Skessuhorn


Skessuhorn - 10.08.2000, Page 15

Skessuhorn - 10.08.2000, Page 15
ggESSUHÖEH FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000 15 Fyrsta fjalla- m araþo n keppnin Um næstu helgi verður haldið þriggja sólarhringa langt fjallamaraþon í nágrenni Húsa- fells í Borgarfirði. Keppnin sem haldin er að erlendri fyrirmynd er sú fyrsta sinnar tegundar hér á Iandi en gert er ráð fyrir að hún verði árlegur og alþjóðleg- ur viðburður í ffamtíðinni. Úti- lífsmiðstöðin Húsafelli stendur fyrir keppninni og hefur undir- búningur staðið yfir í tvö ár. Útilífsmiðstöðin hóf starfsemi árið 1998 þegar boðið var upp á ýmsar nýjungar í útivist á Islandi, svo sem fossasig og gljúfurgöngur, en Útilífsmiðstöðin sérhæfn sig í keppnishaldi útilífsíþrótta og nátt- úrutengdri ferðaþjónustu. Rekstr- araðili Útilífsmiðstöðvarinnar er Bjarni Freyr Bjarnason sem starf- að hefur s.l. fjögur ár við ferða- þjónustu á sviði útivistar svo sem vélsleðaferðir á Langjökli, jeppa- ferðir um hálendið o.fl. Bjarni er auk þess skipuleggjandi svokall- aðrar Brennureiðar hestamannafé- laganna á Vesturlandi sem í lok á- gúst fer fram á Kaldármelum. Brennureiðin var í fyrsta skipti haldin í fyrra, en þá í Skagafirði og tóku þar þátt á fjórða hundrað hestamenn. Bjarni Freyr hefur stundað nám í ferðamálafræði við Hólaskóla og Háskóla Islands. Vaða beljandi jökulár Þar sem fjallamaraþon er ný í- þróttagrein hér á landi var Bjarni Freyr spurður hvað fælist í þessu sporti. “Fjallamaraþon felst í því að keppendur þurfa að komast yfir ákveðið landssvæði á sem skemmstum tíma og á leiðinni þurfa þeir að yfirstíga ýmsar hindranir í landslaginu. Það verð- ur keppt í þriggja manna liðum og til að ljúka keppni þurfa liðin að reiða sig á samstöðu hópsins í heild jafnt sem frumkvæði einstak- lingsins. Brautin verður yfir 100 kílómetra löng þar sem keppendur fara fótgangandi, á hestum, fjalla- hjólum, vaða beljandi jökulár, síga niður fossa og til að rata þurfa þeir að notast við kort og áttavita. Á leiðinni eru ákveðnir póstar þar sem liðin þurfa að gefa sig fram til að fá að halda áfram,” segir Bjarni Freyr. Aðstæður frá náttúrunnar hendi eru kjörnar til fjallamaraþons í ná- grenni Húsafells og má í því sam- bandi nefna að fjórir jöklar eru á svæðinu, Hallmundarhraun með öllum sínum hraunhellum, fall- vötn með fossum og flúðum að ó- gleymdum stærsta birkiskógi á landinu. Risa-útilífskeppni í bígerð Að sögn Bjarna Freys verður mikil umfjöllun um keppnina. Meðal annars er í undirbúningi að taka keppnina upp íyrir erlendar sjónvarpsstöðvar. Bjarni Freyr segir að þetta íyrsta fjallamaraþon sé einungis byrjun- in. “Starfsemi sumarsins er liður í Ermolinskij þjálfari Skallagríms: Þurfumað styrkj a liðið “Það er dagljóst að við þmfum að styrkja lið okkar verulega fyrir keppnistímabilið ef við ætlum að eiga raunhæfa möguleika á að ná árangri,” segir Alexander Ermol- inskij, nýráðinn þjálfari Úrvals- deildarliðs Skallagríms í körfuknattleik. Mestu munar fýrir Borgnesinga að Tómas Holton, sem verið hef- ur burðarás liðsins mörg undan- farin ár, er hættur körfuknatt- leiksiðkun og sem stendur bendir allt til þess að efnilegasti leikmað- ur liðsins, Hlynur Bæringsson, sé á leið í skóla erlendis. Alexander telur að Skallagríms- menn þurfi að svipast um eftir leikmönnum jafnt innan lands sem utan en sjálfur hefur hann verið í sambandi við rússneska leikmenn sem hafa hug á að reyna fyrir sér hér á landi. -SSv. Reykjavíkur maraþon: Hlaup o g menning í einni ferð Reykjavíkur maraþon fer fram í sautjánda sinn þann 19. ágúst n.k. Að sögn Agústar Þorsteinssonar skipuleggjanda mótsins er búist við góðri þátttöku þar sem búið er að færa hlaupið yfir á laugardag sam- hliða Menningarnótt. Með þessu fýrirkomulagi er verið að koma til móts við óskir þeirra sem vilja sam- eina þessa tvo viðburði. Hátíðar- höldin hefjast með Reykjavíkur maraþoni og í framhaldi af því er hægt að fýlgjast með öllum þeim fjölmörgu uppákomum og skemmtiatriðum sem Menning- arnóttin hefur upp á að bjóða. Allir þátttakendur í Reykjavíkur maraþoni fá bol, verðlaunapening, pastamáltíð, drykki, boðsmiða í sund og margt fleira. Fólk á öllum aldri á að geta fundið vegalengd við sitt hæfi þar sem hver og einn hleypur á sínum hraða. Eftirfarandi vegalengdir