Skessuhorn - 10.01.2002, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2002
SKgssiniOisíS
Stykkishólmur
Slökkviliðið og
björgunarsveit
undir sama þak
A síðasta bæjarráðsfundi
Stykkishólms þann 3. janúar sl.
voru lögð fram bréf Vinnueftir-
lits ríkisins og Brunamálastofn-
unar vegna húsnæðis Björgun-
arsveitarinnar Berserkja í
Stykkishólmi, að Nesvegi 3,
sem nú styttist óðum í að verði
fokhelt. I kjölfarið hefur bæjar-
ráð Stykkishólms samþykkt að
fela bæjarstjóra, Ola Jóni
Gunnarssyni, að gera samning
um kaup eða leigu á húsnæði
fyrir slökkviliðið í bænum. Eins
og komið hefur fram í Skessu-
horni hafa viðræður um að
slökkviliðið deili húsnæðinu að
Nesvegi 3 með björgunarsveit-
inni átt sér stað síðan ráðist var
í byggingu hússins. Oli Jón
sagðist í samtali við Skessuhorn
reikna með því, ef allt gengi
effir, að hann gæti lagt samning
um framtíðarstaðsetningu
slökkviliðsins á fundi bæjar-
stjómar 17. janúar næstkom-
andi. Þorbergur Bæringsson,
slökkviliðsstjóri í Stykkishólmi,
hafði á bæjarráðsfundi lýst yfir
vilja sínum til að fara með
slökkviliðið inn í bygginguna
yrðu matskýrslur fyrrnefndra
stofnana jákvæðar. Að sögn
Þorbergs hefur ekki verið rætt
við hann nýlega um málavexti
og vildi hann því ekki tjá sig um
málið að svo stöddu.
smh
Sýslumannsembættið
á SnæfeUsnesi
Laus staða yfir-
lögregluþjóns
Þann 1. janúar sl. varð form-
lega Iaus staða yfirlögregluþjóns
hjá sýslumannsembættinu á
Snæfellsnesi. Fráfarandi yfirlög-
regluþjónn er Eðvarð Amason,
en hann baðst sjálfur lausnar ffá
störfum fyrir nokkra og var
staðan ómönnuð í nokkurn tíma
á síðasta ári. Að sögn sýslu-
mannsins á Snæfellsnesi, Olafs
Olafssonar, mun staðan verða
auglýst laus til umsóknar á allra
næstu vikum.
smh
Loftorka og Sól-
fell byggja fyrir
Bifrestinga
Munnlegt samkomulag hefur
tekist með Viðskiptaháskólanum
á Bifföst og Loftbrku í Borgar-
nesi um byggingu nýrra nem-
endagarða fyrir skólann og er
þar um 14-16 fjölskylduíbúðir í
tveggja hæða fjölbýlishúsi að
ræða. Að sögn Runólfs Agústs-
sonar, rektors, mun verða geng-
ið formlega frá samningum á
næstu dögum og ffamkvæmdir
strax í kjölfarið. Aður hefur
skólinn samið við Sólfell um
byggingu á tveggja hæða fjölbýli
með einstaklingsíbúðum. Run-
ólfur segir að samtals muni þess-
ar byggingar hýsa um 40 manns
og mæta þannig húsnæðisefrir-
spurninni fyrir næsta skólaár, en
áætlað er að þessar framkvæmd-
ir kosti um 200 milljónir króna.
smh
Stjóm Verkalýðsfélags Borgamess telur
aðkomu Norðlenska með eindæmum
Á stjómarfundi Verkalýðsfélags
Borgamess 3. janúar 2002 var að-
almálið á dagskrá umfjöllun og
skoðun á starffækslu sláturhúss
og kjötvinnslu í Borgamesi. I
fréttatilkynmngu frá félaginu seg-
ir. "Hér í þessu tnikla Iandbúnað-
arhéraði hefur tun margra áratuga
skeið verið rekið sláturhús og
kjötvinnsla. Við Borgfirðingum
blasir nú sú staðreynd að Norð-
lenska matborðið ehf. lauk síðasta
starfeári með því að segja upp öll-
um starfemönnum fyrirtækisins í
Borgamesi, samtals 37 manns."
