Skessuhorn

Eksemplar

Skessuhorn - 12.07.2001, Side 16

Skessuhorn - 12.07.2001, Side 16
PÓSTURINN Þú pantar. Pósturinn afhendir. Heimsending um allt land Landflutningar J? SAMSKÍP Engjaási 2, 310 Borgarnes, sími 437 2300, fax 437 2310 Nánari upplýsingar í síma 431 1255 (Byggðasafninu) og 431 5566 /862 3145 (Steinaríki íslands og nýja safnahúsi). Steinaríki íslands Steinaríki íslands er fjölbreytt og glæsilegt safn íslenskra steina. Skipta þeir þúsundum og koma frá öllum lands- hlutum en hluti steinanna er sagaður og slípaður. í Steina- ríki íslands er einnig að finna fjölda athyglisverðra steingervinga. Innan Steinaríkis íslands er sýning sem tileinkuð er gerð Hvalfjarðarganga, en hún hefur að geyma stórt líkan sem sýnir legu ganganna undir fjörðinn, Ijósmyndir, bora, borkjarna og steintegundir er fundust við gerð þeirra. Sýningin um sögu íþrótta á íslandi er sú fyrsta sinnar tegundar á íslandi, en þar verður sögð saga íþrótta hér á landi, allar viðurkenndar íþróttagreinar kynntar og helstu afreksmönnum í íþróttum gerð skil. Þá er hluti sýningarinnar tileinkaður íþróttaiðkun á Akranesi. Sýningin kemur til með að opna vorið 2002 en fram að þeim tíma verða forvitnilegir munir er tengjast íþróttaviðburðum íslendinga til sýnis í anddyri safnahússins. Sýning Landmælinga Islands Hvernig verða kortin, loftmyndirnar, gervitunglamyndirnar og landupplýsingarnar til? Hver er saga myndarinnar af íslandi sem smám saman skýrðist fyrir okkur í aldanna rás? Svarið verður að finna í nýju og vönduðu safni Landmælinga íslands á Akranesi og áhugaverðum sýningardeildum sem þar verða. í sérhönnuðu rými og með nýjustu tækni verður brugðið upp myndum úr kortasögunni, mæliaðferðir og kortagerðaraðferðir útskýrðar, brugðið upp sjaldséðum myndum og gömul og ný tæki sýnd. Þarna má kynnast nokkrum frumherjum landmælinga og sjá hvernig myndin af íslandi og kennileitum landsins breyttist og batnaði í þeirra augum. Frá júní 2001 fram á vor 2002 verður unnið að uppsetningu sýningarinnar. Á meðan sýningardeildirnar mótast og lifna við geta gestir heimsótt litla forsýningu í anddyri sýningarrýmisins. Þar verða nokkur sýnishorn úr safninu og gefst gestum tækifæri til á að fylgjast með þróun og vexti safnsins. Byggðasafnið Byggðasafnið að Görðum var stofnað árið 1959. Safnið varðveitir heildstætt safn muna, er tengjast búskaparháttum og þjóðlífi fyrri tíðar á Akranesi og í nærsveitum.. Meðal muna í Byggðasafninu er úrval sjóminja, skipslíkön, bifreiðir og ýmis áhöld er tilheyra fortíð og nútíð ásamt mörgum öðrum skemmtilegum hlutum. Að Görðum er einnig að finna elsta steinsteypta íbúðarhúsið á íslandi og kútter Sigurfara sem er eina varðveitta þilskipið hér á landi. Laugardaginn 14. júlf n.k. gefst Akurnesingum og öðrum gestum tækifæri á að skoða hið glæsilega safnasvæði að Görðum frá kl. 10:30 - 16:30. Safnasvæðið er einstakur ævintýraheimur fyrir unga sem aldna til skemmtunar og fróðleiks. Þann 27. júní s.l. var nýtt safnahús að Görðum tekið í notkun og kemur það til með að hýsa þrjár sýningar; Steinaríki íslands, sýningu Landmælinga íslands og sýningu um sögu íþrótta á Islandi ásamt glæsilegri veitingaaðstöðu. Prentum myndir af i ~ □ diskum og digital ra FRAMKÖLLUNARÞJÓNUSTAN EHF. BRÚARTORGI, 310 BORGARNESI - S. 437-1055

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.