Skessuhorn - 17.08.2000, Síða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 33. tbl. 3. árg. 17. ágúst 2000 Kr. 250 í lausasölu
Ertu að tapa stórfé
út um gluggana?
Fáðu góð ráð hjá okkur og
lækkaðu hitareikninginn!
Sími 54 54 300
Smiðjuvegi 7,
Kópavogi
fax 54 54 301
www.gler.is
Landbúnaðmráðherra fer mjúkum höndum um fyrstu plöntu Vesturlandsskóga-
verkefnisins. Mynd: GE
Vesturlandsskógaverkefmð formlega hafið
Vesturlandsskógaverkefhinu var
formlega hrundið af stað síðast-
liðinn föstudag þegar Guðni
Agústsson landbúnaðarráðherra
gróðursetti fyrstu plöntuna í
Vigdísarlundi á Hvanneyri.
Verkefhið sjálft er hinsvegar
þegar hafið og í sumar hafa ver-
ið gróðursettar um 160 þúsund
plöntur á vegum þess.
Tuttugu bændur taka þátt í
verkefninu í upphafi en að sögn
Sigvalda Asgeirssonar fram-
kvæmdastjóra þess er gert ráð fyr-
ir að þátttakendum fjölgi jafnt og
þétt. “Nú þegar hafa um 70 aðilar
sótt um þátttöku í almennri skóg-
rækt og mun fleiri í skjólbelta-
ræktun þannig að áhuginn er
mjög mikill á þessu svæði,” segir
Sigvaldi.
Markmið Vesturlandsskóga-
verkefnisins er að gróðursetja í
um 5 % af láglendi Vesturlands á
næstu 40 árum. Fjárveiting til
verkefnisins í ár er 17 milljónir
króna en Sigvaldi segir að hún
verði aukin jafnt og þétt og þegar
verkefnið verði komið í fullan
gang megi búast við að kostnaður
verði um 130 milljónir á ári.
Aukin verkefhi
Skúli Alexandersson fomaður
Vesturlandsskóga segir að bænda-
skógaverkefnin séu það eina sem
sé jákvætt að gerast í uppbyggingu
á landsbyggðinni í dag. “Við finn-
um fyrir því á öllum þeim stöðum
þar sem þessi verkefni eru komin
vel af stað að þar hefur dregið úr
fólksflótta og fólk sem vill búa í
hinum dreifðu byggðum fær
þarna aukin verkefni,” segir Skúli.
GE
Kenn^la hugsanlega skert vegna kennaraskorts
Astandið aldrei
verið verra
-segir Ingi Steinar Gunnlaugsson skólastjóri
“Þetta er hörmungarástand.
Þetta hefur oft verið slæmt en
aldrei eins og nú,” segir Ingi
Steinar Gunnlaugsson skóla-
stjóri Brekkubæjarskóla um
skort á kexmurum til starfa. Þar
eins og víða annars staðar hefur
gengið vægast sagt illa að manna
kennarastöður. Ingi Steinar seg-
ir að þrátt fyrir að auglýst hafi
verið ítrekað eftir umsjónar-
kennara á yngra stigi skólans hafi
engar umsóknir borist. “Það
hefur ekki einu sinni verið
liringt og spurt.”
Ingi Steinar segir að búið sé að
leysa málin að öðru leyti innan
skólans meðal annars með því að
auka álagið á þá starfsmenn sem
fyrir eru. “Starfsfólkið er allt af vilja
gert, það vantar ekki, en ef menn
eru farnir að kenna of mikið kemur
það að sjálfsögðu niður á gæðum
kennslunnar.
Það hefúr alltaf bitnað á skólun-
um þegar þensla hefur verið í þjóð-
félaginu þótt ástandið hafi að mínu
mati aldrei verið svona slæmt. Við
getum einfaldlega ekki keppt við
vinnumarkaðinn hvað varðar kaup
og kjör. Víða hlýtur þetta ástand að
bitna á gæðum kennslunnar. I
kennslulögum segir að mennta-
málaráðuneytið skuli fylgjast með
að gæði kennslunnar séu í lagi en
oft endar það með því að þeir gefa
út heimild til að ráða nánast hvern
sem er í kennslu,” segir Ingi Stein-
ar. Hann útilokar ekki að í Brekku-
bæjarskóla þurfi að skerða kennslu í
vetur vegna skorts á kennurum.
“Við höfum ekki nein úrræði og
ef ekki tekst að leysa þetta gæti
þurft að skerða kennslu,” segir Ingi
Steinar að lokum. GE
*■*
Eiríkur rauði er kominn heim að Eiríksstöðum í Haukadal og tók þátt í hátíðarhöldum þar um síðustu helgi. Sjá bls 8-9.
Mynd-.GE