eru í boði: 3 km og 7 km skemmtiskokk hefst kl. 12:00, maraþon, hálfmaraþon, 10 km og 10 km línuskautahlaup hefst kl. 12:10. Meðal skráningarstaða er versl- unin Ozone á Akranesi en þar er hægt að skrá dagana 14. til 16. á- gúst n.k. Afhending rásnúmera, annara gagna og pastaveisla fer fram í Skautahöllinni, föstudaginn 18. ágúst kl. 18:00 - 21:00. MM Birgir Leifur sigraði á Canonmótinu Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur frá Akranesi, sigraði á Canon golfmótdnu á Keilisvelli í Hafharfirði á mánudaginn. Þetta er eitt sterkasta golffnót sem haldið hefur verið hérlendis og voru allir bestu kylfingar landsins mættir. Að auki kepptu erlendu atvinnumenn- irnir Patrick Sjöland og Barry Lane. Birgir Leifur lék 18 holumar á 72 höggum eða á einu höggi yfir pari vallarins, og var jafh Ólafi Má Sigurðssyni sem hann lék bráða- bana við um sigurinn. Fyrir skemmstu tók Birgir Leif- ur þátt í tveggja daga móti í bresku mótaröðinni og lenti þar í 5.-8. sæti á tveimur undir pari vallarins. Lék Birgir Leifur fýrri hringinn á 70 en þann síðari á parinu, eða 72 höggum. KK / Urslit á Hamarsvelli Opna Búnaðarbankamótið fór Einarsson GI og Helgi Dan Steins- öðra sæti. Nándarverðlaun á 1/10 ffam á Hamarsvelli við Borgarnes son GR varð í öðru sæti. I keppni braut hlaut Andri Þór Sigurþórsson 6. ágúst sl. Úrslit urðu þau að í með forgjöf sigraðijón Kr. Jónsson GL en Auðunn Einarsson GI á keppni án forgjafar sigraði Auðunn GSE og Karl Loftsson GKJ varð í 6/15 braut. MM ■ "■ ■ j Fossasig í nágrenni Húsafells er meial keppnisgreina í fallamaraþoni um nœstu helgi. undirbúningi þess að innan þriggja ára verði haldin hér á landi stærsta útilífskeppni sem haldin er árlega í heiminum. Sú keppni heitir Eco Challenge og er fýrir- mynd keppninnar sem haldin verður í nágrenni Húsafells nú um helgina. Árið 2000 verður Eco Challenge haldin á eyjunni Borneo í Malasíu en 1999 var hún í Patagóníu í Argentínu. Árlega taka um 250 keppendur frá yfir 30 þjóðlöndum þátt í Eco Challenge,” segir Bjarni Freyr. Það verður spennandi að fýlgj- ast með gangi fjallamaraþonsins en íþróttagreinin sem slík er talin ein erfiðasta íþróttagrein sem keppt er í. MM í Borgamesi Fyrsta skipti sem Norðurlandamót er haldið utan Reykjavilair Alls verða rúmlega tvö hundruð og áttatíu unglingar sem mæta til leiks í unglingalandskeppni Norð- urlandanna í ffjálsum sem haldin verður í flokki 17-22 ára á Skalla- grímsvelli í Borgamesi dagana 26. og 2 7. ágúst nk. Þetta er í fýrsta sinn sem keppnin er haldin hér á landi en mótið er haldið á hverju ári á Norð- urlöndunum. Islensku keppendum- ir verða 20-25 talsins. Islensku keppendumir verða endanlega vald- ir 10-12 dögum fýrir mótið á bikar- keppni FRI1. deild á Kaplakrika 12. ágúst en það mót er síðasta stórmóti hér á landi fýrir Norðurlandamótið. Svíar, Finnar og Norðmenn senda á milli 60 og 70 keppendur hver þjóð en Danir senda í kringum 25 kepp- endur. Auk erlendra keppenda kem- ur fjöldi gesta og blaðamanna ffá Norðurlöndunum á mótið. Mikill uppgangur í frjálsum Mildll uppgangur er í frjálsum í- þróttum á Islandi og þykja einstak- lingar í Aþenuhópnum svokallaða (þeir sem stefina á Ólympíuleikana 2004) mjög efnilegir og líklegir til afreka. Hópurinn er valinn til eins árs í senn og til þess að komast í hann þurfa einstaklingar að ná lág- mörkum sem sett em í hverri grein fýrir hvem árgang frá 17-22 ára. MUðað er við að þessir einstakling- amir nái lágmörkum fýrir EM / HM unglinga á mtjánda aldursári og EM 22 ára og yngri á aldrinum 21- 22 ára. Keppt í 2 riðliun Keppt verður í tveim riðlum á Norðurlandamótinu í Borgamesi. Greinar í kvennaflokid: 100 - 200 - 400 - 800 - 1500 - 3000 m hlaup, 100-400 m grindarhlaup, 3000 m hindrunarhlaup, hástökk, stangar- stökk, langstökk, þrístökk, kúla, kringla, sleggja, spjót, 5000 m ganga, 4 x 100 m og 4 x 400 m. Greinar í karlaflokki em 100 - 200 - 400 - 800 - 1500 5000 m hlaup, 110 og 400 m grindarhlaup, 3000 m hindrunarhlaup, hástökk, stangar- stökk, langstökk, þrístökk, kúluvarp, kringla, sleggja, spjót, 10.000 m ganga, 4 x 100 m og 4 x 400 m. Ungmennasamband Borgarfjarð- ar annast framkvæmd mótsins ásamt Borgarbyggð og Frjálsíþróttasam- bandi Islands. MM

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.