Með eindæmum
Stjómarmenn vora á einu máli um
það að aðkoma Norðlenska mat-
borðsins ehf. hafi verið með ein-
dæmum. í fréttatilkynningunni seg-
ir: "Þetta fyrirtæki, sem mvm að
stofrii til vera í eigu Kaupfélags Ey-
firðinga eða afkomenda þess, tók yfir
rekstur stórgripasláturhúss og kjöt-
vinnslu fyrir hálfu ári síðan og gerði
þá bindandi 3ja ára leigusamning við
Goða (Kjötumboðið) eftir úttekt á
húsnæði og tækjum. Því er ekki ó-
eðlilegt að spurt sé hvað hafi breyst á
þessu ca. 6 mánaða tímabili: Hefrir á-
stand húsnæðisins versnað svo snar-
lega við komu Norðlenska að ekki er
lengur unnt að reka hér kjötiðnað?
Er það komið í ljós á þessum stutta
tíma að starfeemin hér í Borgamesi
valdi þessum mikla hallarekstri sem í
reynd virðist vera á heildarrekstri
norðanmanna til margra ára, a.m.k. í
þessari grein? Eða er það kannski
stefria norðanmanna að hér í Borgar-
nesi, í næsta nágrennis aðalmarkaðs-
svæðis landsins, leggist af allur kjöt-
iðnaður til að minnka val neytenda
enn ffekar varðandi kjötvörur?"
Ályktun
I lok stjómarfundarins var eftirfar-
andi ályktun samþykkt einróma:
"Stjóm Verkalýðsfélags Borgamess
harmar lítt grundaðar uppsagnir alls
starfefólks Norðlenska matborðsins
ehf. í Borgamesi í lok nýliðins árs.
Jafriffamt fagnar stjómin jákvæð-
um og skjótum viðbrögðum heima-
aðila við vandanum sem þessar upp-
sagnir hafa í för með sér og vonar að
sú vinna sem farin er í gang leiði það
af sér að hér verði áffam rekin slátr-
un og öflugur kjötiðnaður."
GE
Margar kenntiöliir á fáum árum
Um nokkurt skeið hefur ríkt ó-
vissa um framtíð kjötvinnslu í
Borgamesi og hefur þessi atvinnu-
grein lengi átt erfitt uppdráttar
þrátt fyrir að vera einn af aðal at-
vinnuvegum bæjarins. Á síðustu
áram hefur ítrekað verið reynt að
snúa þeirri þróun við og byggja at-
vinnugreinina upp en án árangurs.
Allnokkur fyrirtæki hafa haft
með reksmr afurðastöðvanna í
Borgamesi að gera þótt Kaupfélag
Borgfirðinga hafi lengst af verið
stærsti eigandi þeirra. Til glöggv-
unar fyrir lesendur er eigendasag-
an hér rifjuð upp í örstutw máli.
GE
1920: Sláturfelag Borgfirðinga stofriað.
1930: Sláturfélag Borgfirðinga sameinast Kaupfélagi Borgfirðinga.
1993: Afurðasala Borgamess sem var í eigu KB, Borgarbyggðar og bænda tekur við rekstri sláturhúsa og kjötvinnslu
KB.
1998 (janúar) Þrjú hlutafélög stofriuð um rekstur Afurðasölunnar. Borgames kjötvörur yfirtaka kjötvinnslu. Sláturfé-
lagið Brákarey tekur yfir slátrun. AB mjöl tekur yfir kjötmjölsverksmiðju. KB átti allt hlutafé í öllum þessum hlutafélög-
um. Afurðasala Borgamess er áfram til sem eignarhaldsfélag og á fasteignir sem tilheyra slátrun og vinnslu í Brákarey
1998 (ágúst) Sláturfélag Vesturlands (I eigu Norðvesturbandalagsins, KB ofl.) yfitekur slátrun sauðfjár og stórgripa í
Brákari.
