Skessuhorn - 17.08.2000, Side 9
aktssunu^.
FIMMTUDAGUR 17. AGUST 2000
9
Fjöldi gestafylgdist með hátíðardagskrá á útisviði á laugardaginn en um 3500 manns voru á Leifshátíð.
segir að sú hugmynd hafi verið
rædd en ekki tekin nein ákvörðun.
Söguhús í Búðardal
Einar segir uppbyggingu að Ei-
ríksstöðum vera að mestu lokið en
næsta sumar verður hafist handa
við framkvæmdir í Búðardal á veg-
um Eiríksstaðanefndar. “Gamla
kaupfélagshúsið við smábátahöfn-
ina er nú í eigu F.i ríks s ta ðan e fn da r
og það verður endurbyggt og gert
að kaffi- og sýningarhúsi og ætlun-
in er að tengja það rekstrinum að
Eiríksstöðum.
Tilgátubærinn á Eiríksstöðum
verður opinn fyrir ferðamenn fram
á haust en í vetur verður bærinn
opnaður fyrir hópa eftir pöntun-
um.
GE A hátíðarsvæðinu gátu gestirfylgst með „alvöru víkingum“ ístarfi og leik.
Se'ð niður Dufgusdal þar sem nýi vegurinn liggur niður af heiðinni að sunnan verðu. Mynd: GE
Vegagerð yfir Vatnaheiði gengur vel
Verður þægilegur fjallvegur
-segir Birgir Guðmundsson umdæmisstjóri Vegagerðarinnar
Vegagerð á Vatnaheiði hefur fárið
vel af stað og miðar verkinu vel að
sögn Birgis Guðmundssonar um-
dæmisstjóra Vegagerðinnar í Borgar-
nesi.
Verktakinn, Suðurverk ehf, hefur
verið að störfum á heiðinni í um átta
vikur og er þegar búið að móta leið-
ina að stórum hluta. Birgir segir að
allt stefrú í að búið verði að keyra
undirlagið á alla leiðina í sumar. “Það
er þó ekki skilyrt í útboðinu heldur
aðeins að það eigi að vera komnar
fyllingar og farg á öll mýrarsvæði.
Það stefnir í að það klárist og jafnvel
undirlagið á alla leiðina enda hefur
verkið gengið vel. Það er unnið á
vöktum og þama eru einhver stærstu
tæki landsins í vegagerð í notkun og
þá munar miklu að ekki er umferð á
svæðinu,” segir Birgir. Verkinu á vera
lokið í byrjtrn október 2001 en leiðin
á að vera tilbúin með bundnu slidagi
1. september sama ár.
Mun lægri
Hina nýja leið yfir Vamaheiði er
16,4 km löng og verður mjög þægi-
legur fjallvegur að sögn Birgis. “Það
munar mestu að leiðin er 90 metrum
lægri þar sem lægst er en núverandi
vegur yfir Kerlingarskarð. Kerlingar-
skarðið fer hæst í 320 metra yfir sjáv-
armáli og á 8 kílómetra kafla er leið-
in yfir 200 metrana. Vatnaheiðin er
hinsvegar aðeins á þremur hlómetr-
um í yfir 200 metra hæð yfir sjávar-
máh. Þá er hvergi mjög bratt á
Vatnaheiðini og það er ljóst að þetta
verður mun þægilegri leið en mögu-
legt hefði verið að byggja yfir Kerl-
ingarskarðið,” segir Birgir GE
Þingmemi Vesturlands funduðu með Vegagerðinni siðastliðinn mánudag ogþá varfariti
skoðunarferð á Vatnaheiði.
tjárhundakeppni
Bargarfjarðardei laá^p^
haldin á Hvítárbakka í
Bórgarfirði íaugardaginf 19. ágúst
Akraneskaupstádur
Hér med er auglýst laust til umsóknar
starf tómstundafulltma í
félagsmiðstöðiruii Amardal
Um er að ræða 100% starf og þarf viðkomandi
að geta hafið starf sem fyrst í september nk.
Starfið felst í vtnnu með tmgllngum,
skipulagningu félags- og æskulýðsstarfa auk
tilfafiandi verkefiia yfir vetrarmánuðina og
vinnu við Vinnuskóla yfir sumarmánuðina.
Vinnutími er óreglulegur yfir vetrarmánuðina
en hefðbundin dagvinna yfir sumarmánuðina.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum STAK
og Akraneskaupstaðar.
Nánari upplýsingar veitir Einar Skúlason í
sírna 431 2785 eða 863 1113.
Umsóknum skal skilað inn eigi síðar en
25. ágúst nk. til:
Félagsmiðstöðin Amardahu
bt/Einar Skúlason, æskulýðsfúlltrúi
Kirkjubraut 48
300 Akranes
Æskulýds- og félagsmálaráð
Akraneskaupstaðar
A
w
MEIRAPRÓFSBÍLSTJÓRA
OG BIFVÉLAVIRKJA
VANTAR
Okkur vantar meiraprófsbílstjóra til aksturs
á strætisvögnum og bifvélavirkja til
viðgerða á stórum bílum sem fyrst. Um
framtíðarstarf er að ræða.
Hagvagnar sjá um akstur 25 strætisvagna
á höfðuborgarsvæðinu og sjá um allar
viðgerðir og viðhald á þeim.
Allar nánari upplýsingar um störfin veita
Hrafn Antonsson (meiraprófsbílstjóra) og
Þórður Pálsson (bifvélavirkja)
í síma 565 4566.
Hagvagnar hf. Melabraut 18
220 Hafnarfjörður Sími: 565 4566
Fax: 565 4568 hopbilar@hopbilar.is