Skessuhorn - 17.08.2000, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 17. AGUST 2000
aitUSVIÍUk:
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 49 Sími: (Borgames og Akrones) 430 2200
Akranesi: Suðurgötu 65,2. hæð Fax: (Borgornes) 430 2201
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Úlgefandi:
Framkv.stjóri:
Ritstjóri og óbm:
Internetþjónusta:
Bloðomenn:
Auglýsingor:
Fjórmól:
Prófarkolestur:
Umbrot:
Prentun:
íslensk upplýsingutækni 430 2200
Magnús Mognússon 894 8998
Gísli Einorsson 892 4098
Bjarki Mór Karlsson 899 2298
Sigrún Kristjónsd., Akronesi 862 1310
Hjörtur Hjartarson 864 3228
Sigurbjörg 8. Ólofsdóttir 431 4222
Ásthildur Mognúsdóttir og fleiri
Tölvert
Isafoldarprentsmiðjo hf
skessuhorn@skessuhorn.is
ritstjori@skessuhorn.is
internet@islensk.is
sigrun@skessuhorn.is
ougl@skessuhorn.is
bokhald@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á
þnðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 800 krónur með vsk. á mánuði. Verð í lausasölu er 250 kr.
430 2200
Kosningar
í nánd?
Þegar ungur ég var, og það er ekki langt síðan, þóttd
það mikill viðburður í minni sveit ef alþingismaður sást
tilsýndar á víðavangi. Hvað þá ef menn komust í návígi
við hann. Eg ætla ekki einu sinni að reyna að lýsa því hví-
lík hátíðarstund það var að sjá framan í ráðherra. Slíkir
viðburðir voru þá yfirleitt fýrirboðar þess að kosningar
væru í nánd en einnig gat þetta hent við sérlega fínar
jarðarfarir.
Oít hafa þingmenn líka verið gagnrýndir fyrir að láta
ekki sjá sig í sínum kjördæmum fýrr en daginn fýrir
kosningar. Sjálfsagt hef ég í einhverri glópsku tekdð und-
ir þá gagnrýni. Hvað sem ég kann að hafa sagt í því sam-
bandi þá ét ég það allt ofan í mig aftur.
Samkvæmt mínu dagatali eru tæp þrjú ár í kosningar.
Samt sem áður hefur svo brugðið við á síðustu vikum og
mánuðuðum að hvar sem tveir menn koma saman er að
minnsta kostd annar þeirra þingmaður.
Hvar sem eitthvað er um að vera, jafnvel hversdagsleg-
ustu viðburðir, er ekki þverfótað fyrir þingmönnum. Þeir
eru á fótboltaleikjum, myndlistarsýningum, leiksýning-
um, í afmælum allra stétta manna, hundasýningum, tón-
leikum og jafnvel á Tupperwarekynningum.
Hvar sem eitthvað er opnað eða gert í fyrsta sinn eru
þingmenn og ráðherrar saman í kippum og í dag er varla
tekin í notkun ný fjósaskófla, flatningshnífur eða tölvu-
prentari öðru vísi en að minnsta kostd einn ráðherra
komi þar einhversstaðar nærri.
Það væri nú ekki ástæða til að nefna þetta ef þetta væru
bara þessir fimm ágætu þingmenn sem merktir eru Vest-
urlandi enda svo sem ekkert óeðlilegt við það í sjálfu sér
að rekast á þá í kjördæminu annað veifið. Athyglisverð-
ari er skyndilegur áhugi þingmanna Norð-Vesturlands
og Vestfjarða á því sem hér er að gerast.
Ástandið er hreinlega orðið þannig að maður getur
ekki farið á klósettið án þess að eiga á hættu að rekast þar
á að minnsta kostd einn þingmann. Því hefur jafnvel
flökrað að mér að um skipulagðar ofsóknir sé að ræða.
