Skessuhorn - 22.06.2000, Side 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 25. tbl. 3. árg. 22. júní 2000 Kr. 200 í lausasölu
Ertu að tapa stórfé
út um gluggana?
Fáðu góð ráð hjá okkur og
lækkaðu hitareikninginn!
Sími 54 54 300
Smiðjuvegi 7,
Kópavogi
fax 54 54 301
www.gler.is
Efnilegar
Tilboðin of há en “heiti pollurinn” á Langasandi ekki blásinn af
Einfaldari lausna leitað
ung-
hryssur
Síðastliðinn þriðjudag lauk
dómum og sýningarhaldi kynbóta-
hrossa á Vesturlandi. Vegna fyrir-
hugaðs landsmóts hestamanna
voru óvenjulega mörg hross færð
til dóms á sýningunni sem fram fór
á félagssvæði Skugga við Vindás í
Borgarnesi.
Að sögn Guðmundur Sigurðs-
sonar ráðunauts, stóð sýningin yfir
í 8 daga, að yfirlitssýningu meðtal-
inni, en undanfarin ár hefur þetta
sýningarhald tekið um 3 daga. I
allt voru 264 kynbótahross dæmd
og í heildina voru þau góð sem lýs-
ir sér e.t.v. best í því að um 200
þeirra áttu rétt til þátttöku í yfir-
litssýningunni sl. þriðjudag. Þar
sem þetta var síðasta sýningin á
landinu fýrir landsmótið í júlí voru
allmargir aðkomumenn sem komu
með hross í dóm í Borgarnes, flest-
ir af Suðurlandi og úr Reykjavík.
“A sýningunni tryggðu 6 vestlensk
hross sér þátttökurétt á landsmót-
inu og nokkur höfðu tryggt sér
þátttökurétt áður. Sýningin var í
heildina sterk og sérstaklega var
mikið um ungar og efnilegar
hryssur á henni. Veðrið var einnig
hagstætt sýningardagana og að-
staðan í Borgarnesi er góð til sýn-
ingarhalds”, sagði Guðmundur
Sigurðsson.
I næsta tölublaði Skessuhorns
verður greint ffá því hvaða hross í
eigu Vestlendinga verða fulltrúar
landshlutans á landsmótinu hesta-
manna í Reykjavík.
MM
Hugmyndir um “heitan poll” á
Langasandi hafa ekki verið
lagðar til hliðar að sögn Þor-
valdar Vestmann, forstöðu-
manns tæknisviðs hjá Akranes-
veitu, en verið er að skoða
aðrar leiðir en þær sem áætlað
var að leggja upp með.
Eins og sagt hefur verið frá í
Skessuhorni voru uppi hugmyndir
um að gera heita lind í grjótvörn-
inni við enda Jaðarsbrautar. Tvö til-
boð bárust í verkið er það var boð-
ið út á sínum tíma. Jón Bjarni
Gíslason bauð rífega 7,3 milljónir í
verkið en Þróttur ehf. tæplega 8,6
milljónir. Bæði tilboðin voru að
sögn Þorvaldar langt yfir því sem
upphafleg kostnaðaráætlun Verk-
fræðiþjónustu Akraness gerði ráð
fýrir.
“Við erum að skoða einfaldari
aðgerðir sem mér var falið að kanna
í kjölfar útboðsins. Sú vinna er í
gangi og ættu niðurstöður að geta
legið fýrir nú í vikulokin,” segir
Þorvaldur.
-SSv.
Af
bekknum
á 0
toppinn
Júlíus
heldur
sýningu
0
Sam-
eining
borgar
sig G
Hannar
©völl á
Græn-
landi