Skessuhorn - 29.06.2000, Page 7
aSESSUHÖEÍJ
FIMMTUDAGUR 29. JUNI 2000
7
Framkvæmdir hafiiar
við ísverksmiðju
Jarðvegsframkvæmdir vegna
væntanlegrar ísverksmiðju í
Grundarfirði eru hafhar.
Verksmiðjunni hefur verið val-
inn staður fremst á stóru
bryggjunni í Grundarfjarðar-
höíh.
Það er Kælitækni ehf í Reykja-
vík sem flytur verksmiðjuna inn
ffá norska fyrirtækinu FINSAM.
Starfsmenn norska fyrirtækisins
munu sjá um uppsetningu verk-
smiðjunnar, en FINSAM er jafh-
framt verktaki hússins. Undir-
verktaki er Lengjan ehf í Grund-
arfirði sem mun sjá um jarðvegs-
framkvæmdir og pípulagnir.
Tækniþjónusta Vestfjarða teiknaði
undirstöður og lagnakerfi. Verk-
smiðjan er sömu tegundar og
verksmiðja sem reist hefur verið á
Isafirði. Þó mun þessi verða eílítið
stærri, þ.e. 18 metra löng, 5 metra
breið og II metra há. Hún mun
geta geymt 200 tonn af ís og eru
afköstin rúmlega 60 tonn á sólar-
hring. Gert er ráð fyrir stækkun
verksmiðjunnar seinna meir.
Dælubúnaður verður í skúr við út-
bygginguna og verður ísinn blás-
inn út í skip eða ofan í kör með
sérhönnuðum blástursbúnaði.
Gert er ráð fyrir að uppsetning
verksmiðjunnar hefjist 28. júlíog
fyrsti ísinn í skip verði afhentur
1. september. EE
Gústav Ivarsson trésmíðameistari við vinnu sína t grunni ísverksmiðjunnar.
Tvær bílveltur á sama stað
Tvær bílveltur urðu á sama stað
í Kerlingarskarði um síðustu
helgi, þ.e. við Köldukvísl. Sú fyrri
varð á föstudag og hlutu ökumað-
ur og farþegar minniháttar
meiðsli. Síðari bílveltan var á
laugardag og þar sluppu ökumað-
ur og tvö böm einnig án teljandi
meiðsla.
A laugardag varð umferðaró-
happ við Brautarholt í Staðarsveit
er tveir bflar rákust saman. Oku-
maður annars bflsins fótbrotnaði
en aðrir sem í bílunum voru
sluppu með minniháttar meiðsli.
Þá valt biffeið á Fróðárheiði á
mánudag en þar urðu ekki slys á
fólld. EE
Við köldukvísl
---------------------------------------------
Fundur númer 300
Síðastliðinn fimmtudag
kom bæjarráð Borgarbyggð-
ar saman til fundar að
Varmalandi. Þessi fundur var
300. fundur bæjarráðs og var
fundurinn sérstaklega til-
einkaður menntun í Borgar-
byggð. Gestir fundarins
voru Runólfur Ágústsson
rektor Samvinnuháskólans á
Bifröst, Kristján Gíslason
skólastjóri Grunnskólans í
Borgarnesi og Flemming
Jessen skólastjóri Grunn-
skólans á Varmalandi.
Fráfundi nr. 300
Kvöldgöngur UMSB
Skipulagðar Kvöldgöngur
UMSB eru farnar annanhvern
fimmtudag og hefur þátttaka verið
mjög góð enda veður leikið við
okkur. Það er nefnd á vegum
UMSB sem stuðlar að alhliða
hreyfingu og útivist sem skipulegg-
ur þessar göngur.
Fyrsta gangan var Þrautaganga
sem skipulögð var í tengslum við
Skref 2000 en það var átaksverk-
efhi ISI laugardaginn 27. maí og
var víðsvegar um landið.
