Skessuhorn


Skessuhorn - 07.09.2000, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 07.09.2000, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2000 7 ákfissvnui. i '. Jk • jjg l. tgi pí .< ‘ >4, ‘t *í»:V ’ * ;» IgpB . • -. , : ►> 7.’““* ,0 5 Nemendur og aðstandendur Menntasmiðju Elínar. Menntasmiðja kvenna hefur göngu sína á Akranesi Það var Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra, sem setti Menntasmiðju kvenna á Akranesi og Viku símenntunar, sem ber yf- irskriftma “Menntun er skemmt- un”, í Stúkuhúsinu á Akranesi. Menntasmiðjan hefur hlotið nafnið Elín, og þótti vel við hæfi að setning hennar bæri upp á fyrsta dag í fyrstu viku símenntunar á Islandi. Elínar- nafnið er, eins og svo margt annað á Akranesi, komið frá Elínu systur Sæmundar Fróða. Elín var ekki síð- ur fjölkunnug en Sæmundur og sat hún oft í sæti sem nefnt hefur verið Elínarsætí á Elínarhöfða og talaði við Höllu systur sína sem var hinum megin við fjörðinn með svokölluðu hljóðskrafi. Upphaflega var ætlunin að hafa 12-15 nemendur í menntasmiðj- unni. 17 konur skráðu sig í upphafi, en tvær þeirra hættu við. Að sögn aðstandenda menntasmiðjunnar voru fyrirspurnir þó mun fleiri, en margar konur sáu sér ekki fært að hætta í sinni vinnu og setjast á skólabekk. Leiðbeinendurnir eru ekki mikið færri en nemendurnir, eða níu talsins og eru þeir allir þar í fullu starfi. Þeir koma úr öllum átt- um enda eru námsgreinarnar jafn mismunandi og þær eru margar. Nemendur menntasmiðjunnar eru á aldrinum 22-68 ára. SÓK Horft af Grensás til Birgisborgar yfir fyrirhugað byggingarsvæði. Hólmarar stórhuga Við Nesvog ofan Stykldshólms hefur Skipavík sótt um að fá að reisa orlofshúsabyggð. Svæðið er ákaflega skemmtilegt og náttúru- fegurð mikil. Hugmynd þeirra í Skipavík gerir ráð fyrir orlofshús- um meðfram allri ströndinni allt fram á Baulutanga, þar sem húsin myndu standa við borgimar sem þarna eru margar og húsunum gætí fylgt aðstaða fyrir bátaskýli og brvggju. Fram í Móvík. hugsa þeir sér að mætti koma upp sjóbaðsað- stöðu en einmitt þar er affall hita- veitu Stykkishólms. Þarna er greinilega á ferðinni hugmynd að útivistarparadís. Fjölmargir leggja leið sína í Stykkishólm yfir sumar- tímann og gera menn ráð fyrir að mikil ásókn verði í þessar lóðir. Bæjarstjórn hefur ákveðið að taka hluta þessa lands undir sumarhús. Landið sem nú þegar er ætlað und- ir þessa byggð er í nágrenni Skóg- ræktarinnar á Grensás og nær allt til Birgisborgar. I viðtali við Skessuhom sagði Óli Jón Gunn- arsson, bæjarstjóri Stykkishólms- bæjar, að á því svæði mætti koma fyrir með skemmtilegum hætti milli 30-40 sumarhúsum. Hverf- ið liggur vel við tengingum við þjóðveg, rafmagn og hita- og vatnsveitu Nú em 24 hús og íbúð- ir í Stykkishólmi notuð sein orlofs- hús. Óli Jón sagði ekki ósennilegt að þau hús kæmust í heilsársnot þegar þessi valkostur væri í boði. IH 26 böm bíða leikskólavistunar 26 böm, fædd árið 1998 og fyrr, bíða nú leikskólavistunar á Akra- nesi og er inntöku að mestu lokið. Sigrún Gísladóttir, leikskólafull- trúi, gerði grein fyrir þessu á síð- asta fundi skólanefndar. Á fundin- um vom lagðar fram upplýsingar um hvernig nokkur önnur sveitar- félög hafa bmgðist við svipaðri stöðu, þ.e. að niðurgreiða dvöl hjá dagmömmum. Óskað hefur verið efrir því við arkitektinn sem hann- aði leikskólann Vallarsel, að fá að skoða teikningar hans af fjórðu deildinni sem víða hefur verið bætt við leikskóla sömu gerðar. SÓK ^ ^ ^ míyfir í og á gamla Ve'lsmiðfulntsinu ! Grundarfirði. 40 ár milli hæða Gamla vélsmiðjuhúsið í Grundarfirði fær nú senn andlitslyftingu og nýtt hlutverk. I vor keypti sveitarfélagið húsnæðið af Vélsmiðjunni Berg og hyggst breyta því í slökkvistöð og áhaldahús. Auk þess mun verða byggð ný hæð ofan á húsið sem hýsa á bókasafn og fjarkennslustofu. Húsið var byggt af Vélsmiðju Grundaríjarðar á árunum 1958 - 60 og var í upphafi gert ráð fyrir því að byggja tvær hæðir. Vélsmiðja Grundarfjarðar var lengi með rekstur í húsinu og þar réð ríkjum í nærri þrjá áratugi þúsundþjalasmiðurinn Bæring Cecilsson. A síðari ámm eftir að bærinn fór að stækka þótti atvinnustarfsemi eins og þessi ekki æskileg í íbúðahverfi. Vélsmiðjan Berg er að láta byggja yfir sig í nýju atvinnuhverfi sem er að rísa skammt frá innri höfninni. "Það er spennandi að flytja í nýtt húsnæði sem svarar betur þörfum starfseminnar," sagði Hrólfur Hraundal framkvæmdastjóri vélsmiðjunnar. "Einnig verður gaman að sjá þetta góða hús fá nýtt útlit og hlutverk sem hæfir vel þessari staðsetningu." Golfklúbburinn Opið golfmót Afmælismót ✓ Ragnars og Asgeirs ehf. verður haldið á Bárarvelh H BÁRARVAliUR Grundarfirði helgina 9. - 10. september Leiknar verða 36 holur 7/8 punktakeppni með fullri forgjöf og hefst mótið kl.09:00. Yegleg verðlaun eru í boði fyrir fyrstu 6 sætin en einnig verða veitt nándarverðlaun. Boðið verður upp á samlokur og drykki á leikdögum. Laugardagskvöldið 9. september er öllum keppendum boðið til afmælisveislu í léttar veitingar í húsakynnum Ragnars og Ásgeirs ehf. Frá kl. 20:00 - 23:00 Skráning hjá Guðlaugi s: 864 3639 fyrir kl. 23:00 fóstudagskvöldið 08.09.00 ___________Þátttökugjald kr: 3.000,-______ - Trésmiðir - - múrarar - - verkamenn- Þorgeir og Helgi hf. á Akranesi auglýsa eftir trésmiðum, múrurum og verkamönnum til vinnu við einingaverksmiðju á Akranesi. Um framtíðarstarf er að ræða. Um er að ræða nýja verksmiðju í eigu Þorgeirs og Helga hf., sem er rótgróið steypuframleiðslufyrirtæki. Nánari upplýsingar veitir Halldór Geir Þorgeirsson á skrifstofu Þorgeirs og Helga hf. á milli kl. 8 og 17. Þorgeir og Helgi hf. Höfðasel 4 Akranesi Sími: 431 1144- Fax: 431 3280 e-mail: steypa@aknet.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.