Vitaskuld ber ég takmarkalausa virðingu fýrir þing-
mönnum allra kjördæma og efast síst um ágæti þeirra.
Til samanburðar má þó geta þess að ég ber takmarka-
lausa virðingu tyrir mjólkursúkkulaði og er sannfærður
um ágæti þess. Eg horfi þó ekki fram hjá þeirri staðreynd
að of mikið magn af mjólkursúkkulaði getur valdið inn-
antökum og öðrum kvillum.
Gísli Einarsson stjómmálafrœðingur
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Afrakstur fyrsta dags átaksins, þar sem ekið var um Kaldadal og Uxahryggi, var til sýn-
is á blaðamannafundi í Oskjuhlíðinni. A myndinni eru talið frá vinstri: Eltas Gíslason,
forstöðumaður skrifstofu Ferðamálaráðs á Akureyri sem hefur umsjón með átakinu; Jak-
ob Falur Garðarssoti, aðstoðarmaður samgönguráðherra; Sturla Böðvarsson, samgöngu-
ráðherra og Magnús Oddsson, ferðamálastjóri.
Hreinsunarátak á hálendisvegnm landsins:
Bflinn allan heim
Dagana 14. ágúst til 1. septem-
ber nk. gengst Ferðamálaráð Is-
lands fyrir hreinsun á öllum helstu
hálendisvegum landsins. Atakið er
framkvæmt undir kjörorðunum
“Bílinn allan heim - enga “vara-
hluti” á hálendinu.“ Helstu stuðn-
ingsaðilar átaksins eru Bílaleiga
Akureyrar, Hekla, auglýsingastofan
StHl, VIS og Olís en framkvæmd
þess er í umsjá Ferðamálaráðs.
Hreinsunin fer frarn með þeim
hætti að starfsmaður frá Ferða-
málaráði mun aka á fjórhjóladrifn-
um bíl um helstu hálendisvegi
landsins með stóra kerru aftan í.
Bílstjóranum til halds og trausts
verða vösk ungmenni sem munu
tína upp alla “bifreiðaafganga” sem
á vegi þeirra verða. Kerran verður
síðan losuð á endurvinnslustöðvum
og öðrum viðeigandi stöðum efrir
því sem þurfa þykir.
Atakið hófst síðastliðinn mánu-
dag og var þá farið um Kaldadal og
Uxahryggi.
Eins og se'st á myndinni er nýja brúin mun voldugri en sú gamla sem komin var til ára
sinna. Mynd: MM
Ný brú yfir Grímsá
Búið er að taka í notkun nýja brú
yfir Grímsá á Borgarfjarðarbraut.
Brúin er á vegarkaflanum
Hnakkatjarnarlækur - Hestur sem
Þríðja deildin
Spenna
Boltafélagið Bruni fékk slæma'n
skell gegn Fjölni í A riðli þriðju
deildar Islandsmótsins í knatt-
spyrnu á þriðjudagskvöld. Leikur-
inn fór fram á heimavelli Fjölnis
sem skoraði fimm mörk án þess að
gestirnir frá Akranesi næðu að
svara fyrir sig. Með ósigrinum
minnkuðu vonir Bruna um að
komast í úrslitakeppni þriðju deild-
ar í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Þessi félög berjast einmitt um 2.
sætið í riðlinum og þar með sæti í
úrslitum og eru jöfri að stigum þeg-
ar ein umferð er eftir. Fjölnir er
hinsvegar með mun betri marka-
tölu, 24 mörk í plús, en Bruni hef-
ur eitt mark í mínus. Brunamenn
á að ljúka við að endurbyggja fyrir
haustið. Seinni hlutinn af þeirri
leið, frá Hesti að Andakílsárbrú, á
að verða tilbúinn haustið 2001.
