Skessuhorn - 12.07.2001, Síða 5
a&iisaijnui..
FIMMTUDAGUR 12. JULI 2001
5
Fékk silfiir á Norðurlanda-
móti í pípulagningum
Vigfús Baldvin Heimisson, tví-
tugur Búðdælingur, hélt til Kaup-
mannahafnar fyrir nokkru síðan til
þess að keppa á Norðurlandamóti í
pipulagningum. Fimm keppendur
voru á mótinu, einn frá hverju
Norðurlandanna, og svo fór að sá
finnski sigraði en Vigfús hafnaði í
öðru sæti.
„Við fengum teikningar, efni sem
við þurftum að nýta sem best,
vinnusvæði og verkfæri. Við feng-
um ákveðinn tíma á dag til að vinna
og markmiðið var að klára verkefn-
ið. Dómarar tóku svo tillit til þess
hver gerði best, hvort keppendur
væru með refsistig eða hefðu þurft
aukaefni.“ Verkefnið var enginn
barnaleikur en það var að leggja
lagnir í óreglulegt átthyrnt her-
bergi. Einungis voru notaðar
beygjuvélar í kaldbeygingar og
keppendur voru lámir hitabeygja
svört rör. Einnig átti að tengja
sturtutæki, handlaug, klósett, hitara
og tvo ofna en annan þeirra átm
keppendur að smíða sjálfir.
Sigurvegari keppninnar var sá
eini sem náði að klára verkefnið.
„Eg átti 2-3 tíma eftir til að klára en
ég var sé eini sem hafði ekki fengið
aukaefni og var ekki með 'nein refsi-
stig. Þannig að ég hefði sennilega
orðið efstur hefði ég náð að klára.“
Keppendurnir frá Noregi, Sví-
þjóð, Danmörku og Finnlandi
þurfrn allir að sigra í ýmsum lands-
hlutakeppnum og undankeppnum
áður en þeir fengu þátttökurétt á
Norðurlandamótinu. Það tíðkast
hins vegar ekki á Islandi og Vigfús
er í raun sá fyrsti til að keppa á mót-
inu fyrir íslands hönd. „Rætt hafði
verið um að enginn keppandi væri
frá íslandi. Meistarinn minn stakk
upp á að ég færi og það var sett í
gang,“ segir Vigfús en áðumefndur
meistari er enginn annar en Borg-
nesingurinn Þorgeir Kristófersson.
„Þetta er í annað sinn sem Norður-
landamótið fer fram en síðast var
það í Osló. Hins vegar hefur oft
verið haldin heimsmeistarakeppni í
pípulagningum.“ Heimsmeistara-
keppnin fer einmitt fram nú í sept-
ember í Seoul í Suður-Kóreu og
Vigfús er sá eini af keppendum
Norðurlandamótsins sem fer ekki
þangað. „Það fást ekki peningar
fyrir því. Félög hinna borga brús-
ann en meistara- og sveinafélagið á
íslandi treysta sér ekki í það. Kostn-
aðurinn er töluverður því nauðsyn-
legt er að senda mann úr stjórn fé-
lagsins, dómara og sjálfan keppand-
ann út. Félögin verða því að kosta
Vigfiís Baldviii Heimisson
að minnsta kosti þrjá menn til lýkur því í haust. „Eg ætla að klára
Kóreu og það kostar ekki minna en sveinsprófið og fara svo beint í
2,5-3 milljónir.“ meistaranám, sennilega í Tækni-
Vigfús stefnir að sjálfsögðu á að skólanum. Maður reynir að taka
klára nám í pípulagningum en hann þetta allt í einum rykk.“ SOK
Viðræður milli rfldsins og Norðuráls
Samningsaðilar um stækkun
Norðuráls upp í 180 þúsund tonn
úr 90 þúsund tonnum hafa hafið
viðræður sín á milli og er fyrstu
umferð þeirra nú lokið. Þeir höfðu
sett sér það markmið að meginlínur
varðandi skatta-, aðstöðu og orku-
mál lægju fyrir um mánaðamótin
júní-júlí. Iðnaðar- og fjármálaráðu-
neyti hafa lagt fram fyrstu hug-
myndir um breytingar á fjárfesting-
arsamningi um byggingu og rekst-
ur Norðuráls og að því er fram
kernur í tilkynningu á heimasíðu
Norðuráls telur Ragnar Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri, að
hugmyndirnar gefi fyrirheit um að
áframhald geti orðið á viðræðun-
um. Þó sé enn langur vegur ófarinn
áður en unnt verður að slá því föstu
hvort farið verði út í stækkunina.
