Skessuhorn


Skessuhorn - 07.09.2000, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 07.09.2000, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2000 ^sunuwi Framkvæmdir í sláturhúsinu við Laxárbrú Nú er framkvæmdum í slátur- húsinu við Laxárbrú í þann mund að ljúka. Að sögn Hallfreðs Vil- hjálmssonar, sláturhússtjóra, er ætl- unin að klára verkið í þessari viku og hefja starfsemina þann 12. sept- ember. “Það er töluvert mikið um að vera hér og þessu fer nú bráðum að ljúka. Við erum bæði að stækka húsnæðið og bæta aðstöðuna. Þetta er hlutur sem hefur legið fyrir að láta gera hér. Það hefur þurft að bæta aðgengið að húsinu og gera umhverfxð snyrtdlegra og betra.” Hallfreður segir stækkunina ekki vera mikla sem slíka heldur er lögð áhersla á að laga og bæta aðstöðuna sem fyrir er. Enn liggur ekki fyrir hver lokakostnaður við fram- kvæmdimar verður. SÓK Þeir listamenn sem hlum styrki frá Akranesbœ í liöinni viku: F.v. Philippe Rican, Marlies Wechner, Bjami Þór Bjamason, Steinunn Sigurðardóttir, Salóme Guðmundsdóttir, Hrönn Eggertsdóttif og Guttormur Jónssan. Mynd: SOK • • Síðastlíðinn fimmtudag vom af- hentir sjö styrkir til iistamanna á Akranesi, hver og einn að upphæð lf 0.000 krónur. Þeir listamenn sem hlutu styrkinn vom þeir sem sáu um að búa til og reísa útilista- verk í tengslum við verkefhið “Sjáv- arlist”. Einníg veitti Hrönn Egg- ertsdóttir styrk viðtöku, en hún mun einmitt enda verkefhið með listasýningu í Kirkjuhvoli. SÓK Afkoma SM batnar í Borgamesi Fyrirhugað er að opna nýjan leikskóla í Borgarnesi seinni partiim í vetur. Að sögn Stefáns Kalmanssonar bæjarstjóra vantar enn leikskóla- pláss í Borgarnesi þátt fyrir aðgerðir til að fjölga plássum á leikskólan- um Klettaborg. Nýi leikskólirm verður staðsettur í Bjargslandi í leigu- húsnæði og getur tekið 22 böm í dagvistun. Nýi leikskólinn er aðeins hugsaður til bráðabrigða eða í um þrjú ár að sögn Stefáns. “Við gemm ráð fyrir að þurfa að byggja nýjan leikskóla. Leikskólinn Klettaborg er að mínu viti kominn í mjög heppilega stærð og því skynsamlegra að byggja nýjan þegar þar að kemur,” segir Stefán. GE ~~ - Leiðin yfir Botnsheiði vörðuð í sólaryl og sannkallaðri rjóma- blíðu bjástraði hópur fólks við það að varða leið yfir Botnsheiðina síð- astliðna helgi. Raunar gekk verkið svo vel, að það sem átti að verða helgarvinna varð dagsverk. Að kvöldi dags stóðu uppi 60 vörður á Síldarmannagötum, fornri þjóðleið milli Skorradals og Hvalfjarðar. Meðfram vörðuvinnunni var stikað norður af heiðinni. Alls vora það 32 einstaklingar sem stóðu að þessari vinnu og voru þar á ferð heima- menn, sumarbústaðafólk og aðrir áhugasamir einstaklingar, auk fé- laga úr Sjálfboðaliðasamtökum um náttúravernd. Það voru þau Hulda Guðmundsdóttir, Jón Haukur Hauksson, Guðjón Sólmundarson og Jón Valgarðsson sem sáu um að skipuleggja verkið og smala saman mannskap til þess að þetta gæti orðið að veraleika. Það sannaðist í þessari ferð að margar hendur vinna létt verk og Guðjón Kristdnsson hleðslumeistari ffá Dröngum, sem var hópnum tdl leiðsagnar, lét þau orð falla, að með slíkum flokki ynnust þrekvirki á skammri stund. Sfldarmannagötur vora í eina tíð ein aðal samgöngu- verulega Hagnaður af rekstri Sparisjóðs Mýrasýslu fyrstu sex mánuði ársins var 38 milljónir króna, að teknu tilliti til skatta. Það er hækkun um 153% miðað við sama tímabil í fyrra en þá nam hagnaðurinn 15 milljónum króna. Hagnaður ársins 1999 var samtals 41 milljón króna. Niðurstaða efnahagsreiknings Sparisjóðsins var 5,7 milljarðar króna þann 30. júní, sem er aukn- ing um 12,25% frá áramótum. Eigið fé Sparisjóðsins var 741,2 milljónir um mitt árið og eiginfjár- hlutfall samkvæmt CAD - reglum var 13,4%. Innlán Sparisjóðsins hafa vaxið um 10,17% frá áramótum en inn- lán voru 2,8 milljarðar króna þann 30. júní. Utlánsaukning var 10,62% og námu útlán samtals 4,4 milljörðum króna. MM Leiðrétting I síðasta blaði misritaðist nafh eins föðursins í aálknum Ný- fæddir Vestlendingar. Hann heitir Gauti Jóhannsson en var sagður heita Gauti Jóhannesson. Biðjum við hlutaðeigandi vel- virðingar á þessum mistökum. leiðin milli Hvalfjarðar og Borgar- fjarðardala. Þær liggja upp með Brunná í Botnsvogi um Síldar- mannabrekkur upp á brxín og þaðan sem leið liggur norður fyrir Tví- vörður sem staðið hafa á háheiðinni svo lengi sem elstu menn muna. Götumar skiptast þar rétt norðar til austurs og vesturs og ákveðið var að stika þá vestari sem endar við Vatns- hom í Skorradal. Sú leið var þó ekki stikuð til enda, heldur að línuvegi Hrauneyjafosslínu sem sker leiðina. Þann veg er einfaldast að ganga ofan í Skorradal og er þá komið niður með Löngugötugili á merkjum Bakkakots og Fitja. Fleiri leiðir á þessu svæði er áformað að merkja og má þar nefha leiðina úr Lida-Sands- dal og inn á Sfldarmannagötur. Að sögn Jóns Valgarðssonar, oddvita Hvalfjarðarstrandarhrepps, er hann mjög ánægður með verkið. “Það er alveg feiknarlegur dugnað- ur að ljúka við að hlaða vörðurnar á einum degi. Við eram að vonast til að þetta verði til þess að Síldar- mannagötur verði fjölfarin göngu- leið á milli staða hér í héraði. Nú er þetta orðið ákaflega aðgengilegt og ég má til með að geta þess að mér finnst gífurlegur dugnaður í henni Huldu (Guðmundsdóttur) að drífa saman mannskap til að vinna þetta verk. Þetta tókst vonum framar og allur hópurinn kom saman um kvöldið eftir gott dagsverk.”

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.