Skessuhorn


Skessuhorn - 22.06.2000, Side 4

Skessuhorn - 22.06.2000, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 25. JUNI 2000 SSESSIÍH0BRJ Eins og meöfylgjandi mynd sýnir glögglega er bifreiöum iöulega lagt viö noröanverö hom Akurgeröis og Kirkjubrautar. Ef vel tekst til má sjá blómvendi á og viö umferöarskiltiö hægra megin á myndinni. Blómin eru til minningar um unga manninn sem lést í slysinu. Slysagildra í miðbænum Banaslys sem varð á gatnamót- um Akurgerðis og Kirkjubrautar á Akranesi í síðustu viku hefur vakið upp þá spumingu hvort ekki sé ástæða til þess að grípa til aðgerða á þeim gatnamótum. Algengt er að bifreiðum sé lagt vestanmegin á Kirkjubrautinni, nánast við gatnamótin. Við bif- reiðastöður á horninu er ökumönn- um, sem ætla að aka frá Akurgerði inn á Kirkjubraut til norðurs, byrgð sýn þannig að veruleg slysahætta hlýst af. Astæða hlýtur að vera til að taka harðar á bifreiðastöðum á þessu horni, þar sem almenn regla um að ekki megi leggja bifreiðum nær homi en fjóra metra er iðulega brotin. Skúli Lýðsson, bygginga- og skipulagsfulltrúi Akraneskaupstað- ar, tekur undir það að ólöglegar bif- reiðastöður séu víða hreinasta plága í bænum. Hann vekur hins vegar athygli á því að á þessu umrædda horni gildi stöðvunarskylda sem geri kröfur um ítrustu aðgát þegar ekið er inn á Kirkjubraut. “Hvort þetta slys verður til þess að bifreiðastöður verði bannaðar lengra frá horni en nú er skal ósagt látið en það verður að minnsta kosti skoðað með hvaða hætti bæta má öryggi á gatnamótunum,” segir Afram þensla á vinnumarkaði Samkvæmt nýútkomnu riti Vinnumálastofhunar um stöðu og horfur á vinnumarkaði nú í vor kem- ur m.a. ffarn að aukin eftdrspum verður eftír vinnuafli næstu mánuði. Gildir það um flestar atvinnugreinar, einkum þó byggingariðnað og iðnað af ýmsu tagi. Sú eftírspurn birtist mest á höfuðborgarsvæðinu og á þeim landssvæðum sem næst liggja og er þá Suðurland og Vesturland meðtalin. Reiknað er með viðvar- andi skorti á vinnuafli í þessum at- vinnugreinum í sumar og haust. Aukinni eftirspum er einnig spáð í fiskvinnslu, samgöngum og flutn- ingastarfsemi á landsbyggðinni. I skýrslunni kemur einnig fram að langtímaatvinnuleysi er meira á höf- uðborgarsvæðinu en á landsbyggð- inni og er það einnig meira meðal kvenna en karla. Líkt og undanfarin misseri er atvinnuleysi á Vesturlandi með því minnsta á landinu. MM Níu punda uniði Byrjað var að selja veiðileyfi á Arnarvatnsheiði um síðustu helgi. Nokkur umferð veiði- manna var strax í opnuninni og fóra flestir í Ulfsvatn. Veiði var nokkuð góð og meðal annars veiddist 9 punda urriði í vatninu á sunnudag. Upplýsingar um veiði og færð á Arnarvatnsheiði eru veittar í Þjónustumiðstöðinni í Húsafelli þar sem veiðileyfi em einnig seld. MM Aðkoma að stjómsýsluhúsinu á Akranesi stórbætt: Tólf milljóna króna andlitslyfting Aökoman aö stjómsýsluhúsinu er nú öll önnur en hún var áöur. Snyrtileg bílastæöi eru römmuö inn afgrasi vöxnum eyjum. Gangséttin á miöri myndinni vekurþó nokkra furöu vegfarenda þvt hú?i liggur ekki aö aöalinngangi hússins heldurfi m hjá honum og endar beint fyrir framati verslunarglugga! Mikil andlitslyfting hefur verið gerð á aðkomunni að stjómsýslu- húsinu við Stillholt að undanfömu. Skúli Lýðsson, bygginga- og skipu- lagsfulltrúi, segir í samtali við Skessuhorn að stefnt sé að því að framkvæmdum Ijúki um mánaða- mótin og að heildarkostnaður við verkið nemi 12 milljónum króna. Inn- og útakstursleiðum af bíla- stæðum við götuna hefur verið breytt mjög til hins betra og lagðar hafa verið þökur á svæði utan með stæðunum og myndarlegum trjám plantað til skrauts. Upphækkuð hellulögð gangstétt liggur nú frá aðalinngangi hússins, þvert yfir bílastæðin, og þjónar