Samningar við Lands-
virkjun á byrjunarstigi
Norðurál hefur ákveðið að hefja
viðræður við fjármögnunaraðila og
birgja til þess að tímaáætlanir
standist og gera forráðamenn fyrir-
tækisins ráð fyrir að endanleg nið-
urstaða liggi fyrir í mars árið 2002.
Samningar við Landsvirkjun um
orkuverð eru á byrjunarstigi og enn
ber nokkuð á milli aðila. Þá liggur
ekki fyrir hvort Landsvirkjun fái
leyfi til byggingar nauðsynlegra
mannvirkja. í tilkynningunni segir
að viðræðum verði haldið áfram en
ekki er búist við endanlegri niður-
stöðu fyrr en ljóst verður hvort
hægt verði að afhenda umbeðna
orku á viðunandi verði.
Viðræður við OR
og Rarik
Á þeim stutta tíma sem er til
stefnu telja forsvarsmenn Norður-
áls ósennilegt að unnt verði að ná
samningi við aðra en Landsvirkjun
um orkuafhendingu frá miðju ári
2004. Viðræður hafa átt sér stað við
Orkuveitu Reykjavíkur og Rarik
auk þess sem rætt verður við Hita-
veitu Suðurnesja. Að mati Norður-
áls koma samningar við þessa aðila
til álita við stækkun umfram 180
þúsund tonn, verði sýnt fram á við-
unandi afhendingaröryggi, m.a. að
mati lánastofnana.
Áfangaskipting
óhagkvæm
„Áætlanir Norðuráls gera ráð
fyrir stækkun í a.m.k. 240.000 tonn
en samkvæmt óskurn stjórnvalda og
í ljósi framboðs á raforku hefúr ver-
ið ákveðið að miða undirbúning
framkvæmda við stækkun í tveimur
skrefum. Ljóst er að þessi áfanga-
skipting dregur hins vegar úr hag-
kvæmni við rekstur álversins þar til
fullri stærð er náð. Reynslan hefur
sýnt að bygging álvers í tiltölulega
litlum áföngum hentar vel íslensku
efnahags- og atvinnulífi, sem og
orkugeiranum. Ohætt er að full-
yrða að þetta fyrirkomulag stuðli að
aukinni þátttöku íslenskra verktaka
og ráðgjafa í uppbyggingu stór-
iðju,“ segir í fyrrnefndri tilkynn-
ingu.
Sjö meginþættir
Undirbúningur að ákvörðun um
byggingu nýs áfanga álvers greinist
í sjö meginþætti.
1. Forsendur varðandi áætlað
orkuverð, magn og tímasetningu
þurfa að.liggja fyrir.
2. Áhugi stjórnvalda á verkefninu
þarf að vera fyrir hendi.
3. Tæknilegar forsendur þurfa að
vera ljósar.
4. Gera þarf samninga við birgja
urn helstu aðföng. Stærstu liðir
þar eru raforka, súrál og rafskaut.
5. Fyrirtækið þarf að hafa trygg-
an aðgang að hæfu vinnuafli og
eiga gott samstarf við verkalýðs-
félög.
6. Nauðsynlegt er að tryggja
lánsfé til nægjanlega langs tíma.
7. Þegar framangreindar for-
sendur liggja fyrir er hægt að
reikna út hvort stækkun borgar
sig.
Arni Helgason bjargar
sögulegu bréfi
Hinn kunni áfengisvarnarfröm-
uður Árni Helgason kom á dögun-
um í Norska húsið í Stykkishólmi
með sögulegt uppboðsbréf í fórum
sínum og afhenti það til varðveislu í
Byggðasafni Snæfellinga og
Hnappdæla. Bjargaði hann bréfinu
frá glötun þegar hann starfaði sem
sýsluskrifari í Stykkishólmi árið
1942. Var um að ræða bréf frá 1879
en á því stendur:
Uppboðslýsinp
1 .auvardíipmu htnni 20. desember 1979
Klukkaii 12. um hádegisbil, verði þaS að
forfallalausu af undirskrifiiSimi boðið til
siilu í Jia shm:
6 (hundrað) í jörðimii Bjamarböfii í
Helgafellssveit og
101 alin í jörðivni Kirkiufelli í Eyrar-
sveit sem er eign dánarbús Halldóru Jó-
hamtesdóttur frá Bjamarhöfii, og verða
nefiidar eignir þá seldai; ef hæfilegt boð að
áliti skiptaráðanda næst.
