Skessuhorn - 12.07.2001, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 28. tbl. 4. árg. 12. júlí 2001 Kr. 250 í lausasölu
/^XÍslensk
W 1 UPfiYSlNGAT Æ
Þjónustuver
Tölvur
Tölvuviðgerðir
Skrifstofuvörur
Símtæki
HIIIHr '
Hyrnutorgi - 430 2200 ■ verslun@islensk.is
✓
Sundmeistaramót Islands
Glæsilegur árangur
Kolbrúnar
Sundmeistaramót íslands (SMÍ) í
50 m laug, endapunkturinn á sund-
tímabilinu, fór fram í Laugardals-
laug um helgina. Keppni hófst á
laugardagsmorgun og stóð fram á
sunnudag en þrettán keppendur frá
Sundfélagi Akraness tóku þátt í
mótinu. Hópurinn hélt til Reykja-
víkur á föstudag þar sem sundæf-
ingar voru í lauginni fyrir mótið.
Heildarfjöldi keppenda var urn 160.
Mótið var bæði einstaklings- og
liðakeppni en það var í fyrsta skipti
sém svo er.
Þótt Sundfélag Akraness næði
ekki að hreppa stigabikar félaga
þetta árið var árangur krakkanna
góður. Kolbrún Yr Kristjánsdóttir
kom, sá og sigraði, en hún sigraði í
öllum þeim fimm greinum sem hún
keppti í.-og varð stigahæsti einstak-
lingur mótsins með 780 stig. Þau
fékk hún fyrir glæsilegan árangur
sinn í 50 m baksundi sem hún svnti
á tímanum 31,56. Að launum fékk
Kolbrún Yr tvo bikara; Pálsbikarinn
sem gefinn er af forseta Islands fyr-
ir besta afrek mótsins og Kolbrún-
arbikarinn sem gefinn er af ættingj-
um Kolbrúnar Olafsdóttur sund-
konu fyrir besta afrek meistara-
mótsins unnið af konu. Þess má
geta að Kolbrún hreppti Pálsbikar-
inn einnig á síðasta ári. Hinn víð-
ffægi Om Arnarson varð að sætta
sig við annað sætið en hann náði
760 stigum.
Kolbrún sigraði einnig í boð-
sundi í 4x100 m skriðsundi og varð
í þriðja sæti í 4x200 m skriðsundi og
4x100 m fjórsundi. Þær Karitas
Jónsdóttir, Hildur Magnúsdóttir,
Elísa Guðrún Elísdóttdr og Þórdís
Kolbrún Gylfadóttir syntu með
Kolbrúnu í sveitunum. Guðgeir
Guðmundsson náði svo þeim góða
árangri að verða annar í 200 m
flugsundi á mótinu.
Sátt við árangurinn
„Eg er mjög sátt við árangurinn
og fannst sérstaklega gaman að fá
bikarana, ekki síst Koibrúnarbikar-
inn,“ sagði Kolbrún Yr í samtali við
Skessuhorn að móti loknu. Eins og
áður sagði er. mötið endapunktur-
inn á sundtímabilinu og Kolbrún
segist því mjög fegin að vera komin
í frí. „Loksins! Eg byrja aftur að æfa
þann 20. ágúst svo fríið ér í rúmar
fimm vikur. Bikarkeppnin er í lok
nóvember og um miðjan desember
fer ég til Belgíu að keppa á Evrópu-
meistaramótinu í 25 in laug. Eg hef
ekki fengið svona langt frí í næstum
sex ár svo ég ætla að nýta það í að
slappa af og vinna og gera eitthvað
allt annað en að synda.“
Þótt Kolbrún sé fríinu fegin er
hún ekki sátt við að hafa ekki náð
lágmarkinu fyrir heimsmeistara-
mótið íjapan. „Eg var aðeins 6/100
frá lágmarkinu í mars og það var
mjög svekkjandi." SOK
Um liðua helgi fór fram fjórðimgsmót á Kaldármelum i Víðidal en 48 ár eru liðin frá því slíkt mót varfyrst baldið. Sjó af níu áðildar-
félögum áttufidltrúa á mótinu en Snæfellingur, Glaður og Kinnskær stóðu að framkvæmd þess. Itarleg umfjöllun er um mótið íblaði
þessardr viku á blaðsíðum 8 og 9, en þar er meðal annars að fmna fjölda mynda auk úrslita fjórðungsmótsins.
