Skessuhorn - 10.08.2000, Qupperneq 1
Skagamenn berskjaldaðir til fótanna
þegar haustar?
Engin skóverslun
á Akranesi
Allt stefnir í að Akumesingar
verði innan skamms án hefð-
bundinnar skóverslunar í fyrsta
skiptd svo áratugum skiptir. Báð-
ar skóverslanimar á Akranesi
munu hætta starfsemi með að-
eins nokkurra mánaða millibili.
Fyrr á árinu var Skóhorninu lok-
að og Betri Búðin hefúr nú tilkynnt
að starfsemi hennar verði hætt á
næstu vikum. Rekstur beggja versl-
ananna hefur verið þungur og hef-
ur m.a verið bent á að með breytt-
um tíðaranda hafi skóverslun að
talsverðu leyti færst inn í íþrótta-
vöru- og útilífsverslanir svo og
tískuvöruverslanir.
Lengstum var aðeins ein skó-
verslun á Akranesi, Staðarfell, í
sama húsnæði og Betri Búðin er nú
í. Skóhornið var opnað snemma á
árinu 1996 í Stjórnsýsluhúsinu
þannig að skóverslanirnar voru um
tíma tvær - en nú er öldin önnur.
-SSv.
Þessar kindur voru á veginum viS Hafnarjjall í stðustu viku. Þær eru sjálfiagt
komnar áfjöll nú með aðstoð Guðmundar smala. Mynd MM
Vegir smalaðir
Vegagerðin fer nú nýjar leiðir til
að fækka slysum vegna lausagöngu
búfjár við þjóðvegina. Eins og ný-
lega var greint ffá í Skessuhorni
verða árlega mörg slys í umdæmi
lögreglunnar í Borgarnesi vegna
búfjár sem gengur laust á þjóðveg-
unum í umdæminu. Nú hefúr
Vegagerðin haft forgöngu um að
fækka slysum af þessum sökum og
ráðið mann til að smala fé af veg-
unum og keyra á afrétt. Guð-
mundur Guðmundsson á Kaðal-
stöðum hefur verið ráðinn til
verksins og hefúr hann hund sinn
af skosku fjárhundakyni sér til að-
stoðar. Nú þegar hefúr á annað
htmdrað íjár verið fjarlægt af veg-
unum á leiðinni frá Hvalfjarðar-
göngum og að Holtavörðuheiði.
Þessi tilratm Vegagerðarinnar er
til tveggja mánaða og gert er ráð
fyrir að smalað verði vikulega.
MM
Innrás í Borgarfjörðinn frá Mars? Sennilega ekki, en skýjamyndanir geta verið œði sérkennilegar. Myndin var tekin t liðinni viku
og sýnir sérkennilegan skýjabólstur sem hélt sigyfir Skessuhomi á einum afmörgum góðviðrisdögum sem verið hafa á Vesturlandi í
sumar. _ Mynd EA
Þórsnes kaupir Rækjunes
Stefnt að sameiningu á næsta ári
Nýlega var gengið frá kaupum
fyrirtækisins Þórsness ehf. í
Stykkishólmi á öðru fyrirtæki
þar í bæ, þ.e. Rækjunesi
ehf. Saman hafa þessi fyr-
irtæki yfir að ráða um
3500 tonna kvóta í
Breiðafjarðarhörpuskel
og veita ríflega 80 manns
vinnu í Stykkishólmi.
Fyrirtækið Þórsnes ehf.
var stofnað 1955 en hefur
verið í eigu núverandi eig-
enda síðan 1964. Fyrirtæk-
ið stundar útgerð og
vinnslu á þorski og hörpu-
skel og á bátana Þórsnes,
Þórsness II, Bjama Svein
og trilluna Jónsnes. Að
sögn Kristins Olafs Jóns-
sonar stjórnarformanns
Þórsness ehf. starfa um 50
manns hjá fyrirtækinu.
Rækjunes ehf. hefur aðallega
stundað hörpudisksvinnslu auk þess
sem það, ásamt dótturfélögum, á
yfir 2000 tonna hörpuskelskvóta í
Breiðafirði. I Rækjunesi ehf. hefur
einnig verið stunduð framleiðsla
skyndirétta en hjá fyrirtækinu starfa
ríflega 30 manns.
Nýr framkvæmdastjóri hjá
Rækjunesi ehf. er Eggert Halldórs-
son. „Fyrst um sinn munum við
reka bæði fyrirtækin að mestu með
óbreyttu sniði. Við munum þó
hætta framleiðslu á skyndiréttum
en ekki er búið að taka á-
kvörðun um hvað verður
gert við þann tækjakost er
þeirri framleiðslu fylgir. A
næsta ári er síðan stefht að
sameiningu fyrirtækjanna
tveggja undir merkjum
Þórsness ehf.,” sagði Egg-
ert í samtali við blaðamann
Skessuhorns nú á dögun-
um.
A því kvótaári sem nú er
að ljúka var leyfð veiði á um
8500 tonnum af hörpuskel í
Breiðafirði og er það mikill
meirihluti heildarkvóta hér
við land. Að sögn þeirra
Eggerts og Kxistins Ólafs
liggja veiðar á hörpuskel nú
niðri en munu hefjast aftur
hjá þeim um 15. ágúst. Starfsfólk
beggja fyrirtækjanna vinnur þessa
dagana að undirbúningi veiða og
vinnslu. EA
F.v. Kristinn Ólafur Jónsson stjómarformaður Þórsness ehf. og
Eggert Halldórsson framkvæmdastjóri Rækjuness ehf.
■samjgMMa
■