Uppboðið framfer á
fánaahiísinu he'r í
Stykkishólmi, og verða
þar söluskilmálar birtir
Skrifstofu Snæfell og
Hnappadalssýslu 1. des-
embei: 1879.
Sigurður Jónsson
með uppboðsbréfið.
Bjarnarhöfn, í Helgafellssveit, er
landnámsjörð Björns austræna og
höfuðból. Núverandi ábúendur þar
eru þau Hildibrandur Bjarnason og
Herborg Sigríður Sigurðardóttir.
Árið 1974 mun Kirkjufell í Eyrar-
sveit hafa farið í eyði og tún þar nú
einungis nytjað.
Þá afhenti Árni einnig heiðurs-
rnerki stúkunnar Hildar við þetta
tækifæri. Telur Árni að heiðurs-
merkið sé líklega frá árunurn 1912-
1920. smh
m/m tm.
V />
yJ/í/A'A'//// /■? //////'■/"''f/.:////,,
y y/f///*// //■’ ■////,
/■ ->,/,,'V/fisy/ÍV'//-.
/ .')';,//////
f ^J//,z///,z//ý/............/)y////////
///y/,'. /y. ,,........-
A ,, ///////„ /. .'///,Ay/y,/,
ív'a ■/ y,- /
/^/i/*/ýAr, fif/r/.
■ y/irymm
Uppboðsbréfið fi'á 1879
,,,,, , ,, ,
Akraneskaupstaður
Bygginga- og skipulagsdeild
Auglýsing um deiliskipulag
Flatahverfis, klasi 9, Akranesi.
Áfundi bæjarstiórnar Akraness þann 24. apríl
2001 var sampykkt tillaga aö aeiliskipulagi
Flatahverfis klasa 9 á Akranesi.
Tillagan nær til deiliskipulagsreits klasa 9 í
Flatahverfi sem afmarkast af
byggöasafni/kirkjugaröi, skipulögöum klasa 4 og
óskipulögöum klösum 7-8 og 13-14 í Flatahverfi.
Flatarmál klasa 9 er 1,7 ha aö stærö.
Auglýst hefur veriö eftir athugasemdum skv. 1.
og 2. mgr. 25. gr. Skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997 frá og meo föstudeginum 23. februar
til og meö föstudeginum 23. mars 2001.
Athugasemdafrestur var til föstudagsins 6. apríl
2001. Engar athugasemdir bárust.
Framangreint deiliskipulag klasa 9 í Flatahverfi,
Akranesi, tekur pegar gildi.
Akranes, 9. júií 2001.
Magnús Þórbarson,
bygginga- og skipulagsfulltrúi
Dvaíarhdmiíið Höjði
Aksturspjónusta
Dvh. Höfði og Akraneskaupstaöur auglýsa hér með nýtt
starf laust til umsóknar. Um er aS ræoa 75% starf fró
1. sept. að telja, og er því stjómað fró dvalarheimilinu.
SkilyrSi aS umsækjendur hafi meirapróf og
æskilegt aS þeir sýni lipurS, þolinmæSi og
þjónustulund í starfi þessu.
Akstursþjónustan annast akstur sbr. reglur sveitarfélaga
um ferSaþjónustu fyrir fatlaSa og reglur Dvh. HöfSa
um ferSaþjónustu aldraSra í dagvistun. Þjónustan er
veitt alla virka daga vikunnar frá kl. 7.3o til 17.3o meS
bifreiS sem uppfyllir kröfur um aSgengi fyrir fatlaSa
ásamt lyftuDÚnaSi fyrir hjólastóla o.s.frv.
Umsóknarfrestur er til 31. júlí n.k.
Umsóknareybublöb fást á skrirstofu Höfba
Frekari upplýsingar um starfið veitir Jónas Kjerúlf,
húsvörður, i símum 431-2500 og 897-6236
á skrifstofutíma.