Vegaframkvæmdum í Bröttubrekku flýtt?
Uppi eru hugmyndir frá verktak-
anum Arnarfelli um að framkvæmd-
um í Bröttubrekku norðanverðri
verði flýtt og vegurinn opnaður fyr-
ir vetrarumferð. Að sögn Magnúsar
Vals Jóhannssonar, umdæmisstjóra
Vegagerðarinnar á Vesturlandi, er
einungis um hugmynd að ræða frá
verktakanum en ákvörðun um hvort
af flýtingu framkvæmdanna verður
mun liggja fyrir í lok júlímánaðar.
Segir Magnús að ef af flýtingunni
verði muni það hafa mikil áhrif á
umferð upp brekkuna að norðan-
verðu og til hagræðis fyrir öku-
menn. Þeir myndu þá sleppa við
töluverðan
halla og beygj-
ur auk þess sem
hin nýja leið sé
mun snjólétt-
ari. Ef af hug-
myndunum
verður, mun
ekki vera talað
um að lagt
verði bundið
slitlag á veginn heldur einungis að
hann verði gerður akstursfær.
Aætlað er að almennar fram-
kvæmdir við Bröttubrekku, við hina
nýju vegagerð, muni standa yfir í
þrjú ár. Ef ekki kemur til flýtingar
framkvæmdanna í brekkunni norð-
anverðri er áætlað að sá áfangi verði
opnaður að ári og þá fullbúinn með
slitlagi. smh
Svínslegt grín
Svínshöfuð fannst í
þvottaaðstöðunni á tjald-
stæðinu í Borgarnesi á
mánudaginn sl. Fengu
starfsmenn áhaldahússins
þar í bæ ábendingu um að
svínshöfuð væri í vaskinum
þar sem ætlast er til að
ferðafólk þvoi sér. Að sögn
starfsmanna áhaldahússins,
sem fjarlægðu hausinn, er
líklegt að það hafi verið hirt
upp við sláturhúsið en það
var algjörlega óverkað og
greinilega af grís. Aðgengi
að sláturhússlóðinni er
þannig í dag að fólk á auð-
velt með að komast þar inn.
smh
Eldur laus í Hólminum
Grunur um íkveikju
Það var aðfaranótt mánudagsins
2. júlí, ldukkan tvö eftir miðnætti,
að Þorbergur Bæringsson slökkvi-
liðsstjóri í Stykkishólmi fékk hring-
ingu frá neyðarlínunni og tilkynn-
ingu um lausan eld. Þegar Þor-
bergur kom á Reitarveg, að
geymsluhúsnæði Hraðfrystihúss
Sigurðar Ágústssonar, glaðlogaði
eldur í jeppa einum sem stóð við
endagaflinn á húsinu og var farið
að loga upp með bárujárni hússins.
Grunur leikur á að um íkveikju hafi
verið að ræða en jeppinn var af-
skráður og hafði verið notaður í
varahluti. „Það mátti ekki tæpara
standa því innan í þessu bárujárns-
húsi er mikið af plasttunnum og
það hefði getað valdið alveg hræði-
legri mengun ef eldurinn hefði læst
sér í þær“, sagði Þorbergur. Varar
hann fólk við því að geyma eldfima
hluti s.s. netaafganga og plastkör í
nálægð iðnaðarhúsa og segir það
hafa færst í vöxt að brennuvargar
standist ekki þá freistingu að
kveikja í slíkum hlutum. Hann
bendir á að það sé nú sannað mál
að kviknað hafi í frystihúsi á Akur-
eyri einmitt þegar kveikt var í fiski-
kössum sem stóðu við húsið.
smh
MANUDAGA - FIMMTUDAGA
FÖSTUDAGA
9-21
LAUGARDAGA 10-19
SUNNUDAGA 12-19