um leið hlut- verki hraðahindrunar en umferð á svæðinu hefur verið hröð. Líklegt er að hinar nýju inn- og útakstursleiðir við stjórnsýsluhúsið kæti ökumenn mjög því margsinnis lá við stórslysum við gömlu bráða- birgðainnkeyrslurnar, þar sem ó- gemingur var að bílar gætu mæst. Skúli segir þetta hafa verið bráða- birgðalausn og staðsetningu inn- keyrslanna hafa helgast af því hvar bundið slitlag hafi verið fýrir. Markmiðið hafi verið að halda kostnaði í lágmarki. “Aðkomuleið- um að bílastæðunum hefur nú ver- ið fækkað úr fjómm í tvær og mér sýnist vel hafa til tekist,” segir Skúli Lýðsson. -SSv. Illa hirt hús á Akranesi í sigtínu hjá yfirvöldum: Málningarskortur fyrir dómstóla? Þrátt fyrir að mikill meirihluti bæjarbúa á Akranesi sinni við- haldi húsa sinna og Ióða af mik- illi kostgæfni eru alltaf nokkrir skussar sem ekki láta sér segjast þrátt fyrir ábendingar og vin- samleg tilmæli. Erlendur ferðamaður, sem blaðamaður Skessuhorns hitti að máli á Akratorgi fyrir helgina, undraðist málningarskort og sér- kennilegt litaval sumra húsa. Hann bætti því við að sum húsanna virt- ust að auki að niðurlotum komin. Ferðamaðurinn er ekki einn um þetta viðhorf því umhverfis- og heilbrigðisnefndir Akraneskaup- staðar hyggja á átak til úrbóta í þessum efnum á árinu. Þegar Skessuhorn innti Skúla Lýðsson, bygginga- og skipulags- fulltrúa Akraneskaupstaðar, eftir því hvort ekki væri hægt að skikka eigendur húsa til þess að mála þau sagði hann það ekki svo einfalt. “I þeim tilvikum sem eigendur húsa era ekki samvinnuþýðir geta mál oft tekið langan tíma og þurfa jafn- vel að fara fyrir dómstóla ef beita á hörku,” segir Skúli. -SSv. Engar ráðstafanir Segir framkvæmdastjóri Spalar Eins og sagt hefur verið frá í fréttum sá ekki á Hvalfjarðar- göngunum eftir jarðskjálftann, en mörgum þótti jarðskjálftar áhyggjuefni þegar stóð til að þau yrðu byggð. Að sögn Stefáns Reynis Kristinssonar, framkvæm- dastjóra Spalar, kemur þetta þeim ekki á óvart og þeir hyggjast ekki gera neinar varúðarráðstafanir. “Við eram alveg afslappaðir. Þetta er einn öruggasti staður að vera á í jarðskjálfta, jarðskjálftabylgjan fer efrir yfirborðinu en ekki ofan í jörðina. Það má mikið ganga á áður en eitthvað gerist þar.” Stefán neftiir máli sínu til stuðnings að þegar gífurlegur jarðskjálfti reið yfir í Japan fyrir nokkrum ámm voru a.m.k. fimm jarðgöng á svæðinu sem öll stóðust skjálftann á meðan hús hmndu til gmnna og hundruðir þúsunda manna létust. SÓK Heimajarðgerðarstöð fyrir blokldr Á fundi umhverfisneftidar Akra- ness sem fram fór fyrir skömmu kom fram tilboð ffá Vistmönnum ehf. um miðlæga heimajarðgerðar- stöð sem hentar blokkum. Nefndin lýsti yfir áhuga sínum á að skoða þetta tilboð og vísaði erindinu áffarn til starfshóps. Að sögn Hraftikels Proppé, garðyrkjustjóra Akraness, líkist þetta einna helst þeirri jarð- gerð sem ffam fer á Hvanneyri. Hann segist þó ekki eiga von á að neitt verði gert í málinu að sinni. “Þetta á að taka til reynslu í Reykjavík og Hafnarfirði. Ætli við skoðum ekki bara hvemig sú þróun gengur og tökum ákvörðun út ffá því.” SÓK fíýhurar Nýfæddir Vesdendingar eru boðnir velkomnir í heiminn um leið og nýbökuðum for- eldrum eru færðar hamingjuóskir. lö.júní kl 21:36-Meybam-Þyngd: 4080-Lengd:S2 cm. Foreldrar: Elín O- lafsdóttir og Arnar Páll Eyjólfsson, Reykjavík. Ljósmóöir: Lára Dóra Odds- dóttir. 12.júnt kl 19:18-Meybam- Þyngd:3695-Lengd:53 cm. Foreldrar: Dóróthea Elísdóttir og Hilmar Þór Há- konarson, Borgamesi. Ljósmóöir: Bára Jóseftdóttir. 16.júní kl 12:43-Sveinbam- Þyngd:3945-Lengd:52 cm. Foreldrar: Sigrún Ögn Siguröardóttir og Bjami Þór Traustason, Borgamesi. Ljósmóöir: Anna Bjómsdóttir.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.