Skessuhorn

Eksemplar

Skessuhorn - 23.08.2001, Side 15

Skessuhorn - 23.08.2001, Side 15
.avrffíiíic. oaCiSdUtlUiw. i<m v- v, j£ 'rj;'/d FLVLMTUDAGUR 23. AGUST 2001 fl 15 Það er spuming??? Munu KR-ingar falla ífyrstu deild? Matthías Sigurðsson, baðvörður - Að sjálfiögðu. Pétur J óhannsson, vélvirki - Þeir mimu falla. Jón Þór Hauksson, málari - Eg reibia ekki með því. Eygló Anna Sigurðardóttir, starfsmaður á sjúkrahúsi - Já, ég myndi segja það. Sigríður Valdimarsdóttir - Eg býst við því. Sturlaugur Sturlaugsson, aðstoðarframkvæmdastjóri - Nei, þaðfinvst mér ólíklegt. fÞRÖTTiR - IÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - IÞROTTIR - IÞROTTIR - IÞROTTIR - IÞROTTIR - IÞROTTIR Skagamenn styrkja stöðu sína á toppnum Hjörtur óstöðvandi í framlínunni Blikarnir lágu þrátt fyrir að vera einum fleiri Hjörtur Hjartarson átti stórleik gegn Blikum og skoraði þrennu. Óhætt er aö segja að fjórtánda umferð Símadeildarinnar í knatt- spyrnu hafi spilast eins og eftir pöntun frá stuðningsmönnum ÍA. Skagamenn unnu sinn fimmta sigur í röð í deildinni, þeirra helstu keppninautur á toppnum, Fylkir, fékk óvæntan skell gegn Fram og fyrir þá sem eru í eðli sínu kvikind- islegir þá töpuðu íslandsmeistarar KR enn og aftur og eru I miklu ströggli á botninum. Leikur Skagamanna og Breiða- bliks á Kópavogsvelli á sunnudag minnti svolítið á fyrri leik liðanna á Skaganum að því leyti að rigning og bleyta voru í stóru hlutverki þó ekki eins stóru og í fyrri leiknum sem ekki svo mjög sællar minning- ar var leikinn í slagviðri. Leikurinn fór rólega af stað með- an liðin voru að þreifa fyrir sér og greinilegt að hvorugt liðið ætlaði að taka óþarfa áhættu enda mikið í húfi. Þegar leið á fyrri hálfleikinn tóku Skagamenn hinsvegar leikinn í sínar hendur. Marktækifærin voru nokkur í upphafi leiks og Skaga- menn voru nálægt því að skora á 20. mínútu þegar Andri Karvelsson átti góðan skalla af löngu færi sem markvörður Blika varði með naum- indum. Skömmu síðar bjargaði Pálmi Flaraldsson á línu eftir að Þorsteinn Sveinsson skallaði að marki Skagamanna. Fyrsta markið kom á 28. mínútu þegar brotið var á Hirti Hjartarsyni í vítateig Blika eftir góða sókn Skagamanna. Hjörtur tók vítaspyrnuna sjálfur að vanda og skoraði af öryggi. Baldur með rautt S k a g a - menn réðu á- fram lögum og lofum í leiknum og á níundu mín- útu síðari hálf- leiks bætti Hjörtur öðru markinu við með skoti af stuttu færi eft- irsendingufrá Kára Steini Reynissyni og sigurinn virtist í höfn. Aðstæður breyttust hinsveg- ar skyndilega um miðjan síðari hálfleikinn þegar Baldri Aðalsteins- syni var vikið af leikvelli. Blikarnir voru fljótir að nýta sér lliðsmuninn og tóku um tíma öll völd á vellin- um. Þeir minnkuðu muninn á 79. mínútu með marki Harðar Bjarna- sonar og fimm mínútum síðar jafn- aði Kristján Óli Sigurðsson eftir slæm mistök í vörn ÍA en þar virtist hafa átt sér stað einhver misskiln- ingur milli Hjálms Dórs Hjálmsson- ar og Gunnlaugs Jónssonar. Þar með virtist sem tvö stig væru töp- uð en Hjörtur var ekki búinn að segja sitt síðasta orð. Skagamenn hristu af sér slenið eftir markið, þrátt fyrir að vera einum færri og sóttu stíft. Þremur mínútum fyrir leikslok átti Andri Karvelsson góð- an sprett á vinstri kantinum og renndi boltanum fyrir markið þar sem Hjörtur kom á fleygiferð og renndi boltanum snyrtilega fram hjá markverði Blika. Fyrsta þrenna Hjartar í efstu deild var þar með fullkomnuð. Þetta var ennfremur hans þrettánda mark í sumar og litlar líkur virðast á að neinn geti ógnað honum í baráttunni um markakóngstitilinn því næsti mað- ur er með átta mörk. Hjörtur