í knattspymu
í A riðli
verða því að treysta á að Fjölnir
tapi stigi í síðasta leiknum en þá
mætir liðið HSH á Stykkis-
hólmsvelli á laugardag. Það reynir
því á nágrannakærleikann því Snæ-
fellingar geta ráðið úrslitum um
hvort hitt Vesturlandsliðið kemst
áffam. Það dugar þó ekki eitt og sér
því Bruni þarf að sigra Njarðvík
sem trónir á toppi riðilsins. Sá leik-
ur fer fram á Akranesvelli.
HSH gerði jafntefli, 1-1 gegn
Barðaströnd á þriðjudag, og er í
fjórða sæti riðilsins með 23 stig.
Með sigri á laugardag getur liðið
komist í þriðja sætið en það er háð
því að Bruni tapi fyrir Njarðvík.
GE
Fomleifa-
uppgröftur
við Eiríksstaði
Nú nýverið fannst vísir að litlu
húsi við fornleifauppgröft að Ei-
ríksstöðum í Haukadal. Talið er
að húsið sé frá tíundu öld. Smá-
hýsi þetta er tengt stærri skála
sem talið er að hafi verið bústað-
ur Eiríks rauða. Að svo stöddu er
ekki vitað til hvers smáhýsið var
notað enda rannsóknir á því enn
á frumstigi. MM
Erlent vinnuafl
Um þriðjungur þess vinnuafls
sem starfa mun við sauðfjárslátr-
un hjá Sláturfélagi Vesturlands í
Borgarnesi í haust verður erlent.
Fækkun í sveitum héraðsins og
aukin samkeppni um vinnuafl
eru þess valdandi að undanfarin
ár hefur ekki tekist að manna
tímabundnar stöður í haustslátr-
un, án aðstoðar útlendinga. Af
um 70 störfum í sláturhúsinu er
gert ráð fyrir að 20 til 25 manns
komi erlendis frá. MM
Nýtt hverfi
Stykkishólmsbær hefur gert
samning við Odd Magnússon
um jarðvegsframkvæmdir við
nýtt íbúðahverfi, Hjallatanga.
Níu lóðir verða gerðar bygg-
ingahæfar í fyrsta áfanga og er
búið að úthluta tveimur þeirra
nú þegar að sögn Ola Jóns
Gunnarssonar bæjarstjóra.
Innbrot í
Borgamesi
Brotist var inn í verslunina 10
- 11 í Borgarnesi aðfararnótt
sunnudags. Að sögn lögreglu
uppgötvaðist innbrotið ekki fýrr
en um morguninn þar sem þjófa-
varnarkerfi verslunarinnar hafði
ekki farið í gang. Þjófamir brutu
upp hurð á lager verslunarinnar
og stálu aðallega tóbaki og
drykkjarvörum. Fjögur ung-
menni voru handfekin vegna
málsins og fannst stærstur hluri
ránsfengsins í þeirra fómm. Mál-
ið er upplýst. GE
Brynjar Karl
í Borgames
Samkvæmt heimildum Skessu-
horns em allar líkur á að Brynjar
Karl Sigurðsson fyrrverandi leik-
maður og þjálfari IA í
körfuknattleik leiki með Skalla-
grími í úrvalsdeildinni í vetur.
Brynjar verður án efa mikill liðs-
styrkur fyrir lærisveina Alexand-
ers Ermolinskij þar sem þar er á
ferðinni sterkur leikmaður með
mikla leikreynslu. Brynjar Karl er
hinsvegar þess vafasama heiðurs
aðnjótandi að vera sá leikmaður
sem hvað oftast hefur fallið úr úr-
valsdeildinni, eða fjóram sinnum.
GE
Á móti Páli
Metþátttaka var í net-
kosningunni á Skessuhorns-
vefrium í síðustu viku. Spurt var:
Styður þú Paul Watson og
samtökin Sea Shepard? Atkvæði
greiddu 469. Já sögðu 92 eða
20% og nei sögðu 377 eða 80%.
Páll á því ekki upp á pallborðið
hjá lesendum Skessuhoms-
vefjarins.
GE