Skessuhorn - 29.11.2001, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2001
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 23 Sími: 431 5040
Fax: 431 5041
Akranesi: Kírkjubraut 3 Sími: 431 4222
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
skessuhorn@skessuhorn.is
ritstjori@skessuhorn.is
sigrun@skessuhorn.is
smh@skessuhorn.is
hjortur@skessuhorn.is
augl@skessuhorn.is
Útgefondi: Tíðindamenn ehf 431 5040
Ritstjóri og ábm: Gísli Einarsson 892 4098
Blaðamenn: Sigrún Kristjánsd., Akranesi 862 1310
Sigurður Már, Snæfellsn. 865 9589
Auglýsingar: Hjörtur J. Hjartarson 864 3228
Prófarkalestur: Sigrún Ósk Kristjánsdóttir
Umbrot: Guðrán Björk Friðriksdóttir
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið át í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oa í lausasölu.
Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en kránur/50 sé greitt með greiðslukorti. Verð
í lausasölu er 250 kr.
431 5040
Smára-
lind
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Eitt af vandasamari verkefhum sem ég tek að mér, og þá ekki nema
tilneyddur, er að kaupa inn til heimliisins. Breytir þá engu hvort um
er að ræða matföng, álnavöru eða hverskonar gögn og gersemar aðr-
ar. Þessar aðgerðir kalla yfirleitt á mikil heilabrot og þegar ég þarf að
hugsa, sem er sem betur fer ekki oft, þá kallar það á umtalsvert svig-
rúm.
Eg er alinn upp við að versla í mínu kaupfélagi eða hjá kaupmann-
inum á hinu horninu og þar hef ég yfirleitt fengið næði til að stunda
mín innkaup í friði.Þar hef ég fengið allt það athafnafrelsi sem ég hef
þurft á að halda og verið auðsýnd tillitssemi í hvívema. Því vil ég
helst hvergi annarsstaðar versla en á heimavelli þar sem ég finn til ör-
yggistilfinningar.
Það er hinsvegar þannig með mína konu eins og flestar aðrar kon-
ur að það er ekki hlaupið að því að gera henni til hæfis og endrum og
sinnum kemur fyrir að hún girnist eitthvað sem ekki er til í kaupfé-
laginu eða hjá kaupmanninum og þá er ég undantekningarlaust send-
ur af stað suður í Reykjavíkurhrepp með innkaupalistann.
I verslunarmiðstöðvum Reykjavíkurhrepps gilda önnur lögmál en
í minni heimasveit þar sem öll dýrin í skóginum eru vinir. I verslun-
arffumskógi höfuðborgarinnar er það spurning um að drepa eða vera
drepinn, éta eða vera étinn, þar er það auga fyrir auga, tönn fyrir
tönn og engin griður gefinn. Þar er hvorki rými né næði til athafna
og eina hugsunin sem kemst að er að sleppa lifandi í burtu. Satt að
segja hef ég oftar en ekki verið hætt komin. Meðal annars varð ég
einu sinni fyrir barðinu á boldangskerlingu úr Breiðholtinu sem
beitti sér af alefli til að ná í síðasta pakkann af ollveis ultra í Bónusi
að hún ók troðfullri innkaupakerrunni á ólöglegum hraða á mig aft-
anverðan með þeim afleiðingum að ég skall á grústskítugu búðar-
gólfinu. Eg þurfti að beita allri þeirri karlmennsku sem ég hafði yfir
að ráða til að standa aftur á fætur en áður höfðu þrjár gildvaxnar hús-
mæður úr Grafarvogi hlaupið yfir mig endilangan.
Minnugur þessara hremminga og margra annara sem hér yrði of
langt mál að telja var það með hálfum huga sem ég fór í hina nýju
verslunarmiðstöð, SmáraLind í Kópavognum. Eg átti að sjálfsögðu
von á að þurfa þar að berjast fyrir lífi mínu rétt eins og annarsstaðar
en konuna langaði í nýjan uppþvottabursta og ýmislegt annað smá-
legt þannig að ég harkaði af mér.
