Skessuhorn - 22.06.2000, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 25. JUNI 2000
iíkÉ3»UHí>EH
Ami Gautur Arason búinn að festa sig í sessi hjá norsku meisturunum Rosenborg:
Af bekknum á Skaganum
í Meistaradeild Evrópu
A fomum slódum! Ami Gautur naut góða veðursins á Skaganum í stóustu viku og slakaöi á í grasstöllunum fyrir ofan biattspymuvöllinn.
Það er langur vegur frá því að
sitja á bekknum og horfa á fé-
lagana leika gegn Þór, Akureyri,
Stjömunni eða FH til þess að
standa sjálfur á milli stanganna
og takast á við stórstjörnur Real
Madrid, Bayern Munchen,
Dinamo Kiev, Feyenoord og
Borussia Dortmund í Meistara-
deild Evrópu. Ami Gautur Ara-
son, markvörður af Skaganum,
þekkir þó þessa tilfinningu öll-
um mönnum betur. Fyrir
nokkmm ámm sat hann löngum
á varamannabekknum á Skagan-
um en hefur nú fest sig í sessi
sem aðalmarkvörður norsku
meistaranna, Rosenborg frá
Þrándheimi.
“Eg hef tekið miklum framför-
um á þeim tíma sem ég hef verið
hjá Rosenborg. Mér hefur líkað
dvölin ytra mjög vel og á hálft ár
eftir af samningi mínum við félag-
ið. Eg gæti vel hugsað mér að
dvelja áfram í Þrándheimi, en auð-
vitað veit maður aldrei hvað morg-
undagurinn ber í skauti sér,“ segir
Árni Gautur í samtali við Skessu-
horn. Hann var staddur hér á landi
í stuttu leyfi í síðustu viku en hélt
aftur utan um helgina.
Sýningargluggi
Frammistaða Arna Gauts með
Rosenborg frá áramótum hefur
ekki aðeins fest hann í sessi sem
aðalmarkvörð liðsins. Meistara-
deild Evrópu er sannkallaður sýn-
ingargluggi heimsins og ljóst er að
fleiri lið en Rosenborg kunna að
hafa áhuga á að nýta sér krafta
hans er núverandi samningi hans
við norska stórveldið lýkur. Þulir
Eurosport-sjónvarpsstöðvarinnar
luku ítrekað lofsorði á frammi-
stöðu Árna Gauts í lýsingum sín-
um í vetur og töluðu um hann sem
“besta markvörðinn af yngri kyn-
slóðinni í Evrópu”.
Lífið hefur þó ekki alltaf verið
dans á rósum hjá þessum snjalla
markverði. Eftir að Kristján Finn-
bogason yfirgaf herbúðir Skaga-
manna í lok árs 1993 hófst harður
slagur á milli Árna Gauts og Þórð-
ar Þórðarsonar um markvarðar-
stöðuna. Þórður, sem er þremur
árum eldri, hafði betur og stóð í
marki Skagamanna sumarið 1994.
Arni Gautur beið þolinmóður eftir
sínu tækifæri og það kom sumarið
1995. En lánið var skammvinnt.
Heiftarlegt samstuð við framherja
Leifturs varð til þess að Árni Gaut-
ur var borinn af velli. Þórður tók
við markvarðarstöðunni á ný og
hélt henni út sumarið og allt
keppnistímabilið 1996, sem varð
ein allsherjar sigurganga Skaga-
manna.
“Eg var ungur og alveg tilbúinn
að sætta mig við að vera á bekkn-
um, a.m.k. í ákveðinn tíma. En svo
kom að því að ég vildi fá fleiri
tækifæri til að spreyta mig,” segir
Árni. “Eg sá ekki fyrir mér að mik-
il breyting yrði á Akranesi. Þórður
var að spila vel og því ástæðulaust
að breyta aðeins breytinganna
vegna.” Hann gekk til liðs við
Stjörnuna sumarið 1997 og sýndi
þá ítrekað að fáir standa honum á
sporði á milli stanganna.