Tveir hópar lögðu frá íþrótta-
húsinu í Borgarnesi. Annar hóp-
urinn fór hring í Borgarnesi og
leysti nokkrar þrautir á leiðinni.
Hinn hópurinn var ögn öflugri og
lagði leið sína á Glym.
Onnur gangan fór fram 8. júní.
Blíðskaparveður var þetta kvöld og
góð þátttaka en 28 göngugarpar á
öllum aldri mættu að Hótelinu á
Hvanneyri. Þaðan var gengið
undir leiðsögn Guðmundar Hall-
grímssonar, ráðsmanns útað Kistu-
höfða. Fagurt fuglalíf er þarna og
rákust göngugarpar meðal annars á
Brandandarpar og sjálfan kóng
fuglanna - Haföminn sem skartaði
sínu fegursta, en hann verpir í nær-
liggjandi eyju. Að göngu lokinni
var komið við í Moldu þar sem allt
sorp frá staðarbúum og Hótelinu á
Hvanneyri er flokkað og endur-
unnið. Það var áhugavert að
heyra hversu samhuga og eðlilegt
það þykir að flokka sorpið á
Hvanneyri.
Þriðja gangan fór fram 22. júní.
Leiðsögumaður var Ragnhildur
Guðnadóttir frá Steindórsstöðum.
Um 25 manns tóku þátt í þessari
göngu og eins og áður vom þátt-
takendur á öllum aldri. Gengið
var ffá Rauðsgilsbrúnni og upp í
Rauðsgil þar sem skoðaðir vom
fossamir og hið fallega umhverfi
Reykholtsdals.
Aframhald verður á þessum
göngum en búið er að raða niður
göngum annaðhvert fimmtudag-
kvöld í sumar. Næsta ganga verður
6. júlí en þá verður gengið um
Lundareykjadalinn.
(Fréttatilkynning)
BORGARBYGGÐ
Húsnæði óskast
í Borgarnesi
Grunnskólinn í Borgamesi óskar eftir þriggja
til fjögurra herb. íbúðum til leigu frá og með
1. ágúst fyrir starfsmenn skólans. Ef einhverjir
íbúðareigendur geta orðið við þessum óskum
þá em þeir beðnir um að hafa samband við
Eirík Olafsson bæjarritara s: 437-1224, en
hann veitir allar nánari upplýsingar.
Skólastjóri
Samskotabeiðni
Kona sem hætt er starfi vegna aldurs og
á við verulegan heilsubrest að stríða auk
skuldabyrða hefur óskað eftir styrktarfé
sem kynni að fást með almennum
samskotum til þess að létta henni
. róðurinn fjárhagslega.
o
\ Þeim sem kynnu að vilja leggja einhverjar
! upphæðir af mörkum í þessu skvni er
« bent á reikning í Landsbanka íslands,
I Múlaútibúi: 139 - 05 - 4432.
v________________ J
7mwW
INGI TRYGG VASON hdl.
lögg. fasteigna- og skipasali
Borgarbraut 61
310 Borgarnes
Sími: 437-1700
Fax: 437-1017
Nýtt á söluskrá
Laugateigur, Bæ, Borgarfjarðarsveit
Einbýlishús, 100 ferm. Stofa og gangur parketlagt.
Eldhús með korkflísum á gólfi, nýleg viðarinnrétting.
Baðherbergi allt flísalagt, kerlaug/sturta. Forstofa
i flísalögð. Þijú herbergi, tvö dúklögð og eitt teppalagt.
Þvottahús og geymsla með hillum. Heitur pottur í
I garði, skjólveggur.
I Verð: kr. 7.200.000.
UPPBOÐ
Eftirtaldar bifreiðar verða boðnar upp
við lögreglustöðina í Borgarnesi,
fimmtudaqinn 6. júlí, kl. 16:00, hafi þær
ekki áður verið afturkallaðar.
EK-085 TI-899 GL-367
= Borgarnesi 27. júní 2000
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
V______________________________________J