Skessuhorn - 24.02.2000, Page 7
Jiiiaauiiuú i
FIMMTUDAGUR 24. FEBRUAR 2000
7
Gísli Kjartansson, Gnihii bigimundarson, Þorvaldur T Jónsson og Stefán Logi Haraldsson
Góður hagnaður af rekstri Vímets
Komið í mjög góða stöðu
segir Þorvaldur Jónsson stjórnarformaður
“Menn eru sáttir við afkomuna.
Reksturinn hefur verið að bama
nokkur síðustu ár og fyrirtækið er
komið í mjög góða stöðu. Við höf-
um alla möguleika á að sækja fram
og því ekki ástæða til annars en
bjartsýni,” segir Þorvaldur Tómas
Jónsson stjórnarformaður Vírnets
hf í Borgarnesi. Fyrirtækið hélt að-
alfund sinn síðastliðinn fimmtudag
og þar kom fram að hagnaður var
18,5 milljónir króna á síðasta ári
samanborið við 14,8 milljóna hagn-
að árið 1998.
Heildarvelta félagsins nam um
426 milljónum króna samanborið
við 396 milljónir 1998. Aukinn
hagnaður skýrist meðal annars af
söhiaukningu og einnig því að fjár-
mögnun félagsins var endurskipu-
lögð. Tekin voru ný langtímalán,
birgðahald var lækkað verulega og
skammtímalán voru nánast greidd
upp. Við þessar breytingar lækkaði
fjármagnskostnaður um þrjár millj-
ónir króna á milli ára.
Eigið fé Vímets hf í árslok 1999
nam 132,8 milljónum króna sam-
kvæmt efhahagsreikningi. Hlutafé
félagsins nam í árslok 78,7 milljón-
um og skiptist á 40 hluthafa.
Stærstu hluthafamir eru Kaupfélag
Borgfirðinga og Guðsteinn Einars-
son en samanlagt eiga þessir aðilar
59,31% hlutafjár í félaginu. Aðal-
fundur félagsins samþykkti að
greiða tíu milljóna króna arð til
hluthafa á árinu 2000 vegna síðasta
rekstrarárs.
A síðasta ári störfuðu 43 starfs-
menn að meðaltali hjá félaginu en
það er þremur fleiri en árið á und-
an.
A síðasta ári lét ffamkvæmda-
stjóri Vírnets, Páll Guðbjartsson, af
störfum fyrir aldurs sakir en við
starfi hans tók Stefán Logi Har-
aldsson. Að sögn Stefáns hafa á
undanfömum mánuðum staðið yfir
miklar breytingar á sölu- og mark-
aðskerfi fyrirtækisins. Sagði hann
höfuðmarkmiðið að auka hlutdeild
Vírnets í sölu á stáli og saum innan-
lands.
Um síðustu áramót vora í gangi
viðræður við Límtré á Flúðum um
kaup á meirihluta hlutafjár í félag-
inu af Kaupfélagi Borgfirðinga og
Guðsteini Einarssyni. Upp úr þeim
viðræðum slimaði og að sögn Þor-
valdar Tómasar Jónssonar stjórnar-
formanns Vímets sem jafhframt er
stjórnarformaður KB eru engar
viðræður í gangi um sölu til Lím-
trés eða annarra aðila. Hann sagði
að það kæmi enn til greina að selja
hlut KB þótt ekkert hafi verið
ákveðið frekar. A aðalfundinum
kom glöggt ffam vilji hluthafa til að
tryggt yrði að reksturinn yrði áffam
í héraðinu.
GE
Verksmiíjuhúsnœði Vimets í Borgamesi
Næturblót í Brautartungu
fslendingar eru þekktir fyrir að
byrja sínar skemmtanir seint að
kveldi og lætur nærri að hjá sumum
nágrannaþjóðum okkar sé verið að
loka öldurhúsum um það leyti sem
Frónbúar era að koma sér í spari-
fötin. Þó er það sjálfsagt ekki al-
gengt að dansinn hefjist ekki fyrr
en um tvöleytið um nóttina eins og
gerðist á þorrablóti í Brautartungu
í Lundarreykjadal um síðustu helgi.
Afleitt veður var á laugardags-
kvöldið í uppsveitum Borgarfjarðar.
