Skessuhorn - 15.03.2001, Side 3
FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001
3
onlissunui.
Svana H. Jóhannsdóttir glímumeistari.
Freviuglíman
Svana varð önnur
Síðastliðinn sunnudag fór
Freyjuglíman fram í annað sinn í
íþróttahúsi Hagaskóla í Reykja-
vík. Keppendur voru sex og var
keppnin jöfn og spennandi, en
sigurvegari síðasta árs, Inga
Gerða Pétursdóttir, var ekki með
að þessu sinni. Vestlendingar
áttu fulltrúa á mótinu í ár, hina
bráðefnilegu Svönu H. Jóhanns-
dóttur úr Glímufélagi Dala-
manna. Fyrir keppnina þóttu þær
Hildigunnur Káradóttir eða
Soffía K. Björnadóttir líklegastar
til sigurs, en þær eru báðar úr
HSÞ. Hildigunnur er nýkrýndur
Landsglímumeistari í heildar-
keppninni en Soffía sigraði á síð-
asta Landsglímumóti. En aldrei á
að vanmeta Dalamenn. I lok
keppninnar stóðu eftir þrjár kon-
ur með 4 vinninga hver og þurftu
þær að glíma til úrslita. Svo fór
að lokum að Hildigunnur stóð
uppi sem sigurvegari með sex
vinninga en Svana lenti í öðru
sæti með fimm. Sannarlega
glæsilegur árangur hjá Dalakon-
unni.
SÓK
Langur
biðlisti á
leikskóla
A fundi skólanefndar í síð-
ustu viku kynnti Sigrún
Gísladóttir, leikskólafulltrúi,
stöðu á biðlistum leikskól-
anna í mars. Af börnum sem
fædd eru árið 1998 eða fyrr
eru 31 barn á lista og börn
sem fædd eru árið 1999 eru
88 eða 91% af árganginum.
Það eru þau börn sem eru að
komast á leikskólaaldurinn í
haust.
“I haust fara 74 börn úr
leikskólum yfir í grunnskóla
þannig að ljóst er að við mun-
um ekki geta annað eftirspurn
eftir leikskólaplássum og
biðlisti í haust verður lengri
en nokkur undanfarin ár,”
segir Helga Gunnarsdóttir,
menningar- og skólafulltrúi.
Að hennar sögn er þetta ann-
að árið í röð sem stór árgang-
ur kemur inn í leikskólana en
lítill fer út. “Fólk er líka að
biðja um meiri þjónustu en
áður og aðsókn í sex tíma
vistun er mikil á meðan sára-
fáir biðja um hálfsdagsvistun.
Þetta hefur allt sitt að segja
og biðlistarnir lengjast. Þess
vegna er því fagnað að bærinn
skuli koma til móts við for-
eldra með því að greiða niður
gjald hjá dagmömmum frá 1.
ágúst næstkomandi.”
Islandsmeistari í
breikdansi
Leifiir Eiríksson, breikdansari.
Danssamband íslands
(DSI) stóð fyrir Islands-
meistaramóti í breikdansi
um liðna helgi og var mótið
haldið í íþróttahúsinu við
Strandgötu í Hafnarfirði.
Keppt var í tveimur flokk-
um, 12 ára og yngri og 13
ára og eldri. Leifur Eiríks-
son, 15 ára Vestlendingur
og nemandi í Heiðarskóla,
var keppandi á mótinu og
sigraði hann í flokki 13 ára
og eldri en keppendur þar
voru á aldrinum 15-19 ára.
Auk þess gerði hann sér lít-
ið fýrir og vann liðakeppn-
ina með vini sínum Agli sem
keppti í flokki 12 ára og
yngri.
Leifur segist hafa fengið áhuga
á breikdansi í Noregi þar sem
hann bjó í 4 ár. I febrúar á síðasta
ári byrjaði hann svo að æfa af
fullum krafti. Hann segir æfing-
arnar ekki mjög skipulagðar. “Eg
æfi mig heima á virkum dögum
og það er ansi frjálst en ég fer til
Reykjavíkur um helgar og æfi þar
með breikdanshóp.” Leifur segir
að vissulega dansi stelpur líka
breikdans þrátt fyrir að aðeins
ein hafi verið í keppninni um
helgina. “Þær æfa nokkrar með
mér en ég veit ekki af hverju þær
tóku ekki þátt í mótinu. Ein sú
besta var reyndar að dæma og gat
þar af leiðandi ekki verið með.”
En ætlar hann sjálfur að halda á-
fram að dansa? “Já, ekki spurn-
ing. Eg er rétt að byrja.”
SÓK
Stækkun á Kvíabiyggju
I þessari viku er að ljúka stækk-
un á fangelsinu að Kvíabryggju á
Snæfellsnesi. Viðbyggingin er
um 70 fermetrar og samkvæmt
upplýsingum frá fangelsismála-
stofnun er tilgangurinn með
henni að bæta aðstöðu fyrir fanga
og starfsfólk. I nýja hlutanum er
vel búinn íþróttasalur, yfir-
heyrsluherbergi og bókasafn.
A Kvíabryggju eru 14 pláss fýr-
ir refsifanga og eru þau undan-
tekningalítið fullnýtt.
GE
Open 633 MHz
Cel
l-c'sú;
ö
ntel Celeron 633 MHz örgjörvi
128MB SDRAM vinnsluminni
16 radda 3D hljóðstýring
20GB harður diskur
Skjástýring á móðurborði
50 hraða geisladrif
17” Pro view skjár
Creative SBS 35 hátalarapar
56KV90 mótald
Windows 98
MicrosoftWorks
Mitsumi PS2 lyklaborð, íslenskað
Mitsumi PS2 mús
Norton Antivírus
HP Desk Jet 930C
Alvöru prentari með
Ijósmyndagæðum
is^öo,
+ 500 blðð frítt
Ath. Lokað laugardaginn 17. mars
vegna breytinga á tölvukerfi
íslensk
r 1 U PPLÝSI NG/
GATÆKN I
-upplýst tilvera
Hyrnutorgi - 430 2200 ■ verslun@islensk.i$