Skessuhorn - 01.11.2001, Side 5
Si^SSUWiOBKl
FIMMTUDAGUR 1. NOVEMBER 2001
5
Vatnshamrabraut opnuð
Hin nýja Vatnshamraleiö þykir býsnafalleg. Hér er séö eftir henni við Hest í átt að Hvanneyri.
Síðastliðinn föstudag var svoköll-
uð Vatnshamraleið í Borgarfirði
formlega opnuð af Sturlu Böðvars-
syni samgönguráðherra en leiðin
liggur frá Götuási við minni Lund-
arreykjadals og að Hvanneyri og
liggur nokkurn veginn í beina línu
frá bænum Hesti að Hvanneyri og
leysir af hólmi gömlu leiðina sem lá
fram hjá Hvítárvöllum. Með opnun
Vatnshamravegar styttist umrædd
leið verulega og er það því gífurleg
samgöngubót fyrir íbúa uppsveita
Borgarfjarðar og ferðamenn.
GE
Garðar
vekur
athygli
Garðar Bergmann Gunn-
laugsson, framherjinn ungi og
efhilegi hjá IA, hefur undanfarið
vakið athygli útsendara
nokkurra enskra liða sem hafa
séð hann með ungmennalands-
liði Islands skipað leikmönnum
19 ára og yngri. Islenska liðið
lék á dögunum æfingaleik í
Englandi þar sem Garðar þótti
standa sig vel og í kjölfarið hafa
mörg lið spurst fyrir um dreng-
inn. Ein þrjú úrvalsdeildarlið í
Englandi hafa verið nefnd í
þessu sambandi. Nú síðast
Bolton sem hefur boðið Garðari
út til æfinga í næstu viku. Eins
hefur lið Bjarka Gunnlaugsson-
ar, bróður Garðars, Preston
North End boðið honum til æf-
inga með samning í huga. Allt er
þetta þó enn á frumstigi og eng-
ar viðræður farnar í gang um
hugsanleg kaup á leikmannin-
um. Garðar segist sjálfur hafa
haft áhuga á því að dvelja er-
lendis í vetur við æfingar og
keppni og koma svo heim næsta
sumar og spila með IA en nýjar
félagsskiptareglur hjá Knatt-
spymusambandi Evrópu koma í
veg fyrir það. Nýju reglurnar
kveða á um það að leikmanni er
óheimilt skipta yfir í erlent félag
og aftur heim innan 12 mánaða
ffá fyrri félagaskiptunum. Garð-
ar þarf þó ekki að örvænta þó
hlutimir gangi ekki í gegn á
næstu mánuðum því hann er að-
eins 18 ára gamall og á eflaust
efdr að vekja athygli enn fleiri
liða með góðri ffammistöðu á
knattspymuvellinum.
HJH
Anægja með Tax firee daga
Tax free dagar voru haldnir á
Akranesi í annað sinn um síðast-
liðna helgi og eru þeir smám sam-
an að festa sig í sessi sem árlegur
viðburður í bæjarlífinu. Að sögn
Sævars Haukdal, talsmanns versl-
unareigenda á Akranesi og eiganda
Hljómsýnar, vom viðtökur góðar.
„Verslunareigendum sýnist sem
svo að orðið hafi aukning frá dög-
unum í fyrra enda vora viðtökur
mjög góðar og fólk almennt ánægt
með þetta í heildina. Eg á því ekki
von á öðm en að Tax free dagarn-
ir verði aftur að ári.“
SÓK
Sævar Haukdal
CLARINS
■PARIS'
Clarins kynning
verður á snyrtistofu Jennýjar Lind
föstudaginn 2. nóvember.
Kynning verður á Colour Symphony,
nýju vetrarlitunum.
Snyrtifræðingur verður á staðnum
og veitir faglega ráðgjöf.
Fallegar CLarins töskur
fyLgja með meðferðum.
Verið VeLkomin!
Draumur
ÍJturm-asrtofa uttl Ultta
tft
Dagskrá á vegum Snorrastofu í tilefni
pess að 70 ár eru liáin frá vígslu
Héraðsskólans í Reykholti
\augardaqinn 3. nóvember 2001
í Hátíoarsal gamla skólans
Dagskrá:
14:00 Bergur Þorgeirsson, forstöSumaður Snorrastofu:
Setning dagskrár
14:05 Ivar Jónsson, félagshaqfræSingur oa dósent viö
ViSskiptaháskólann á Bifröst: rHéraosskólarnir
í Ijósi nýrrar byggSastefnu
14:25 Jón Þórisson, lyrrv. kennari viS HéraSsskólann
í Reykholti: Stofnun Reykholtsskóla
15:00 Kaffihlé
15:15 GuSjón FriSriksson, sagnfræSingur: Jónas frá
Hriflu gg héraSsskólarnir
15:45 PallborSsumræSur
16:00 Dagskrá slitiS
Stjórnandi dagskrár: Þórunn Reykdal
Við hvetjum fólk til að koma í Reykholt og
taka þátt í áhugaverði dagslcrá.
Aðgangur ókeypis.
Kaffiveitingar.
Fjögurra herbergja íbúð til leigu
í neðribæ Borgamess
Laus strax
Upplýsingar í síma 892 1825
SNYRTISTOFA
JENNÝJAR LIND
Borgarbraut 3 • 310 Borgarnes
Sími 437 1076