Skyggni var slæmt og víða þæfings-
færð. Því gekk blótsgestum seint að
komast í Brautartungu og hluti
matfanganna var fastur í skafli ffam
eftir kvöldi. Því gat borðhald ekki
hafist fyrr en á tólfta tímanum og
það var ekki fyrr en langt gengin í
tvö um nóttina sem hljómsveitinni
tókst að brjótast í gegnum veður-
haminn og hefja sjálfan dansleik-
inn. Síðustu gestirnir komust á
staðinn um klukkan þrjú en ein-
hverjir þurftu að sitja heima með
sárt ennið vegna veðurs. Samt sem
áður var blótið með fjölmennara
móti og skemmtu gestir sér hið
besta. Dansleiknum lauk ekki fyrr
en klukkan sex og þá var skollin á
aftaka blíða.
GE
Vilja Islenska erföagreiningu
Stjóm Sjúkrahúss Akraness sam-
þykkti á fundi sínum síðasdiðinn
mánudag að lýsa yfir vilja tíl að
stuðla að því að íslensk erfðagrein-
ing hf komi hluta starfsemi sinnar á
Akranes. íslensk erfðagreining hef-
ur sem kunnugt er sýnt því áhuga
að dreifa starfsemi sinni um landið.
Akranes og Borgames hafa heyrst
nefnd varðandi staðsetningu á
starfsstöðvum en engar upplýsingar
liggja fyrir um hvort þessir staðir
verða fyrir valinu.
GE
r
(slandsklukkan
Frumsýning 11. mars.
www.vefurinn.is/umfd
Mdnudaginn 28. febrúarnk., kl. 11.00,
að Gullberastöðum, Borgarfjarðarsveit,
verðurboðið upp 1 óskilahross.
Um er ræða veturgamla ómarkaða hryssu.
Borgarnesi 18. febrúar 2000
Sýstumaðurinn í Borgarnesi
STDFIMUN
Styrkir til atvinnumála kvenna
Félagsmálaráðuneytið hefur á þessu ári heimild til
að úmluta í styrki 20 milljónum króna til atviimumála
kvenna.
Áhersla er lö»ð á að greinargóð lýsing á verkefni
fylgi með umsokn, srmdtnliðuð kostnaðaráætlim svo
og að fram komi hvort leitað hafi verið til annarra
tun fjárstyrk.
Tilgangur styrkveitinga er einkum að auka þölhreytni
í atvinnulífi, viðhalda byggð um landið og efla
atvinnutækifæri á landsbyggðinni, auðvelda aðgang
kvenna að fjármagni og að draga úr atvinnuleysi
meðalkvenna.
Skilyrði fyrir umsókn:
• Allar konur hvaðanæva af landinu geta sótt uin styrk.
• Aðaláherslan verður á verkefni í þremur atvinnu-
Eeinurn; Þróun á lífrænum vörum, nýsköpun í
rðaþjónustu og stuðningur við atvinnuþróunar-
verketni kvennahópa, en heimilt er að styrkja verkefni
innan allra atvinnugreina. Forgangs njóta verkefni
sem þykja líkleg til að fjölga atvinnutækifærum
kvenna. Svæði þar sem hlutfaU atvinnulausra kvenna
er hátt og fábreytni í atvinnuhfi eru þar með talin.
• Stvrkir ekki veittir til verkefna sem eru í samkeppni
við aðila í hliðstæðum atvinnurekstri á landsvísu.
• Til að verkefni sé styrkhæft í 2. eða 3. sinn þarf fyrir
að hggja greinargero vegna fyrri styrkveitinga.
• Ekki eru veittir rekstrarstyrkir.
• Ekki eru veittir styrkir til íistiðnaðar en tekið er tihit
til nytjalistar.
• Stofnstyrki er heimilt að veita að hámarki 25% af
stofnkostnaði til véla og tækjakaupa og einnig vegna
húsnæðis til hópa.
• Ekki eru veittir styrkir til afmarkaðra verkefna sem
ekki eru atvinnuskapandi.
• Að öðru iöfnu nemur framlag af hálfu ríkisins ekki
meir en 50% af heildarkostnaði við verkefnið.
• Hámarksstyrkur á verkefni er kr. 2,5 milljónir.
• Þeim aðilum sem hyggjast sækja um styrk til
námskeiða/mennta-smiðju verkefna er bent á að hafa
samband við Vinnumálastofnun.
Umsóknareyðublöð fást á Vinnumálastofmm,
| Hafnarhúsi v/Tryggvagötu, Reykjavík, sími 5112500
og á heimasíðu stofnunarinnar
5 http://www.vinnumalastofnun.is
Umsóknarfrestur er til 21. mars 2000