átti stórleik í Kópavoginum á sunnu- dag því auk þess að skora þessi þrjú mörk var hann á fullu allan tímann og tók virkan þátt í varnar- leiknum eftir að Skagamenn lentu manni undir. Hjörtur var ótvírætt maður leiksins en aðrir Skaga- menn stóðu einnig fyrir sínu. Gunnlaugur, Reynir Leósson og Andri voru allir á tánum í vörninni. Kári Steinn var líflegur á miðjunni og Pálmi að vanda firnasterkur og vinnusamur. Þá kom Unnar Val- geirsson sterkur inn í síðari hálf- leik. Móðir en lítt sárir eftir hnífjafnan hildarleik Halifaxhreppur 1 - Útidyr 1 Þrátt fyrir að Faxar réðu lögum og lofum allan leiktímann gegn Úti- dyramönnum (Exeter) þá drógu þeir aðeins eitt stig í hús og er það með öllu óskiljanlegt. Eins og fyrir viku var hinn ný- höndlaði Stefán Svöluson (Steven Swales) á skóm skoti skeyttum. Stefán fór mikinn í vítateig Útdyr- unga en varnarþrælar þeirra hlupu á bak Stefáni og hjuggu til hans með mikilli öxi. Stefán snerist skjótt að þeim og laust þá við svo kom undir kverk. Hnutu varnar- menn þá frá og út á hliðarlínu. Útdyrungur nokkur leysti nú skó- þveng sinn og þóttist spyrna til knattarins. Þaut þá skórinn í átt að gagnauga Stefáni svo skjótt að þrír sýndust skórnir á lofti. Stefán Svöluson tók á lofti skóinn og þeytti aftur þegar svo fótabún- aður þessi fló í gegnum Nike- treyju Dyrungs milli 3. og 4. rifs og niður í völlinn. Kemur þá annar varnarjaxl óvinveittur æðandi til Stefáns og stefnir á fótinn fyrir neðan kné. Stefán hljóp í loft upp. Missir Dyrmaður hans. Leggur hann svo boltanum að markmanni og í gegnum hann. Var það vel því knattleikur þessi hafði hafist á hinn versta veg fyrir Halifaxmenn. Jómundur Ríkharðs- son (Jay Richardson) fyrrum leik- maður Sjaldséðra (Chelsea) en nú Útidyrakarl, olli því. Móðir Jó- mundar er fjölkunnug og hafði hún fyrir leikinn sungið seið all ófagran gegn Andrési Skógarverði (Andy Woodward) varnarkappa Faxa. Þegar Andrés hugðist stöðva framrás Jómundar þegar á fyrstu mínútu leiksins vildi ekki betur til en svo að kráka nokkur flaug (veg fyrir Jómund og dreit á völlinn. Jó- mundur steig í drit hennar og flaug þegar á hausinn. Krákan hló hátt og þóttust menn þar kenna móður Jómundar, sem óáreittur rölti fram völlinn og kom gestunum yfir, eitt núll. Hvort grætur þú? Andrési varð við þetta illa bylt, en kunni þó krók á móti kráku. Andr- és, sem kunnur er fyrir flest annað en að binda bagga sína sömu hnútum og samferðamennirnir, er maður kristinn. Hann signdi sig því í bak og fyrir og söng þrjár Maríu- bænir svo undir tók í stúkunni. Eft- ir það angraði hann engin óvættur. Eins og venjulega hallaði dómar- inn réttu máli í öllum sínum úr- skurðum og hafði af Föxum a.m.k. eina augljósa vítaspyrnu þegar Kristinn Kjaran (Chris Curran) hljóp ódrengilega á bak Páls Berg (Paul Stoneman), reif í hár honum og lét ófriðlega. „Hvort grætur þú nú, Páll“ gall þá við í Kristni. „Eigi er svo, en víst skal þér nú súrna um augu“ svaraði Páll og greip Kristin svo föstu hreðjataki að orð hans gengu kyrfilega eftir. Þá hlógu allir nema Kristinn. Faxar eru nú komnir með fjögur stig eftir tvo leiki og er það vel yfir tegruðu meðaltali fyrri ára. Það mun ekki heiglum hent að ganga gegn gæfu þeirra nú þegar vetur fer í hönd. JF/BMK Vænleg staða Skagamenn eru óneitanlega í vænlegri stöðu þegar fjórar um- ferðir eru eftir, með þriggja stiga forskot á næsta lið og mun betri markatölu. Það er hinsvegar Ijóst að allir leikirnir sem eftir eru verða erfiðir ekki síst þar sem síðustu tveir leikirnir eru gegn Fylki sem er í þriðja sæti og ÍBV sem er í öðru sæti. Þá er næsti leikur gegn Fröm- urum sem hafa verið á ótrúlegri siglingu að undanförnu og síðan eru það Grindvíkingar sem eru á- vallt erfiðir heim að sækja. Hið unga lið ÍA hefur hinsvegar sýnt það að undanförnu að það hefur það sem til þarf til að standast álag- ið og einhversstðaar stendur að viijinn sé allt sem þarf. GE Lokastaða íA riðli 3. deildar Féiag L U J T Mörk Stig 1 HK 15 12 3 0 57:12 39 2 Fjölnir 15 7 5 3 40:28 26 3 HSH 15 5 5 5 24:28 20 4 Barðastr. 