Stóra tækifærið
Stóra tækifærið kom svo um
haustið er hann gekk til liðs við
norska stórveldið Rosenborg. En
aftur varð Árni Gautur að sætta sig
við að sitja á bekknum. I markinu
stóð JörnJamtfall ogvarð lítthagg-
að enda hélt Rosenborg uppteknum
hætti og vann nánast alla sína leiki.
Skagamaðurinn fékk fá tækifæri
framan af en sterk vopn hans;
þrautseigja, yfirvegun og skynsemi,
skiluðu honum fram á veginn.
Jamtfall missteig sig í markinu og
Árni Gautur tók við.
Þrátt fyrir að Árni Gautur hafi í
vetur verið að eiga við helstu stór-
stjörnur Evrópu á knattspyrnuvell-
inum fer því fjarri að hann láti upp-
hefðina stíga sér til höfuðs. “Auð-
vitað var gaman að takast á við þessi
stórlið og leika gegn heimsfrægum
leikmönnum. Engu að síður er
þetta bara fótbolti, rétt eins og
heima á Islandi, þótt formerkin séu
e.t.v. önnur.” Rosenborg náði frá-
bærum árangri í fyrri umferð riðla-
keppninnar í Meistaradeildinni,
vann sinn riðil örugglega, m.a. eftir
3:0 sigra á Boavista og Borussia
Dortmund á útivöllum. Árni Gaut-
ur segist ekki neita því að Rosen-
borgarmenn hafi varla getað verið
óheppnari með niðurröðun í riðla
þegar kom að 16-liða úrslitunum;
Real Madrid, Bayern Munchen og
Dinamo Kiev. Tvö þessara liða fóru
svo áfram í undanúrslit keppninnar
og Real stóð uppi sem Evrópu-
meistari.
I hópi stórliða Evrópu
Rosenborg hefur unnið meistara-
titilinn átta ár í röð og sýnt að það á
fyllilega heima á meðal helstu stór-
liða álfunnar. Sú staðreynd er enn
athyglisverðari en ella fyrir þær sak-
ir að flest eru þau margfalt efnaðri
en Þrándsheimsfélagið, sem gerir
út frá 150.000 manna borg en fær
þó sjaldnast undir 13.000 áhorfend-
um á leiki sína.
Þrátt fyrir að ekki sé langt á milli
Islands og Noregs og að Þránd-
heimur sé á svipaðri breiddargráðu
og Akranes segir Árni Gautur að
gríðarlegur aðstöðumunur sé á
milli staðanna. Rosenborg á yfir-
byggðan æfingavöll, auk þess sem
aðalleikvangur félagsins er með
blöndu af hefðbundnu grasi og
gervigrasi með hitalögnum undir.
“Þetta gerir það að verkum að við
getum byrjað fyrr á vorin og leikið
lengur á vellinum á haustin.”
Arni Gautur hafði lokið þremur
árum í lögfræðinámi hér heima
áður en hann hélt til Noregs. Hann
býr einn ytra og hefur haldið nám-
inu áfram og stefhir að því að ljúka
því innan tveggja ára. “Eg vonast
auðvitað til þess að eiga mörg góð
ár framundan í boltanum enda taka
markverðir oft ekki út fullan þroska
fyrr en undir þrítugt og jafhvel enn
síðar. Þótt fótboltinn sé krefjandi
gefst oft góður tími til náms eða
tómstunda. Eg er þannig gerður að
ég hefði enga eirð í mér til að sitja
aðgerðarlaus tímunum saman. Því
er kjörið að nýta tímann til náms.
Þótt allt leiki í lyndi í dag er lánið
fallvalt í boltanum eins og ég hef
fengið að kynnast sjálfur. Þá er gott
að geta snúið sér að öðru,” segir
Árni Gautur Arason í lokin.
Sterkt Rautt
Panax Ginseng
_ Akraness Apótek _
BORGARNESS ö APÓTEK
Stykkishólms apótek
Ólafsvíkur apótek