Það kom hinsvegar á daginn að þessi nýja sjoppa var svarið við öll-
um mínum bænum. Loksins er komin verslunarmiðstöð bara fyrir
mig. Þúsundir fermetra handa mér einum, nægt rými til ígrundunar
og athugunar og ekki köttur á kreiki til að trufla hjá mér einbeiting-
una. Hvar sem ég fór um þetta flæmi var samstundis kominn hópur
af starfsfólki mér til aðstoðar enda greinilega langt síðan þarna hafði
sést til mannaferða. Eg gat hreinlega ekki hugsað mér betri aðstæð-
ur og það jaðrar hreinlega við að ég hafi losnað við mína krónísku
verslunarfælni.
Eg velti því að vísu fyrir mér hvort það sé arðbært að byggja og
reka verslunarmiðstöð af þessari stærðargráðu handa mér einum og
þótt ég hafi verslað fyrir umtalsverðar fjárhæðir í þessari einu ferð,
svona miðað við mín fjárlög, þá er ég ekki viss um að það hrökkvi al-
veg til að greiða laun og allan annan kostnað. Það er hinsvegar ekki
mitt vandamál og ég hvet eindregið til að byggðar verði fleiri slíkar
versunarmiðstöðvar því ekki þætti mér verra að hafa einkamagasín til
skiptanna næst þegar ég fer í bæinn.
Gtsli Einarsson, innkaupastjóri
Um helgina má segja að sést hafi
fyrsti vísirinn að vetri en þá setti
nokkurn snjó um allt land. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Vegagerð-
irmi spilltist færð víða á Vestur-
landi um og effir helgina. Bratta-
brekka lokaðist í gær (þriðjudag)
en búist var við að hún yrði opnuð
aftur í dag. Uxahryggjaleið er ófær
og verður ekki opnuð fyrr en í vor.
Þá var þungfært um Svínadal og
Fellsströnd í Dölum en þar var
rutt í morgun. Einnig var þæfings-
færð í uppsveitum Borgarfjarðar
og í Hvalfirði í gær en allar aðal-
leiðir hafa nú verið ruddar að sögn
Vegagerðarinnar.
GE
Þótt snjórinnfari óneytanlega í taugamar á mörgum vegfarendum þá vekur hann gleði
hjáyngri kynslóíinni sem tekur þá fram sín samgöngutæki sem eru sérhónnuí fyrir vetr-
arferðina. Mynd: smh
Osætti með skipulag Mastæða
við Skarðsbraut
Birgir Elínbergsson, íbúi við
Skarðsbraut 4, skrifaði nýverið bæj-
arstjórn Akraness bréf þess efnis að
hann væri ekki á eitt sáttur með
bílastæðamálin í kringum húsið sitt.
Birgi þykir bæjaryfirvöld ekki hafa
staðið vel að skipulagningu bíla-
stæðanna þegar íbúðarhúsin við
Garðabraut 3-5 voru byggð fyrir
nokkrum árum, en húsin standa
gegnt húsi Birgis. Skipulagsnefnd
Akraness ákvað fyrir nokkru að að-
eins væri leyfilegt að leggja öðru
megin gömnnar og því hefur á-
sóknin í auðu stæðin fyrir framan
hús Birgis aukist mjög. I samtali við
Skessuhorn sagði Birgir að eftir að
nýju húsin voru byggð hefur hann
átt í miklum erfiðleikum með að fá
stæði fyrir framan húsið sitt. „Þar
sem að innkeyrslan að bílskúrnum
hjá mér er mjög stutt stendur bíll-
inn minn hálfur útá gangstéttina
þegar ég legg bílnum í stæðið. Eg
hef því notast við stæðið sem er
beint fyrir utan húsið hjá mér. Þau
stæði eru núna sjaldnast auð og því
hef ég þurft að leggja bílnum mín-
um drjúgan spöl frá heimili mínu
og það finnst mér mjög bagalegt“.
Birgir segir að samkvæmt þeim
upplýsingum sem hann aflaði sér
hjá Skipulagsstofhun Ríkisins séu
bílastæðamálin við Garðabraut 3-5
ekki bara í ólestri heldur hugsan-
lega líka lögbrot. „Þeir hjá Skipu-
lagsstofnun sögðu mér að við bygg-
Á hluthafafundi sem haldinn var
í Islenska járnblendifélaginu hf. að
Grundartanga þriðjudaginn 27.
nóvember sl. var ákvörðun tekin
um að lækka hlutafé úr 1.762.900 í
440.720.000. Á stjómarfundi Jám-
blendifélagsins á Grundartanga
sama dag var tekin sú ákvörðun að
hækka hlutafé félagsins um kr.
