós
fyrir komandi helgi hvort samning-
ar nást við forsvarsmenn Reykja-
garðs hf.”, sagði Gísli.
Reykjagarður skoðar möguleika
á fiutningi kjúklingasláturhúss í
Borgarnes en fyrir rekur fyrirtækið
sláturhús á Hellu sem til stendur að
stækka eða flytja annað til að ná
fram viðunandi hagræðingu í ljósi
lækkandi verðs á kjúklingum.
Samkvæmt frétt Morgunblaðsins
sl. þriðjudag er nokkur uggur í
sveitarstjórnarmönnum í Rangár-
vallahreppi vegna hugsanlegs flutn-
ings fyrirtækisins þaðan, enda um
stærsta einstaka atvinnurekanda á
svæðinu að ræða.
MM
Ovenju gott skíðafœn hefur veriS á Snæfellsnesi að midanfómu og hafa b'ómin nýtt sér það t hvívetna. Þessi mynd var tekin í Ölafsvík í
síðustu viku. Mynd: GE
Hjón með ungbam í hrakningum
Föst í bflnum í sex tíma
Björgunarsveitirnar í Snæfellsbæ
og lögreglan í Olafsvík leituðu að
hjónum með ungbarn síðastliðið
laugardagskvöld. Fólkið fannst á
Utnesvegi skammt frá Gufuskálum
seint um kvöldið og hafði þurft að
hafast við í bílnum í um sex klukku-
smndir. Það var því óskemmtilegur
endir á fjölskyldubíltúrnum en
hinsvegar amaði ekkert að fólkinu
þegar það fannst utan að hungrið
var farið að sverfa að. Vitlaust veð-
ur var á Snæfellsnesi eins og víðar á
Vesturlandi seinni part laugardags
og fram eftir kvöldi og er vitað til
að fleiri hafi lent í hrakningum.
GE
Enn q
hitnar
í Skorradal
Gott að
O búa á
Nesinu
Siisiiii
2.490
16. Mrtar ÍOOO
fyrir (113^0100