Skessuhorn - 29.06.2000, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 29. JUNI 2000
agESSgffiiftEM
Islendingur leggur úr höfii
Síðastliðinn laugardag leysti
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra landfestar víkingaskipsins Is-
lendings í nýju smábátahöíninni í
Búðardal. Þar með hófst formlega
sigling skipsins til Grænlands og
Norður Ameríku í kjölfar feðganna
Eiríks rauða og Leifs heppna.
Talið er að vel á sjötta hundrað
manns hafi verið viðstaddir athöfn-
ina í Búðardal á laugardag enda
veður eins og best var á kosið, sól
og hiti. Samgönguráðherrar Is-
lands og Nýfundnalands fluttu á-
vörp, Vorboðinn söng nokkur lög
og einnig sönghópur barna úr
grunnskólunum í Dalasýslu.
Leikklúbbur Laxdæla flutti stuttan
leikþátt sem saminn var sérstaklega
af þessu tilefni og fjallaði um sögu
Eiríks rauða á gamansaman hátt.
Fyrr um daginn hafði áhöfn Is-
lendings snætt hádegisverð í boði
Dalabyggðar að Eiríksstöðum í
Flaukadal. Gunnar Marel Eggerts-
son skipstjóri sagði í samtali við
Skessuhom að ferðin legðist vel í
sig og áhöfn sína enda byrjaði hún
eins og best yrði á kosið. Fór hann
einnig lofsamlegum orðum um
gestrisni Dalamanna og þann á-
huga sem væri fyrir ferðinni.
Islendingur fékk góðan byr í
seglin er harm sigldi út Hvamms-
fjörðinn en ekki var farið langt í
fyrsta áfanga eða aðeins til Olafs-
víkur þar sem beðið er eftir að ís
minnki við Grænlandsstrendur.
GE
Mikill fj 'ólai var samankominn í blíöskaparveðri í Búðardal til að kveðja
Islending og áhöfh. Myndir: GE
ir á svipvið
brottfórina
•aHku
W'j
\~/
Jónsmessuganga íþróttanefndar á
Akranesi var haldin föstudagskvöldið
23. júní. Að þessu sinni var gengið sem
leið lá upp á hæsta tind Akrafjallsins,
Geirmundartind. Lagt var af stað ffá
Selbrekku klukkan tíu um kvöldið og á-
ætlað að vera á tindinum á miðnætti.
Þeir spretthörðustu vom þó komnir
þangað mun fyrr og sumir ákváðu að
nýta góða veðrið og ganga sem leið lá
yfir á Háahnjúk og þaðan niður. Helgi
Hannesson var göngustjóri að þessu
sinni og segir hann 140 manns hafa tek-
ið þátt í göngunni og hver einasti
maður lét sig hafa það að fara alla leið.
Aður var mesti fyökli þátttakenda í
göngunni nálægt hundrað. Þeir sem
höfðu hvað mesta þolinmæði settust svo
niður þegar á áfangastað var komið og
horfðu á sólina setjast og var það mál
manna að hinir hefðu misst af miklu
enda veðrið einstaklega gott og útsýnið Þær Helga, Katrin og Hanna voru þreyttar
frábært. SOK m ánœgðar þegar tindinum var náð
Sterkt Rautt
Panax Ginseng
_ Akraness Apótek _
BORGARNESS <G> APÓTEK
Stykkishólms apótek
Ólafsvíkur apótek