15 6 1 8 38:39 19 5 Bruni 15 5 2 8 ?6:37 17 6 Úlfarnir 15 1 2 12 13:54 5 Staðan í Símadeildinni Félag L U J T Mörk Stig 1 ÍA 14 9 2 3 23:11 29 2 ÍBV 14 8 2 4 14:11 26 3 Fylkir 14 7 4 3 23:12 25 4 FH 14 7 4 3 17:13 25 5 Keflavík 14 5 4 5 21:21 19 6 Grindav. 13 6 0 7 19:23 18 7 Valur 14 5 2 7 16:21 17 8 Fram 14 5 1 8 21:21 16 9 KR 13 3 2 8 10:19 11 10 Breiðabl.14 3 1 10 14:26 10 Knattspyrnu- úrslit vikunnar 14. ágúst 4. fl. kk. 7 4 Skallagr. - Ægir 1:2-8 4. fl. kk. 7 A Skallagr. - Ægir 2: 7-2 3. deildkk.A HK - HSH 1-0 3. deild kk. A Fjölnir - Bruni 3-1 2. fl. kk. 4 ÍA - Keflavík 2-2 3. fl. kvk. A ÍA - Fjölnir 0-1 15. ágúst 4. fl. kk. A-lið C Afturelding Skallagrímur 1-2 3. fl. kk. C1 BÍ- HSH 4-1 4. fl. kk. A-liðA ÍA - Valur 12-0 4. fl. kk. B-lið A ÍA-Valur 11-0 3. fl. kk. A Fram - ÍA 1-1 17. ágúst 2. fl. kk. A FH-ÍA 0-4 5. fl. kk. A-lið L13 ÞórA. - ÍA 0-4 5. fl. kk. B-lið Ú3 ÞórA. - ÍA 1-7 18. ágúst 2. deild kk. Skallagr. - KÍB 3-2 3. fl. kk. C1 Skallagr. - BÍ 1-10 3. deild kk. 4 HSH - Barðastr. 3-1 3. deild kk. 4 Bruni - HK 0-9 5. fl. kk. A-lið Ú3 ÍA - Sindri 12-0 5. fl. kk. B-lið Ú3 ÍA - Sindri 10-0 19. ágúst 3. fl. kk. C1 HSH-BÍ 1-5 1. fl. kk. B Skallagr. - Haukar 3-4 Símadeild kk. Breiðablik - ÍA 2-3 2. fl. kvk. Bikar SV ÍA - Valur 0-6 5. fl. kk. A-lið L15 ÍA - Stjarnan 6-3 5. fl. kk. A-lið Ú5 ÍA - ÞórA. 3-3 5. fl. kk. B-lið Ú5 ÍA - Stjarnan 1-1 5. fl. kk. B-lið Ú5 ÍA - ÞórA. 5-2 3. fl. kk. 4 l'A-FH 4-2 Molar Hjörtur Hjartarson, Andri Kar- velsson, Sturla Guðlaugsson, Hjálmur Dór Hjálmsson og Eliert Jón Björnsson spiluðu allir sinn fyrsta Evrópuleik þegar að ÍA mætti Club Brugge fyrir hálfum mánuði. Síðari leikur liðanna er í kvöld. Frítt fyrir 16 ára og yngri. Knattspyrnusamband Evrópu (UEFA) hefur úrskurðað Hjálm Dór Hjálmsson í fjögurra leikja bann frá Evrópukeppninni í knatt- spyrnu fyrir brottreksturinn í fyrri leik ÍA og Club Brugge. Þessi dómur verður að teljast afar harð- ur þar sem að brot Hjálms var afar saklaust og varla verðskuld- að gult spjald, hvað þá rautt og fjögurra leikja bann. Dómurinn tekur gildi nú þegar og er Hjálmur þvi ekki löglegur með Skagaliðinu í leiknum í kvöld. Stjórn ÍA hefur ákveðið áfrýja dómnum ekki eftir að hafa ráðfært sig við menn inn- an UEFA sem tjáðu þeim að ef ÍA tapaði málinu gæti kostnaður við áfrýjunina orðið allt að 700 þús- und krónur. Þess má geta að þeir tveir leikmenn Brugge sem einnig voru reknir útaf í leiknum, annar fyrir olnbogaskot í andlitið á leik- manni ÍA, hlutu báðir þriggja leikja bann. Baldur Ingimar Aðalsteinsson var úrskurðaður í eins leiks bann af aganefnd KSÍ fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í leiknum gegn Breiðab/ik síðastliðinn sunnudag. Baldur verður því ekki með í næsta deildarleik Skaga- manna á mánudaginn þegar lið Fram kemur í heimsókn. Staðan í 2. deild Fétag L U J T Mörk Stig 1 Haukar 15 11 3 1 41:12 36 2 Aftureld. 1510 3 2 33:15 33 3 Sindri 15 9 2 4 18:8 29 4 Selfoss 15 6 4 5 28:22 22 5 Léttir 15 6 2 7 23:29 20 6 Leiknir R.15 4 5 6 25:25 17 7 Skallagr. 15 5 2 8 23:36 17 8 Víðir 15 4 4 7 18:27 16 9 Nökkvi 15 2 4 9 15:29 10 10 KÍB 15 3 1 11 25:46 10

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.