1999: Afurðasala Borgamess fer í nauðarsamninga og nafrii hennar er breytt í Eignarhaldsfélagið Brákarey..
2000 (1. júlí) Eignarhaldsfélagið Brákarey og Borgames kjötvörur sameinast inn í Goða. Sláturfélag Vesturlands sam-
einaðist hinsvegar aldrei Goða hf en Goði eignaðist öll hlutabréf í félaginu. AB mjöl var áfram í eigu KB.
2001 (júlí) Norðlenska matborðið leigir stórgripasláturhús og kjötvinnsluna í Brákarey af Goða hf. og yfirtekur rekst-
urinn.
2001. (september) Kaupfélag Borgfirðinga leigir rekstur sauðfjárslámrhúss af Kjötumboðinu hf. Sem áður hét Goði
hf.
2001 (30. desember) Norðlenska matborðið segir upp öllum starfemönnum kjötvinnslu og stórgripasláturhúss í Borg-
amesi. Alls 37 manns.
2002 ????
Enn óvíst hver eignast Sælingsdalstungu
Engin rök fyrir að
neyta forkaupsréttar
segir Guðjón Smári Agnarsson
Eins og Skessuhom sagði frá fyrir
skömmu tapaði Dalabyggð máli
fyrir Héraðsdómi Vesturlands þar
sem úrskurðað var um réttmæti
þess að nýta forkaupsrétt vegna
sölu á jörðinni SælingsdalsWngu í
Sælingsdal. Komst héraðsdómur
að þeirri niðurstöðu að sveitarfé-
Iagið hefði ekki verið í rétti til að
nýta þann forkaupsrétt sem sveit-
aifélögum er áskilinn. I samtali við
Skessuhom s.l. mánudag sagði
Haraldur Líndal sveitarstjóri
Dalabyggðar að eklri hefði enn
verið tekin ákvörðim um hvort
málinu yrði áfirýjað til Hæstaréttar.
Væri löngu fluttur
Guðjón Smári Agnarsson bóksali í
Reykjavík hafði gert samning um
kaup á jörðinni þegar Dalabyggð á-
kvað að neyta forkaupsréttar. Hann
sætti sig ekki við þau rök að það þjón-
aði hagsmunum byggðarlagsins að
sveitarfélagið eignaðist jörðina en
hann ekki. Dalabyggð greip inn í
eðlileg fasteignaviðskipti á ffjálsum
markaði. Hann skaut því málinu fyr-
ir dómstóla eftir að landbúnaðar-
ráðuneytið hafði úrskurðað Dala-
byggð í vil. "Við gerðum strax í upp-
hafi grein fyrir okkar áformum sem
era að rækta þama skóg og stunda
jarðrækt ásamt ferðaþjónusw. Við
gerðum einnig grein fyrir því að við
ætluðum að eiga þarna heimili
þannig að ég fæ ekki skilið hvemig
það á að þjóna frekar hagsmunum
byggðarinnar að sveitarfélagið kaupi
jörðina og brytji niður í sumarbú-
staðalóðir eins og sveitarstjóm hefrir
áformað," segir Guðjón Smári. "Lög
um forkaupsrétt sveitarfélaga eiga að
mínu viti að hafa þann tilgang að
tryggja ef hægt er að jarðir séu í
byggð og nýttar á eðlilegan hátt. Við
ætluðum að búa þama og life af því
sem jörðin gefur en höftim jafriffamt
aðra möguleika til að stunda atvinnu
og færðum gild rök fyrir því. Ég hélt
að það þjónaði hagsmunum sveitar-
félagsins að þangað flytjist fólk. Eg
veit ekki betur en það hafi verið um-
talsverð fólksfækkun í Dalabyggð á
undanfömum árum og ég hélt að
menn vildu snúa þeirri þrótm við en
það virðist ekki vera."