650.000.000 að nafhvirði eða úr kr.
440.720.000 í kr. 1.090.720.000 og
að hlutabréfin yrðu seld á genginu
1,0.1 ákvörðun stjómar kemur ffam
að hlutafjárhækkonin sé framkvæmd
í þeim tilgangi að bæta eiginfjár-
stöðu félagsins. I kvöldfréttum Rík-
isútvarpsins sjónvarps á þriðjudags-
kvöld var greint ffá því að ríkið
hefði ákveðið að kaupa tilskilin
ingu íbúðar sem er að grunnfleti
stærri en 80 fm beri að reikna með
tveimur bílastæðum fyrir íbúðina.
Ibúðimar við Garðabraut 3-5 em
alls átta talsins og allar yfir 100 ffn
að stærð. Það em hinsvegar ekki
nema 10 bílastæði fyrir þessar íbúð-
ir en ættu samkvæmt lögum að vera
16. Ef mínar heimildir era réttar þá
standast ekki þær fullyrðingar bæj-
arstjórans að bílastæðamál innan
lóðar héma séu eftir settum reglum
en það sagði hann mér í bréfi sem
hann skrifaði mér“. Jón Pálmi
Pálsson, bæjarritari, sagði að það
væri ekki venjan að leita eftir áliti
einstakra íbúa þegar kemur að
skipulagsmálum bæjarins. „ Bæjar-
ráð vísaði erindi umrædds aðila til
hlutabréf í fyrirtækinu að upphæð
kr. 80.000.000 til að vemda hlut
þess í fyrirtækinu og koma þannig í
veg fyrir að norska fyrirtækið Elkem
gæti eignast 75 % hlut í fyrirtækinu
og gæti þar með gert það sem það
vildi við fyrirtækið. Rekstur Járn-
blendifélagsins á Grundartanga hef-
ur gengið erfiðlega að undanfömu
og kom ffam í viðtali við iðnaðar-
ráðherra, Sólveigu Pétursdóttur, í
Ríkissjónvarpinu að hún hafi óttast
það á tímabili að verksmiðjunni yrði
lokað en Elkem hefur verið að loka
sambærilegum verksmiðjum í Nor-
egi. Sagði ráðherra að þetta hefði
því verið mikilvægur varnarsigur í
því að halda rekstri fyrirtækisins á-
fram. smh
skipulagsnefndar sem taldi að rétt
hefði verið staðið að öllum málum
við skipulag þessa reits. Því telja
bæjaryfirvöld ekki ástæðu til að að-
hafast frekar í málinu að svo
stöddu.“ Birgir hyggst hinsvegar
ekki láta þar við sitja og hefur feng-
ið sér lögfræðing til að fara yfir
málið með sér. HJH
Betri afla-
brögð á
Vesturlandi
Á fyrstu tíu mánuðum þessa
árs var alls staðar aukning á
lönduðum afla á Vesturlandi
nema í Stykkishólmi miðað við
sama tíma í fyrra. Mesta hlut-
fallsaukningin er á Arnarstapa
en í byrjun nóvember hafði þar
verið landað 2.534 tonnum en á
sama tíma í fyrra 1.158 tonnum,
en það er um 119 % aukning. I
Ólafsvík hafði 16.458 tonnum
verið landað en 12.715 í fyrra. Á
Akranesi höfðu 112.575 tonn
borist á land á fyrstu tíu mánuð-
um ársins en í fyrra vom það
94.520. Á Rifi vom komin
10.140 tonn á land um sl. mán-
aðarmót en á sama tíma í fyrra
8.093. f Gmndarfirði var aukn-
ingin rúm 1.100 tonn eða
11.643 í fyrra á móti 12.803
núna.
Að sögn Bjöms Arnaldssonar,
hafnarstjóra í Snæfellsbæ, er
skýringin á þessari aukningu er
helst í aukin umferð um hafn-
irnar á Vesturlandi og almennt
góð aflabrögð.
smh
Vamarsigur fyrir
Grundartanga