Skessuhorn - 29.11.2001, Blaðsíða 15
siaíssiwfíoiæi
FIMMTUDAGUR 29. NOVEMBER 2001
15
Það er
spuming???
Ertþúfarinn að
hlakka tiljólanna?
(Spurt á Rifi)
Jón Guðmundsson:
„Já að Jálfsögðn, maðnr hlakkar
eiginlega allt árið tiljólanna. “
Krzysztof Arciszewski
(kemur frá Póllandi);
„Jú það er gaman á jólunum á
Islandi, þetta eru þriðjujólin mín
héma.
(Spurt á Hellissandi)
Sigfirid Andradóttir:
„Já, það verður mjög gott að slappa
af ájólunum og lesa góða bók. “
Kolbrún Eiríksdóttir:
„Já maður erfarinn aðfmnafyr-
ir tilhlökkun, sérstaklega þegar
maður hefitr farið nýlega til
Reykjavíkur því þar er víða búið
að skreyta. “
(Spun á Vegamótum í
Eyja- og Miklaholtshreppi)
Margrét Þórðardóttir:
„Já, mikið og það er svolítið síðan
égfór að hlakka til. “
Bryndís Jónasdóttir:
„Já, mikið. Eg hlakka alltaf tiljóla
því þá er Ijósadýrð, góður matwr á
borðum ogfjölskyldan saman. “
t
ÍPRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍPRÓTTIR -
Efnilegt kvennaliö Skallagríms. Fv. Hugrún Bjarnadóttir, Anna Sóley Birgisdóttlr, Gunnhildur Lind rHansdóttir, Hugrún Valdimarsdóttir, María Aradóttir, Martha Lind
Róbertsdóttir, íris Guömundsdóttir og íris Gunnarsdóttir.
Efnilegt stúlknalið Skallagríms í körfunni
Um síðustu helgi tóku stúlkur úr an komin 40 lið og eróhætt að segja
Skallagrími, fæddar‘90 og'91, þátt að Borgarnesstúlkumar hafi vakið
í minniboltgamóti sem Fjölnir í verðskuldaða athygli, bæði fýrir góð-
Grafarvogi stóð fyrir. Voru þar sam- an árangur, en þær unnu fjóra leiki
Hólmarinn Vignir
knapi ársins
Vignir Jónasson var kjörinn
knapi ársins á uppskeruhátíð
hestamanna sem fram fór á Hótel
íslandi þann 16. nóvember sl.
Eins og Skessuhorn greindi frá sl.
sumar þá vann Vignir, sem er bor-
inn og barnfæddur Hólmari, það
einstæða afrek að verða tvöfaldur
heimsmeistari á HM í Austurríki, í
fimmgangi og samanlögðu, og
fékk brons í gæðingaskeiði. Þá varð
hann íslandsmeistari í fimmgangi
og fékk hæstu einkunn í forkeppni
sem náðst hefur í þeirri grein hér-
lendis.
smh
Tímamótasigur Halifaxa
Krákur kom Föxum a bragöið
Eftir undraverða ósigurgöngu tókst
horskum höldum Halifaxhrepps að
klóra í bakkafullan lækinn og rífa sig
upp á rasshárunum þegar þeir
mættu hinu lítt árennilega liöi
Þurrkvíar (Torquay) sem er vinabær
Staðarfells í Dölum.
Það var Krákur frá Miðfossum
(Craig Middelton) sem kom Föxum á
bragðið og rifjaði upp þá fornu list að
skora mörk en verkþekking á því
sviði hafði nánast glatast í byggðar-
laginu. Umræddur atburður átti sér
stað á 57. mínútu en þá stóð Krákur
alltí einu óforvarendis andspænis
markverði Þurrkvíar, Katli Hjartar-
syni (Kevin Dearden) - (Það skal
tekið fram að hann er ekki bróðir
Hjartar Hjartarsonar, markaskorara
af Skaganum), einsömlum og með
glæsilegri gabbhreyfingu, vel undir-
búnum látbragðsleik og stuttu en
smellnu tónlistaratriði tókst Kráki að
rugla Ketil svo /' riminu að hann
hegðaði sér líkt og Finnbogi Bart-
skeri (Fabian Bartez) markvörður
Sameinaðra konubrjósta
(Manchester United).
Það reynist því Kráki næsta auðvelt
Jón sonur Feita Patreks
að koma knettinum ósködduðum í
netmöskva Þurrkvíunga.
Eftir að Halifaxar höfðu rutt í sig kök-
um og kornmeti hverskonar íleikhléi
komu þeir aftur til leiks fílefldir, sadd-
ir og sælir. Það var síðan Jón sonur
Feita Patreks (lan Fitzpatrick) sem
innsiglaði glæstan tímamótasigur
með bilmingsskoti sem hafnaði bak
við Ketil Hjartarson markvörð
Þurrkvíar.
Þetta var fyrsti deildarsigur Faxa
undir stjórn Alreks lága (Alan Little)
sem orðið hefur að lúta svo oft í gras
hann mun vera kominn með heiftar-
legt frjóofnæmi. GE
af fimm, og einnig fyrir útlitið en þær má að lokum geta að stúlkurnar fjár-
voru allar með fléttur í hárinu sem mögnuðu sjálfar þátttöku sína í mót-
þær lituðu í stíl við Skallagrímsbún- inu með ýmsum fjáröflunum. Þjálfari
inginn, þ.e. gular og grænar. Þess stúlknanna er Gunnar Jónsson.
Islendingur til
reynslu hjá Halifax
Þórarinn „bjargvættur“ Kristjánsson spilaði
með varaliði Halifax á mánudaginn.
Þórarinn B. Kristjánsson, leik-
maður Keflavíkur, spilaði á mánu-
daginn æfingaleik með varaliði Hali-
fax gegn Sheffield Wednesday.
Þórarinn dvaldi hjá Halifax í um
vikutíma við æfingar og leist ágæt-
lega á aðstæður. „Það var nú reynd-
ar ekki merkilegur bolti spilaður í
þessum leik en aðalliðið hefur þó á
ágætum leikmönnum að skipa.“ Á
opinbenri heimasíðu Halifax segir að
„Krisjonsson", eins og þeir kjósa að
kalla hann, hafi leikið fýrri hálfleik-
inn í leiknum og virtist lofa góðu.
Þórarinn lék alla leiki Keflavíkur á
síðasta tímabili og skoraði 9 mörk
sem tryggðu honum bronsskóinn.
Þórarinn vakti fyrst athygli fyrir
nokkrum árum þegar hann fékk við-
urnefnið „bjargvætturinn" en hann
hafði þá komið nokkrum sinnum
inná í leik með Keflavík og skorað
mikilvæg mörk á örlagastundu.
Þórarinn hélt frá Halifax til
Skotlands á þriðjudaginn þar sem
hann mun reyna sig hjá þarlendu
liði. Aðspurður um möguleikana á
því að hann gerist leikmaður Halifax
í framtíðinni sagði Þórarinn að minni
líkur væru til þess heldur en meiri.
„Það hefur lítið heyrst ffá forsvars-
mönnum Halifax og því tel ég að
ekkert frekar gerist i málinu að svo
stöddu." HJH