Ekki hættur við
Guðjón Smári segir að hann hafi
enn í hyggju að flytja vestur eftir að
kaupin eru frágengin. "Við hefðum
flutt síðasta vor ef þessi málaferli
hefðu ekki komið til og höfðum gert
okkar áætlanir miðað við það. Við
ætlum enn að flytja og áffýi Dala-
byggð málinu ekki steftium við að því
að flytja í sumar. Ef Dalabyggð á-
kveður hinsvegar að áfrýja þá tefet
það enn frekar og óvíst hvort málið
verður til lykta leitt fyrr en seint á
þessu ári eða byrjun þess næsta.
Sennilega tefur það fyrir okkur um
eitt ár í viðbót. Við vonum hinsveg-
ar það besta," segir Smári.
Dalir
Sameiningar-
nefnd skilar
af sér
Nefnd sem skipuð var af
Dalabyggð, Saurbæjarhreppi og
Reykhólasveit til að kanna
grandvöll fyrir sameiningu þess-
ara sveitarfélaga hélt sinn síðasta
fund í gær og lagði fram tillögur
til viðkomandi sveitarstjórna.
Nefndin leggur til að gengið
verði til kosninga meðal íbúa
sveitarfélaganna innan tíðar um
hvort sameina skuli sveitarfélög-
in. Það kemur síðan í hlut hverr-
ar sveitarstjórnar fyrir sig að
taka afstöðu til þess en ekki
verður búið að funda í öllum
sveitarstjómunum fyrr en í lok
mánaðarins.
GE
Þunga-
takmarkanir
Það er frekar óvenjulegt að
þungatakmarkanir séu á vegum
á þessum árstíma en samkvæmt
upplýsingum ffá lögreglunni í
Borgamesi hefur að undanfömu
verið strangt eftirlit með að þær
séu virtar þar sem vegir hafe
víða spillst vegna bleyW. Þá hef-
ur úrfellið síðusw daga og vilcur
valdið skemmdum í malbiki á
stöku stað og að sögn lögreglu
bárust fjórar tilkynningar um
tjón á bílum vegna skemmda í
malbiki við Grundartanga um
helgina.
GE
Sjúkrahús
Akraness fær
íbúð í arf
Sjúkrahús Akraness hefur
fengið íbúð að Höfðabraut 8 á
Akranesi í arf ffá Sigurði Péwrs-
syni, en hann lést þann 22. sept-
ember á síðasta ári. Sigurður á-
nafriaði arfinum sérstaklega til
uppbyggingar fæðinga- og
kvensjúkdómadeildar. Með í-
búðinni fylgir biffeiðageymsla
að Höfðabraut 12a.
Var skiptayfirlýsing, dagsett
21. nóvember 2001, lögð ffam á
fundi stjómar Sjúkrahússins og
heilsugæslustöðvarinnar á Akra-
nesi þriðjudaginn 18. desember
2001.
Stjóm sjúkrahússins hefur á-
kveðið að bjóða aðstandendum
Sigurðar til móttöku til að tjá
þakklæti sitt og virðingu.
smh
Unnið að stofn-
un kjötvinnslu
Eins og fram kom í síðasta
tölublaði Skessuhoms var að
framkvæði Verkalýðsfélags
Borgamess stoftiaður vinnuhóp-
ur til að skoða og móta hug-
myndir um áffamhaldandi starf-
rækslu kjötvinnslu í Borgamesi.
Atvinnuráðgjöf Veswrlands
stýrir þeirri vinnu og að sögn
Hrefriu B. Jónsdótwr atvinnu-
ráðgjafa hafa verið stöðug fund-
arhöld í gangi og standa vonir til
að innan fárra daga verði hægt
að leggja fram tillögur um hugs-
anlega stofnun fyrirtækis. Hún
sagði hinsvegar að enn væri of
snemmt að segja til af eða á
hvort grundvöllur væri fyrir
slíku eða í hvaða formi slíkt
fyrirtæki gæti orðið.
GE